Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Ungliðaspjallið #8 - Steinþór Logi Arnarsson
    Steinþór Logi Arnarsson er formaður Samtaka Ungra Bænda og í Ungliðaspjallinu í kvöld ætlum við að ræða við hann um stöðu íslenskra bænda, nýliðun í greininni og nýlega yfirstaðinn baráttufund Samtaka Ungra Bænda. Yfirskrift fundarins var „Laun fyrir lífi“. Þar var talað um alvarlega stöðu ungra íslenskra bænda og veruleikann sem blasir við ef ekkert breytist.
    Við munum ræða við Steinþór um stöðuna, hvað veldur erfiðleikum í greininni, slæma stöðu nýliðunnar og hvað er til ráðs. Þátturinn er í umsjón Árna Péturs Árnasonar, Elísabetar Guðrúnar og Jónsdóttur.
    46 min
  • Rauða borðið, 14. nóv - Grindavík, jarðsig, leigjendur og Fylkingin
    Þriðjudagurinn 14. nóvember
    Grindavík, jarðsig, leigjendur og Fylkingin
    Við höldum áfram að fá Grindvíkinga til okkar svo þeir geti lýst stöðu flóttafólks undan ógnum jarðar. Í kvöld kemur Páll Valur Björnsson og segir okkur frá bænum sínum, bæjarlífinu og stöðu sinni og annarra bæjarbúa. Við erum öll lent í jarðfræðitíma, skiljanlega, því við verðum að vita hvað það er sem er að móta líf okkar. Halldór Gíslason jarðeðlisfræðingur ætlar í kvöld að lýsa öflunum sem skekja Grindavík og hvers þau eru megnug. Það ganga hræringar yfir Leigumarkaðinn þar sem tug þúsundir fjölskyldna eru innikróaðar og komast ekki út þótt þær glaðar vildu. Már Wolfgang Mixa viðskiptafræðingur hefur kannað stöðu leigjenda og möguleika þeirra á að brjótast út af leigumarkaði og segir okkur frá niðurstöðunum í kvöld. Í lokin kemur Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur og rekur fyrir okkur sögu Fylkingarinnar, félags byltingarsinnaðra sósíalista á síðustu öld.
    3 hr 58 min
  • Rauða borðið 13.nóvember - Grindavík, rasismi og eldsumbrot
    Páll Erlingsson kennari kemur til okkar og segir okkur frá stöðu Grindvíkinga sem eru á flótta undan landinu. Hvaða framtíð sjá þeir? Hverjar eru vonirnar, hvað óttast fólk mest og hvaðan kemur stuðningurinn? Við fáum Eirík Örn Norðdahl til að ræða við okkur um hversu rasísk utanríkisstefna stjórnvalda er og hversu mikið kynþáttahyggja litar stofnanir samfélagsins. Erum við blind fyrir þessu? Eða bara sátt? Í lokin kemur Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur og segir okkur frá Reykjaneseldum fortíðar og þeim nýju sem nú eru hafnir og munu líklega halda áfram næstu áratugina.
    2 hr 48 min
  • Synir Egils, 12. nóv - Grindavík, Gaza, stríð og ógnir
    Sunnudagurinn 12. nóvember
    Grindavík, Gaza, stríð og ógnir
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssyni taka á móti gestum í þætti sínum Synir Egils, og fá fyrst fólk á flótta frá eldsumbrotum í Grindavík: Anna Sigríður Sigurjónsdóttir myndhöggvari og björgunarsveitarmaður, Eiríkur Óli Dagbjartsson útgerðarstjóri hjá Þorbirni, Páll Erlingsson kennari og fyrrum formaður Gólfklúbbsins og Petra Rós Ólafsdóttir skrifstofustjóri, stjórnarkona knattspyrnudeildarinnar og slysavarnarkona. Síðan ræða þeir helstu fréttir og pólitík við Guðmund Hrafn Arngrímsson formann Leigjendasamtakanna, Guðmund Hálfdanarson sagnfræðiprófessor og Jódísi Skúladóttur þingkonu. Þá draga þeir saman stöðuna í pólitíkinni en fá í lokin Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing til að segja okkur frá ógnunum frá landinu og hverju það breytir að við getum núna mælt hreyfingu kviku á miklu dýpi.
    2 hr 16 min
  • Red reality - Neoliberalism and soviet nostalgia in Georgia
    Bakar Berekashvili (1983) is Professor of Political Science and Sociology at the Georgian American University in Tbilisi. His research and teaching interests include qualitative research, critical sociology, Marxist thought in ‘Actually existing Socialism’, post-socialist politics and society, Soviet Union (life and social order), ruling class under capitalism, problems of democracy, social & political theory, political sociology, ideology, nationalism, and politics of memory.
    In Red reality tonight Tjörvi Sciöth and Karl Héðinn will interview Bakar on his research into neoliberalism and "Soviet nostalgia" in Georgia
    1 hr 4 min
  • Rauða borðið: Helgi-spjall: Margrét Ákadóttir
    Laugardagurinn 11. nóvember
    Helgi-spjall: Margrét Ákadóttir
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Margrét Ákadóttir frá uppvexti sínum í Bergþórugötunni, átökum og spennu á heimilinu, útskúfun föður hennar, uppreisn æsku sinnar, hippaárunum, heilunaráhrifum leiklistar, áföllum, sólargeislum og skuggabrekkum.
    2 hr 15 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 45
    Föstudagurinn 10. nóvember
    Vikuskammtur: Vika 45
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Andrean Sigurgeirsson dansari, Anna Sigrún Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur og skrifstofustjóri öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg, Jóna Benediktsdóttir skólastjóri og formaður Stjórnarskrárfélagsins og Sólveig Arnarsdóttir leikkona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af óróa ofan jarðar sem neðan, risi og falli, vonum og vonbrigðum.
    1 hr 31 min
  • Rauða borðið 9. nóv - Gaza, húsnæðiskreppa og fátækt
    Fimmtudagurinn 9. nóvember
    Gaza, húsnæðiskreppa og fátækt
    Við fáum Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing og Helen Ólafsdóttur öryggisfulltrúa til að ráða í ástandið á Gaza, hvert það getur leitt og hvernig það á að enda. Síðan koma þær Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi og umsjónarmaður innanlandsstarfs Hjálparstarfs kirkjunnar, María Pétursdóttir, formaður húsnæðismálahóps ÖBÍ réttindasamtaka og Þórdís Bjarnleifsdóttir úr stjórn Leigjendasamtakanna og segja okkur frá húsnæðiskreppu hinna fátækustu, en eins og öllum má vera ljóst bitna afleiðingar gjaldþrota húsnæðisstefnu helst á þeim sem ekki geta keypt sig frá hörmungunum. Í lokin segir Sanna Magdalena Mörtudóttir okkur frá fólkinu sem er á fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna, hefur ekki í önnur hús að leita.
    2 hr 26 min
  • Miðjan á miðvikudegi - Stefán Pálsson
    Miðjan á miðvikudegi
    Gestur okkar að þessu sinni er Stefán Pálsson sagnfræðingur. Rætt er um blaðamennsku Gísla J. Ástþórssonar. Gísli var frumkvöðull í mörgu. Segja má að íslenskir fjölmiðlar hafi verið of smáir fyrir Gísla.
    Hann var afbragðsteiknari og skóp persónuna Siggu Viggu. Sigga Vigga og tilveran var frábær í höndum Gísla. Gísli setti sinn svip á íslenska fjölmiðla.
    Miðjan á miðvikudegi er í umsjón Sigurjóns M. Egilssonar ritstjóra Miðjunnar, miðjan.is.
    56 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners