Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið, 27. nóv - Skammtímaleiga, kvóti, sorp, launavinna og Venesúela á Flateyri
    Mánudagurinn 27. nóvember
    Skammtímaleiga, kvóti, sorp, launavinna og Venesúela á Flateyri
    Við ræðum Airbnb og skammtímaleigu til ferðafólks: Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Sigrún Tryggvadóttir formaður Íbúasamtaka miðborgarinnar og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna greina stöðuna og benda á lausnir. Hvað finnst Sigurjóni Þórðarsyni varaþingsmanns um nýja sjávarútvegsstefnu Svandísar Svavarsdóttur? Hvers vegna eru höfuðborgarbúa langt á eftir öðrum í flokkun sorps, langt á eftir fólki í öðrum löndum? Kjartan Valgarðsson segir okkur hvers vegna. Við ræðum við Ævar Kjartansson um sósíalisma ’68-kynslóðarinnar og þá sérstaklega um áþján launavinnunnar og þörf á lýðræðisvæðingu atvinnulífsins. Í lokin kemur Helen Cova og segir okkur frá þremur bókum sem hún tengist á þessu ári,. hvernig það er að yrkja og semja á íslensku fyrir konu á Flateyri sem ættuð er frá Venesúela.
    3 hr 27 min
  • Synir Egils, 26. nóv - Hamfarir. stríð, húsnæðiskreppa og kvóti
    Sunnudagurinn 26. nóvember
    Hamfarir. stríð, húsnæðiskreppa og kvóti
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingkona, Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Úlfar Hauksson vélstjóri og stjórnmálafræðingur. Þá draga þeir saman stöðuna í pólitíkinni og slá á þráðinn til Kjartans Sveinssonar formanns Strandveiðimanna um tillögur Svandísar Svavarsdóttur í sjávarútvegsmálum. Og fá Arnar Atlason, formann Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda, til að draga saman um hvað gagnrýnin á kvótakerfið hefur snúist og hvers vegna tillögur Svandísar ná ekki að svara henni, en kvótinn er líklega stærsta réttlætismál íslenskrar sögu, hvernig fiskimiðin voru færð úr almannaeign og einkavædd.
    2 hr 9 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Þorvaldur Friðriksson
    Laugardagurinn 25. nóvember
    Helgi-spjall: Þorvaldur Friðriksson
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Þorvaldur Friðriksson okkur frá fólkinu sínu, æskunni og áhugamálunum sem segja má að séu öll á jaðrinum, skrímsl, lækningajurtir og keltnesk áhrif á íslenska menningu. Hvers vegna er Þorvaldur svona skrítin og sérstök áhugamál? Eða eru það kannski frekar við hin sem eru skrítin og takmörkuð?
    2 hr 5 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 47
    Föstudagurinn 24. nóvember
    Vikuskammtur: Vika 47
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Atli Bollason listamaður, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Þóra Karitas Árnadóttir leikstjóri og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af Grindavík, Gaza og öðrum hættusvæðum.
    1 hr 24 min
  • Rauða borðið, 23. nóv - Furðulegur forseti, nýir þættir á Samstöðinni
    Fimmtudagurinn 23. nóvember
    Furðulegur forseti, nýir þættir á Samstöðinni
    Við fáum Helga Hrafn Guðmundsson til að segja okkur frá Javier Milei, nýkjörnum forseta Argentínu, sem sannarlega bindur bagga sína ekki sömu hnútum og stjórnmálafólk almennt. Síðan ræðum við nýja þætti á samstöðinni. Miðjuna á miðvikudegi og Syni Egils sem Sigurjón Magnús Egilsson sér um, Mótmæli í morgunmat sem Oddný Eir Ævarsdóttir heldur utan um, Grimma & Snar sem frænkurnar Ingibjörg Magnadóttir og Kara Guðmundsdóttir eru að byrja með, Maður lifandi sem feðgarnir Björn Þorláksson og Starkaður Björnsson halda utan um og Heimsmyndir sem Kristinn Theódórsson verður með.
    1 hr 59 min
  • Jón Steinar Gunnlaugsson
    22. nóv ´23
    Jón Steinar Gunnlaugsson er gestur Sigurjóns M Egilssonar í nýjasta þætti Miðjan á miðvikudegi
    Þeir tala um Hæstarétt og lögmennsku. Einnig um Eimreiðarhópinn, vinslit Jóns Steinar og Davíðs Oddssonar svo fátt eitt sé nefnt.
    40 min
  • Rauða borðið - Hommar, Rómafólk og stjörnuspeki
    Miðvikudagurinn 22. nóvember
    Hommar, Rómafólk og stjörnuspeki
    Böðvar Bragason hefur skrifað bók um strákana sem komu úr skugganum, frelsisbaráttu gay-samfélagsins á Íslandi. Við fáum hann til að segja okkur þessa sögu. Marco Solimene, mannfræðingur og lektor við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands segir okkur frá afar áhugaverðri Rannís-rannsókn á sögu og etnógrafíu Rómafólks á Íslandi. Og í lokin er óskalag frá dyggum hlustanda, viðtal við Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking um breytingarnar sem verða þegar Plútó fer inn í vatnsbera.
    2 hr 38 min
  • Rauða borðið, 21. nóv - Grænþvottur, hraðtíska og villta vinstrið
    Rauða borðið 21. nóvember, 2023.
    Grænþvottur, hraðtíska og villta vinstrið
    Oddný Eir ræðir við Finn Ricart Andrason forseta Ungra umhverfissinna um Tunglið sem er tilraun Ungra umhverfissinna til að sannreyna loforð stjórnarflokka um umhverfismálin, hann ræðir líka um grænþvottinn og heildrænu nálgunina. Sigrún Sandra Ólafsdóttir sem nýverið lauk við rannsókn á neikvæðum áhrifum textílframleiðslu og fataiðnaðar ræðir einnig um grænþvottinn og svörtu tilboðsdagana, skuggahliðar fataiðnaðarins og óhóflega tískuneyslu Íslendinga. Gunnar Smári heldur síðan áfram að rifja upp villta vinstrið og fær Pétur Tyrfingsson til að fara yfir sína pólitísku baráttusögu, segja frá Fylkinguna og sósíalískri verkalýðsbaráttu í aðdraganda nýfrjálshyggjunnar.
    2 hr 25 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners