Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
Mannekla á Landspítalanum vegna covid og annarra veikinda veldur því að staðan þar er þung. Helgin gæti reynst erfið og sama gildir um mönnun næstu vikurnar að dómi Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóra lækninga.
Bandaríkjaforseti fullyrti í dag að miklar líkur væru á því að Rússar ræðust inn í Úkraínu á næstu dögum. Rússar óskuðu eftir því í dag að Bandaríkin og NATO hættu að senda vopn til Úkraínu. Birta Björnsdóttir tók saman.
Mikill munur er á dauðsföllum nú og fyrr í covid-faraldrinum, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Áður hafi fólk veikst mjög alvarlega af covid og andast, nú tengist dauðsföllin undirliggjandi sjúkdómum og þáttur covid sé oft óljós. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
Fólki er ráðlagt að kynna sér aðstæður vel áður en það leggur í fjallaferðir. Snjóflóðahætta er í Esjunni og fjöllum á Vestfjörðum. Markús Þórhallsson ræddi við Karen Lárusdóttur verkefnastjóra hjá Landsbjörg og Magna Jónsson ofanflóðasérfræðing hjá Veðurstofunni.
Fiskistofa á að kanna samþjöppun aflaheimilda að beiðni matvælaráðherra, sem hefur lagt til breytingar á lögum um fiskveiðistjórnun þar sem skilgreint verður betur hvað teljast vera tengdir aðilar. Haukur Holm sagði frá.
Eystri Landsréttur í Danmörku fyrirskipaði í dag að Lars Findsen, yfirmaður leyniþjónustu hersins, skyldi látinn laus úr gæsluvarðhaldi. Hann er grunaður um upplýsingaleka og hefur setið inni í tvo mánuði. Bogi Ágústsson tók saman.
Hljóðbækur á kasettu og tuttugu ára gömul tímarit um internetið voru á meðal þess sem Bókasafni Kópavogs barst í síðustu viku, þegar lánþegum bauðst að skila bókum og öðru efni án þess að greiða sekt. Þórgnýr Einar Albertsson talaði við Ástu Sirrýju Jónasdóttur, deildartjóra.
------------
Á fjórða hundrað starfsmanna á Landsspítalanum eru í einangrun vegna covid og síðasta sólarhring greindust fimmtíu starfsmenn. Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á spítalanum segir að þó að það verði erfitt að manna vaktir um helgina sé það frumskylda spítalans að láta starfsemina ganga og það verði gert. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Kristín Sigurðardóttir talaði við Sigríði.
Á sunnudagskvöld hóf danska ríkissjónvarpið útsendingar á fjórðu þáttaröðinni af Borgen, sem fjallar um dönsk stjórnmál og Birgitte Nyborg, sem var forsætisráðherra Danmerkur í fyrri seríum. Fyrsta þættinum hefur verið vel tekið. Bogi Ágústsson sagði frá.