
Sign up to save your podcasts
Or


By RÚV
4.3
1515 ratings
The podcast currently has 322 episodes available.
The most played episodes among Podcast App listeners.

Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem oft voru nöturlegar. Hún útvegaði konum því eitur og leiðbeindi þeim. Margir eiginmannanna í þorpinu beittu konur sínar ofbeldi og þær sáu enga aðra leið úr viðjum þess. Ástæðan fyrir því að við fjöllum um málið í vetur er sú að nýlega kom út bók þessa voveiflegu atburði í byrjun síðustu aldar. Bókin heitir The Women Are Not Fine, eða konurnar hafa það ekki gott. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við höfund bókarinnir og hún segir að karlarnir hafi síður en svo haft það gott heldur. En voru konurnar kaldrifjaðir morðingjar eða þolendur ofbeldis sem í örvæntingu sinni fundu ekki aðra leið út? Bók og glæpir fortíðar er sömuleiðis útgangspunkturinn í seinni umfjöllun dagsins. Þá ætlum við að huga að geðheilsu þeirra sem fremja voðaverk. Kveikjan er bók sem kom út 2013 sem lýsir sambandi geðlæknisins Douglas M. Kelley við Hermann Göring sem honum var gert að meta í aðdraganda Nuremberg réttarhaldanna. Saga sem nú er búið að gera bíómynd um. Birta Björnsdóttir fjallar um málið.

Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherranum, sem naut mikilla vinsælda, var vikið úr embætti. Síðsumars ruggaði hann bátnum allhressilega þegar hann sendi frá sér myndband þar sem hann lagði til að efnt yrði til kosninga. Bannað er að halda kosningar samkvæmt herlögum sem hafa gilt síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás 2022. Þá hafa orðið vendingar í spillingarmáli sem virðist teygja sig alla leið inn á skrifstofu forseta landsins, Volodymyrs Zelenskýs. Dagný Hulda Erlendsdóttir fer yfir stöðuna í úkraínskum stjórnmálum. Þau Birta og Bjarni Pétur fara svo yfir nokkrar af helstu fréttum sumarsins. Þar kemur meðal annars við sögu fatastíll Georgiu Meloni, tónlistarsmekkur Andy Brunham, frændsystkinin Margrét Þórhildur og Karl Gústaf og fleira.

Í Sumarheimsviðunum í dag ætlum við að huga að barneignum og barnauppeldi. Byrjum á byrjuninni, það þarf að eignast börnin áður en byrjað er að ala þau upp. En afhverju er fæðingartíðni stöðugt að lækka í heiminum og hvaða efnahagslegu og pólitísku afleiðingar hefur það á komandi árum? Jarðarbúum er vissulega enn að fjölga en nýjasta spá Sameinuðu þjóðanna gerir ráð fyrir að mannfjöldinn á jörðinni nái hámarki eftir rúma hálfa öld, árið 2084. Þá verði jarðarbúar samtals um tíu milljarðar og fimmti hver jarðarbúi verði þá eldri en sextíu og fimm ára. Björn Malmquist rýnir í framtíðina. Svo þegar börnin eru komin þá þarf að ala þau upp, og það er ekkert endilega alltaf auðvelt, sérstaklega á öld snjallsíma og samfélagsmiðla. Að deila eða ekki deila, það er spurningin. Hversu miklu af lífi barna er í lagi að deila á samfélagsmiðlum? Hvað þurfum við að hafa í huga og hverjar eru hætturnar? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar að segja okkur allt um fyrirbæri sem kallast sharenting og stjórnvöld á Spáni vilja setja lög um.

Vísindamenn spá því að El Niño verði öflugri en nokkru sinni fyrr, nái hámarki fyrir lok árs og valdi methita á heimsvísu á næsta ári. El Niño á sér stað að jafnaði á um fjögurra ára fresti. Þann 30. ágúst bættist Suður-Ameríkuríkið Ekvador á listann yfir þær þjóðir sem hafa lýst yfir neyðarástandi vegna veðurfyrirbærisins. Margir hafa heyrt það nefnt en færri vita hvað það er nákvæmlega. Hallgrímur Indriðason rýnir í það og þær alvarlegu afleiðingar sem gætu fylgt fyrir fjölda fólks. Svo förum við til Suður-Afríku. Undir lok ágúst voru 40 ár frá því bandaríski tónlistarmaðurinn Paul Simon opnaði augu og eyru vesturlandabúa fyrir afrískri tónlist en líka ógn og ömurð apartheid-tímans í Suður-Afríku. Graceland platan á sér enn sérstakan stað í hjörtum íbúa því hún sýndi hvað Suður-Afríka er fær um, að tónlist Afríku ætti erindi við heimsbyggðina alla og hún hljómar enn á götum suðurafrískra borga - tákn um frelsi og gleði og allt það sem býr í álfunni og íbúum hennar. Við tölum við Suður-afríkumenn. Annan sem ólst upp innan aðskilnaðarstefnunnar og hinn eftir að hún var afnumin 1991. Þau tengja bæði við tónlistina á ólíkan hátt og segja hana lifa góðu lífi í Suður-Afríku í dag, 40 árum eftir að hún var gefin út.

Nærri 38 ár eru liðin síðan flugvél Pan Am var sprengd yfir skoska bænum Lockerbie en réttarhöld í málinu eru í undirbúningi. Þeim var þó frestað skyndilega í ágúst þegar ný sönnunargögn komu fram. Kona sem missti föður sinn í hryðjuverkunum telur réttarhöldin geta markað einhvers konar endalok. Ólöf Ragnarsdóttir talar við hana í Heimskviðum í dag. Svo fjöllum við um ríkustu konu Rússlands síðustu fimm árin, en hún á og rekur netverslunarrisann Wildberries. Brynja Dögg Friðriksdóttir kynnti sér sögu þessarar konu og Wildberries, en árásir úkraínuhers frá því um miðjan júlí en árásirnar hafa markað ákveðin þáttaskil í átökunum milli Rússa og Úkraínumanna og hin sértæka hernaðaraðgerð Rússa líkt og innrásin kallast í Rússlandi, er komin mikið nær hinum almenna borgara í Rússlandi.
The podcast currently has 322 episodes available.

6 Listeners

458 Listeners

6 Listeners

64 Listeners

6 Listeners

141 Listeners

129 Listeners

9 Listeners

29 Listeners

30 Listeners

13 Listeners

8 Listeners

18 Listeners

27 Listeners

17 Listeners