Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • FRÉTTATÍMINN 25. september
    Fimmtudagur 25. september
    FRÉTTATÍMINN
    María Lilja, Sigurjón Magnús og Björn Leví Gunnarsson segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
    47 min
  • Rauða borðið 25. sept - Réttur er settur, rauði þráðurinn, Taóismi og klassíkin rokkar
    Fimmtudagur 25. september
    Réttur er settur, rauði þráðurinn, Taóismi og klassíkin rokkar
    Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir mannréttindi, Bókun 35, kynþáttamisrétti og fleira í samtali við Björn Þorláksson. Kolbeinn H. Stefánsson dósent í félagsráðgjöf ræðir við Gunnar Smára um vanda vinstrisins á Vesturlöndum og hér heima. Ragnar Baldursson Kínasérfræðingur heldur áfram að skýra fyrir Gunnari Smára hvernig taóisminn hefur mótað Kína, menningu og stjórnmál, og hugmyndir Kínverja um stöðu Kína í heiminum. Kristinn Sigmundsson bassi, Kolbeinn Ketilsson tenór og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari ræða um ljóðasöng við Gunnar Smára og tónlistarnemana Sóleyju Lóu Smáradóttur og Sól Björnsdóttur, um óperu, töfra tónlistar, kvíða fyrir tónleika, íslenska einsöngslagið og margt fleira.
    4 hr 14 min
  • Rauða borðið 23.sept - Húsnæði, brottvikning, börn og geðraskanir, óþekktur þingmaður og bönnuð list
    Þriðjudagur 23. september
    Húsnæði, brottvikning, börn með geðraskanir, óþekkti þingmaðurinn og bönnuð list
    Á sama tíma og ungt fólk er í vanda að fjárfesta í húsnæði eru heldur fleiri íbúðir að koma á markað en verið hefur. Jónas Atli Gunnarsson hjá HMS ræðir við Björn Þorláksson. Matthías James Spencer Heimisson og Adrimir Selene Melo Fria eru hjón. Samt ætlar Útlendingastofnun að vísa Adrimir úr landi, en hún er ein þeirra fjölmörgu frá Venesúela sem hingað komu í boði stjórnvalda en nú er verið að vísa úr landi þegar dvalarleyfið rennur út. Gunnar Smári ræðir við hjónin. María Lilja ræðir þjónustu við börn með geðraskanir við þær Láru Ómarsdóttur, almannatengil og aðstandanda fíkils í bata, Diljá Ámundadóttur, varaþingmann, guðfræðinema og sálgæslukonu og Sigurþóru Bergsdóttir, varaþingmann, bæjarfulltrúa og stofnanda Bergsins Headspace. Kristján Þórður Snæbjarnarson segir Birni Þorláks frá persónulegum hliðum en Kristján er einn fjölmargra nýrra þingmanna. Óþekkti þingmaðurinn leitast við að kynna manneskjuna að baki þingmannsins. María Lilja fær til sín þau Snærós Sindradóttur, listfræðing og gallerista og Þránd Þórarinsson, myndlistarmann sem þekktur er fyrir hápólitísk málverk sín. Þau ræða saman um list og pólitík.
    3 hr 54 min
  • Raddir - 1. þáttur: Líf, Sanna og Helga
    Miðvikudagur 24. september
    Raddir - 1. þáttur: Líf, Sanna og Helga
    Fyrsti þáttur af þáttunum Raddir; þáttastjórnandi er Þórdís Bjarnleifsdóttir. Í þætti kvöldsins eru Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokksins og forseti borgarstjórnar og formaður velferðarráðs, Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna og formaður borgarráðs og Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins og formaður skóla- og frístundaráðs. Umræðuefni þáttarins er hlutverk sveitarfélaga, þar sem farið er um víðan völl, allt frá bókasöfnum til græna gímaldsins. Hlusta má á þáttinn á youtube, spilarinn.is, á sjónvarpi símans takki fimm á fjarstýringunni, samstöðin.is og öllum helstu hlaðvarpsveitum.
    1 hr 9 min
  • Rauða borðið 24. sept - Palestína, húsnæðiskrísa, Trump, taoismi og heyskapur
    Miðvikudagur 24. september
    Palestína, húsnæðiskrísa, Trump, taoismi og heyskapur
    Þórdís Ingadóttir lagaprófessor ræðir við Gunnar Smára um gildi þess að fleiri lönd viðurkenna nú Palestínu, um hvort alþjóðalög og alþjóðakerfið sé að veikjast vegna stefnu Bandaríkjanna og hvaða skyldur íslensk stjórnvöld bera frammi fyrir þjóðarmorði á Gaza og öðrum glæpum Ísraelsstjórnar. Alvarleg staða er uppi í húsnæðismálum fjölmargra einstaklinga án þess að það fari hátt í samfélaginu. Fordómar eru miklir og harka í samfélaginu. María Pétursdóttir öryrki og myndlistarkona og Styrmir Hallsson, háskólanemi og ungur maður í leit að öruggu framtíðarhúsnæði, ræða ástandið með Birni Þorláks. Vorstjarnan heldur fund um málið annað kvöld. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um stefnubreytingu Trump gagnvart Úkraínu, sem hann segir nú að geti unnið stríð. Þeir fara líka yfir ræðu Trump í alsherjarþinginu, elta hana um víðan völl. Ragnar Baldursson Kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um Taoisma og áhrif hans á kínverska menningu, stefnu kínverska ríkisins og einnig um áhrif Taó á vestræna menningu. Þetta er fyrri hluti spjalls þeirra um Taóisma. Til marks um sprettusumarið sem nú er að baki eru dæmi um bændur á Norðurlandi sem slógu tún sín fjórum sinnum, sem er einsdæmi að sögn Trausta Þórissonar, bónda á Hofsá. Björn Þorláks slær á þráðinn norður.
    3 hr 30 min
  • Rauða borðið 22. sept. Húsnæðiskrísa, ungmennadrykkja, deilur í vinstrinu og fiðluæði Þingeyinga
    Rauða borðið 22. sept.
    Húsnæðiskrísa, ungmennadrykkja, deilur í vinstrinu og fiðluæði Þingeyinga
    Kristín Heba Gísladóttir hjá Vörðu segir suma hópa í samfélaginu eiga afar erfitt með að koma sér upp öruggu þaki yfir fjölskyldur. Horfur ungs fólks til að eignast húsnæði virðast velta mjög á efnahag foreldra að óbreyttu. Björn Þorláksson ræðir við Kristínu Hebu. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur í London fer yfir deilur innan nýja vinstri flokksins í Bretlandi. Hvað gengur þingmönnum til sem vilja lækka áfengiskaupaaldur niður í 18 ár hér á landi? Er óöld í uppsiglingu? Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir við Björn Þorláks og reynir að svara áleitnum spurningum. Algjör sérstaða var meðal Þingeyinga til forna er kom að fiðlueign og fiðluspili. Tónlistin skipaði svo veigamikinn sess að fá dæmi eru um annað eins í dreifðum byggðum landsins. Herdís Anna Jónsdóttir, víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, ræðir málin við Björn Þorláks.
    2 hr 41 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners