Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Reykjavíkurfréttir, 12. des - Útstrokun vinnuaflsins og hræddir valdhafar
    Í upphafi spjalla þær Andrea Helgadóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir sín á milli um það sem borið hefur á í umræðu og í borgarmálum þessa vikuna.
    Andrea talar að því loknu við systkinin Nönnu Hlín Halldórsdóttur heimspeking og Bjarka Gunnar Halldórsson arkitekt um hvort og hvernig þau sjái einkenni þess að vinnuaflið sé ósýnilegt þegar horft er á samfélagið og umhverfið. Hvort einhver hluti almennings, eða einhver iðja almennings og borgarbúa hafi strokast út í íslensku borgar- eða samfélagsskipulagi. Andrea mun halda áfram að fjalla nánar um það þema í þáttunum á næstunni, við bjóðum hana velkomna í þáttargerðateymið.
    1 hr
  • Red reality - World Humanist Forum
    Tonight we'll be speaking to organizers from the World Humanist Forum. Antonio Carvallo and Júlíus Valdimarsson
    The African humanist forum and the Asian Humanist forum are a growing peoples movement that seeks to educate, inspire and heal. How do we overcome human violence, poverty and war?
    Tonight we will get a unique opportunity to discuss and address these issues from a humanist perspective and hear about these organizations efforts in humanizing the world.
    1 hr 2 min
  • Rauða borðið, 11. des - Skólinn, pólitík í USA, samfélagið, Samfylkingin og loftslagið
    Mánudagurinn 11. desember
    Skólinn, pólitík í USA, samfélagið, Samfylkingin og loftslagið
    Við höldum áfram að greina skólakerfið. Ragnar Þór Pétursson kennari í Norðlingaskóla kemur og greinir vanda kerfisins, orsök og leiðir út. Við ræðum við Guðmund Hálfdanarson sagnfræðing um stjórnmál í Bandaríkjunum og hvaða áhrif þau hafa á stríð og frið í heiminum. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur var að senda frá sér ævintýri um ójöfnuð og segir okkar hvernig samfélagið virkar á hana. Það er komið að Samfylkingunni í viðtölum okkar við þingflokksformenn. Logi Einarsson segir okkur frá því fyrir hvað hún stendur og hvað hún vill. Í lokin kemur Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, og greinir stöðuna á Cop28.
    4 hr 16 min
  • Synir Egils, 10. des - Glimmer, Gaza, Pisa og póltík
    Sunnudagurinn 10. desember
    Synir Egils: Glimmer, Gaza, Pisa og póltík
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Benedikt Erlingsson leikstjóri, Karen Kjartansdóttir almannatengill og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins. Þeir bræður draga saman stöðuna í pólitíkinni en snúa sér síðan að skólamálum. Slá á þráðinn til Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóra í Vík í Mýrdal og doktorsnema, og spyrja um stöðu innflytjenda í skólakerfinu. Síðan koma Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor við HÍ, Björn Kristjánsson kennari í Laugarlækjarskóla og Hulda Dögg Proppé kennari í Sæmundarskóla og skiptast á reynslu og þekkingu af skólakerfinu.
    2 hr 46 min
  • Heimsmynd - Sigurður Hólm Gunnarsson
    Sigurð Hólm Gunnarsson er gestur þáttarins en Sigurður var snemma viðriðinn Siðmennt á tíunda áratug síðustu aldar og segir góðar sögur úr starfinu og hvernig Vantrú varð til vegna ágreinings í samtökum trúlausra um svipað leiti. Sigurður ræddi um fyrirmyndir sínar, heimsmynd og siðfræði.
    Í þáttunum Heimsmynd fær Kristinn Theodórsson til sín góða gesti sem ræða trúleysi og trúmál og þær heimsmyndir sem maðurinn skapar sér.H
    1 hr 13 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 49
    Föstudagurinn 8. desember
    Vikuskammtur: Vika 49
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna, Flosi Eiríksson trésmiður og formaður Breiðabliks, Mar­grét Hug­rún Gúst­avs­dótt­ir blaðamaður og mannfræðinemi og Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af svörtum skýrslum, harðnandi stríðum, upplausn, mótmælum og því að jólin eru í nánd.
    1 hr 27 min
  • Rauða borðið, 7. des - Skólinn, Viðreisn og heiðinn siður
    Fimmtudagurinn 7. desember
    Skólinn, Viðreisn og heiðinn siður
    Við höldum áfram umfjöllun um skólamál. Fyrst sláum við á þráðinn til Þorláks Axels Jónssonar aðjunkts við kennaradeild Háskólans á Akureyri og ræðum próf sem tæki gegn stéttaskiptingu. Síðan fáum við Jón Torfa Jónasson prófessor til að lýsa skólakerfinu og átökunum um það, en fáir hafa betri innsýn inn í þróun þess á liðnum áratugum. Það er komið að Viðreisn í viðtölum við þingflokksformenn. Hanna Katrín Friðriksson segir okkur frá Viðreisn, fyrir hvað hún stendur og hvað hún vill. Í lokin kemur Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði og ræðir um aðventuna og heiðinn sið, andlega stöðu okkar og samfélagsins.
    4 hr 3 min
  • Maður lifandi : Ungt fólk og framtíðin
    Framtíð Íslands í stjórnmálum, bíóferð og fleira skemmtilegt
    Í þætti vikunnar verður yfirgripsmikið viðtal við Kristrúnu Frostadóttur sem margir spá að taki við rekstri íslenska ríkisins að loknum næstu þingkosningum. Spurningar sem tengjast hugðarefnum ungs fólks og framtíðinni verða í brennidepli.
    Þá fara umsjónarmenn þáttanna, feðgarnir Starkaður og Björn Þorláks, í bíó. Þeir munu skiptast á skoðunum með Heiðari Sumarliðasyni kvikmyndarýni um stórmyndina Napoleon. Sumir reiðir. Aðrir hrósa myndinni í hástert.
    Ýmislegt fleira ber á góma í Maður lifandi, nýr þáttur frumsýndur vikulega á Samstöðinni klukkan 16 á fimmtudögum. Þá má horfa á þáttinn í gegnum facebooksíðu Samstöðvarinnar eða vefsíðuna samstodin.is
    48 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners