Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 9. jan - Mið-Austurlönd, dauðalisti fíkla og norræna samningslíkanið
    Þriðjudagurinn 9. janúar
    Mið-Austurlönd, dauðalisti fíkla og norræna samningslíkanið
    Magnús Bernharðsson prófessor kemur til okkar og skýrir stöðuna í Mið-Austurlöndum og hættuna á að átökin þar breiðist út. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir, Anna Steindórsdóttir og Þröstur Ólafsson eru öll aðstandendur sem taka þátt í aðgerðarhópi til að berjast fyrir rétti fíkla til heilbrigðisþjónustu og mannvirðingu. Þau segja okkur frá baráttunni. Sonur Guðmundu Guðmundsdóttur hefur verið lengi á bið eftir meðferð. Hún segir okkur frá stöðu sonar síns og barnabarn hennar, María Mist Þórs Sigursteinsdóttir, segir okkur frá reynslu sinni sem barn fíkils. Í lokin fer Magnús Norðdahl lögmaður Alþýðusambandsins yfir norræna vinnumarkaðsmódelið, hvað þarf til að það virki og hvers vegna Íslendingar hafa farið aðra leið.
    2 hr 40 min
  • Rauða borðið 8. jan - Kjaraviðræður, forsetaframboð og gervigreind
    Mánudagurinn 8. janúar
    Kjaraviðræður, forsetaframboð og gervigreind
    Við fáum Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar til að segja okkur hver staðan í kjaraviðræðunum er, hvort verið sé að semja og þá um hvað. Eða það sem hún má segja um þetta. Arnar Þór Jónsson lögmaður var fyrstur til að tilkynna framboð til forseta. Við spyrjum hann um hvernig forseti hann vill verða og hvernig hann metur stöðuna í samfélaginu og stjórnmálunum. Í lokin kemur Þórhallur Magnússon prófessor við tónlistardeild Sussex háskóla og segir okkur frá skapandi gervigreind og öllum þeim álitamálum sem hún dregur fram.
    2 hr 14 min
  • Red reality - Mímir Kristjánsson: Rødt party and socialism
    On tonights episode we have a special guest from Norway. Mímir Kristjánsson is a member of the Norwegian Storting for the Rødt (red) party, he was formerly a city councilor in Stavanger and a political journalist for Klassekampen.
    Join us as we explore the Red party and how it's projects relate to our struggle in Iceland.
    We discuss energy infrastructure and the EU market, austerity, privatization, capitalism vs. democracy and the need for socialist reforms and action on Red reality tonight at 18:30
    1 hr 19 min
  • Synir Egils, 7. jan - Forsetinn, samfélagið, stríðsglæpir og vandi Sjálfstæðisflokksins
    Sunnudagurinn 7. janúar
    Synir Egils: Forsetinn, samfélagið, stríðsglæpir og vanda Sjálfstðisflokksins
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Erla Hlynsdóttir blaðakona á Heimildinni, Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambandsins og Róbert Marshall blaðamaður og útivistarfrömuður og ræða komandi forsetakjör, kjaraviðræður og ástandið í samfélaginu. Þeir bræður munu meta stöðu þingflokkanna en síðan heyrum við í Helen Ólafsdóttur öryggisráðgjafa sem heldur því fram að íslensk stjórnvöld ættu að styðja kæru stjórnar Suður Afríku um stríðsglæpi Ísrael. Í lokin tökum við stöðuna á Sjálfstæðisflokknum, sem aldrei hefur mælst veikari. Vilhjálmur Árnason ritari og þingmaður flokksins, Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður og Stefán Einar Stefánsson blaðamaður velta fyrir sér styrkleika, veikleika, tækifærum og ógnum Sjálfstæðisflokksins.
    2 hr 22 min
  • Mótmæli í morgunmat; Friðarviðræður - Afstaða Íslands afhjúpuð
    Í Friðarviðræðum að þessu sinni er afstaða Íslands til umhverfismála afhjúpuð og rædd í allri sinni svörtustu og björtustu mynd. Í fyrri hluta þáttar koma saman Þorgerður María Þorbjarnardóttir, fomaður Landverndar, Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, Finnur Ricart Andrason, forseti Ungra Umhverfissinna og Guðmundur Steingrímsson, stjórnarmaður í Landvernd. Í seinni hluta þáttar mæta þeir Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður leigjendasamtakanna og Þór Saari, fyrrum þingmaður og hagfræðingur til leiks.
    2 hr 13 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 01
    Föstudagurinn 5. janúar
    Vikuskammtur: Vika 01
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Árni Sveinsson kvikmyndagerðarmaður, Týr Þórarinsson aka Mummi í Mótorsmiðjunni, Imur Kristjánsdóttir leikkona og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sviðshöfundur og ræða fréttir fyrstu viku ársins sem einkenndust af óvæntum tilkynningum, tilraunum til fyndni, flensu, kjaraviðræðum, mótmælum og meðmælum.
    1 hr 29 min
  • Grimmi og Snar - Átta er eins og kónguló
    Átta er eins og kónguló
    🔗 8️⃣🕷️
    Gleðin er í bumbunni, rétt hjá naflanum og 2024 er númer átta.
    Ég þú vilt vita meira þá er þessi þáttur fyrir þig.
    Talspekingurinn Estrid Þorvaldsdóttir fer af kostum og rýnir í hvað árið gæti fært okkur.
    1 hr 23 min
  • Rauða borðið 4. jan - Forsetaframboð, Siggi hakkari og áhrif loftslagsbreytinga á heilsu
    Fimmtudagurinn 4. janúar
    Forsetaframboð, Siggi hakkari og áhrif loftslagsbreytinga á heilsu
    Við fáum Andri Snær Magnason rithöfund til að lýsa því fyrir okkur hevr sú raun er að ganga í gegnum forsetakosningar. Hann segir okkur frá eigin reynslu og hvers vegna hann var svona lengi að jafna sig eftir hana. Stöð 2 er að fara að sýna heimildarmyndina A Dangerous Boy um Sigurður Ingi Þórðarson aka Sigga hakkara. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður kemur og segir okkur frá þessum manni, en Bjartmar afhjúpaði að flest það sem Siggi sagði FBI, og sem síðan varð límið í ákærunni gegn Julian Assange, var lygi. Síðan kemur Hjalti Már Björnsson bráðalæknir og segir okkur frá áhrifum loftslagsbreytinga á heilsu okkar, en líka frá slæmum afleiðingum einkabílsins á líkamlega, andlega og félagslega heilsu okkar.
    2 hr 44 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners