Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 39
    Föstudagurinn 29. september
    Vikuskammtur: Vika 39
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Grímur Hákonarson leikstjóri, Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður Verkalýðsfélags Keflavíkur, Halla Gunnarsdóttir blaðakona og Magnús Guðmundsson blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af stéttaátökum, menningarátökum og alls kyns átökum.
    1 hr 18 min
  • Sanna Reykjavík - Félagsbústaðir hækka leigu
    Sanna Reykjavík - 29. september
    Félagsbústaðir hækka leigu
    Félagsbústaðir kynntu nýverið breytingar á leigu sem leiðir til þess að stór hópur sér nú fram á að greiða hærri leigu. Breytingin mun hafa áhrif á 2.649 leigjendur hjá Félagsbústöðum, þar sem leiga hækkar hjá 1.538 leigjendum en lækkar hjá 1.111 leigjendum. Breytingin er kynnt af Félagsbústöðum sem aðferð í því að jafna leiguverð á milli ólíkra íbúða þannig að leigan sé sem jöfnast óháð staðsetningum og fleiri þáttum. Leigjendur Félagsbústaða búa við erfiða fjárhagslega stöðu og geta ekki greitt hærri leigu. Í þættinum í dag kemur til okkar leigjandi Félagsbústaða, Svandís Ragnarsdóttir og veitir okkur innsýn í veruleika leigjenda og hvernig er að fá tilkynningu um leiguhækkun.
    28 min
  • Rauða borðið - Skúringar, íslenskt flóttafólk, dauðinn og Útvarp Rót
    Fimmtudagurinn 28. september
    Skúringar, íslenskt flóttafólk, dauðinn og Útvarp Rót
    Við ræðum við Kristínu Hebu Gísladóttur forstöðukonu Vörðu, rannsóknaseturs verkalýðsins, um stöðu ræstingarfólks. Sláum síðan á þráðinn til efnahagslegra flóttamanna frá Íslandi, fólks sem hefur flutt frá Íslandi til Norðurlandanna í leit að betra lífi: Þóra Dis Guðbjartsdóttir Odsgaard, Fríður Pétursdóttir, Haraldur Anton Árnason, Arnar Guðmundsson, Guðfinna Bjarnadóttir, Páll Birgis Pálsson og Gyða Björk Ágústsdóttir segja okkur frá lífinu á Íslandi og lífinu á hinum Norðurlöndunum. Björn Þorláksson blaðamaður hefur skrifað bók um dauðann og segir okkur frá kynnum sínum og annarra af honum. Í lokin rifja þau Soffía Sigurðardóttir, Jón Helgi Þórarinsson og Ragnar Stefánsson upp ris og fall Útvarps Rótar, alþýðuútvarps sem hér var rekið seint á níunda áratugnum.
    2 hr 31 min
  • Rauða borðið - Orkuþörf, Incel, mæðrun, Pólland, sósíalismi
    Miðvikudagurinn 27. september
    Orkuþörf, Incel, mæðrun, Pólland, sósíalismi
    Þarf að virkja tvöfalt meira til að mæta orkuskiptum og bjarga loftslaginu? Eða eigum við að neyta minna og fara betur með þá orku sem til er? Andri Snær Magnason skáld og rithöfundur & Sigríður Mogensen sviðstjóri hjá Samtökum iðnaðarins koma að rauða borðinu og skiptast á skoðunum. Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson stjórnmálasálfræðingur fræðir okkur um menningarfyrirbrigðið Incel og þær Annadís Greta Rúdólfsdóttir dósent í aðferðafræði rannsókna og Auður Magndís Auðardóttir lektor í uppeldis- og menntunarfræðum segja okkur frá ákafri mæðrun. Við hringjum í Jacek Godek stórþýðanda og fáum hann til að fræða okkur um pólsku kosningar og hvað er í húsi. Í lokin kemur Björn Þorsteinsson prófessor og ræðir sósíalisma.
    3 hr 4 min
  • Rauða borðið - Strætó, sauðfé, SÁÁ og sósíalismi
    Þriðjudagurinn 26. september
    Strætó, sauðfé, SÁÁ og sósíalismi
    Þær María Pétursdóttir og Oddný Eir Ævarsdóttir heimsækja strætóstoppistöðina í Mjóddinni og flytja okkur mannlífstúdíu þaðan. Við heyrum í Karólínu Elísabetardóttur sauðfjárbónda í Hvammshlíð, sem var hvatakona að leit að erfðaefnum sem geta varið fé fyrir riðu. Hún segir okkur þá sögu en líka frá ullinni og hvernig rétt ræktun og meðferð sauðfjár getur aukið verðmæti hennar. Þá heyrum við í þeim Ingunni Hansdóttur framkvæmdastjóri sálfélagslegra meðferðar og Önnu Hildi Guðmundsdóttur formanni SÁÁ um stöðu áfengismeðferðar, áfengis- og vímuefnaneyslu og versnandi fjárhag samtakanna. Í lokin höldum við áfram að kortleggja sósíalismans í tilefni af erindi Jeremy Corbyn um helgina. Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur segir sína sósíalísku sögu og greinir stöðu sósíalismans í dag.
    2 hr 38 min
  • Rauður raunveruleiki - Mannúðarkrísa / Morgane Priet-Mahéo
    Það er mannúðarkrísa á Íslandi. Stjórnvöld hafa einbeittan brotavilja gagnvart börnum og fullorðnum á flótta og vilja láta almenning halda að flóttafólkið sé sérstakt vandamál fyrir hagkerfið og velferðarkerfið. Þetta er kolrangt og svívirðilegt bull sem örvæntingarfullt auðvald reynir að sannfæra okkur um til að færa athyglina frá sjálfu sér. Á sama tíma eru öryrkjar látnir bíta í það súra, velferðarkerfin hnigna og eru einkavædd og þeim freku, sterku og siðlausu er gefið endalaust færi á að svína á almenningi.
    Til þess að ræða þessi mál með okkur höfum við fengið til okkar Morgane Priet-Mahéo frá samtökunum Réttindi barna á flótta. Hún hefur verið í fremstu víglínu að hjálpa því flóttafólki sem auðvaldið vill skrýmslavæða svo almenningur horfi á það frekar en sig sjálft.
    44 min
  • Rauða borðið 25.sept: Kvótinn, Sameinuðu þjóðirnar, Kamban og sósíalismi
    Helgi Hlynur Ásgrímsson útvegsbóndi sest við rauða borðið og ræður sjávarútvegsstefnuna, kvótann og óréttlætið sem honum fylgir. Og metur hvort líkur séu á að Svandís Svavarsdóttir nái fram einhverjum breytingum á stefnunni. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er í New York. Helen Ólafsdóttir hlustaði á ávörp þjóðarleiðtoga og greinir fyrir okkur þræðina í þeim ræðum. Banamaður Guðmundar Kambans hefur verið nefndur. Við fáum Jón Yngva Jóhannsson bókmenntafræðing til að segja okkur frá Kamban og öðrum höfundum sem tengdust þýskum yfirvöldum á nasistatímanum. Í lokin kemur Einar Ólafsson skáld og bókavörður og ræðir sósíalismann, sögu hans og sína reynslu. Og metur hvort þörf sé á sósíalisma.
    3 hr 14 min
  • Synir Egils 24.sept: Fréttir, pólitík, kvóti og stjórnarskrá
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við Jóhan Pál Jóhannsson þingmann, Sonju Þorbergsdóttur formann BSRB og Þóru Tómasdóttur. Við heyrum síðan í Jeremy Corbyn, fyrrum leiðtoga breska Verkamannaflokksins. Þeir bræður fara yfir daginn og veginn áður en Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði og Eiríkur Tómasson prófessor í lögfræði ræða um þörfina á að fá auðlindarákvæði í stjórnarskrána, hvað það ákvæði þarf að innihalda og hversu varasamt er að það sé ófullnægjandi.
    2 hr 40 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners