Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Miðvikudagur 1. október - Trumptíminn, hampur, heimsmálin, Alþingi, ónæmiskerfið og söngur
    Miðvikudagur 1. október
    Trumptíminn, hampur, heimsmálin, Alþingi, ónæmiskerfið og söngur
    Við ræðum ástandið í Bandaríkjunum á miðvikudögum við Rauða borðið. Þá er Trumptíminn. Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða nýjustu tíðindi úr landi Trump og hvaða áhrif þau munu hafa. Athafnakonan Tóta Jónsdóttir er frumkvöðull í hamprækt á Íslandi. Hún leiðir Maríu Lilju í allan sannleika um þessa mögnuðu, forboðnu jurt sem er til svo margra hluta nytsamleg. Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, ekki síst nýjustu vendingar Trump gagnvart Gaza og Úkraínu. Málþóf fékk falleinkunn á málþingi um starfshætti Alþingis. Að kalla úrræði til að stöðva eilífðarvél í ræðuflutningi kjarnorkuákvæði vekur aulahroll hjá lagaprófessor. Mörður Árnason fyrrum þingmaður og Indriði H Þorláksson, fyrrum skattstjóri ræða þingið í samtali við Björn Þorláks. Guðlaug María Bjarnadóttir, Súsanna Antonsdóttir halda fyrirlestur fyrir áhugasama um vanvirkni í ónæmiskerfi, sjúkdóm sem hrjáir fjölda fólks en fáir þekkja. Þær ræða við Maríu Lilju um heilsuna. Jóhann Helgason og Edda Borg koma að Rauða borðinu spjalla, spila og syngja í tilefni af nýrri sólóplötu Jóhanns og tónleikum með honum, Eddu og Gömmunum í Bæjarbíói.
    4 hr 52 min
  • Rauða borðið 30. sept - Tilboð Trumps, Húsavík, loftlagsmál, dauðinn og sjóari sem málar
    Þriðjudagur 30. september
    Tilboð Trumps, Húsavík, loftlagsmál, dauðinn og sjóari sem málar
    Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur fer yfir tilboð Trump og Netanjahú um framtíð Gaza, forsögu þessa tilboðs sem byggt er á kröfum Ísraelsstjórnar, möguleika þess að það nái fram að ganga og viðbrögð stjórnvalda í Evrópu og í arabaríkjunum. Alvarlegt ástand gæti skapast á Húsavík eftir fall kísilvers PCC á Bakka. Einkennilegt andvaraleysi einkennir samtímann gagnvart dreifðum byggðum í landinu, segir Aðalsteinn Árni Baldursson, verkalýðsforingi á Húsavík í samtali við Björn Þorláks. Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar hjá HÍ og Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofunni ræða stöðu loftslagsmála, hvernig Ísland gæti bætt sig, losun og áhrif orðræðu í BNA þar sem Trump bannar viðurkennd hugtök tengd loftslagsmálum. Björn Þorláks ræðir við þau. Kristján Hreinsson, skerjafjarðarskáld ræðir nýja bók við Maríu Lilju. Bókin sem heitir: Einfaldar útfarir - allir velkomnir, Deyjandi hefðir fyrir lifandi fólk. Ingi Þór Hafdísarson stýrimaður, hárgeiðslumaður og listmálari ræðir við Gunnar Smára og sjómennsku, karlmennsku, uppreisnir og margt annað.
    3 hr 32 min
  • Rauða borðið 29. sept - Ritlaun, sýklasótt, stöðugleikaregla, MÍR, sniðganga og veðurfræði
    Mánudagur 29. september
    Ritlaun, sýklasótt, stöðugleikaregla, MÍR, sniðganga og veðurfræði
    Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur og formaður Rithöfundasambandsins ræðir við Maríu Lilju um ritlaun en úthlutun þeirra hefur verið hávær í umræðu dagsins. Kristján Ingólfsson, eftirlaunamaður og fyrrum ráðgjafi segir Gunnari Smára frá fráfalli Eyglóar Svövu dóttur sinnar sem send var heim af bráðamóttöku þrátt fyrir að vera helsjúk af sýklasótt. Og Anna María Ingveldur Larsen mannfræðinemi segir jafnframt frá sambærilegri reynslu. Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, útskýrir stöðugleikaregluna fyrir Gunnar Smára auk ýmissa annarra reglna. Sigurður Þórðarson, fyrrum stýrimaður, verslunarmaður og félagi MíR til 50 ára. Boðar í samtali við Maríu Lilju aðalfund fyrir hönd gamalla félaga. Staðið hefur styr um félagið en nú er von á sáttum. Ingólfur Gíslason, rektor á menntavísindasviði HÍ skipuleggur ný skref í sniðgöngu vegna þjóðarmorðsins á Gaza. Björn Þorláks ræðir við Ingólf. Mun gervigreindin úrtrýma stétt veðurfræðinga í framtíðinni? Björn Þorláks ræðir við Sigga storm.
    3 hr 50 min
  • Sunnudagurinn 28. september Synir Egils: Upplausn í alþjóðamálum, stríð og þjóðarmorð, fjárlög, húsnæðismál og pólitíkin innanlands
    Sunnudagurinn 28. september
    Synir Egils: Upplausn í alþjóðamálum, stríð og þjóðarmorð, fjárlög, húsnæðismál og pólitíkin innanlands
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Svandís Svavarsdóttir formaður VG og ræða fréttir innanlands og utan og stöðu mála. Síðan ræðum við veikingu lýðræðis í Bandaríkjunum. Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi og Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur fjalla um aðför ríkisstjórnar Trump að valddreifðu lýðræði. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 25 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Rúnar Guðbrands
    Laugardagur 27. september
    Helgi-spjall: Rúnar Guðbrands
    Rúnar Guðbrandsson leikari, leikstjóri og sviðslistamaður ræðir spennandi leikhús og minna spennandi, pólitíska list, trúnna á að við getum breytt heiminum, öryggi æskunnar og óróa unglingsáranna, föðurmissi og annað sem hefur mótað hann sem manneskju og listamann.
    2 hr 38 min
  • Föstudagur 26. september - Vikuskammtur: Vika 39
    Föstudagur 26. september
    Vikuskammtur: Vika 39
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Árni Sveinsson kvikmyndaleikstjóri, Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur, Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ og Þóra Elísabet Kjeld kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af dularfullum drónum, tárum á hvarmi, afsökunarbeiðni, vinnumansali, skoðanaskiptum og hótunum.
    1 hr 31 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

64 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners