Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 21. mars - Vopnahlé, einkavæðing, félagsleg öfl og ólög
    Fimmtudagurinn 21. mars
    Vopnahlé, einkavæðing, félagsleg öfl og ólög
    Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi fer yfir stöðuna eftir samþykkt vopnahlés á Gaza, en einnig framgöngu íslenskra stjórnvalda síðustu mánuði. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur ræðir við okkur um nýfrjálshyggju í tilefni af helgiriti Frjálsrar verslunar um einkavæðingu, sem tímaritið segir að sé mestu framfaraskref Íslandssögunnar. Benedikt Sigurðarson, fyrrverandi skólastjóri, kemur aftur til að ræða samspil stjórnmála og alþýðuhreyfinga, en ekki síður hvernig félagsleg markmið hafa vikið fyrir markaðslegum á svo til öllum sviðum mannlífsins. Í lokin kemur Haukur Arnþórsson og segir okkur frá bók sinni Mín eigin lög sem dregur fram veikleika Alþingis, sem er kannski ekki sú lýðræðislega stofnun sem hún ætti að vera.
    3 hr 36 min
  • Maður lifandi 21. mars: Margrét Helga Erlingsdóttir
    Foreldraskyldur og fréttamennska
    Margrét Helga Erlingsdóttir, ein af yngri fréttakonum landsins, verður gestur vikunnar í Maður lifandi þessa vikuna. Hún lýsir réttlætisbaráttu og umbrotum ungs fólks þegar barneignir, menntun, starfserill og húsnæðismál koma saman í einum punkti. Við kynnumst nýrri hlið á fréttakonunni. Þátturinn er í umsjá feðganna Starkaðar og Björns Þorláks
    1 hr
  • Rauða borðið 20. mars - Vextir, ópíum, aldraðir, ofbeldi og alþýðuhreyfingar
    Miðvikudagurinn 20. mars
    Vextir, ópíum, aldraðir, ofbeldi og alþýðuhreyfingar
    Við ræðum við Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóra Vísbendingar um ákvörðun Seðlabankans um að lækka vexti bara ekki neitt. Sigmar Guðmundsson þingmaður kemur og ræðir svarta skýrslu um ópíóða. Kári Jónasson fyrrum fréttastjóri og eftirlaunamaður ræðir um vonbrigði eldri borgara um kjarasamninga. Drífa Jónasdóttir doktorsnemi fjallar um hið dulda mein - heimilisofbeldi. Í lokin kemur Benedikt Sigurðarson skólafrömuður og fyrrum formaður KEA og segir frá áhrifum alþýðuhreyfinga, samvinnu- og verkalýðshreyfingarinnar, á stjórnmálin og samfélagið.
    3 hr 54 min
  • Rauða borðið 19. mars - Hægrið, Grindavík, morð og smábarnabækur
    Þriðjudagurinn 19. mars
    Hægrið, Grindavík, morð og smábarnabækur
    Hægrið skelfur eftir kaup Landsbankans á TM. Hvað veldur? Er þetta guðlast gagnvart heitri trú hægrisins, að rekstur megi bara fara frá ríkinu til hinna ríku en aldrei öfuga leið? Við ræðum þetta og fleira við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá og eldheitan hægri mann, sem er óánægður með ríkisstjórnina og Sjálfstæðisflokkinn. Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, kemur til okkar og segir frá stöðu Grindavíkur undir linnulausum jarðeldum. Steinunn Kristjánsdóttir prófessor í fornleifafræði segir okkur frá morðunum á Sjöundá, aftökum og kúgun almúgans fyrir rúmum tvö hindruð árum. Og Jón Yngvi Jóhannsson dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands mætir með skemmtilegu smábarnabækurnar, sem eru ekki allar þær sem þær eru séðar.
    3 hr 29 min
  • Frelsið er yndislegt - #4 Menntamál í skugga aðgerðaleysis ráðuneytisins
    Frelsið er yndislegt, 19. mars
    Menntamál í skugga aðgerðaleysis ráðuneytisins - Ekkert verknám – engin sérkennsla!
    Í þessum bætti ræðum við um menntamál í fangelsunum sem er ekki upp á marga fiska þessi misserin. Ekkert verknám og engin sérkennsla er í boði. Aðeins 4 grunnfög kennd og fangar ráða ekki við fjarnám. Menntmálaráðherra hefur brugðist samfélaginu og ekki tekið ábyrgð á þeim
    athugasemdum sem bæði innlendir og erlendir eftirlitsaðilar hafa bent á í gegnum tíðina. Stofnaðar hafa verið nefndir aðeins til að stofna þær og friða eftirlitsnefndir. Mjög áhugaverður þáttur með helstu sérfræðingum um menntamál fanga en viðmælendur þáttarins eru: Gylfi Þorkelsson, kennslustjóri á Litla hrauni, Klara Guðbrandsdóttir, náms og starfsráðgjafi fangelsanna, Þráinn Farestveit, afbrotafræðingur og framkv.st. Verndar og Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur og fyrrum starfsmaður Fangelsismálastofnunar
    Guðmundur Ingi Þóroddsson, sérfræðingur í fangelsismálum er stjórnandi þáttarins
    1 hr 17 min
  • Rauða borðið 18. mars - Þingið, látinn leikstjóri og leigumarkaðurinn
    Mánudagurinn 18. mars
    Þingið, látinn leikstjóri og leigumarkaðurinn
    Við byrjum Rauða borðið á nýjum dagskrárlið: Þingið í umsjón Björns Þorláks. Hann fær til sín þrjá þingmenn tiil að ræða stöðuna og vikuna fram undan: Logi Einarsson frá Samfylkingu, Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn og Þórarinn Ingi Pétursson frá Framsókn. Rimas Tuminas leikstjóri hafði mikil áhrif á íslensk leikhús og það fólk sem vann með honum. Leikararnir Guðrún Gísladóttir, Jóhann Sigurðsson og Hilmir Snær Guðnason og túlkurinn hans , Ásdís Þórhallsdóttir leiksviðsstjóri, minnast Rimasar við Rauða borðið en hann lést 6. mars. Í lokin kemur Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna og ræðir vonbrigði sín með kjarapakka stjórnvalda sem hann segir að muni lítið sem ekkert bæta stöðu leigjenda.
    4 hr 5 min
  • Rauður raunveruleiki - Amazon Labor Union and international solidarity / Chris Smalls
    Chris Smalls is the president of the recently formed Amazon labor union. He participated in the yearly Socialist Congress of the Icelandic Socialist party alongside the president of the largest Icelandic union, Efling ,Sólveig Anna Jónsdóttir. The congress discussed the struggle of the working class in modern times.
    We had a talk with Chris about his experience fighting for Amazon workers, the struggle of the working class in the United States and how that reflects the international fight for freedom and justice.
    Anita Da Silva Bjarnadóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Karl Héðinn Kristjánsson and Oliver Axfjörð Sveinsson, from the Icelandic Socialist Party, will be speaking to Chris today. Tune in at 18:00
    Solidarity forever!
    44 min
  • Synir Egils: Eldgos, velferðarríki, útlendingaandúð og kjarasamningar
    Sunnudagurinn 17 . mars
    Synir Egils: Eldgos, velferðarríki, útlendingaandúð og kjarasamningar
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Margrét Marteinsdóttir blaðamaður, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af hræringum ofan jarðar og neðan, lífsbaráttu almennings, stjórnmálaflokka og ríkisstjórnar, vaxandi útlendingaandúðar og vangaveltum um forsetaframboð. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni. Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar koma síðan og ræða stöðu verkalýðshreyfingarinnar eftir kjarasamninga aðildarfélaga Alþýðusambandsins.
    2 hr 51 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Þór Jónsson
    Laugardagurinn 16. mars
    Helgi-spjall: Einar Þór Jónsson
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Einar Þór Jónsson okkur frá lífi sínu og baráttu, uppvexti og þroska á tímum sem menn eins og hann voru ekki velkomnir í samfélaginu, áhrifin af alnæmi á hans líf, áhrif heilabilunar á aðstandendur en þó mest um sigra og gleði.
    2 hr 27 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners