Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 17. okt - Bruni, hrun, fátækt og ADHD
    Þriðjudagurinn 17. október
    Bruni, hrun, fátækt og ADHD
    Við ræðum við formann Leigjendasamtakanna, Guðmund Hrafn Arngrímsson, um atburði dagsins, leigjenda sem fórst í bruna í iðnaðarhverfi upp á höfða. En einnig um hvernig leigumarkaðurinn dregur fólk niður í fátækt og heldur því þar. Við ræðum um myndina Baráttan um Ísland, en ekki síður um baráttuna um söguna af Hruninu við þá Þórð Snæ Júlíusson blaðamann, Jón Gunnar Bernburg félagsfræðing og Árna Daníel Júlíusson sagnfræðing. Þá koma félagar í Pepp, grasrót fólks í fátækt að Rauða borðinu, Laufey Líndal Ólafsdóttir, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir og Elísabet Hauksdóttir, og segja okkur frá fátækt og baráttu fátæks fólks í tilefni af degi fátæktar, sem er í dag. Í lokin segir Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD-samtakanna okkur frá rannsóknum á ADHD og meðferð við því.
    3 hr 27 min
  • Rauða borðið 16. okt - Pólland, fátæk, hryðjuverk og bresk stjórnmál
    Mánudagurinn 16. október
    Pólland, fátæk, hryðjuverk og bresk stjórnmál
    Við ræðum við Jacek Godek stórþýðanda í Gdansk um pólsku kosningarnar og stjórnarskiptin sem virðast vera í nánd. Við ræðum við Kjartan Ólafsson félagsfræðing um fátækt, en hann er einn þeirra sem tók saman enn eina skýrsluna um fátækt fyrir stjórnvöld. Hver er byrði fátækar, ekki bara á þá einstaklinga og fjölskyldur sem verða fyrir henni, heldur samfélagið allt. Við heyrum í Helen Ólafsdóttur öryggissérfræðingi um Hamas, Palestínsku þjóðina og herinn í Ísrael. Hverir eru að fremja stríðsglæpi og með stuðningi hverra. Og við heyrum í Guðmundi Auðunssyni um stöðuna í breskum stjórnmálum, nú þegar flokkarnir hafa haldið sín flokksþing.
    2 hr
  • Red reality - Free Palestine / Muhammed Alkurd
    In this episode we contextualize and reflect on the ongoing crisis in Israel - Palestine. Thousands of innocent people have died in brutal attacks from the Israeli "Defence" Force that routinely forcibly expels Palestinian people from their homes in the West Bank, killing many, and forcing them into the open air prison that is Gaza
    32 min
  • Þjóðarmorð, innflytjendur, Græn landamæri og sósíalisminn í Svíþjóð
    Fimmtudagurinn 12. október
    Þjóðarmorð, innflytjendur, Græn landamæri og sósíalisminn í Svíþjóð
    Við stöndum á þröskuldi þjóðarmorðs í Palestínu. Og svo virðist sem stjórnvöld á Vesturlöndum ætli að bæði að hvetja og styðja Ísraelsstjórn til þess. Við ræðum um þessa nöpru stöðu við Hjálmtý Heiðdal formann félagsins Ísland-Palestína og þá Qussay Odeh og Fahad Jabali, sem báðir eru íslenskir Palestínumenn. Darius Dilpsas, rafvirki og innflytjandi frá Litháen, segir okkur frá íslenskum vinnumarkaði í tilefni af nýrri skýrslu ASÍ um stórfelld vinnumarkaðsbrot gagnvart innflytjendum. Kvikmyndin Græn landamæri eftir Agnieszku Holland verður frumsýnd í Bíó Paradís um helgina. Valur Gunnarsson kemur til okkar og segir frá þessari mögnuðu mynd, bestu mynd sem Valur hefur séð um háa herrans tíð. Í lokin kemur Steingrímur Jónsson, bæjarfulltrúi Vinstriflokksins í Lundi, að Rauða borðinu og segir okkur frá stjórnmálum og sósíalisma í Svíþjóð.
    2 hr 19 min
  • Synir Egils: Afsögn, spilling, stríð og mótmæli
    Sunnudagurinn 15. október
    Synir Egils: Afsögn, spilling, stríð og mótmæli
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssyni taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur þingkonu, Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar og Guðmund Andra Thorsson rithöfundur. Þeir bræður fara líka yfir daginn og veginn og Atli Þór Fanndal fer með pistilinn. Í lokin mæta í stúdíóið fólkið sem stóð fyrir mótmælunum Bjarna burt! og meta árangurinn: Hallfríður Þórarinsdóttir, Karl Héðinn Kristjánsson, Birgir Þórarinsson, Guðmundur Hrafn Arngrímsson og Kári Jónsson.
    2 hr 18 min
  • Mótmæli í Morgunmat
    Í friðarviðræðum þáttarins Mótmæli í morgunmat fáum við að fylgjast með andspyrnuhreyfingunni sem María Pétursdóttir dokumenteraði á Austurvelli um árið undir ræðu Davíðs Oddssonar og förum svo aftur á Austurvöll á samtöðumótmæli vegna árásar á Palestínu og heyrum viðtal við hinn palestínska Anís. Rithöfundurinn Mazen Maarouf setur ástandið á Gaza í samhengi og við heyrum líka nöturlegan en fallegan kafla úr bók hans Brandarar fyrir byssumennina.
    1 hr 29 min
  • Úrval - Samstöðin 14. Október
    Laugardagurinn 14. október
    Úrval vikunnar á Samstöðinni
    Í úrvali vikunnar af Samstöðinni endurflytjum við sex viðtöl. Við heyrum Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðing í fjármálum og Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing ræða afsögn Bjarna Benediktssonar. Við ræðum um hina nöpru stöðu Palestínsku þjóðarinnar við Hjálmtý Heiðdal formann félagsins Ísland-Palestína og þá Qussay Odeh og Fahad Jabali, sem báðir eru íslenskir Palestínumenn. Við ræðum við Selmu Hafsteinsdóttir og Elísabetu Hrund Salvarsdóttir, mæður ættleiddra barna, um vöggustofur og áhrif þeirra á börnin. Við ræðum við Darius Dilpsas, rafvirkja og innflytjanda frá Litháen, um stórfelld vinnumarkaðsbrot gagnvart innflytjendum. Við ræðum um kalda stríðið og menningarleg afskipti stórveldanna við Hauk Ingvarsson bókmenntafræðing og Rósu Magnúsdóttir sagnfræðing. Og í lokin heyrum við í íslenskum efnahagsflóttamönnum á Spáni: Elínu Gunnarsdóttur. Guðnýju Matthíasdóttur, Guðjóni Eiríkssyni, Karli Kristjáni Hafsteini Guðmundssyni og Sigurbjörgu Pétursdóttur. Hvað voru þau að flýja og hvað fundu þau?
    4 hr 7 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall - Egill Sæbjörnsson
    Laugardagurinn 14. október
    Helgi-spjall: Egill Sæbjörnsson
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður og poppari frá lífi sínu, list, meðvirkni, samskiptum og samtíma en líka stöðu sinni í flæði tímans, þar sem hann er gestur á Hótel Jörð eins og við hin.
    1 hr 7 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 41
    Föstudagurinn 13. október
    Vikuskammtur: Vika 41
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Borgar Magnason tónskáld, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sviðslistakona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist stjórnarkreppu, hryðjuverkum, afsögn, átökum og ofbeldi.
    1 hr 24 min
  • Ungliðaspjallið #5 - Kristrún Frostadóttir
    Í Ungliðaspjallinu í kvöld ræðum við málefni vikunnar með formanni Samfylkingarinnar. Kristrúnu Frostadóttur
    Við munum fjalla um Ísrael og Palestínu, afsögn Bjarna Benediktssonar sem fjármálaráðherra, ábyrgð í stjórnmálum, þjóðarmarkmið Samfylkingarinnar í heilbrigðis- og öldrunarmálum, félagshyggju og leiðina áfram fyrir Ísland.
    58 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners