Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Kvennaverkfall, Hvers vegna og fyrir hverja?
    Kvennaverkfall, Hvers vegna og fyrir hverja?
    Við tökum á móti hópi kvenna til að ræða um kvennabaráttuna á þessum tímamótum. Oddný Eir tekur fyrst á móti fjórum konum, þeim Guðrúnu Ágútsdóttur, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, Önnu Kristínu Blöndal Jóhannesdóttur og Þorgerði Jennýjardóttur Einarsdóttur. María Pétursdóttir tekur svo við og heldur samræðunni áfram með öðrum fjórum gestum, þeim Ólöfu Bjarka Antons, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, Írisi Björk Ágústsdóttur og Margréti Lilju Aðalsteinsdóttur. Í lokin kemur síðan hópur af einstæðum mæðrum í stúdíó og á skjá, en það eru þær Elsa Maria Blöndal, Áslaug Saja Daviðsdottir, Glódis Björt Eyrúnardóttir, Laufey Lindal Ólafsdóttir og Elín Agla Briem sem ræða við Oddnýju um hlutskipti sitt.
    2 hr 8 min
  • Rauður raunveruleiki - Sósíalismi í uppvexti
    Aníta Da Silva og Karl Héðinn fjalla um uppgang sósíalista í borginni og víðar í þætti kvöldsins. Hvað er sósíalismi í grunninn og af hverju er hann nauðsynlegur?
    Við munum skoða það út frá víðum sjónarhóli en einnig í gegnum þær tillögur sem borgarstjórnarflokkur Sósíalista hefur lagt til og áherslur flokksins og hugmyndafræðarinnar í víðum skilningi. Hver er grunnstefnan og af hverju er sósíalismi leiðin áfram fyrir fólkið í landinu?
    Fylgist með á Samstöðinni í beinni útsendingu klukkan 17:30
    1 hr 1 min
  • Synir Egils - Stríð, átök og skuldastaða bænda
    Sunnudagurinn 22. október
    Stríð, átök og skuldastaða bænda
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við Heimi Má Pétursson fréttamann, Þórarinn Eyfjörð formann Sameykis og Guðrúnu Margréti Guðmundsdóttur mannfræðing. Þeir bræður fara líka yfir daginn og veginn og fjalla síðan um háskalega stöðu bænda, slá á þráðinn til Þórarins Inga Péturssonar, bónda og þingmanns, og fá svo þau Gunnar Þorgeirsson, formann Bændasamtakanna og Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra samtakanna, til að kortleggja erfiða stöðu bænda.
    1 hr 48 min
  • Mótmæli í morgunmat: Friðarviðræður - Mótmælaskólinn
    MÓTMÆLASKÓLINN.
    Í Friðarviðræðum þessa sunnudagsmorguns fáum við til okkar mæður og föður til að segja okkur frá mótmælareynslu sinni og ræða um mikilvægi friðarviðræðna milli kynslóða og mátt þess að koma saman og ræða saman, greina í sundur upplýsingaflækjur, lesa ljóð, syngja og svo framvegis í átt að réttlætinu. Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Sólveig Hauksdóttir, Ævar Kjartansson, Elsa María Blöndal, Magga Stína, Salvör Gullbrá og börnin valsa inn og út.
    1 hr 16 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall - Sigríður Gísladóttir
    Laugardagurinn 21. október
    Helgi-spjall:
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Sigríður Gísladóttir formaður Geðhjálpar frá því hvernig geðsjúkdómur móður hennar mótaði æsku hennar og hvernig hennar eigin sjúldómur tók við. Og hvernig hún gat unnið úr þessum áföllum öllum, risið upp til að hjálpa börnum í svipaðri stöðu.
    1 hr 22 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 42
    Föstudagurinn 20. október
    Vikuskammtur: Vika 42
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður, Claudia Ashanie Wilson lögmaður, Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar Eflingar og Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem sumar voru hryllilegar og uggvænlegar en aðrar léttvægari, jafnvel gleðilegar.
    1 hr 16 min
  • Rauða borðið - Evrópa, innflytjendur, Græn landamæri, narsissismi
    Fimmtudagurinn 19. október
    Evrópa, innflytjendur, Græn landamæri, narsissismi
    Er Evrópa á dagskrá? Og hvaða Evrópa þá? Valur Ingimundarson prófessor og Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum segja okkur frá stöðunni í Evrópu og hvert hún stefnir. Við höldum áfram að fjalla um fátækt og þá hópa sem eru útsettir fyrir henni. Nú er komið að innflytjendum. Karla Barralaga Ocón, Ian Mcdonald, Sherry Ruth og Natalie Scholtz segja okkur frá stöðu innflytjenda í samfélagi sem vill halda þeim niðri. Græn landamæri eftir Agnieszku Holland er magnað listaverk og stórkostleg samfélagsgreining á stöðu flóttafólks við landamæri Evrópu. Sema Erla Serdaroglu stofnandi Solaris og Jasmina Vajzović Crnac fóru á myndina og segja okkur frá henni og sinni upplifun. Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson kemur að Rauða borðinu og fræðir okkur um sameiginlegan narsissisma.
    2 hr 54 min
  • Miðjan á miðvikudegi - Sigmundur Ernir
    Sigmundur Ernir Rúnarsson er að senda frá sér sína tuttugustu og fimmtu bók. Að þessu sinni skrifar um hann um fjölmiðla frá 1980 og til dagsins í dag. Sigmundur Ernir kann að segja frá. Í samtali hans og Sigurjóns M Egilssonar ber margt á góma. Flest skemmtilegt.
    42 min
  • Rauða borðið 18. okt - Börn, innflytjendur, öryrkjar, saga og morðgáta
    Miðvikudagurinn 18. október
    Börn, innflytjendur, öryrkjar, saga og morðgáta
    Við ræðum við Sæunni Kjartansdóttur sálgreini um þarfir ungra barna og hvort þeim sé mætt í því kerfi sem við höfum smíðað í kringum þau; fæðingarorlof, leikskóla o.s.frv. Mun framtíðin horfa gagnrýnum augum á kerfin okkar? Hafije Zogaj læknir segir frá baráttu sinni, sem er lík baráttu margra innflytjenda við að fá menntun sína viðurkennda á Íslandi. Atli Þór Þorvaldsson, fyrrverandi formaður kjarahóps ÖBÍ, segir okkur frá fátækt öryrkja, en við erum að skoða fátækt þeirra hópa sem útsettir eru fyrir fátækt. Orri Vésteinsson fornleifafræðingur mætir og ræðir skaðsemi lokunar safna, sem ekki skaða aðeins fræðafólk heldur lýðræðið í samfélaginu, sem nærist á frjálsu aðgengi að upplýsingum. Og í lokin segir Guðjón Jensson okkur frá gamalli morðgátu eða meinti morðgátu öllu heldur.
    3 hr 12 min
  • Þátturinn Sósíalískir femínistar: Áköf mæðrun og kröfur um kvenleika
    Sunna Símonardóttir nýdoktor í félagsfræði ræðir rannsóknir sínar á foreldrahlutverkinu og sér í lagi móðurhlutverkinu, ákafa mæðrun út frá stéttagreiningu, leikskólamálin, viðhorf og kröfur dagsins í dag um kvenleikann.
    Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.
    19 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners