Synir Egils

Synir Egils

By Gunnar Smári Egilsson, Sigurjón M. EgilssonNewsNews CommentaryPoliticsDaily News
Download on the App Store

Synir Egils episodes

  • Synir Egils 8. mars - Evrópusambandsaðild eða ekki
    Sunnudagurinn 8. mars
    Synir Egils: Evrópusambandsaðild eða ekki
    Þátturinn verður einþáttungur að þessu sinni, en til Sigurjóns mæta þau Ólafur Adolfsson, María Rut Kristinsdóttir, Magnús Skjöld og Birgir Ármannsson. Eftir óheyrilegt basl tókst að fá þessa fjórmenninga svo þátturinn verður eins þátta að þessu sinni. Þarna eru tvær fylkingarinnar. Birgir og Ólafur saman sinnis og svo María og Magnús eru sömu skoðunar í Evrópumálunum. Rætt verður einnig um aðra pólitík. Fylgi flokka, straum fólks frá XD og yfir XM.
    1 hr 12 min
  • Synir Egils 1. mars - Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt
    Sunnudagurinn 1. mars
    Synir Egils: Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt
    Að venju verður farið yfir helstu fréttir líðandi stundar með góðum gestum. Rætt um nýja frambjóðendur og þá líka sem flokkar hafna. Ekki síst hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík þar sem reyndum borgarfulltrúum er fórnað fyrir nýja. Meðal helstu frétta sem verða til umfjöllunar eru 60 milljarða staðgreiðsla Kerecic á Ísafirði, Íran, Sjálfstæðisflokkur klofnar á Akureyri Þórhallur Jónsson boðar nýtt framboð. Heimir Örn Árnason og Berglindi Ósk Guðmundsdóttur eru í fyrstu sætunum hjá Sjálfstæðisflokki. Reykjadalur fær peninga sem verða þá teknir frá öðrum ámóta úrræðum. Stjórnmálaaflið sem kenndi sig við Heimaey og bæði Íris Róbertsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar tilheyrði, hefur hætt störfum. Heiða Björg er ekki á framboðsmynd Samfylkingarinnar. Sprengiflaugar frá Ísrael hafa dunið yfir Íran. Staðfestir er að æðstiklerkur Írans Ali Khamenei sé látinn. Vopnakaup Íslands fyrir Úkraínu, Epstein-skjölin, Dorrit og Ólafur Ragnar, eiga Íslendingar að óska eftir frekari upplýsingum? Hvað með Gaza, gleymt og grafið?
    2 hr 2 min
  • Synir Egils 22. feb - Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin
    Sunnudagurinn 22. febrúar
    Synir Egils: Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Drífa Snædal talskona Stígamóta, Brynjar Níelsson lögfræðingur og fyrrum þingmaður og Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og ræða fréttir vikunnar og stöðu mála, hér heima og erlendis. Sigurjón ræðir við Þorstein Pálsson um pólitíkina hér heima, heimsmálin og þær breytingar sem hafa orðið frá því að Þorsteinn hóf þátttöku í pólitískri baráttu
    1 hr 55 min
  • Synir Egils 15. feb - Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin
    Sunnudagurinn 15. febrúar
    Synir Egils: Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Pawel Bartozsek formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og ræða fréttir vikunnar, stjórnmál og samfélag. Þeir bræður fara yfir pólitíkina með sínu nefi og síðan koma þær Helga Rósa Másdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands og Sandra B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands og ræða grafalvarlega stöðu á bráðavaktinni og í heilbrigðiskerfinu.
    2 hr 33 min
  • Synir Egils 8. feb - Framboð, börn, efnahagur og Epstein
    Sunnudagurinn 8. febrúar
    Synir Egils: Framboð, börn, efnahagur og Epstein
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona Pírata, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og Andrea Sigurðardóttir blaðakona á Morgunblaðinu og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins. Síðan ræða þau Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands, Jenný Kristín Valberg teymisstjóri í Bjarkarhlíð, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis og Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur Epstein-skjölin, hverju þau lýsa og hvaða áhrif þau kunna að hafa á stjórnmálin víða um okkar heimshluta. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 29 min
  • Synir Egils 25. jan - Pólitísk átök, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd
    Sunnudagurinn 25. janúar
    Synir Egils: Pólitísk átök, innan flokka og utan, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Kjartan Sveinsson formaður Landssambands smábátaeigenda og María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélags og heimsmála. Við förum síðan yfir breytta heimsmynd með Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrum utanríkisráðherra og sendiherra, ekki síst stöðu Íslands og Evrópu.
    2 hr 31 min
  • Synir Egils 18. jan - Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði
    Sunnudagurinn 18. janúar
    Synir Egils: Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur og Lára Zulima Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða fréttir vikunnar, stöðu samfélagsins og ástand heimsins. Ragnar Þór Ingólfsson, nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, fer síðan yfir verkefni sín næstu árin, einkum hvernig hann ætlar að koma skikki á húsnæðismarkaðinn svo hann þjóni almenningi. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 34 min
  • Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning
    Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði og ræða stríð og friður í upphafi árs, lífskjör, efnahagsmál og pólitíkina hér heima og erlendis. Síðan ræðum við íslenska menningu á viðsjárverðum tímum. Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri, Auður Jónsdóttir rithöfundur, Kristín Gunnlaugsdóttir málari og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri ræða áhrif tímanna á menninguna og áhrif menningarinnar á tímann. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 46 min
  • Synir Egils 14. des - Samgöngur, fæðingarorlof, EES, Trump, Evrópa og þingið
    Sunnudagurinn 14. desember
    Synir Egils: Samgöngur, fæðingarorlof, EES, Trump, Evrópa og þingið
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Mogganum, Benedikt Erlingsson leikstjóri og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins. Við förum síðan yfir stöðuna á Alþingi á aðventunni. Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknar, Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingar ræða góðu málin sem verða samþykkt, málin sem ætti ekki að samþykkja og mikilvægu málin sem ekki verða afgreidd. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi í síðasta þættinum fyrir hátíðirnar.
    2 hr 33 min
  • Synir Egils 7. des - Pólitískt hneyksli, jarðgöng, risa og fall flokka, fjölmiðlar og öryggisstefna
    Sunnudagurinn 7. desember
    Synir Egils: Pólitískt hneyksli, jarðgöng, risa og fall flokka, fjölmiðlar og öryggisstefna
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þær Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknar, Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins og Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata og ræða fréttir vikunnar og pólitíkina; skólastjóramál, samgönguáætlun, fjárlög, stöðu flokka í könnunum til þings og borgar, veika fjölmiðlar og veikan húsnæðismarkaður. Við ræðum síðan sögulega öryggisstefnu Bandaríkjanna sem Trumpstjórnin birti við þá Albert Jónsson fyrrum sendiherra og ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og Guðlaug Þór Þórðarson fyrrum utanríkisráðherra.
    2 hr 14 min

About Synir Egils

From the publisher's feed

Synir Egils hafa áratuga reynslu af greiningu pólitískrar- og samfélagslegar umræðu. Á sunnudögm ræða þeir meðal annars við fólk úr stjórnmálum, fjölmiðlum og verkalýðshreyfingunni um brýnustu málefni…

More shows like Synir Egils

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

4 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eyjan by Eyjan

Eyjan

2 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

2 Listeners

Pæling dagsins by paelingdagsins

Pæling dagsins

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners