Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Páll Biering
    Laugardagurinn 16. desember
    Helgi-spjall: Páll Biering
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Páll Biering geðhjúkrunarfræðingur, skáld og eftirlaunamaður frá uppvexti sínum og ætt, uppreisnum og áföllum, starfi með unglingum og flóttafólki og því sem mótaði hann og leiddi.
    1 hr 46 min
  • Heimsmynd sr. Gunnar Jóhannesson
    Hinn rómaði prestur sr. Gunnar Jóhannesson er gstur þáttarins
    Gunnar er prestur á Selfossi og fæddur sama ár og þáttastjórnandi eða 1977. Þeir fóru aldeilis sitthvora leiðina í lífinu. Kristinn urrandi trúleysingi en Gunnar heittrúaður prestur. Þeir eru þó ekki svo ólíkir. Báðir mjög uppteknir af stóru spurningunum svokölluðu, um tilgang og eðli tilverunnar
    Þeir velta við ýmsum steinum í vangaveltum um sannleikann og guð og menningarumhverfi trúaðra og hvort þetta sé allt saman bara leikur í einhverjum skilningi.
    59 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 50
    Föstudagurinn 15. desember
    Vikuskammtur: Vika 50
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Aldís Yngvadóttir keramiker, Eyrún Björk Jóhannsdóttir varaformaður Flugfreyjufélagsins, Helgi Steinar Gunnlaugsson blaðamaður og Þórdís Gísladóttir rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum, stríði og verkföllum en líka af aðdraganda jóla, samkomulagi og leit að lausnum.
    1 hr 15 min
  • Grimmi og Snar - Spiritual hjartað
    Kristinn Ágúst Friðfinnsson og Ingibjörg Magnadóttir ræða um spiritual hjartað, fimleikasýningar í kirkju, sáttarmiðlun, sálgæslu og auðvitað ruglið í raunveruleikanum.
    Grimmi & Snar: Hasarþáttur Grimmi og Snar er hasarþáttur með frænkunum Ingibjörgu Magnadóttur og Köru Guðmundsdóttur
    1 hr 36 min
  • Rauða borðið, 14. des - Píratar, dönskukennsla, kvenlöggan, verkalýðsflokkar og samfélagsleg ábyrgð
    Fimmtudagurinn 14. desember
    Píratar, dönskukennsla, kvenlöggan, verkalýðsflokkar og samfélagsleg ábyrgð
    Þórhildur Sunna Ævarsdóttur þingflokksformaður Pírata segir okkur fyrir hvað Píratar standa, hvað þeir vilja og hvernig þeir ætla að ná því í gegn. Kennararnir Álfhildur Leifsdóttir og Hólmfríður Árnadóttir köstuðu því upp að kannski ættum við að hætta að kenna dönsku. Við spyrjum hvort þær meina það í alvöru. Eyrún Eyþórsdóttir lektor í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri segir okkur frá kvenlögreglunni frá því á árum áður. Kjartan Valgarðsson vill halda því fram að Samfylkingin sé verkalýðsflokkur. Við fáum hann til að rökstyðja það. Í lokin segir Eiríkur Smári Sigurðarson, rannsóknarstjóri hugvísindasviðs Háskóla Íslands, okkur frá samfélagsábyrgð háskóla.
    4 hr 5 min
  • Miðjan: Svanur Gísli
    Svanur Gísli Þorkelsson er gestur Sigurjóns í þættinum Miðjan á miðvikudegi. Svanur er mikill áhugamaður um sögu lands og þjóðar. Hefur skrifað margar frásagnir.
    49 min
  • Rauða borðið 13. des - Efnahagsleg krísa, andkristur, skólar og lífrænn landbúnaður
    Miðvikudagurinn 13. desember
    Efnahagsleg krísa, andkristur, skólar og lífrænn landbúnaður
    Við fáum Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðing í fjármálum til að segja okkur frá minnkandi hagvexti, mikill verðbólgu, háum vöstum og fallandi krónu. Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor segir okur frá Andkristi um Nietzsche, Jesús og Páli postula og konunum sem hafa bætt hugsun þeirra allra. Benedikt Sigurðarson fyrrverandi skólastjóri segir okkur frá sínu mati á niðurstöðum Pisa og Kristján Oddsson bóndi á Neðri-Hálsi í Kjós segir okkur frá hvernig hann stundar sinn lífræna búskap.
    2 hr 56 min
  • Rauða borðið, 12. des - Fíklar, Úkraína, Grindavík, borgir og skólinn okkar
    Þriðjudagurinn 12. desember
    Fíklar, Úkraína, Grindavík, borgir og skólinn okkar
    Við ræðum við fíkla og aðstandendur þeirra um undirheimanna og lítið aðgengi fíkla að heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þröstur Ólafsson, Hilma Dögg Hávarðardóttir og Halla Björg Albertsdóttir segja okkur frá sinni reynslu. Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um Úkraínu, minnkandi stuðning og verri stöðu á vígvellinum. Feðgarnir Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og Einar Hannes Harðarson formaður Sjómannafélags Grindavíkur koma til okkar og fara yfir stöðu fólks á flótta undan náttúruöflunum. Haraldur Sigurðsson skipulagsfræðingur segir okkur frá hugmyndum fólks um hina góðu borg. Og þá illu. Í lokin kemur Björn Pétursson fyrrum skólastjóri Melaskóla að rauða borðinu og segir okkur frá því hvernig hann myndi vilja byggja upp skólakerfið.
    4 hr 2 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners