Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Ungliðaspjallið #7 - Hjálmtýr Heiðdal
    Hjálmtýr Heiðdal er formaður vináttufélagsins Ísland – Palestína og verður viðmælandi okkar í kvöld.
    Árásir Ísraelshers á Gaza halda ótrauðar áfram með fullum stuðningi svo til allra Vesturlanda, á morgun kl. 17 verður mótmælt fyrir utan bandaríska sendiráðið en Bandaríkin senda yfir 3 milljarða dollara í hernaðarstyrk til Ísraels á ári hverju, þrátt fyrir ítrekaða og viðvarandi stríðsglæpi og mannréttindabrot Ísraelsríkis
    Umsjónarmenn þáttarins í kvöld eru Árni Pétur Árnason og Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir, meðlimir Ungra Pírata. Una María sem er meðlimur Ungs Jafnaðarfólks og Karl Héðinn Kristjánsson, formaður Ungra Sósíalista
    1 hr 8 min
  • Rauða borðið 8. nóv - Utanríkismálanefnd, spillt samfélag, grimmd og heimska
    Miðvikudagurinn 8. nóvember
    Utanríkismálanefnd, spillt samfélag, grimmd og heimska
    Við fáum kjarna úr utanríkismálanefnd að Rauða borðinu til að ræða stöðuna í Gaza og Úkraínu og stöðu Íslands í háskalegum heimi. Hvernig sér fólkið í nefndinni stöðu heimsmála: Diljá Mist Einarsdóttir frá Sjálfstæðisflokki, Logi Einarsson frá Samfylkingu og Logi Einarsson frá Samfylkingu. Við höldum áfram að kortleggja Kolkrabbann, Bláu höndina, Skuggabaldur og Eimreiðina. Nú er komið að Sigmundi Erni Rúnarssyni blaðamanni að segja frá sinni reynslu. Í lokin ræðum við lífsgátuna sjálfa við Bjarna Karlsson guðfræðing, hvers vegna við erum svona grimm og heimsk. Hann hefur skrifað bók, Bati frá tilgangsleysi, þar sem hann greinir hjörtu okkar, félagslega umhverfi og samfélagi og bíður upp á lausn.
    3 hr 15 min
  • Rauða borðið 7. nóv - Skammir Ásgeirs, hefnd bláu handarinnar og húsnæðismál aldraðra
    Þriðjudagurinn 7. nóvember
    Skammir Ásgeirs, hefnd bláu handarinnar og húsnæðismál aldraðra
    Við fáum Ragnar Þór Ingólfsson formann VR og Ástu Lóu Þórsdóttur formann hagsmunasamtaka heimilanna til að rökstyðja kröfur sínar um að Ásgeir Jónsson bankastjóri Seðlabankans verði rekinn. Hvað gerði hann af sér? Má reka hann? Næst kemur Þór Saari og segir okkur frá kynnum sínum af Bláu höndinni, Eimreiðarklíkunni og fjórflokknum. Og í lokin segir Gísli Jafetsson, formaður öldungaráðs VR, okkur frá húsnæðiseklu aldraðra, hver er þörfin og hvers vegna er svona lítið gert.
    2 hr 24 min
  • Reykjavíkurfréttir - Sorpið og pólitíkin
    Borgarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttur og Trausti Breiðfjörð Magnússon fara yfir helstu fréttir úr borginni. Teitur Atlason kemur og ræðir sorphirðu í borginni. Umræður verða síðan um stjórnmálaástandið í Reykjavík með góðum gestum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur rýnir í nýjustu skoðanakönnun og fer yfir stöðuna ásamt Halldóri Auðar Svanssyni fyrrverandi borgarfulltrúa, Helgu Þórðardóttur varaborgarfulltrúa og Guðmundi Auðunssyni kosningastjóra sósíalista í borginni.
    1 hr 40 min
  • Rauður raunveruleiki - Stjórnmálaskólinn: Marx um öreigana
    „Stjórnmálaskóli Sósíalistaskólans fór í gang á laugardeginum í síðustu viku! Þar fræðumst við um sósíalisma.
    Í þættinum munum við fjalla um tilgang og nytsemi menntunar í baráttunni fyrir réttlæti og jöfnuði. Til okkar koma Sara Stef Hildardóttir og Viðar Þorsteinsson en þau hafa ásamt Karli Héðni Kristjánssyni skipulagt skólann.
    Einnig fáum við til okkar Önnu Björk Einarsdóttir, en hún var fyrsti gestafyrirlesarinn hjá okkur í Stjórnmálaskólanum. Hún var með erindi um öreiga hugtakið og meiningu þess frá Marx.“
    58 min
  • Synir Egils - Pólítík, átök og fréttir
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssyni taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við Björt Ólafsdóttir fyrrum umhverfisráðherra Bjartrar framtíðar, Margrét Sanders, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi Vg. Þeir fara síðan yfir stöðuna í pólitíkinni en skipta svo yfir í Háskólabíó á Stórfund um Palestínu.
    1 hr 25 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners