Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 8. okt - Trump, hervæðing, kristni, veðmál, sigur anti-vók og Hannes Pétursson
    Miðvikudagur 8. október
    Trump, hervæðing, kristni, veðmál, sigur anti-vók og Hannes Pétursson
    Við höldum áfram að ræða Donald Trump í Trumptímanum á miðvikudögum, hugmyndir hans, verk og áhrif á Bandaríkin og heiminn allan. Að þessu sinni koma að borðinu og ræða við Gunnar Smára hagfræðingarnir Þorsteinn Þorgeirsson og Þorvaldur Gylfason og sagnfræðingurinn Sveinn Máni Jóhannesson. Helga Þórólfsdóttir er sérfræðingur í friðarfræðum og hefur starfað á stríðsfræðum. Hún ræðir við Gunnar Smára um hernaðarhyggju og hervæðingu, sem nú fer sem vofa um öll lönd. Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræðir við Gunnar Smára um áhrif evangelískrar kirkju og ýmissa trúarkenninga á stefnu ríkisstjórnar Donald Trump. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, ræðir vandann og möguleg úrræði vegna veðmálastarfsemi barna í samtali við Björn Þorláks. Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri og leikararnir Bjarni Snæbjörnsson, Árni Pétur Guðjónsson og Kristrún Kolbrúnardóttir segja Gunnari Smára frá Skamm­ar­þrí­hyrn­ing­num kómískum pólitískum leik um vók og anti-vók sem þau hafa samið ásamt öðrum og sýndur er í Borgarleikhúsinu. Kvæðabók Hannesar Péturssonar kom út fyrir 70 árum og verður tímamótanna fagnað norður í Skagafirði um helgina. Eyþór Árnason ljóðskáld ræðir við Björn Þorláks um tímamótin.
    5 hr 35 min
  • FRÉTTATÍMINN 7. október
    Þriðjudagur 7. október
    FRÉTTATÍMINN
    Gunnar Smári, Björn Þorláks og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
    47 min
  • Rauða borðið 7. okt - Leikskólar, börn, friður, heimsvaldastefna og sólarorka
    Þriðjudagur 7. október
    Leikskólar, börn, friður, heimsvaldastefna og sólarorka
    Haraldur F. Gíslason, formaður félags leikskólakennara, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ræða við Gunnar Smára um leikskólakerfið og deilurnar sem hafa magnast upp vegna tillagna meirihlutans í Reykjavík að draga úr opnunartíma. Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir margt að varast fyrir börn og og ungmenni í samtímanum. Fíknir og Internetið eru þar á meðal. Björn Þorláks ræðir við Salvöru. Sagnfræðingur í stjórn Samtaka hernaðarandstæðinga, Stefán Pálsson, fer yfir samtímann í samtali við Björn Þorláks. Hann sér enga ástæðu til að Íslendingar vopnvæðist og varar við stríðsæsingi. Ragnar Baldursson stjórnmálafræðingur og sérfræðingur um Kína ræðir um heimsvaldastefnu Vesturlanda við Gunnar Smára og hvernig rekja má rætur hennar til víkinga. Sólarorka er framtíðin og varasamt er að einblína á síaukna orkuframleiðslu hér á landi í tengslum við orkuskipti. Þetta segir Geir Guðmundsson verkfræðingur. Björn Þorláks ræðir við hann.
    4 hr 31 min
  • FRÉTTATÍMINN 6. október
    Mánudagur 6. október
    FRÉTTATÍMINN
    Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
    46 min
  • Rauða borðið 6. okt - Listamannalaun, Evrópustríð, fall Play, leiklist og þjóðfélagsstaða og menntun
    Mánudagur 6. október
    Listamannalaun, Evrópustríð, fall Play, leiklist og þjóðfélagsstaða og menntun
    Úthlutun ritlauna og fyrirkomulag við veitingu listamannalauna hefur ítrekað vakið deilur í seinni tíð. Hvers vegna? Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Jóna Hlíf Halldórsdóttir myndlistarmaður og Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, reyna að svara þeirri spurningu í samtali við Björn Þorláks. Valur Ingimundarson prófessor ræðir vaxandi stríðsógn í Evrópu við Gunnar Smára, ólíka afstöðu Evrópuríkja og Bandaríkjanna, afleiðingar hernaðaruppbyggingar á álfuna og hættuna á stigmögnun stríðsátaka. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir fall Play og fjölmörg álitamál og verkefni sem fjöldi neytenda glímir við nú til að leita réttar síns. Er Icelandair að nýta sér neyð strandaðra ferðalanga? Björn Þorláksson ræðir við Breka. Hvaða áhrif hefur þjóðfélagsstaða nemenda á framgang þeirra? Eru samkeppnispróf góð hugmynd? Þorlákur Axel Jónsson hefur nýlokið doktorsvörn í menntavísindum og ræðir niðurstöður við Björn Þorláks. Katla Þórudóttir Njálsdóttir leikkona og Kolbrún Björt Sigfúsdóttir höfundur og leikstjóri segja Gunnar Smára frá sýningunni Þetta er gjöf, verk um græðgi, kapítalisma og annað sem er að eyða samfélaginu okkar, samskiptum okkar og okkur sjálfum.
    3 hr 38 min
  • Synir Egils 5. okt - Átök á Alþingi, húsnæðiskreppa, menningarstríð, friðarvon og hernaðaruppbygging
    Sunnudagurinn 5. október
    Synir Egils: Átök á Alþingi, húsnæðiskreppa,, friðarvon, hernaður og ríkisfjármál
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða fréttir vikunnar og stöðu mála, hér heima og erlendis. Að því loknu koma þrír nefndarmenn úr utanríkismálanefnd og ræða öryggismál Evrópu, en á fundi leiðtoga Evrópuríkja var fullyrt að álfan væri nú í stríði við Rússland. Pawel Bartoszek, Dagbjört Hákonardóttir og Víðir Reynisson ræða öryggismál. Síðan kemur Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og fer yfir ríkisfjármálin.
    2 hr 38 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Kristín Gunnlaugs
    Laugardagur 4. október
    Helgi-spjall: Kristín Gunnlaugs
    Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður segir frá leit sinni frá Maríu mey að kvenmannssköpum og tröllskessum, frá óttanum í foreldrahúsum sem hefur fylgt henni, frá ást og skilnaði, trúarþörf og hættunni af að staðna.
    2 hr 23 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 40
    Föstudagur 3. október
    Vikuskammtur: Vika 40
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Auður Jónsdóttir rithöfundur, Dagur Kári Pétursson kvikmyndaleikstjóri, Sara Stef. Hildar bókavörður og Sassa Eyþórsdóttir iðjuþjálfi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af gjaldþroti, stríði og litlum frið, átökum um stórt sem smátt en líka vonarglætum stórum og smáum.
    1 hr 26 min
  • FRÉTTATÍMINN 2. október
    Fimmtudagur 2. október
    FRÉTTATÍMINN
    Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
    47 min
  • Rauða borðið 2. okt - Kynjafræði, leikhús. fjölmiðlaógn, Kína og klassíkin
    Fimmtudagur 2. október
    Kynjafræði, leikhús. fjölmiðlaógn, Kína og klassíkin
    Hanna Björg Viljhjálmsdóttir, kynjafræðingur og Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur ræða um bakslag og kynjafræði í skólum. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstjóri og leikararnir Hildur Vala Baldursdóttir, Mikael Kaaber, Margrét Eir Hönnudóttir og Ernesto Camilo Valdes segja Gunnari Smára frá ást og sorg fólksins í Rauðu myllunni í París fyrir rúmri öld og hvers vegna sú saga á erindi við okkur í dag. Elva Ýr Gylfadóttir hjá Fjölmiðlanefnd ræðir ógnir og undirróður erlendra ríkja og hvers ber að gæta í heimi fjölmiðlanna í þeim efnum. Björn Þorláks ræðir við hana. Ragnar Baldursson stjórnmálafræðingur heldur áfram að segja okkur frá Kína í samtali við Gunnar Smára. Nú horfir hann á áhrif Konfúsíusar á kínverska menningu, stjórnmál og stöðu Kína í heiminum. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfóníunnar og Elísabet Indra Ragnarsdóttir verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu ræða meðal annars Víking Heiðar og áhrif hans og fleiri frumkvöðla á tónlistina í spjalli við Gunnar Smára og tónlistarnemann Sól Björnsdóttur.
    4 hr 54 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners