Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Ljósin í Stjórnarráðinu og GRÓA
    Við hugum áfram að hruninu í Lestinni, það fara að verða komin 15 ár síðan, og rifjum upp annan þátt úr röðinni Nokkrir dagar í frjálsu falli frá 2018. Í þáttunum eru atburðir daganna í kringum mánaðarmótin september-október árið 2008 rifjaðir upp. Viðmælendur í þáttunum segja frá sýn sinni á hræingarnar og velta vöngum yfir óvissunni sem þá ríkti í samfélaginu. Í öðrum þættinum, Ljósin í Stjórnarráðinu er rætt við Golla og Þórdísi Arnljótsdóttur.
    Hljómsveitin GRÓA hringir svo út stelpupönk-umfjöllun vikunnar, þegar þær stofnuðu hljómsveitina voru þær unglingar í MH, höfðu varla snert hljóðfærin sem þær spiluðu á en komust í úrslit Músíktilrauna eftir sína fyrstu opinberu framkomu. Það var árið 2017 en síðan þá hafa þær gefið út nokkrar plötur, spilað víða í Evrópu og í vor er von á nýrri útgáfu frá þeim.
    55 min
  • Sóðaskapur, fólkið í bönkunum, Extreme Chill
    Það er stelpupönk á dagskrá í Lestinni þessa vikuna og í dag kynnumst við hljómsveitinni Sóðaskapur. Hana skipa þær Lára, Sólbjört og Hildur. Í fyrra komust þær í úrslit Músíktilrauna en núna í byrjun September sendu þær frá sér sína fyrstu breiðskífu sem er samnefnd sveitinni. Grýlurnar svífa yfir vötnum sem og David Bowie í lögunum sem fjalla meðal annars um sjálfstæðismenn, loftslagsmál, fórstureyðingar, perra sem elta þær á djamminu og pasta.
    Bráðum eru 15 ár frá þjónýtingu Glitnis sem markað upphafið að Hruninu og næstu daga munum við rifja upp þáttaröðina Nokkrir dagar í frjálsu falli frá árinu 2008. Þættirnir eru úr smiðju Guðna Tómassonar og Þorgerðar E. Sigurðardóttur og eru atburðarásin í kringum mánaðamótin september/október 2008 rifjuð upp. Í fyrsta þættinum, fólkið í bönkunum er skyggnst bak við tjöldin og rætt við bankastarfsmenn.
    Tilrauna- og raftónlistarhátíðin Extreme Chill verður haldin í 14. sinn núna um helgina. Hátíðin byrjaði á Hellissandi, færðist til Víkur í Mýrdal og Berlínar en undanfarin ár hefur hún átt samastað í Reykjavik. Umlykjandi hljóðheimar mæta taktföstum tónum á hátíðinni þar sem íslenskir og erlendir listamenn koma fram á nokkrum stöðum í borginni. Pan Thorarensen skipuleggjandi hátíðarinnar segir okkur upp og ofan af Extreme Chill
    55 min
  • Eðlisfræði í klípu og Boob Sweat Gang
    Í Lestinni þessa vikuna ætlum við að beina sjónum okkar að íslenskum stelpupönkhljómsveitum, við ræðum við meðlimi hljómsveitanna Sóðaskapur og Gróa, en við Byrjum á Boob Sweat Gang. Hljómsveitin var stofnuð árið 2019 á workshoppi hjá dansaranum og listakonunni Gígju Jónsdóttur, Wikihow to start a punk-band. Árið 2022 gáfu þær út sína fyrstu plötu, The Boob Sweat Gang The Album. Urður, Anna Guðrún og Eyrún komu í Lestina og sögðu sögur af Boob Sweat Gang.
    Er eðlisfræðin stöðnuð og á villigötum? Of upptekin af fallegum formúlum og furðulegum kenningum um fjölheima og fleiri víddir til að leggja eitthvað nýtt af mörkum? Þetta eru aðeins nokkrar af þeim spurningum sem þýski eðlisfræðingurinn Sabine Hossenfelder veltir upp í bók sem var að koma út í íslenskri þýðingu: Rammvillt í reikningskúnstum: hvernig fegurðin villir um fyrir eðlisfræðinni.
    55 min
  • Kalt Stálbarn, Volruptus og Skeng, Ást Fedru
    Þeir Bjargmundur Ingi Kjartansson, Volruptus, og Árni E. Guðmundsson, Skeng, eru í hópi íslenskra listamanna sem búsettir eru í Berlín. Báðir hafa þeir gert það gott á sviði raftónlistar. Steindór Grétar Jónsson kíkir í heimsókn í það sem kalla mætti félagsheimili íslenskra raftónlistarmanna í Berlín, eða íbúð Árna.
    Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Karl Ställborn, sem einnig er söngvari rokksveitarinnar Skrattar, opnaði sýningu sína Kalt Stálbarn í Gallerí 1300° á Bergstaðastræti síðasta föstudag. Myndir Karls eru unnar með trélit á svartan pappír og þar mætast harka og mildi, rafmagn og fígúrur. Lestin leit við hjá honum þar sem hann var í óðaönn við að hengja upp verkin nokkrum tímum fyrir opnun. Við heyrum það hér á eftir.
    Katrín Guðbjartsdóttir skrifaði lokaritgerðina sína um ofbeldið í Ást Fedru, leikriti Söruh Kane frá árinu 1996. Verkið er í sýningu í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Kolfinnu Nikulásdóttur. Við ræðum ofbeldið og sýninguna við Katrínu.
    55 min
  • Borgaraleg óhlýðni, leifar McDonalds og Kuldi
    Borgaraleg óhlýðni er hugtak sem fór lítið fyrir fyrr en upp úr síðustu aldamótum þegar mótmælendur og aðgerðasinnar hlekkjuðu sig við vinnutæki og vélar við Kárahnjúka, eftir hrunið fór aftur að bera á því og nú síðast þegar tvær konur klifu möstur hvalveiðiskipa og komu í veg fyrir að veiðar gætu hafist. Til að átta okkurbetur á hugtakinu og sögu þess sem nær allavega 170 ár aftur í tímann mæltum við okkur mót við Ólaf Pál Jónsson heimspeking.
    Kolbeinn Rastrick, kvikmyndarýnir Lestarinnar, fór á nýjan íslenskan sálfræðitrylli í bíó. Það er Kuldi í leikstjórn Erlings Thoroddsen en myndin byggir á samnefndri spennusögu Yrsu Sigurðardóttur. Þegar Óðinn fer að rannsaka áratugagömul mál tengd unglingaheimili koma fram dularfull tengsl við sjálfsvíg fyrrum eiginkonu hans og undarlega hegðun táningsdóttur hans. Við heyrum rýni Kolbeins
    Lestarferðinni lýkur svo á fjórða og síðasta þætti af McBlessi Ísland, örseríu Önnu Marsibilar Clausen frá 2019 um McDonalds á Íslandi. 30 ár eru síðan hamborgararisinn opnaði sitt fyrsta útibú hér á landi, 14 ár síðan það síðasta skellti í lás. En það er ekki þar með sagt að sögunni ljúki endilega þar.
    55 min
  • Heimaleikurinn, Hamborgarahrunið og Marble Machine
    McDonalds umfjöllun Önnu Marsibilar Clausen frá 2019 heldur áfram í dag. Við heyrum þriðja þátt örseríunnar McBlessi Íslands en þar er sjálft hamborgarahrunið tekið fyrir, þegar skyndibitarisinn riðaði til falls og íslenski hálfbróðirinn Metro kom í hans stað.
    Um helgina tekur heimildamyndahátíðin Skjaldborg yfir Bíó Paradís. Skjaldborgarhátíðin er haldin árlega á vorin á Patreksfirði en þeir sem komust ekki á hana gefst tækifæri til að sjá perlur hátíðarinnar um helgina. Við hittum leikstjóra myndarinnar Heimaleikurinn, sem vann Einarinn í ár, áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, þá Loga Sigursveinsson og Smára Gunnarsson.
    Sænski tónlistarmaðurinn Martin Molin varð að óvæntri YouTube stjörnu árið 2016 þegar myndband af sjálfspilandi hljóðfæri hans fór á flug. Eftir hugljómun á spiladósasafni í Hollandi varði hann meira en ári í smíði vélarinnar en þegar hugmyndin um að fara í tónleikaferðalag kviknaði þurfti hann að byrja upp á nýtt, smíða nýja vél. Við heyrum af og heyrum í þessu forvitnilega hljóðfæri hér a eftir.
    55 min
  • Flughræðsla Dóra DNA, McDaginn, Skilti
    Í kvöld verður grínmyndin Northern Comfort frumsýnd. Leikstjóri myndarinnar er Hafsteinn Gunnar Sigurðsson. Hann skrifaði einnig handritið, ásamt Halldóri Halldórssyni Laxnes og Tobias Munthe. Flughræðsla er meginstef myndarinnar og hana þekkir Dóri Dna, af eigin reynslu.
    Við höldum áfram að flytja seríuna McBlessi Ísland frá árinu 2019. Anna Marsibil Clausen rekur sögu McDonalds á Íslandi.
    Og við lítum við í skiltagerðinni Bræðurnir Baldursson en í samstarfi við listasafn Íslands stilltu þeir upp sýningu á textaverkum sem hluta af sýningunni Myndlistin okkar.
    55 min
  • Terminal X, McDonald's á Íslandi, Ásdís María
    Við heimsækjum lítið sýningarrými sem stendur við Strandgötu í Hafnarfirði, Litla Gallerý. Þar taka á móti okkur Olivia Kwok, Borghildur Indriðadóttir og Freyja Eilíf en þær eru aðstandendur sýningarinnar Terminal X Tangibility and Waves - áþreifanleiki og bylgjur sem opnaði þann 7. september síðastliðinn.
    Anna Marsibil Clausen gerði fjögurra þátta seríu um sögu McDonalds, skyndibitakeðjunnar, hér á landi, árið 2019, þegar 10 ár voru liðin frá því að síðasti BicMacinn var framreiddur. Nú eru liðin 30 ár frá því að Davíð Oddson beit í fyrsta BicMacinn, við opnun staðarins í Skeifunni, og að því tilefni flytjum við seríuna Mc'Blessi Ísland á ný.
    Steindór Grétar Jónsson ræðir við tónlistarkonuna Ásdísi Maríu Viðarsdóttur sem hefur gert það gott í Þýskalandi og víðar upp á síðkastið. Þau ræða meðal annars starf lagahöfundarins en Ásdís María hefur samið fyrir nokkrar af þekktustu poppstjörnum í heimi.
    55 min
  • Burning Man, kveikjuviðvaranir, samkvæmisdans í L.A.
    Óli Hjörtur Ólafsson rifjar upp ævintýralega heimsókn sína á Burning Man hátíðina í Nevada eyðimörkinni árið 2011. Hátíðin var mikið í fjölmiðlum undanfarnar daga en 72 þúsund hátíðargestir voru innlyksa á hátíðinni sökum rigningar. Rigningin hafði breytt uppþornuðum vatnsbotninum sem kallaður er Playa af hátíðargestum, í forarsvað sem ómögulegt var að keyra í.
    Þórður Ingi Jónsson ræðir við samkvæmisdansarann Þorkel Jónsson sem búsettur í Los Angeles og við rifjum upp innslag frá því í ágúst í fyrra þegar Kristján Guðjónsson kynnti sér tilgang og virkni kveikjuviðvarana eða trigger warnings.
    55 min
  • Fiðluteknó Geigen, Rauða bókin hans Jung og Forest Swords
    Fiðluteknótvíeykið Geigen sem er skipað þeim Gígju Jónsdóttur og Pétri Eggertssyni, þau fagna útgáfu tveggja platna með tónleikum í Iðnó annað kvöld. Tónlist Geigen verður til inni í skálduðum vísindasagnaheimi úr þeirra eigin ranni og flutningur hennar tekur oftar en ekki á sig mynd gjörnings eða sýningar, nú síðast með Íslenska dansflokknum, en samstarfssýning þeirra Geigengeist sem sett var upp í Borgarleikhúsinu í fyrra vann til þriggja Grímuverðlauna, meðal annars fyrir tónlist ársins.
    Rauða bókin er ferðalag eins merkasta geðlæknis 20. aldarinnar um eigin dulvitund. Rauða bókin er skrautskrifuð og myndskreytt bók sem Carl Gustav Jung dundaði sér við í 16 ár á fyrri hluta síðustu aldar. Anna Gyða Sigurgísladóttir skoðaði sögu þessa merka verks í Lestinni 2018 og við ræddi við Hallfríði J. Ragnheiðardóttur, sem þekkir vel til verka Jungs.
    Ný plata er væntanleg frá tónlistarmanninum Matthew Barnes sem kallar sig Forest Swords, sú fyrsta frá árinu 2017. Barnes sver sig í ætt við James Blake, Burial og Four Tet og tónlist hans kallar upp myndir af öllu og engu í senn, það er hægt að hlusta á hana aftur og aftur, í nýju samhengi og nýjum aðstæðum, með athygli eða fjarrænum eyrum. Í lok þáttar heyrum við nokkur lög af plötunni sem heitir Bolted og kemur út í október.
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners