Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 12. feb - Flóttafólk, hugvíkkandi efni, biskupskjör og deilurnar um MÍR
    Mánudagurinn 12. febrúar
    Flóttafólk, hugvíkkandi efni, biskupskjör og deilurnar um MÍR
    Við fáum Helen Ólafsdóttur Öryggisráðgjafa til að draga upp mynd af flóttafólki, hvaða fólk þetta er, hvar það er, hvert það ætlar og til hvers? Og hvaða áhrif fólkið hefur á löndin sem það sækir heim. Lilja Sif Þorsteinsdóttir sálfræðingur fjallar um það sem hún kallar hugbirtandi lyf, sem nú eru í mikilli tísku á Íslandi þótt notkun þeirra stangist á við lög. Guðmundur Karl Brynjarsson prestur í Lindakirkju er einn þeirra presta sem vill verða biskup. Við ræðum við hann um samfélagið, kirkjuna og kristni og hvers konar biskup hann vill verða. Það er deilt um MÍR fyrir héraðsdómi eins og við fjölluðum um í viðtali um daginn við fólk sem var ósátt um ákvarðanir stjórnar. Í kvöld mæta stjórnarmenn í MÍR, Sigurður H. Einarsson og Einar Bragason, og svara fyrir sig.
    3 hr 6 min
  • Synir Egils: Náttúrhamfarir, hælisleitendur og staða ríkissjóðs
    Sunnudagurinn 11. febrúar
    Synir Egils: Náttúrhamfarir, hælisleitendur og staða ríkissjóðs
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Ingvar Smári Birgisson lögmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Jóhann Páll Jóhansson þingmaður og ræða fréttir vikunnar en líka stöðuna í stjórnmálunum. Þeir bræður taka stöðuna á þingi og fá svo Hrafnkel Ásólf Proppé skipulagsfræðing, Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing og Pál Einarsson jarðfræðing til að ræða áhrif náttúrvár á skipulagsmál.
    2 hr 14 min
  • Mótmæli í morgunmat - Réttlætisbarátta Kúrda
    Í Friðarviðræðum Mótmæla í morgunmat ræðum við um réttlætisbaráttu Kúrda við Ögmund Jónasson sem er nýkominn heim frá kúrdíska sjálfsstjórnarsvæðinu í Írak. Hann vitnar í leiðsögumann kúrdísku andspyrnunnar, Öcalan, sem hefur setið í fangelsi í um þrjátíu ár á Imrali-eyju á Marmarahafi og sagði að við kynnum vissulega að berjast í stríðum en nú yrðum við að láta reyna á samningahæfni okkar og berjast fyrir friðarviðræðum, ekki bara fyrir Kúrda heldur heiminn allan.
    52 min
  • Heimsmyndir - Karen Kjartansdóttir
    Gestur þáttarins er Karen Kjartansdóttir athafnakona og hugsjónamanneskja. Þau Kristinn ræddu hvað það merkir að vera trúlaus en finna guðdóminn í einhverju, eins og Karen hafði komið inn á í nýlegri grein. Þau ræddu auk þess samskipti við pólitíska andstæðinga og hvernig maður finnur því farveg að taka sjálfa/n sig ekki of alvarlega þótt mikið gangi á.
    43 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 06
    Föstudagurinn 9. febrúar
    Vikuskammtur: Vika 06
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Dóra Ísleifsdóttir grafískur hönnuður, Hallveig Rúnarsdóttir söngkona, Eyrún Magnúsdóttir blaðakona og Björn Brynjúlfur Björnsson leikstjóri og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af hamförum, hetjulegri björg, sigrum, harðnandi deilum, ógnargróða og kulda.
    1 hr 42 min
  • Rauða borðið 8. feb - Reykjaneseldar
    Fimmtudagurinn 8. febrúar
    Reykjaneseldar
    Rauða borð kvöldsins verður tileinkað að mestu eldsumbrotum á Reykjanesi og afleiðingum þeirra. Við ræðum við Pál Þorbjörnsson fasteignasala frá Grindavík sem nú býr í Reykjanesbæ, þar sem er heitavatnslaust. Páll Valur Björnsson hefur líka verið á flótta frá í nóvember og segir okkur hvaða áhrif Reykjaneseldar hafa á fólk. Við fáum Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing til að greina stöðuna og sláum á þráðinn til fólks í Reykjanesbæ: Hilmar Braga Bárðarson fréttastjóra Víkurfrétta og Sigurjóns Magnúsar Egilsson blaðamanns sem býr í Njarðvík. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri kemur í þáttinn eftir fund með almannavörnum og lýsir áföllum dagsins og til hvaða aðgerða verður gripið. Vilhjálmur Árnason þingmaður Grindvíkinga fer yfir hvað pólitíkin og stjórnvöld þurfa að gera.
    2 hr 28 min
  • Maður lifandi - Mun ungt fólk flýja Ísland
    Mun ungt fólk flýja Ísland? Atgervisflótti (brain drain) ógnar íslensku samfélagi vegna vanda við húsnæðiskaup hér á landi og fleira. Ungir Íslendingar sem standa á krossgötum hvað menntun og búsetu varðar horfa á heiminn allan sem búsetukost, ólíkt því sem kannski var þegar Íslendingar voru fangar í eigin landi. Þetta kemur fram í þættinum Maður lifandi sem sýndur verður klukkan 16. Starkaður og Björn ræða í þættinum mörg brennandi álitaefni sem varða framtíð ungs fólks en einnig verður slegið á léttari strengi.
    56 min
  • Rauða borðið 7. feb - Björgun barna, útlendingaandúð, mislingar og Ástþór
    Miðvikudagurinn 7. febrúar
    Björgun barna, útlendingaandúð, mislingar og Ástþór
    Við byrjum á því að slá á þráðinn til Kairó þar sem rithöfundarnir Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Kristín Eiríksdóttir og blaðakonan María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp hafa heimt móður og þrjú börn hennar af Gaza. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði ræðir áhrif hælisleitenda og innflytjenda á stjórnmál í Evrópu og hér hema. Erla Dóris Halldórsdóttir sagnfræðingur og hjúkrunarfræðingur segir okkur síðan frá mislingum, berklum, holdsveiki og öðrum skæðum pestum. Í lokin kemur Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi að Rauða borðinu og segir frá sér, framboði sínu, stefnu og sýnum.
    3 hr 39 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners