Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Maður lifandi, 3. jan - Ungt fólk á Gasa og agavandi í skólum
    Starkaður og Björn ræða jól og mannréttindi í fyrsta þætti ársins. Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur fer yfir hryllinginn á Gaza og ekki síst stöðu ungs fólks og barna. Þá kemur Sigríður Nanna Heimisdóttir, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla og bregst við atriði í Skaupinu þar sem nemandi hótaði kennara lögsókn vegna óskar um heimanáms. Maður lifandi setur áherslur ungs fólks á oddinn. Þátturinn er sýndur klukkan 16 í sjónvarpi Samstöðvarinnar á fimmtudögum í viku hverri.
    51 min
  • Rauða borðið 3. jan - Efnahagurinn 2024, heimsmálin og Soviet Barbara
    Miðvikudagurinn 3. janúar
    Efnahagurinn 2024, heimsmálin og Soviet Barbara
    Við byrjum á að fá tvö ritstjóra til að horfa fram á árið 2024. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar spáir í efnahaginn og Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks spáir í heimsmálin, stríð, átök og veikleika lýðræðisins. Í lokin förum við svo til Moskvu. Gaukur Úlfarsson kvikmyndagerðarmaður og Guðni Tómasson útvarpsmaður gerðu heimildarmynd um Bjarmalandsför Ragnars Kjartanssonar myndlistarmanns, sem fékk skjótan endi þegar Pútín réðst inn í Úkraínu. Við spyrjum þá hvers konar mynd þetta eiginlega var, Soviet Barbara.
    3 hr 19 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Ársuppgjör
    Föstudagurinn 29. desember
    Vikuskammtur: Ársuppgjör
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Transparency International á Íslandi, Elín Oddný Sigurðardóttir verkafnastýra, Jökull Sólberg Auðunsson forritari og Mar­grét Hug­rún Gúst­avs­dótt­ir blaðamaður og mannfræðinemi og ræða fréttir ársins sem einkenndust af átökum, stríði, óróa, jarðskjálftum, hneykslum, verðbólgu, vitlíki og veseni.
    1 hr 43 min
  • Synir Egils, 30. des - Áramótaþáttur
    Laugardagurinn 30. desember
    Synir Egils: Áramótaþáttur
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða fréttir liðins árs, ástand mála og horfur á nýju ári við góðan hóp gesta. Fyrst kemur fólk úr verkalýðshreyfingunni: Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. Þá þrautreyndir blaðamenn: Lára Zulima Ómarsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarsson og Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar. Og einnig fólk úr baráttusamtökum: Árni Múli Jónasson formaður Transparency International á Íslandi og framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna. Síðan munu þeir bræður spá fyrir um komandi ár
    3 hr 27 min
  • Rauða borðið, 19. des - Heimsmálin, nýfrjálshyggja, Islam, evran
    Þriðjudagurinn 19. desember
    Heimsmálin, nýfrjálshyggja, Islam, evran
    Jón Ormur Halldórsson kemur að Rauða borðinu og æðir heimsmálin. Kristin Vala Ragnarsdóttir kemur og ræðir um nýfrjálshyggju. Kristján Þór Sigurðsson kemur og segir okkur frá samfélagi múslima á Íslandi. Og Thomas Möller kemur til að halda því fram að evran muni leysa öll vandamáli Íslands.
    4 hr 54 min
  • Rauða borðið, 18. des - Lífeyrissjóðir og fyrirtæki, búseti og endalok vaxtar
    Mánudagurinn 18. desember
    Lífeyrissjóðir og fyrirtæki, búseti og endalok vaxtar
    Við fáum góðan gest frá Danmörku, Guðrúnu Johnsen, sem starfar við danska Seðlabankann. Hún hefur rannsakað fyrirtækjarekstur á Norðurlöndunum og ekki síst með tilliti til þess hversu stórir eftirlaunasjóðirnir eru. Hún segir okkur frá völdunum í atvinnulífinu, þar sem við störfum og lifum stóran hluta vökutímans. Páll Gunnlaugsson arkitekt hefur skrifað bók um Búseta, húsnæðissamvinnufélagið sem tókst að byggja upp fyrir fjörutíu árum. Við fáum hann til að segja okkur þá sögu. Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur sem sinnt hefur umhverfishugvísundum á liðnum árum segir okkur frá hag­fræði, þekkingu, verð­leikum og vist­kerfi.
    3 hr 12 min
  • Synir Egils, 17. des - Aðventa, átök og álitamál
    Sunnudagurinn 17. desember
    Synir Egils: Aðventa, átök og álitamál
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur og Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri. Síðan munu bræðurnir greina stöðuna í þinginu, í stjórnmálunum, á ríkisstjórninni og í kjaradeilum.
    1 hr 33 min
  • Mótmæli í morgunmat - Glimmerumræðan; „Ef ég verð að deyja“
    Mótmæli í morgunmat; Friðarviðræður - Glimmerumræðan; „Ef ég verð að deyja“
    Sunnudagur, 17. desember.
    Í friðarviðræður mæta að þessu sinni þau Margrét Kristín Blöndal tónlistarkona og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálafulltrúi Eflingar og ræða um glimmer-uppákomuna og allt henni tengt, segja frá reynslu sinni og ræða um mótmæli út frá mörgum sjónarhornum á meðan þau skreyta mandarínur með negulnöglum á aðventunni. Undir lok þáttar minnumst við palestínska skáldsins Refaat Alareer, höfundar ljóðsins sem í íslenskri þýðingu Braga Páls Sigurðarsonar heitir ,,Ef ég verð að deyja"
    1 hr 21 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners