Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • SÞ, kolkrabbinn, samviska borgaranna, Gaza
    Atkvæði Íslands á allsherjarþingi hefur valdið pólitísku átökum og tilfinningalegum viðbrögðum. Við ræðum við Helen Ólafsdóttir, sjálfstætt starfandi öryggisfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum um atkvæðið og merkingu þess. Við skjótum síðan inn millikafla um ægivald bláu handarinnar á Íslandi, ræðum við Jóhann Hauksson sem hefur bæði persónulega reynslu af bláu höndinni og hefur rannsakað áhrif hennar í samfélaginu. Við ræðum síðan um stríðið í brjóstum okkar, hvaða áhrif Gaza hefur á okkur persónulega sem borgara. Gunnar Hersveinn heimspekingur, Magga Stína tónlistarkona og Ólafur Ólafsson myndlistarmaður ræða um áhrif stríðs á venjulegt fólk og um hvernig það getur brugðist við. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og ræðir um áhrif Gaza á heimspólitíkina og áhrif heimspólitíkurinnar á Gaza.
    3 hr
  • Synir Egils - Kynjastríð, ofbeldi, þjóðarmorð og Eimreiðin
    Sunnudagurinn 29. október
    Kynjastríð, ofbeldi, þjóðarmorð og Eimreiðin
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins og Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar. Þeir bræður fara líka yfir daginn og veginn og fjalla síðan um Eimreiðarklíkuna og völd Valhallar. Sólveig Ólafsdóttir nýdoktor, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor og Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur ræða þau mál.
    2 hr 14 min
  • Mótmæli í morgunmat - Kvennaverkfall; sigrar og sorgir
    Mótmæli í morgunmat; Friðarviðræður, 29. október 2023
    Kvennaverkfall; sigrar og sorgir
    Í friðarviðræðum á sunnudagsmorgni koma saman margra barna mæður og einn faðir og ræða um mótmæla-andann og kvenfrelsið. Samhent hjón frá Líbíu, Rowida enskukennari og Hammsa verkfræðingur sem bíða dóms um dvöl á Íslandi og starfa á meðan sem sjálfboðaliðar í Rauða krossi og Gerðubergi bera saman stöðu kvenna í Líbíu og hér, og Morgane Priet-Maheo og Margrét Lísa Steingrímsdóttir bera saman kvenfrelsi í Frakklandi og á Íslandi, á Íslandi þá og nú og ræða um reynslu sína, störf sín í þágu fatlaðra barna og innflytjenda, um sorg og sigra.
    1 hr 35 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðmundur Hrafn
    Laugardagurinn 28. október
    Helgi-spjall: Guðmundur Hrafn
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna frá ætt sinni og uppruna, hvað það merkir að vera Strandamaður, átökum við yfirvöld í æsku og á fullorðinsárum, leit sína af því hvernig maður hann vill verða og um þá baráttu sem hann hefur háð.
    3 hr 14 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 43
    Föstudagurinn 27. október
    Vikuskammtur: Vika 43
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir sviðslistakona og handritshöfundur, Hrafn Jónsson pistlahöfundur og Jovana Pavlović mannfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem spanna sigur og samstöðu, átök og hörmungar, uppljóstranir og umdeild mál.
    1 hr 16 min
  • Rauða borðið - Svigrúm, stríð, vinnandi fátækt, nemandi og Napóleon
    Fimmtudagurinn 26. október
    Svigrúm, stríð, vinnandi fátækt, nemandi og Napóleon
    Við fáum þau Stefán Ólafsson sérfræðing Eflingar og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins um svigrúmið svokallaða, verðbólguna, vextina og kaupmáttinn. Síðan koma til að ræða hið hörmulega ástand á Gaza þau Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Þórir Jónsson Hraundal miðaldafræðingur og Viðar Þorsteinsson heimspekingur. Alexandra Ýr van Erven, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, segir okkur frá efnahagslegri stöðu stúdenta og fátækt meðal þeirra, og Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu segir okkur frá vinnandi fátækt, stöðu fólks sem er í fullri vinnu, jafnvel tveimur, en næst ekki að halda sig frá fátækt. Illugi Jökulsson kemur síðan og segir okkur frá Napóleon Bonaparte.
    3 hr 46 min
  • Ungliðaspjallið #6 - Jóna Benediktsdóttir
    Í Ungliðaspjallinu í kvöld ræðum við um nýju stjórnarskrána með Jónu Benediktsdóttur, formanni Stjórnarskrársfélagsins.
    Síðastliðinn föstudag voru 11 ár frá því að þjóðin samþykkti tillögur stjórnlagaráðs sem grundvöll nýrrar stjórnarskrár. Þingið hefur brugðist hlutverki sínu sem málsvari þjóðarinnar en baráttan fyrir nýrri stjórnarskrá hefur aldrei hætt.
    Í byrjun þáttarins ræðum við um kvennaverkfallið og fáum svo Jónu Benediktsdóttir inn til að ræða við okkur um nýju stjórnarskrána og þá valdníðslu sem hefur einkennt eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þátturinn er í umsjón Alínu Vilhjálmsdóttur, Elísabetar Guðrúnar- og Jónsdóttur, Karls Héðins Kristjánssonar og Þorvarðar Bergmanns Kjartanssonar
    1 hr
  • Miðjan á miðvikudegi - Sandra B. Franks
    Miðjan á miðvikudegi, 25. október.
    Gestur þáttarins er Sandra B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Hún segir okkur meðal annars að það vanti marga sjúkraliða til starfa. Á sama tíma eru þúsundir sem hafa menntað sig til starfsins starfandi í allt öðrum störfum. Hvers vegna? Launin eru svo lág.
    28 min
  • Rauða borðið - Kvennahreyfingin, íslenskan, Hamas og Hrunið
    Miðvikudagurinn 25. október
    Kvennahreyfingin, íslenskan, Hamas og Hrunið
    Við fáum Sonju Þorbergsdóttur formann BSRB og eina af þeim sem blésu til kvennaverkfallsins til að meta stöðuna daginn eftir. Hvað merkir hin mikla þátttaka? Íslenskan er í hættu, um það er ekki deilt. En hvað ber að gera? Íslenskufræðingarnir og prófessorarnir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Eiríkur Rögnvaldsson vilja bregðast við, en með ólíkum hætti. Þau deila um stefnuna í kvöld. Sverrir Agnarsson er margfróður um frelsis- og sjálfstæðisbaráttu múslima. Hann fræðir okkur um Hamas. Hvað kemur Hamas, úr hvaða jarðveg sprettur hreyfingin og hvað vill hún? Það er deilt um söguna af Hruninu, merkingu þess og hver eru fórnarlömbin og hverjir gerendur. Við ræðum þetta við Vilhjálmur Árnason prófessor, einn höfunda siðferðiskafla rannsóknarskýrslu Alþingis.
    2 hr 53 min
  • Nemar í Kvennaverkfall
    Ungar konur úr femínistahreyfingum framhaldsskólanna og Sambandi Íslenskra framhaldsskóla velta fyrir sér Kvennaverkfallinu með þeim Söru og Maríu.
    Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.
    23 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners