Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Grimmi og Snar - Trump ekki með mömmusár
    Talnaspekingurinn Estrid Þorvaldsdóttir segir okkur frá vatnaspeki sem er stunduð á Sardiníu og kíkir í tölurnar hjá Kötu, Kristrúnu og nokkrum körlum.
    Grimmi og Snar er hasarþáttur með frænkunum Ingibjörgu Magnadóttur, Köru Guðmundsdóttur og fleirum.
    1 hr 7 min
  • Rauða borðið 25. jan - Stéttabarátta og hælisleitendur
    Fimmtudagurinn 25. janúar
    Stéttabarátta og hælisleitendur
    Sólveig Anna Jónsdóttir kemur að Rauða borðinu og lýsir stöðunni í kjaraviðræðum. Hafa fyrirtækjaeigendur skipt um kúrs? Eru verkföll fram undan? Vilja stjórnvöld nota Grindavík til að draga úr launakröfum? Við höldum áfram að ræða málefni hælisleitenda og innflytjenda af gefnu tilefni. Nú koma þau Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, og Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og skiptast á skoðunum um stöðu hælisleitenda, umræðuna um málaflokkinn, stöðu innviða og grunnkerfa, glæpi og allskonar sem blandast þeirri umræðu.
    2 hr 33 min
  • Maður lifandi - Fréttamennska þá og nú
    Í þætti vikunnar af Maður lifandi verður ítarlegt spjall við Kára Jónasson, fyrrum fréttastjóra Rúv. Fréttamennska á Íslandi er sögð í krísu. Við fjöllum um það. Þá ber ungt fólk á góma þá og nú sem og hagsmuni þess og hugðarefni
    1 hr 6 min
  • Rauða borðið 24. jan - Hælisleitendur, Gaza og auðlindirnar okkar
    Miðvikudagurinn 24. janúar
    Hælisleitendur, Gaza og auðlindirnar okkar
    Þingmennirnir Jón Gunnarsson frá Sjálfstæðisflokknum og Björn Leví Gunnarsson Pírati deila við Rauða borðið um hælisleitendur og innflytjendur, en líklega eru þeir sitthvor endinn á deilunum í þingsal um þessi mál. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur lýsir stöðunni á Gaza og metur hvert sú hörmung getur leitt. Í lokin kemur Indriði Þorláksson og fjallar um Auðlindina okkar, nefndarvinnu sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra stóð fyrir.
    2 hr 14 min
  • Rauða borðið 23. jan - Innflytjendamál, háskólar og Bíó Palestína
    Þriðjudagurinn 23. janúar
    Innflytjendamál, háskólar og bíó Palestína
    Innflytjendamál er sannarlega komin á dagskrá þjóðmálanna, ofan á öll óleystu vandamálin. Þingfólkið Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Pírati, Bergþór Ólason frá Miðflokknum og Sigmar Guðmundsson frá Viðreisn koma að Rauða borðinu og ræða málin. Það gera líka Guðbjörn Guðbjörnsson, formaður Tollstjórafélagsins og stjórnsýslufræðingur, Hallur Magnússon sem rekur fyrirtæki í byggingabransanum og Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International. Þeir spá í áhrifin af útspili Bjarna Benediktssonar á stjórnmálin. Það stendur til að sameina háskólana á Bifröst og Akureyri og um það eru ekki allir sáttir. Grétar Þór Eyþórsson deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir deildarforseti félagsvísindadeildar á Bifröst skiptast á skoðunum. Í lokin kemur Esther Bíbí Ásgeirsdóttir umsjónarkona Bíóteks Kvikmyndasafnsins og segir okkur frá palestínskum bíómyndum sem hún ætlar að sýna í Bíó Paradís.
    2 hr 50 min
  • Rauða borðið 22. jan - Aðgerðaáætlun, rasismi og útlendir fangar
    Mánudagurinn 22. janúar
    Aðgerðaáætlun, rasismi og útlendir fangar
    Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og Páll Valur Björnsson kennari koma að Rauða borðinu og gera upp aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar til að tryggja öryggi Grindvíkinga. Er þetta nóg? Eða nógu skýrt? Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur ræðir um rasisma á Íslandi í tilefni af Facebook-færslu Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins þar sem hann sagði mótmælastöðu fólks frá Palestínu á Austurvelli vera hörmungin ein. Í lokin kemur Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og fjallar um erlenda fanga í íslenskum fangelsum, en um fjölda þeirra hefur verið fjallað í umræðunni og bent á sem dæmi um varasamar afleiðingar fjölgunar innflytjenda
    2 hr 49 min
  • Rauður raunveruleiki - Árásir á Jemen, stigmagnandi stríð
    Bandaríkin og Bretland hafa varpað sprengjum á Jemen minnst sex sinnum á síðustu tíu dögum. Þetta gera þeir til þess að „vernda alþjóðlegar flutningaleiðir“ frá banni Jemens á umgangi ísraelskra skipa í gegnum Rauðahafið
    Í Rauðum raunveruleika kvöldsins ætlum við að fjalla um þessar árásir Bandaríkjamanna og Breta á Jemen, um tilkomu Húta eða Ansar Allah eins og þau kalla sig. Um grimmilegt stríð Sádí Arabíu og Bandaríkjanna gegn byltingu Jemens 2014 sem hefur drepið 377.000 manns, þar af 70% börn. Og um hvert þetta gæti allt verið að stefna.
    Bein útsending hefst klukkan 18:00 á Samstöðinni
    41 min
  • Synir Egils: Hamfarir, stjórnarkreppa og samfélag
    Sunnudagurinn 21. janúar
    Synir Egils: Hamfarir, stjórnarkreppa og samfélag
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir starfsmaður Alþýðusambandsins og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og ræða fordæmalausa stöðu. Ríkisstjórn með innanmein frammi fyrir risastórum verkefnum; hamförum, flóttafólki, kjarasamningum, húsnæðiskreppu, verðbólgu og efnahagslegri óvissu. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni en á eftir munu þeir fá til sín gesti til að ræða stöðuna í Grindavík út frá öðrum sjónarhornum en jarðfræðilegum og verkfræðilegum. Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur og íbúi í Grindavík, Sigrún Ólafsdóttir prófessor í félagsfræði og Þórólfur Matthíasson prófessor í hagfræði ræða Grindavík, samfélag í upplausn, stöðu fjölskyldna og getu og vilja ríkisvaldsins til að finna réttar lausnir og fylgja þeim eftir.
    2 hr 21 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners