Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið, 6. des - Sárafátækt, skólar, sænska leiðin, næstum-Reykjavík, trú og spilling
    Miðvikudagurinn 6. desember
    Sárafátækt, skólar, sænska leiðin, næstum-Reykjavík, trú og spilling
    Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu lýsa fyrir okkur kolsvartri skýrslu um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi. Þórdís Sigurðardóttir forstjóri Menntamálstofnunar bregst við niðurstöðum Pisa-könnunarinnar og Gunnlaugur Magnússon dósent í uppeldisfræði við Uppsalaháskóla segir okkur frá sænsku leiðinni í skólamálum, leið markaðs- og einkavæðingar. Hjónin Guðni Valberg arkitekt og Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur segja okkur frá Reykjavík sem ekki varð og Örn Bárður Jónsson prestur ræðir við okkur um spillingu í ljósi trúar og lífsgilda.
    3 hr 32 min
  • Fréttir úr feðraveldinu
    5. desember ´23
    Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu svo sem uppgang fasisma, rafmynt og jólabónus.
    28 min
  • Rauða borðið, 5. des - Pisa, Flokkur fólksins, kynþáttahyggja og Islam
    Þriðjudagurinn 5. desember
    Pisa, Flokkur fólksins, kynþáttahyggja og Islam
    Við fáum Magnús Þór Jónsson formann Kennarasambandsins til að skýra hvers vegna íslenskir nemendur standa sig illa og æ verr í samanburði við evrópska nemendur. Við fáum Guðmund Inga Kristinsson þingflokksformann Flokks fólksins til að útskýra þann flokk, stefnu og markmið. Við fáum Kristínu Loftsdóttur mannfræðing til að segja okkur frá kynþáttahyggju nýlendutímans og hvernig hún tengist rasisma okkar tíma. Og við fáum Sverri Agnarsson til að segja okkur frá Islam á aðventunni, innihaldi trúarinnar en líka átökum milli hins kristna heims og Islam.
    3 hr 38 min
  • Reykjavíkurfréttir, 5. des - Fánar, fjármál og fundir
    Reykjavíkurfréttir, 5. des - Fánar, fjármál og fundir
    Í þætti dagsins fáum við kynningu á ýmsum málum borgarinnar, fjallað verður um stöðu aðgerðaráætlunar gegn rasisma í skóla- og frísundastarfi, fjárhagsáætlun, vetrarþjónustu og snjómokstur og loftslagsmálin innan borgarinnar í tengslum við óáreiðanlegar almennningssamgöngur. Þá fjöllum við um hvernig borgin geti sýnt samstöðu með stríðshrjáðum löndum með því að draga fána að húni og viðbrögð borgarinnar við Palestínska fánanum sem reistur var af aðgerðasinnum en fljótlega fjarlægður. Þetta og margt fleira í þætti dagsins með Andreu Helgadóttur og Sönnu Magdalena Mörtudóttur.
    54 min
  • Rauða borðið, 4. des - Miðflokkurinn, himinn & haf, undirgefni og ástin
    Mánudagurinn 4. desember
    Miðflokkurinn, himinn & haf, undirgefni og ástin
    Við viljum fá þingflokksformenn í viðtal til okkar á aðventunni, sem er pólitísk tíð með átökum á Alþingi. Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, kemur fyrstur og segir okkur hvað sá flokkur fyrirstendur og hvað hann vill. Birna Sigrún Hallsdóttir umhverfisverkfræðingur heldur úti mögnuðum vef, Himin & haf, um loftlagsmál. Við kynnumst vefnum og fáum Birnu til að leggja mat á stöðuna og ráða í hvers vegna íslensk stjórnvöld standa sig svona illa. Við veltum fyrir okkur hvers vegna Íslendingar láta allt yfir sig ganga með Öldu Sigmundsdóttur rithöfundi, sem segir okkur undirgefin vegna aldalangrar kúgunar vinnufólks í vistarböndum. Í lokin kemur Sigurður Árni Þórðarson, fyrrum prestur, og segir okkur frá ástinni, trú og tilgangi lífsins.
    3 hr 7 min
  • Rauður raunveruleiki - Mótmæli aðstandenda og fíknisjúkra gegn aðgerðarleysi stjórnvalda
    Nýstofnuð samtök aðstandenda og fíknisjúkra hafa boðað til mótmæla næsta laugardag kl. 13 við Austurvöll
    Mótmælin snúast gegn aðgerðaleysi stjórnvalda í málefnum fíknisjúkra en eins og staðan er er þjónustan ófullnægjandi og biðlistar langir.
    Dagbjört Ósk Steindórsdóttir og Guðlaug Baldursdóttir hafa komið að stofnun félagsins og verða gestir okkar í kvöld
    Þátturinn er í umsjón Anítu Da Silva og Karls Héðins
    40 min
  • Synir Egils, 3. des - Pólitíkin, stéttabarátta, dánaraðstoð, fullveldi
    Sunnudagurinn 3. desember
    Pólitíkin, stéttabarátta, dánaraðstoð, fullveldi
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Transparency International á Íslandi, Eva Heiða Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar pg ræða ástandið á þingi, í ríkisstjórn og í stéttabaráttunni. Lagt hefur verið fram frumvarp um dánaraðstoð. Í tilefni af því koma til okkur frá félaginu Lífsvirðingu þær Ingrid Kuhlman, leiðbeinandi og ráðgjafi og Sylviane Lecoultre iðjuþjálfi. Í lokin flytjum við viðtal við Guðna Th. Jóhannesson forseta um fullveldið í tilefni af fullveldisdeginum.
    3 hr 9 min
  • Mótmæli í morgunmat: Friðarviðræður - Uppljóstrarar
    Mótmæli í morgunmat: Uppljóstrarar.
    Í Friðarviðræðum rifjum við upp Klaustursmálið svokallaða og setjum það í samhengi borgaralegrar samviskusemi og uppljóstrana á tímum upplýsingaóreiðu, falsfrétta, þöggunartilburða og minnkandi valds fjölmiðla.
    Viðmælendur eru aðapersónurnar í málinu, Bára Halldórsdóttir, aðgerðarsinni og listakona, Halldór Auðar Svansson, hugmbúnaðarfræðingur og varaþingmaður Pírata og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, verjandi Báru og lögfræðingur Íslands við Mannréttindadómstól Evrópu.
    1 hr 29 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 48
    Föstudagurinn 1. desember
    Vikuskammtur: Vika 48
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur, Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Aðstöðu félags fanga, Ingimar Karl Helgason grunnskólakennari og fyrrum fréttamaður og Lóa Björk Björnsdóttir uppistandari og útvarpskona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af vopnahlé, afnámi hættuástands, handtöku og alls kyns átökum.
    1 hr 28 min
  • Rauða borðið : Ólafur Haukur
    Laugardagurinn 2. desember
    Helgi-spjall: Ólafur Haukur
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Ólafur Haukur Símonarson frá sjálfum sér, fjölskyldu, samferðafólki og tímanum sem hann hefur lifað.
    2 hr 43 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners