Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Raddir 2. þáttur - Húsnæðismál og félagslegt réttlæti
    Miðvikudagur 15. október
    Raddir 2. þáttur - Húsnæðismál og félagslegt réttlæti
    Í nýjum þætti Radda ræðum við húsnæðismál, eitt af stærstu velferðarmálum samtímans. Standa sveitarfélög og ríki við skyldur sínar samkvæmt lögum um félagsþjónustu nr. 40/1991 um að tryggja fólki viðunandi húsnæði? Er rétt að húsnæði sé markaðsvara, eða ætti það að vera mannréttindi? Gæti lausn eins og einangrunarhús eða smáhýsi hjálpað til við að mæta húsnæðisþörf til skemmri tíma? Gestur þáttarins er Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, sem deilir af reynslu og sýn á hvernig tryggja megi öryggi, stöðugleika og réttlæti á húsnæðismarkaði.
    1 hr 4 min
  • Rauða borðið 14. okt - Biskup Íslands, þúsund ára ríkið, skipulögð glæpastarfsemi og nýtt lífsskoðunarfélag
    Þriðjudagur 14. október
    Biskup Íslands, þúsund ára ríkið, skipulögð glæpastarfsemi og nýtt lífsskoðunarfélag
    Við hefjum leik á samtali við Guðrúnu Karls Helgudóttir biskup. Ár er liðið síðan hún var vígð í embættið. Hún segist bjartsýn á frið í heiminum þótt tímarnir séu viðsjárverðari en um langt skeið. Hún segist hafa þurft að hugsa sig tvisvar um áður en hún ákvað að blanda sér í umræðuna eftir alræmdan Kastljóssþátt á dögunum þar sem vegið var að minnihlutahópum. Björn Þorláks ræðir við biskup. Fjallað verður um skipulagða glæpastarfsemi. Svala Ísfeld Ólafsdóttir lögfræðingur og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og Helgi Gunnlaugsson prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands ræða við Gunnar Smára um rót skipulagðrar glæpastarfsemi og þróun á Íslandi. Hvað stjórnvöld gera og hvað stjórnvöld gætu gert til að sporna við henni. Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræðir við Gunnar Smára hugmynd þjóðernissinnaða hvíta evangelíska kirkju um þúsund ára ríkið og hvaða áhrif hún hefur á pólitík í Bandaríkjunum og víðar. Svanur Sigurbjörnsson læknir er nú í hléi frá lækningum til að stofna nýtt lífsskoðunarfélag. Viðhorf hans um lífið og tilveruna fóru fyrst að breytast eftir árásina á Tvíburaturnana í New York. Björn Þorláks ræðir við Svan.
    3 hr 46 min
  • FRÉTTATÍMINN 13. október
    Mánudagur 13. október
    FRÉTTATÍMINN
    Gunnar Smári og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi og fá til þess aðstoð gesta: Sara Stef Hildar og Þórarinn Hjartarson setjast við fréttaborðið. Hvert er samhengi fréttanna?
    53 min
  • Rauða borðið 13. okt - Mataræði barna, ferðaþjónusta á villigötum, ástin, byggðamál og agi í skólum
    Mánudagur 13. október
    Mataræði barna, ferðaþjónusta á villigötum, ástin, byggðamál og agi í skólum
    Við hefjum leik á umræðu sem spyr stórra spurninga hvort við séum að leita langt fyrir skammt þegar við leitum lausna við gríðarlegu lyfjaáti barna og ungmenna og vondri andlegri heilsu ungs fólks sem kostað hefur sjö hundruð mannslíf á einum áratug. Vigdís M. Jónsdóttir sálfræðingur vill beina sjónum að mataræðinu umfram annað. Hún segir brýnt að endurhugsa stefnu í geðheilbrigðismálum eiginlega frá grunni. Björn Þorláks ræðir við hana. Katrín Anna Lund, mannfræðingur og prófessor í land- og ferðamálafræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, ræðir við Gunnar Smára um ferðaþjónustu á villugötum, hvort gróðasókn fárra hafi ráðið of miklu í þróun ferðamennsku á Íslandi. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent í gagnrýnum menntunarfræðum við HÍ segir Gunnari Smára frá bókinni Allt um ástina eftir bell hooks sem Hið íslenska bókmenntafélag gefur út. Þurfum við að rækta ástina og læra að nota hana til að bjarga heiminum? Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps ræðir breytta stöðu byggðamála. Mikill vöxtur hefur orðið á Suðurlandi og austur að Vatnajökli og því fylgja mikil tækifæri en einnig áskoranir. Það er löngu liðin tíð að Reykjavíkursvæðið bólgni út á kostnað landsbyggðanna. Við endum þáttinn á viðtali við gamlan skólamann. Eiríkur Jónsson, fyrrum formaður Kennarasambands Íslands, ræðir álitamál og áskoranir sem blasa við í kennslustarfi. Hann ber saman tímana tvenna og ólíkan aga hér á landi í skólastofum og í samanburðarlöndum.
    3 hr 53 min
  • Synir Egils 12. okt - Vopnahlé, leikskólar, Nóbel, pólitíkin og Framsókn
    Sunnudagurinn 12. október
    Synir Egils: Vopnahlé, leikskólar, Nóbel, pólitíkin og Framsókn
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Jóna Benediktsdóttir formaður Stjórnarskrárfélagsins, Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og Jón Trausti Reynisson ritstjóri Mannlífs og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni og síðan kemur Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar og ræðir stöðu flokksins, þingsins, stjórnmálanna og samfélagsins.
    2 hr 6 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Kárason
    Laugardagur 11. október
    Helgi-spjall: Einar Kárason
    Einar Kárason rithöfundur kemur í helgi-spjall og segir frá fjölskyldu sinni, uppruna, æsku, kynslóð og ritstörfum, en líka frá bílum, skrítnu fólki, fótbolta og ýmsu öðru.
    2 hr 53 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 41
    Föstudagur 10. október
    Vikuskammtur: Vika 41
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þær Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona, Hlín Agnarsdóttir leikstjóri og rithöfundur, Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Þórdís Helgadóttir rithöfundur og fara yfir fréttir vikunnar sem einkenndust af leit að friði, hernaðarhyggju, sigrum og ósigrum, deilum og ekki svo miklum sáttum.
    1 hr 38 min
  • Rauða borðið 9. okt - Leikskólar, vextir, öryggismál, lögfræði og Trumpland
    Fimmtudagur 9. október
    Leikskólar, vextir, öryggismál, lögfræði og Trumpland
    Gunnar Smári heldur áfram umræðu um leikskólana. Að þessu sinni koma þær Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB og segja hvers vegna þær eru á móti tillögum um styttri vistunartíma á leikskólunum. Finnbjörn A. Hermannsson hjá ASÍ furðar sig á hávaxtastefnu Seðlabankans sem hann segir að valdi miklu tjóni. Þá séu álitamál með krónuna og fleira sem hafi neikvæð áhrif á fólk, einkum hina skuldsettu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um vopnahlé á Gaza og öryggismál Evrópu, stöðu álfunnar í fjölpóla heimi. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir álitamál í lögfræði tengd fréttum líðandi stundar. Fjallað verður um vændi, hvort líklegt sé að Ísland fái mikilvægar undanþágur með inngöngu í ESB, muninn á málfrelsi og tjáningarfrelsi og rétt eða órétt Ísraela til að handtaka fólk á hafi úti. Björn Þorláks ræðir við Gísla. Gunnar Smári ræðir við Harald Sigurðsson jarðfræðing, sem býr í New Bedford í Massachusetts, um áhrif Trump á bandarískt samfélag. Er Trump að takast að brjóta niður margt af því besta sem byggt var upp í Bandaríkjunum á liðnum áratugum.
    3 hr 40 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners