Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 37
    Föstudagurinn 15. september
    Vikuskammtur: Vika 37
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Hjördís Rut Sigurjónsdóttir upplýsingafulltrúi, Hrafn Jónsson pistlahöfundur, María Pétursdóttir formaður húsnæðishóps ÖBÍ og Þorvarður Bergmann Kjartansson stjórnarmaður í VR og ræða fréttir vikunnar sem markaðist af þingbyrjun, eldhúsdegi og fjárlagafrumvarpi en ekki síður kynfræðslu í skólum, löxum og hvölum.
    1 hr 18 min
  • Sanna Reykjavík - Umhverfissálfræði og Arkítektúruppreisnin
    Í dag fáum við tvo gesti til að ræða borgarskipulag, arkitektur nútímans og áhrif þess á andlega líðan. Stórir verktakar hafa aukið völd sín í skipulagsmálum og stýra allri þróun. Krafan um hámarkshagnað trompar önnur sjónarmið. Þar með talið hugmyndir um fegurðargildi bygginga, áhrif hönnunar á líðan íbúa, svo ekki sé talað um húsnæðisverð.
    Er einsleitnin of mikil? Hvers vegna er svona margar byggingar eins og gráir kassar? Hvað geta skipulagsyfirvöld gert til að bæta úr? Þetta og margt fleiri í þættinum. Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur snýr aftur til að ræða málin. Ásamt honum kemur Þórhallur Bjarni Björnsson, einn af talsfólki hópsins „Arkitektúruppreisnin á Íslandi”.
    42 min
  • Ungliðaspjallið #4 - Orri Páll Jóhannsson
    Ungliðaspjallið #4 - Orri Páll Jóhannsson
    Í Ungliðaspjalli vikunnar ræðum við við Orra Pál Jóhannsson, þingflokksformann Vinstri Grænna, um málefni vikunnar.
    Þátturinn er í umsjón Elísabetar Guðrúnar og Jónsdóttur, Jósúa Gabríels Davíðssonar, Karls Héðins Kristjánssonar og Þorvarðar Bergmanns Kjartanssonar
    1 hr 2 min
  • Rauða borðið 14. sept - Fákeppni, Framsókn og kalt stríð
    Fimmtudagurinn 14. september
    Fákeppni, Framsókn og kalt stríð
    Við höfum áfram að ræða samkeppni og skort á henni á Íslandi, hinn beyglaða markað. Nú kemur Þórólfur Matthíasson prófessor og segir okkur frá hlutverki ríkisvaldsins til að koma í veg fyrir fákeppni, bæði í sögunni og í dag. Við ræðum við Benedikt Sigurðarson um Framsóknarflokkinn, sem hann telur vera á villigötum. Og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor kemur við og ræðir heimsmálin, hvernig Úkraínustríðið er að breyta valdahlutföllum í heiminum.
    1 hr 55 min
  • Rauða borðið 13 sept: Kjör, íslenska og geðheilbrigði
    Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, kemur að Rauða borðinu og fer yfir stöðuna. Stunda fyrirtækin samsæri gegn þjóðinni? Gætir ríkisstjórnin sérhagsmuna en ekki almennings? Er upplausn og ekkert samkomulag í sjónmáli? Aleksandra Leonardsdóttir starfsmaður Alþýðusambandsins kemur og ræðir um íslenskukennslu fyrir innflytjendur, íslensku sem þröskuld og jaðarsetningu innflytjenda. Þá kemur Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, og ræðir geðheilbrigðisstefnuna og skort á henni.
    2 hr 20 min
  • Rauða borðið 12.sept: Auðvaldið, mótmæli, markaður og stríðni
    Við ræðum við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, um auðvaldið sem hefur við höfum séð berstrípað af samkeppniseftirlitinu síðustu daga. Við förum niður á Austurvöll og ræðum við mótmælendur, sem þar voru mættir af ýmsu tilefni vegna þingsetningar. Við höfum áfram að ræða um samkeppni eða skort á henni, nú við Ólaf Stephensen framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda og Margréti Kristmannsdóttur framkvæmdastjóra Pfaff. Í lokin ræðir Oddný Eir Ævarsdóttir við Birnu Bjarnadóttur og Friðrik Rafnsson um tvö látna rithöfunda, Milan Kundera og Guðberg Bergsson.
    2 hr 17 min
  • Rauða borðið 11.sept: Fákeppni, flóttabörn, auðlindin og Chile 1973
    Þær koma til okkar þingkonurnar Oddný Harðardóttir xS, Hanna Katrín Friðriksson xC og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir xV og ræða um samkeppni, fákeppni og okur. Þá kemur Morgane Priet-Mahéo frá samtökunum Réttur barna á flótta og segir frá stöðu flóttabarna. Við heyrum í Kjartani Páli Sveinssyni formanni Strandveiðifélagsins um gagnrýni hans á Auðlindina okkar, nefndarstarf Svandísar Svavarsdóttur um kvótakerfið. Í lokin segir Valdimar Þór Hrafnkelsson frá valdaráni hersins í Chile árið 1973, en í dag eru fimmtíu ár frá voðaverknaði sem átti eftir að kosta þúsundir lífið og kljúfa þjóðina.
    1 hr 57 min
  • Rauður raunveruleiki - ADHD, kapítalismi og samráð stórfyrirtækja
    Ungir sósíalistar og vinir ræða atburði og umræðu síðustu vikna, mögulega ofbeitingu ADHD-lyfja, afleiðingar útlendingafrumvarpsins, samráð stórfyrirtækjanna og spillingu kapítalismans.
    Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Anítu Da Silva Bjarnadóttur. Trausti Breiðfjörð Magnússon og Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir verða gestir kvöldsins
    53 min
  • Synir Egils 10.sept: Stóru málin
    Nýr þáttur á Samstöðinni, Synir Egils. Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssyni taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við Dagbjörtu Hákonardóttur, nýjan þingmann, og blaðamennina Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og Helga Seljan. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, mætir og fer með eldmessu. Og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, kemur í sunnudagsviðtalið.
    2 hr 19 min
  • Helgispjall 8.sept: Haraldur Þorleifsson
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Haraldur Þorleifsson frá sjálfum sér og þeim glímum sem hann hefur háð, átökunum innra með honum og áföllunum sem hann hefur orðið fyrir. Og auðvitað sigrunum líka.
    1 hr 29 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners