Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 11.Október - Afsögn, íslenskt flóttafólk, vöggstofur, formaður ÖBÍ og heismmálin
    Miðvikudagurinn 11. október
    Afsögn, íslenskt flóttafólk, vöggstofur, formaður ÖBÍ og heismmálin.
    Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður kemur að Rauða borðinu og spáir í stjórnmálaástandið eftir afsögn Bjarna Benediktssonar. Við ræðum við íslenska efnahagsflóttamenn á Spáni: Elínu Gunnarsdóttur. Guðnýju Matthíasdóttur, Guðjón Eiríksson, Karl Kristján Hafsteins Guðmundsson og Sigurbjörgu Pétursdóttur. Hvað voru þau að flýja og hvað fundu þau. Við ræðum við Selma Hafsteinsdóttir og Elísabet Hrund Salvarsdóttir, mæður ættleiddra barna, um vöggustofur og áhrif þeirra á börnin. Alma Ýr Ingólfsdóttir er nýr formaður ÖBÍ og segir okkur hver verkefnin fram undan eru. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor kemur til okkar og spáir í heimsmálin, nú þegar stríð er skollið á í Palestínu.
    2 hr 49 min
  • Miðjan á miðvikudegi - Karl Garðarsson
    Miðjan á miðvikudegi
    Karl Garðarsson, fyrrverandi þingmaður og fréttastjóri, er gestur þáttarins. Karl er giftur konu frá Úkraínu og hefur oft farið til Úkraínu eftir að innrás Rússa hófst fyrir meira en tveimur árum.
    Rússar nema úkraínsk börn á brott. Talið er flest þeirra hafi verið flutt til Síberíu. Mannfall, úthald og framundan er grimmur vetur hjá fólkinu í Úkraínu. Engar horfur á að hernaðinum í landi ljúki.
    25 min
  • Þátturinn sósíalískir femínistar - Tungumálið sem valdatæki
    Fimmtudagurinn 22. Júní
    Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir hafa umsjón með þáttunum Sósíalískir femínistar en þar fá þær til sín gesti og ræða feminísk mál út frá ýmsum sjónhornum. Í þessum þætti fimmtudagskvöldið 22. júní fá þær til sín þýðandann Katrínu Harðardóttur og kynjafræðikennarann Maríu Hjálmtýsdóttur og ræða tungumálið sem valdatæki eða hvernig feðraveldið ákveður hver má segja hvað, hvar og hvað þú mátt heita. Bæði Katrín og María hafa innsýn í Suður Amerískar málhefðir spænskunnar og búa yfir ýmsum dæmum til samanburðar.
    41 min
  • Þátturinn Sósíalískir femínistar - Söfn og kvennasaga
    Í þættinum ræða þær María Pétursdóttir og Sara Stef Hildardóttir við þær Halldóru Kristinsdóttur af handritasafni Íslands og Rakel Adolfsdóttur safnstjóra kvennasögusafnsins um kvennasögu og vendingar í safnakosti landsins.
    Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur.
    Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.
    37 min
  • Þátturinn Sósíalískir femínistar - Stefnumót við skaðaminnkun
    Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra og talskona Rótarinnar, sem er félag um velferð og lífsgæði kvenna, og Svala Jóhannesdóttir, fjölskyldufræðingur, faghandleiðari og formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun koma í heimsókn. Við ræðum stöðum jaðarsettra kvenna og annarra undirskipaðra hópa en lítið sem ekkert regluverk er um þá starfsemi sem fólki er gert að nýta sér ef það stríðir við fíkn. Ekkert verndað neyslurými er heldur til staðar fyrir þau sem eru verst sett en eina neyslurýminu í boði, Ylju, var lokað í mars sl. Þá segja þær okkur frá fyrirhugaðri ráðstefnu um skaðaminnkun sem haldin verður í Reykjavík á næstunni.
    38 min
  • Rauða borðið 10.Okt - Bjarni, Palestína, kalt stríð og flóttafólk
    Þriðjudagurinn 10. október
    Bjarni, Palestína, kalt stríð og flóttafólk
    Við fáum Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðing í fjármálum til að fjalla um afsögn Bjarna Benediktssonar út frá Íslandsbankasölunni og Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing til að meta afsögnina póilitískt. Magnús Bernharðsson prófessor reynir að meta stöðuna í Palestínu, sem er ill. Við ræðum síðan um kalda stríðið, sem margir segja að minni á nútímann. Haukur Ingvarsson bókmenntafræðingur og Rósa Magnúsdóttir sagnfræðingur segja frá menningarlegum afskipum stórveldanna á tímum kalda stríðsins. Í lokin koma Hjördís Kristinsdóttir kafteinn í Hjálpræðishernum, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir frá Geta-hjálparsamtökunum í Hafnarfjarðarkirkju og Helgi Guðnason prestur í Fíladelfíu og segja frá starfi sínu með flóttafólki frá Venesúela.
    2 hr 42 min
  • Aukaþáttur: Afsögn Bjarna
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssyni taka á móti gestum og ræða afsögn Bjarna Benediktssonar og stöðuna í pólitíkinni: Meðal gesta: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Ólína Kerúld Þorvarðardóttir, Helga Vala Helgadóttir, Stefán Pálsson og Björn Leví Gunnarsson.
    1 hr 25 min
  • Rauður raunveruleiki - Ungir umhverfissinnar
    Í kvöld fáum við til okkar Finn Ricart Andrason, forseta Ungra Umhverfissinna og Snorra Hallgrímsson stjórnarmeðlim. Við munum ræða um veðurfarsbreytingar, vistkerfin, útblástur Íslands á koltvísýringi og öðrum gróðurhúsalofttegundum og um það hver ábyrgð einstaklinga er, á móti ábyrgð stórra fyrirtækja og ríkisstjórna.
    1 hr 6 min
  • Rauða borðið 9. okt - Palestína, kjaramál, Nóbel og loftlagsmál
    Mánudagurinn 9. október
    Palestína, kjaramál, Nóbel og loftlagsmál
    Við ræðum við Falasteen Abu Libdeh um stríðið í Palestínu, fangabúðirnar á Gaza og hefndaraðgerðir Ísraelsstjórnar. Við ræðum við Ragnar Þór Ingólfsson formann VR um stöðuna í aðdraganda kjaraviðræðna. Við ræðum við Katrín Ólafsdóttir dósent um Claudia Goldin, sem fékk Nóbelsverðlaun í hagfræði í morgun og sem hefur rannsakað margt um stöðu kvenna á vinnumarkaði. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kemur síðan og dregur upp mynd af stöðu loftlagsmála í fimm myndum.
    2 hr 10 min
  • Mótmæli i morgunmat: Friðarviðræður - Benedikt, Óskar Árni og Abdel
    Í FRIÐARVIÐRÆÐUM eru þrír herramenn og einn með hatt: Það eru þeir Benedikt Hjartarson bókmenntaprófessor, Óskar Árni Óskarsson skáld og Abdiel Santiago sjálfboðaliði í Hjálpræðishernum sem bjóða upp á MÓTMÆLI Í MORGUNMAT 8. OKT. Benedikt segir frá nær gleymdri stórmerkri en hræðilegri sögu af ofsóknum Nazista og Stalínista á hendur Esperantistum, en Esperantó er draumur um alþjóðamál; Óskar Árni segir frá ferðum sínum fjarri alfaraleiðum og Santiago ræðir um óttann við mótmæli í blóði þeirra sem alast upp við ofríki.
    2 hr 1 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners