Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Heimsmynd : sr.Jóhanna Magnúsdóttir
    Í þáttunum Heimsmynd fær Kristinn Theodórsson til sín góða gesti sem ræða trúleysi og trúmál og þær heimsmyndir sem maðurinn skapar sér.
    Gestur Kristins í þessum fyrsta þætti er sr Jóhanna Magnúsdóttir. Þau rifja upp gömul kynni og ræða
    átökin milli Nýju Trúleysingjanna um aldamót við kirkjuna og trúað fólk og hvort það megi ekki segja ýmislegt jákvætt um það allt saman. Leiðir þeirra lágu saman í frumbernsku bloggsins og samfélagsmiðla.
    1 hr 17 min
  • Synir Egils – aukaþáttur: Fullveldisviðtal við forsetann
    Föstudagurinn 1. desember
    Synir Egils – aukaþáttur: Fullveldisviðtal við forsetann
    Guðni Th. Jóhannesson forseti ræðir við þá bræður, Gunnar Smára og Sigurjón Magnús Egilssonar, um fullveldið, samfélag árið 1918 þegar Ísland var fullvalda og um reynsluna af fullveldinu síðan þá. Og veltir fyrir sér fullveldi hverra, hafa allir náð auknum áhrifum í samfélaginu og aukin völd yfir eigin lífi.
    1 hr 16 min
  • Grimmi og Snar - Kaos og order
    Fimmtudagur 30. nóvember
    "Kaos og order"
    Hasarþáttur
    Grimmi og Snar er hasarþáttur með frænkunum Ingibjörgu Magnadóttur og Köru Guðmundsdóttur
    Í þessum þætti velta þær frænkurnar fyrir sér "kaosi og order" og áhrifum þess á líf þeirra
    50 min
  • Rauða borðið - Kvótinn, loftslagið, kvennabaráttan og maturinn
    Fimmtudagurinn 30. nóvember
    Kvótinn, loftslagið, kvennabaráttan og maturinn
    Við höldum áfram að ræða kvótann í tilefni af sjávarútvegsstefnu Svandísar Svavarsdóttur. Nú koma þingmennirnir Oddný Harðardóttir frá samfylkingu, Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn og Björn Leví Gunnarsson Pírati og segja sitt álit á tillögum Svandísar og hvernig þau myndu vilja hafa sjávarútvegsstefnuna. Í tilefni af COP28, loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna kemur Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor og segir okkur hver staðan er og hvað þarf að gera. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjóri og Hjördís Hjartardóttir félagsráðgjafi segja okkur frá Guðrúnu Jónsdóttur, stofnanda Stígamóta og fyrrum borgarfulltrúa, í tilefni þess að Ingibjörg skrifaði bók um Guðrúnu. Og í lokin höldum við áfram umræðu um matarræktun í borgarlandinu. Dóra Svavarsdóttir formaður Slow Food á Íslandi ræðir við okkur um matvælaframleiðslu, dreifingu og sölu.
    2 hr 41 min
  • Miðjan á miðvikudegi - Þröstur Ólafsson
    Miðvikudagurinn 29. nóv ´23
    Þröstur Ólafsson hagfræðingur hefur sent frá sér bókina, Horfinn heimur. Þar fjallar Þröstur um margt sem hefur farið hátt og eða haft mikil áhrif á okkur sem þjóð. Þröstur er gagnrýnin á menn og málefni. Bókin er skemmtileg og vel upp sett. Þröstur er gestur þáttarins; Miðjan á miðvikudegi.
    42 min
  • Rauða borðið, 29. nóv - Félagslegir töfrar, Kolkrabbinn og matur landnámsaldar
    Miðvikudagurinn 29. nóvember
    Félagslegir töfrar, Kolkrabbinn og matur landnámsaldar
    Við byrjum á ferðalagi í leit að félagslegum töfrum með Viðari Halldórssyni, fáum hann til að lesa í nokkrar ljósmyndir og ráða í félagslegt heilbrigði okkar tíma. Þá kemur Örnólfur Árnason til okkar og segir okkur frá bókinni Á lóð kolkrabbans, sem fjallaði um þá sem áttu Íslandi fyrir þrjátíu árum og eiga að mestu enn. Og um vanhelgt samlífi viðskipta og stjórnmála. Í lokin förum við í ferð aftur á landnámsöld og fáum þá Kristbjörn Helgi Björnsson og Úlfar Finnbjörnsson til að segja okkur hvað var þá í matinn.
    2 hr 19 min
  • Rauða borðið, 28. nóv - Fátækin, íslenskan, neyslan og sauðkindin
    Þriðjudagurinn 28. nóvember
    Fátækin, íslenskan, neyslan og sauðkindin
    Elísabet Kjárr er föst á milli tveggja kerfa, féll af endurhæfingarlífeyri og kemst ekki á örorku, og er tekjulaus, fallin í gegnum möskvana á öryggisnetinu í samfélaginu. Hún segir okkur sína sögu. Það sama gerir Jakub Stachowiak, hommi sem flúði Pólland og yrkir og skrifar á íslensku. Daði Jónsson kvikmyndagerðarmaður kemur til okkar og segir okkur frá menningarsjokkinu sem hann varð fyrir þegar hann flutti heim til Íslands og enduruppgötvaði hvað við vinnum mikið, neytum mikið og sóum miklu. Og líklega gæti Ólafur Dýrmundsson tekið undir það, búvísindamaður og sauðfjárbóndi í Breiðholti. Hann ræðir um þörfina fyrir ræktun og búskap í borgarlandinu.
    3 hr 43 min
  • Reykjavíkurfréttir, 28. nóv - Fjárhagsáætlun og AirBnB
    Sanna Magdalena Mörtudóttir og Andrea Helgadóttir borgar- og varaborgarfulltrúi Sósíalista fara yfir helstu fréttir úr borginni. Fjárhagsáætlunargerð stendur nú yfir og munum við fara yfir breytingartillögur Sósíalista. Þá koma Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Samtaka leigjenda og Jón Ferdínand Estherarson sem situr í stjórn samtakanna til okkar og ræða um skaðsemi Airbnb og áhrif þess á leigumarkaðinn.
    1 hr 26 min
  • Rauður raunveruleiki - Kúgun vesturlanda og Palestína: Heimsvaldastefnan og arfleið hennar
    Í Rauðum raunveruleika í kvöld munum við kanna hvernig Sameinuðu þjóðirnar hafa brugðist Palestínu og fleiri löndum sem hafa orðið fyrir og eru að verða fyrir kúgun og ofbeldi Vesturlandanna.
    Standa Bandaríkin í alvöru með mannréttindum?
    Hver er þessi „rule based order“ eins og Bandaríkjamenn segja og hvernig birtist hún okkur í alvörunni?
    Af hverju kemst Ísrael upp með stórfelld mannréttindabrot, stríðsglæpi og brot á alþjóðalögum og hvað er þetta svokallaða alþjóðlega samfélag?
    Þátturinn er í umsjón Anítu Da Silva Bjarnadóttur, Hálfdan Árna Jónssonar og Karls Héðins Kristjánssonar.
    51 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners