Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Synir Egils 10. mars: Kjaramál, útlendingar, deilur og Islam
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona, Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur og Kristinn Hrafnsson blaðamaður og fara yfir fréttirnar og stöðu mála. Þeir bræður taka síðan púlsinn á pólitíkinni en fá síðan þá Kristján Þór Sigurðsson, sem skrifaði doktorsritgerð um Islamska samfélagið á Íslandi, og Hauk Þór Þorvarðarson, sem skrifaði meistararitgerð um Islamófóbíu, til að ræða um Islamófóbíu og áhrif hennar á íslenskt samfélag, einstaklingana og stefnu stjórnvalda.
    2 hr 44 min
  • Mótmæli í morgunmat - Afneitun á orsök dauða
    Mótmæli í morgunmat 10. mars
    Í minningu hestanna
    Ragnheiður Þorgrímsdóttir, bóndi, kennari og formaður umhverfisvaktarinnar er ekki af baki dottin í réttlætisbaráttu sinni; Hún hefur barist fyrir því um áraraðir að hross hennar fái að njóta vafans -og raunar við öll- gagnvart gríðarlegri mengun stóriðjunnar á Grundartanga Ágústa Oddsdóttir kennari og myndlstarkona er með Ragnheiði í stjórn Umhverfisvaktar Hvalfjarðar og hefur líks barist fyrir náttúruvernd í mörg ár. Þær koma í Friðarviðræður og segja söguna af öllum hrossunum sem dóu vegna aðgerðarleysis og afneitunar þeirra sem ættu að bera ábyrgð á eftirliti með áhrifum stóriðjunnar á umhverfið.
    1 hr 18 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Elísabet Rónalds
    Laugardagurinn 9. mars
    Helgi-spjall: Elísabet Rónalds
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Elísabet Rónaldsdóttir klippari okkur frá Hollywood og leið sinni þangað, frá baslinu og meðvirkninni, frá ástinni og ástríðunni, frá seiglunni og óþekktinni og öðru því sem búið hefur hana til.
    2 hr 1 min
  • Heimsmyndir - Ármann Halldórsson
    Heimsmyndir 8. mars
    Ármann Halldórsson
    Gestur þáttarins er Ármann Halldórsson heimspekingur og kennari við Verzlunarskóla Íslands. Þeir Kristinn fóru um víðann völl og ræddu allt frá heimspekikennslu til mikilvægis fegurðar í ýmsu samhengi. Samtalið varð svo líflegt að það varð það lengsta til þessa. Platon, Yuval Noah Harari og Hegel gamli komu allir við sögu. Sem og möguleg hugsun skóga og sveppa. En hugtak dagsins var mýkt og Kristinn reyndi sem mest hann gat að koma því hugtaki að og selja það. Mýkt!
    1 hr 36 min
  • Rauða borðið - Vikuskamtur - Vika 10
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Amnesty Internati­onal á Íslandi, Helga Arnarsdóttir fjölmiðlakona, Sigrún Elsa Smáradóttir framkvæmdastjóri og Sverrir Norland rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af kjarasamningum, félagsmálapökkum, handtökum, hótunum, hörku og huggulegheitum.
    1 hr 38 min
  • Rauða borðið 7. mars - Fíklar, orð gegn orði, öryrkjar og innflytjendur í Lúx
    Fimmtudagurinn 7. mars
    Fíklar, orð gegn orði, öryrkjar og innflytjendur í Lúx
    Alma D. Möller landlæknir kemur að Rauða borðinu og ræðir um stöðu fólks með fíknisjúkdóma, ekki síst út frá málum Árna Tómasar Ragnarsson læknis sem sviptur var leyfi til að gefa út ópíóðalyf. Þarf átak til að bæta líf og heilsu fíklanna? Er hægt að standa hjá þegar svo margir farast? Einleikurinn Orð gegn orði hefur slegið í gegn. Ebba Katrín Finnsdóttir leikari og Þóra Karitas Árnadóttir leikstjóri ræða um verkið og erindi þess, en þar er fjallað um hvernig dómskerfið leikur þolendur kynferðisofbeldis. Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ fer yfir afstöðu bandalagsins til tillagna félagsmálaráðherra um breytingar á almannatryggingum. Við sláum svo á þráðinn til Lúxemborgar og fáum Róbert Björnsson, sem segist vera efnahagslegur flóttamaður frá Íslandi, til að segja okkur hvernig þarlend stjórnvöld hafa tekið á mun hraðari fjölgun landsmanna en hér hefur orðið.
    2 hr 56 min
  • Maður lifandi 7. mars - Draumar og veruleiki
    Hvernig er að vera ung manneskja, dekkri á litinn en gengur og gerist hér á landi á tímum vaxandi rasisma? Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi svarar þeirri spurningu. Þá kemur stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson í þáttinn og lýsir uppvextinum á Akureyri og ævintýrinu að láta drauma rætast. Maður lifandi er í umsjá feðganna Starkaðar og Björns Þorláks - á dagskrá klukkan 16 alla fimmtudaga á Samstöðinni
    1 hr 8 min
  • Heima er bezt - Harpa Þórsdóttir
    Heima er bezt - NÝR ÞÁTTUR
    6. mars - Harpa Þórsdóttir
    Fyrsti þáttur Heima er bezt á Samstöðinni: Gestur þáttarins er Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður. Harpa bjó í Þjóðminjasafninu fyrstu sjö ár ævi sinnar. Hún hefur sterkar taugar til safnsins. Harpa og Sigurjón M. Egilsson tala um gildi safna og umfang Þjóðminjasafnsins.
    52 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners