Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Reykjavíkurfréttir - Baslið í borginni
    Í dag fáum við kynningu á nýútgefinni skýrslu ÖBÍ réttindasamtaka um húsnæðismál fatlaðs fólks. Maríu Pétursdóttir formaður húsnæðishóps ÖBÍ og Kjartan Þór Ingason starfsmaður ÖBÍ koma til okkar og ræða þessi mál og hvað sveitarfélögin geti gert í þeim efnum. Í lokin heyrum við sögu Gunnhildar Hlöðversdóttur um háan húsnæðiskostnað en viðtal við hana birtist á Rauða borðinu fyrir um ári síðan þegar niðurstöður könnunar um slæma stöðu fatlaðs fólks á húsnæðismarkaði var kynnt.
    1 hr 3 min
  • Rauða borðið 20. nóv - Ástandið & kynþáttahyggja
    Mánudagurinn 20. nóvember
    Ástandið & kynþáttahyggja
    Við ræðum um ástandsstúlkur við þrjá sagnfræðinga: Báru Baldursdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur og Láru Magnúsardóttur. Og einn lögmann, Katrínu Theodórsdóttur. Er möguleiki á að þær stórkostlegu persónunjósnir geti endurtekið sig? Síðan kemur Hallfríður Þórarinsdóttir og segir okkur frá rasisma, kynþáttahyggju og þjóðrembu í samhengi við fjölda innflytjenda á Íslandi.
    2 hr 32 min
  • Synir Egils, 12 nóv - Fréttir, pólítík og hamfarir
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Björn Þorláksson blaðamaður. Þá draga þeir saman stöðuna í pólitíkinni en fá í loki Aðalgeir Johansen, Alla á Eyri, til að segja okkur frá samfélagi og sögu Grindavíkur.
    2 hr 38 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Steindór J. Erlingsson - Endurflutt
    Laugardagurinn 18. nóvember
    Helgi-spjall: Steindór J. Erlingsson
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Steindór J. Erlingsson frá áratuga langri reynslu sinni af þunglyndi og sjálfsvígshugsunum, frá áföllum, sálarháska, raflostmeðferðum, lyfjum og annarri læknismeðferð sem hann hefur mátt þola. En líka frá sigrum, von og gjöfum lífsins. Þrátt fyrir erfið veikindi hefur Steindór verið ötull baráttumaður fyrir réttindum og mannvirðingu.
    Endurtekinn þáttur frá því í vor.
    1 hr 52 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 46
    Vika 46
    Föstudagurinn 17. nóvember
    Vikuskammtur: Vika 46
    Vikuskammtur í dag litast af náttúruhamförum í Grindavík. Við flytjum Rauða borðið í huganum á Olís í Grindavík, þar sem karlar koma á morgnanna, fá sér kaffi og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Það koma til okkar þrír fastagestir frá Olís í Grindavík: Sigurður Óli Þorleifsson, Páll Valur Björnsson og Ingibergur Þór Jónsson.
    57 min
  • Ungliðaspjallið #9 - Finnbjörn A. Hermannsson
    Finnbjörn A. Hermannsson er forseti ASÍ og verður gestur okkar í Ungliðaspjallinu í kvöld. Við munum ræða um kjaramálin, verkalýðsbaráttuna, neyðina í húsnæðismálum, heilbrigðiskerfinu og skort ráðafólks á raunverulegum lausnum og áhrifaríkum kerfisbreytingum.
    Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar.
    52 min
  • Rauða borðið - Kjördæmið, heimsmálin, Greindavík og ungt fólk á glæpabraut
    Fimmtudagurinn 16. nóvember
    Kjördæmið, heimsmálin, Greindavík og ungt fólk á glæpabraut
    Við byrjum á fundi með þingmönnum Sunnlendinga: Oddný Harðardóttir frá Samfylkingu, Ásta Lóa Þórsdóttir frá Flokki fólksins, Guðbrandur Einarsson frá Viðreisn og Vilhjálmur Árnason frá Sjálfstæðisflokki ræða stöðuna í og við Grindavík. Hvernig á ríkisvaldið að bregðast við? Ögmundur Jónasson kemur til okkar og ræðir háskann í heimsmálunum og hver stefna íslenskra stjórnmála ætti að vera gagnvart honum. Sigríður María Eyþórsdóttir tónlistarkona, kirkjuvörður og tónmenntakennari kemur til okkar og segir okkur frá hamförunum í Grindavík, óvissunni og vonbrigðum með svör banka og fjármálastofnana til Grindvíkinga. í lokin ræðum við svo við Davíð Bergmann Davíðsson um glæpi ungmenna en hann hefur áratuga reynslu af starfi með ungmennum.
    3 hr 51 min
  • Miðjan á miðvikudegi - Gunnþór Sigurðsson
    Miðjan á miðvikudegi, 15. nóvember.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Gunnþór Sigurðsson. Gunnþór starfar í Pönksafninu í Bankastræti. Eflaust er hann réttur maður á réttum stað.
    Gunnþór eru sögumaður góður. Hann er sonur Sigurðar Ólafssonar, söngvara og hestamanns, og þá um leið er Gunnþór bróðir Þuríðar Sigurðardóttur.
    43 min
  • Rauða borðið, 15. nóv - Óvissan, rasismi og réttlát umskipti
    Miðvikudagurinn 15. nóvember
    Óvissan, rasismi og réttlát umskipti
    Við ræðum við Hörð Guðbrandsson formann Verkalýðsfélags Grindvíkinga um hvað þurfi að gera til að slá afkomukvíða Grinvíkinga. Og við hann og Einar Dagbjartsson um hamfarirnar og hvernig lifa má við endalausa óvissuna. Við höfum verið að ræða rasisma við Rauða borðið, um áhrif hans á samfélagið og höldum því áfram í kvöld. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræðir kynþáttahyggja í undirheimum og í réttarkerfinu sjálfu. Í lokin koma þær Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM og Auður Alfa Ólafsdóttir sérfræðingur hjá Alþýðusambandinu og segja okkur frá kröfum verkalýðshreyfingarinnar um réttlát umskipti í loftlagsmálum.
    2 hr 14 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners