Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Jasmina
    Laugardagurinn 4. nóvember
    Helgi-spjall: Jasmina
    Jasmina Vajzović Crnac er uppkomið flóttabarn frá stríðsátökum í fyrrum Júgóslavíu. Hún segir frá ætt sínum og uppruna, fjölskyldu og flóttanum frá stríði og ofbeldi, áföllunum og minningunum og hvernig þetta hefur litað líf hennar.
    1 hr 46 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 44
    Föstudagurinn 3. nóvember
    Vikuskammtur: Vika 44
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Ása Björk Ólafsdóttir prestur, Askur Hrafn Hannesson aðgerðarsinni, Benjamín Júlían starfsmaður ASÍ og Kristján Þór Sigurðsson mannfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem eru af stríðsmönnum og flóttafólki, basli og átökum, hræringum, átökum og deilum.
    1 hr 16 min
  • Rauða borðið 2. nóv - Fílinn í stofunni, efnahagsstefna Valhallar og ójöfnuður á Íslandi
    Fimmtudagurinn 2. nóvember
    Fílinn í stofunni, efnahagsstefna Valhallar og ójöfnuður á Íslandi
    Við höldum áfram að kortleggja Einreiðarklíkuna, kolkrabbann og bláu höndina. Nú er komið að Ólafi Jónssyni skipstjóra að segja okkur frá fílnum í stofunni. Við fáum síðan Guðmund Auðunsson hagfræðing til að bera saman efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokksins og breska Íhaldsflokksins. Í lokin kemur Guðmundur Jónsson sagnfræðingur og segir okkur frá ójöfnuði á Íslandi, á átjándu öld.
    2 hr 29 min
  • Rauða borðið - Palestína, Kleppur, inngilding og Bláa höndin
    Miðvikudagurinn 1. nóvember
    Palestína, Kleppur, inngilding og Bláa höndin
    Þeir koma að Rauða borðinu Yousef Ingi Tamimi og Qussay Odeh og lýsa sinni sýn á stríðið í Palestínu, fréttaflutning á Vesturlöndum og erfiðleika við að halda á lofti málstað Palestínu. Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir skrifaði skáldsögu um langömmu sína sem lögð var inn á Klepp og dó þar. Hún segir okkur frá langömmu sinni og hvers vegna hún vildi skrifa um hana. Fríða B. Jónsdóttir, fyrrum leikskólakennari og nú nýdoktor við HI, segir okkur frá því hvernig kennarar geta aðlagast breyttum bekkjum, hópi nemenda sem eru af ólíkari uppruna en áður var. Og í lokin segir Gunnar Smári Egilsson frá sínum kynnum af Bláu höndinni.
    3 hr 44 min
  • Reykjavíkurfréttir - Sunnutorg og skaðaminnkun
    Borgarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon fara yfir málin í borginni, í Reykjavíkurfréttum. Karl Héðinn Kristjánsson, formaður Ungra sósíalista kemur í stúdíóið og ræðir við okkur fréttir vikunnar. Eftir það skoðum við Sunnutorg og veltum því fyrir okkur hvað eigi að gera við þessa byggingu, sem hefur átt betri daga. Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra og talskona Rótarinnar - Félags um velferð og lífsgæði kvenna og Kristján Ernir frá Viðmóti - notendasamtökum, koma til okkar í þáttinn að ræða skaðaminnkun, þar sem áhersla er lögð á að fyrirbyggja þann skaða og þá áhættu sem hljótast af notkun vímuefna. Við fjöllum einnig um hlutverk sveitarfélaga í þessum málefnum.
    1 hr 19 min
  • Reykjavíkurfréttir : Húsnæðismál í Ólestri
    Borgarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon ræða fréttir vikunnar í Reykjavík, heimsækja hjólhýsabyggðina við Sævarhöfða og fá gesti í stúdíóið til að ræða húsnæðiskreppuna í höfuðborginni. Gestir þáttarins eru Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Samtaka leigjenda, Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins og Bjarni Þór Sigurðsson sérfræðingur í húsnæðismálum hjá ASÍ.
    1 hr 37 min
  • Sósíalískir femínistar - Ofbeldi gegn konum í stjórnmálum / Violence against women in politics.
    Þriðjurdagurinn 31. Október
    Ofbeldi gegn konum í stjórnmálum / Violence against women in politics.
    Mona Lena Krook Prófessor í stjórnmálafræði sem var með fyrirlestur á dögunum á vegum Kvennasögusafnsins segir okkur frá rannsókn sinni um Ofbeldi gegn konum í stjórnmálum.
    Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur.
    Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.
    29 min
  • Rauða borðið - Blá hönd, kennaraverkfall, klúður, morð og lestarræningi
    Við höldum áfram að tala um Eimreiðina, Kolkrabbann og bláu höndina. Hallgrímur Helgason rithöfundur kynntist bláu höndinni og skrifaði um hana. Við ræðum kjarabaráttu kennara við Elna Katrín Jónsdóttir fyrrum formann Hins íslenska kennarafélags, Magnús Þór Jónsson formann Kennarasambandsins og Sigurð Pétursson sagnfræðing og handritshöfundar Endurgjöf, heimildarmynd um kennaraverkföllin undir lok síðustu aldar. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir okkur frá Microsoft-klúður ríkisins og Sigríður Dúa Goldsworthy frá morðunum í Dillonshúsi. Í lokin kemur Lóa Björk Björnsdóttir frá Lestinni á rás eitt að Rauða borðinu, reynir að taka viðtal á sama tíma og við tökum viðtal við hana.
    3 hr 28 min
  • Rauður raunveruleiki - Sósíalískur Femínismi
    Í Rauðum raunveruleika í kvöld fjöllum við um sósíalískan femínisma, um tilkomu feðraveldisins, kapítalisma og þá menningu kúgunar sem hefur ríkt frá byrjun siðmenningar.
    Gestir þáttarins eru þær María Pétursdóttir, Laufey Líndal Ólafsdóttir, Sara Stef Hildardóttir og hann Oliver Axfjörð Sveinsson.
    54 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners