Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Harpa Njáls
    Laugardagurinn 18. maí
    Helgi-spjall: Harpa Njáls
    Harpa Njáls félagsfræðingur er gestur Helgi-spjalls, segir okkur frá baráttu sinni fyrir að samfélagið og stjórnmálin horfist í augu við fátæktina en líka frá uppvexti sínum á Suðureyri við Súganda, áföllum sem riðu yfir, basli og erfiðri lífsbaráttu, þátttöku sinni verkalýðsbaráttu og annarri baráttu fyrir betra lífi lágstéttanna.
    2 hr 43 min
  • Vikuskammtur - Föstudagurinn 17. maí
    Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Guðrún Þórsdóttir stjórnarkona í Geðhjálp, Svavar Halldórsson stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur, Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona og Magnús Scheving höfundur, leikari og framleiðandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, tröllum og tilfinningalegum gusum, grimmd gagnvart flóttakonum, bókabrennum og stríðum.
    1 hr 55 min
  • Rauða borðið 16. maí - Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótbolti
    Fimmtudagurinn 16. maí
    Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótbolti
    Helgi Gíslason, skólastjóri Fellaskóla, kemur að Rauða borðinu og segir okkur frá skólanum og hverfinu þar sem er hæst hlutfall innflytjenda og fólks sem ekki talar íslensku heima. Salvör Nordal umboðsmaður barna er heimspekingur sem fjallað hefur um heilbrigðiskerfið. Hún ræðir við okkur um um dánaraðstoð. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er leikrit um karlmennsku og fótbolta. Leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson, Ólafur Ásgeirsson og Albert Halldórsson og söngvarinn Valdimar Guðmundsson taka þátt í þeirri sýningu og koma til okkar til að ræða hana, karlmennsku og fótbolta.
    2 hr 30 min
  • Heima er bezt - Bjarki Bjarnason
    Miðvikudagurinn 15. maí
    Heima er bezt - Bjarki Bjarnason
    Mosfellingurinn Bjarki Bjarnason, rithöfundur og sagnamaður, er gestur Sigurjóns í þættinum Heima er bezt. Þeir ræða stríðsminjar, sögur af Halldóri Laxness og margt fleira. Tveir sagnamenn að segja sögur.
    47 min
  • Rauða borðið 15. maí - Forseti, hommar, húsaleiga og Breiðholt
    Miðvikudagurinn 15. maí:
    Forseti, hommar, húsaleiga og Breiðholt
    Við byrjum á umræðu um forsetakosningarnar. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Björn Þorláksson og Sigurjón Magnús Egilsson, gamalreyndir blaðamenn koma að Rauða borðinu og fjalla um kosningabaráttuna. Bjarni Snæbjörnsson leikari setti upp leikrit um eigin för sín út úr skápnum, Góðan daginn Faggi. Nú hefur hann skrifað bókina Mennsku um sama efni. hann segir okkur sína sögu. Í þinginu er frumvarp um breytingar á húsaleigulögum. Bjarni Þór Sigurðsson formaður húsnæðisnefndar VR og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna greina frumvarpið út frá hagsmunum leigienda og almennings, en frumvarpið er mest sniðið að hagsmunum leigusala. Kennararnir Maria Sastre og Marta Wieczorek búa í Breiðholti og eru þar menningarsendiherrar. Þær segja okkur frá hverfinu sínu og þeim breytingum sem það gengur í gegnum.
    3 hr 42 min
  • Með á nótunum - 98
    Þriðjudagur, 14. maí
    Með á nótunum - 98
    Það var farið yfir Eurovision sem er nýafstaðin og má segja að hún hafi ekki vakið mikla lukku. Þáttastjórnendur tóku kosningarprófið. Mataræði og heilsa kom mikið við sögu og Mannanafnanefnd. Óvæntur alheimshittari varð til þökk sé Sylvester Stallone og Steve Buscemi fékk óvænt kjaftshögg og kvikmynda og þátta meðmælin eru á sínum stað. Þetta er aðeins lítið brot af því sem farið var yfir í þættinum.
    1 hr 10 min
  • Rauða borðið 14. maí - Forseti fólks eða elítu, andmannúð, kennarar í vígahug, sjókvíar & fjölpóla heimur
    Þriðjudagurinn 14. maí
    Forseti fólks eða elítu, andmannúð, kennarar í vígahug, sjókvíar og fjölpóla heimur
    Eru forsetakosningarnar átök milli elítunnar og fólksins? Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi svarar því. Íslensk stjórnvöld fluttu úr landi fórnarlömb mansals, sem þau höfðu hent á götuna fyrir tæpu ári. Drífa Snædal talskona Stígamóta reynir að ráða í hver sé ástæðan. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræðir stöðu kennara. Fara þeir í verkföll í haust? Jón Örn Pálsson sjávarútvegsfræðingur telur að við eigum að byggja upp sjókvíaeldi en alls ekki eins og gert hefur verið. Og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor óttast kjarnorkustríð ef bandaríkin og Vesturveldin halda óbreyttri stefnu.
    3 hr 54 min
  • Frelsið er yndislegt - #8 Frelsið er yndislegt - #8 Fjármálaóreiða og skuldafen fanga
    Frelsið er yndislegt, þriðjudaginn 14. maí
    Fjármálaóreiða og skuldafen fanga
    Í þættinum er sjónum beint að skuldavanda þeirra sem koma í fangelsi og mikilvægi þess að tekið sé til í fjármálum dómþola áður en þeir snúa aftur út í samfélagið. Reynsla í nágrannalöndum okkar hefur enda sýnt að ef ekki sé tekið á fjármálaóreiðu einstaklinga sé líklegra að þeir snúi á ný í fangelsi. Ástæður þess og hugsanlegar lausnir eru til umræðu í þætinum.
    Gestir þáttarins eru Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, Sigurður Ingi Jónasson, garðyrkjumaður og fyrrverandi fangi og Bjarki Magnússon, lögfræðingur sem fer fyrir Lögfræðiaðstoð Afstöðu.
    Stjórnendur þáttarins eru: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
    Hægt að ná sambandi við Afstöðu, allan sólarhringinn í síma 556-1900 og Lögfræðiaðstoð Afstöðu í síma 666-1211.
    1 hr 6 min
  • Reykjavíkurfréttir - Andrými
    Reykjavíkurfréttir, þriðjudagur 14. maí
    Andrými
    Við fáum innsýn inn í starfsemi Andrýmis sem er róttækt félagsrými sem hefur fyrst og fremst það hlutverk að útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að hittast og skipuleggja baráttu sína fyrir auknu jafnrétti og frelsi. Með sjálfstæðri starfsemi sinni og skipulagningu vill Andrými greiða leið fyrir frekari baráttu í anda valdeflingar, frelsis, jafnréttis og gagnkvæmrar hjálpar. Jakob Beat Altmann, Elías Snær Einarsson og Ragnheiður Freyja Kristínardóttir segja okkur frá Andrými.
    40 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners