Synir Egils

Synir Egils

By Gunnar Smári Egilsson, Sigurjón M. EgilssonNewsNews CommentaryPoliticsDaily News
Download on the App Store

Synir Egils episodes

  • Synir Egils 30. nóv - Nató, fjölmiðlar, atvinna, leikskólar, jafnrétti, öryggi
    Sunnudagurinn 30. nóvember
    Synir Egils: Nató, fjölmiðlar, atvinna, leikskólar, jafnrétti, öryggi
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þær Guðrún Johnsen prófessor og deildarforseti viðskiptadeildar á Bifröst, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins; fjölmiðla, jafnrétti, atvinnustefnu, Evrópu og margt fleiri. Síðan ræðum við Nató og öryggismál Íslands og Evrópu við Davíð Stefánsson formann Varðbergs og Stefán Pálsson sagnfræðing. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 31 min
  • Synir Egils 23. nóv - Evrópusambandið, friðartilboð, okurvextir, húsnæði og pólitískar sveiflur
    Sunnudagurinn 23. nóvember
    Synir Egils: Evrópusambandið, friðartilboð, okurvextir, húsnæði og pólitískar sveiflur
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Ólína Þorvarðardóttir prófessor og deildarforseti á Bifröst, Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða fréttir vikunnar og stöðu mála hér heima og erlendis. Við ræðum síðan Evrópusambandið við tvo heiðursmenn: Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra, þingmaður og formaður BSRB og Þorsteinn Pálsson fyrrum ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins ræða stöðu sambandsins og kosti þess fyrir Ísland að ganga inn í ESB. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 34 min
  • Synir Egils 16. nóv - Pólitík, tollar, ríkislögreglustjóri, sorgir og sigrar
    Sunnudagurinn 16. nóvember
    Synir Egils: Pólitík, tollar, ríkislögreglustjóri, sorgir og sigrar
    Það verður góðmennt í þætti dagsins. Af nógu er að taka á vettvangi dagsins. Lögreglan, ógnir í efnahagslífinu, setur EB tolla á járnblendið. Í pólitíkinni er margt að gerast. Það blæs ekki byrlega fyrir gömlu valdaflokkana, Sjálfstæðisflokk og Framsókn. Hvað þurfa þeir að gera?
    Efnahagsmálin munu verða í brennidepli nú sem fyrr. Gestir verða þau Erla Hlynsdóttir, blaðamaður, Sigtryggur Ari Jóhannsson, blaðamaður og ljósmyndari, Sirrý Hallgrímsdóttir, fyrrum aðstoðarmaður ráðherra og Stefán Pálsson, sagnfræðingur með meiru.
    1 hr 16 min
  • Synir Egils 9. nóv - Atvinnuþref, vaxtakrísa, húsnæðisekla, menningarstríð og sósíalismi
    Sunnudagurinn 9. nóvember
    Synir Egils: Atvinnuþref, vaxtakrísa, húsnæðisekla, menningarstríð og sósíalismi
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Kjartan Sveinsson formaður Landssambands smábátaeigenda, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir blaðamaður og Arna Lára Jónsdóttir þingkona og ræða atvinnulíf, vaxtakrísu, húsnæðiseklu, efnahagslægð, menningarstríð og stöðuna í stjórnmálunum. Þá spyrjum við hvort sigur Zohran Mamdani í New York muni hafa áhrif á vinstrið annars staðar, meðal annars hér heima. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Finnur Dellsén prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, Rósa Björk Brynjólfsdóttir ráðgjafi og fyrrverandi þingmaður og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar ræða sósíalisma á uppleið. Í lokin ræða þeir bræður um pólitíkina með sínum hætti.
    2 hr 34 min
  • Synir Egils 2. nóv - Pólitíkin, Íslenskan og gervigreindin
    Sunnudagurinn 2. nóvember
    Synir Egils
    Vettvangur dagsins:
    Ragnar Þór Ingólfsson þingmaður Flokki fólksins
    Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður
    Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
    Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins
    Íslenskan í hættu?
    Guðrún Nordal prófessor
    Arnar Eggert Thoroddsen aðjúnkt
    Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur
    1 hr 36 min
  • Synir Egils 26. okt - Kvennabarátta, áföll í atvinnulífi, menningarstríð og alvöru stríð
    Sunnudagurinn 26. október
    Synir Egils: Kvennabarátta, áföll í atvinnulífi, menningarstríð og alvöru stríð
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar og stöðu mála. Síðan koma þau Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingarinnar, Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar og Sigurður Örn Hilmarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks og ræða stöðu flokka, stjórnar og þings og helstu málin sem eru óleyst á vettvangi stjórnmálanna. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 26 min
  • Synir Egils 19. okt - Pólitík, skautun, leikskólar, okur, vopnahlé og verkfall
    Sunnudagurinn 19. október
    Synir Egils: Pólitík, skautun, leikskólar, okur, vopnahlé og verkfall
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Eiríkur Örn Norðdahl skáld og rithöfundur, Drífa Snædal talskona Stígamóta og Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins, hér heima og erlendis. Síðan koma þau, Ásta Lóa Þórsdóttir þingkona, Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Róbert Marshall aðstoðarmaður borgarstjóra og velta fyrir stöðunni í stjórnmálunum og þeim verkefnum sem þar eru óleyst. Í lokin taka þeir bræður púlsinn á pólitíkinni.
    2 hr 24 min
  • Synir Egils 12. okt - Vopnahlé, leikskólar, Nóbel, pólitíkin og Framsókn
    Sunnudagurinn 12. október
    Synir Egils: Vopnahlé, leikskólar, Nóbel, pólitíkin og Framsókn
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Jóna Benediktsdóttir formaður Stjórnarskrárfélagsins, Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og Jón Trausti Reynisson ritstjóri Mannlífs og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni og síðan kemur Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar og ræðir stöðu flokksins, þingsins, stjórnmálanna og samfélagsins.
    2 hr 6 min
  • Synir Egils 5. okt - Átök á Alþingi, húsnæðiskreppa, menningarstríð, friðarvon og hernaðaruppbygging
    Sunnudagurinn 5. október
    Synir Egils: Átök á Alþingi, húsnæðiskreppa,, friðarvon, hernaður og ríkisfjármál
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða fréttir vikunnar og stöðu mála, hér heima og erlendis. Að því loknu koma þrír nefndarmenn úr utanríkismálanefnd og ræða öryggismál Evrópu, en á fundi leiðtoga Evrópuríkja var fullyrt að álfan væri nú í stríði við Rússland. Pawel Bartoszek, Dagbjört Hákonardóttir og Víðir Reynisson ræða öryggismál. Síðan kemur Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og fer yfir ríkisfjármálin.
    2 hr 38 min
  • Sunnudagurinn 28. september Synir Egils: Upplausn í alþjóðamálum, stríð og þjóðarmorð, fjárlög, húsnæðismál og pólitíkin innanlands
    Sunnudagurinn 28. september
    Synir Egils: Upplausn í alþjóðamálum, stríð og þjóðarmorð, fjárlög, húsnæðismál og pólitíkin innanlands
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Svandís Svavarsdóttir formaður VG og ræða fréttir innanlands og utan og stöðu mála. Síðan ræðum við veikingu lýðræðis í Bandaríkjunum. Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi og Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur fjalla um aðför ríkisstjórnar Trump að valddreifðu lýðræði. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 25 min

About Synir Egils

From the publisher's feed

Synir Egils hafa áratuga reynslu af greiningu pólitískrar- og samfélagslegar umræðu. Á sunnudögm ræða þeir meðal annars við fólk úr stjórnmálum, fjölmiðlum og verkalýðshreyfingunni um brýnustu málefni…

More shows like Synir Egils

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

4 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eyjan by Eyjan

Eyjan

2 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

2 Listeners

Pæling dagsins by paelingdagsins

Pæling dagsins

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners