Vikulokin

Vikulokin

By RÚV
Download on the App Store
  • Favorites

    21

    Followers

  • Typical duration

    57 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Vikulokin episodes

  • Björn, Rósa Björk, Sigríður
    Gestir þáttarins voru Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. Rætt var um innrás Tyrkja í Sýrland, frumvarp um peningaþvætti sem afgreitt var með hraði í þinginu, Hringborðsumræður um Norðurslóðir og álitaefni þeim tengd og frumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um bætur fyrir sýknaða sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálum.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Mark Eldred
    55 min
  • Drífa, Pétur og Þórður
    Gestir Vikulokanna voru Drífa Snædal, forseti ASÍ, Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, og Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Katla DMI. Fjallað var um vandræða fjárfestingasjóðsins Gamma, samdrátt á byggingamarkaði, uppbyggingu samgöngukerfisins, stöðu ferðaþjónustunnar og lækkun stýrivaxta.
    55 min
  • Berglind, Bjarkey og Guðmundur Andri
    Gestir þáttarins eru Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélags Íslands, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður VG og Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar. Rætt var um málefni Ríkislögreglustjóra og áhrif á löggæsluna, bótakröfur vegna Guðmundar- og Geirfinnsmáls og afstöðu Ríkislögmanns, uppsagnahrinu vikunnar og horfur í efnahagsmálum og loks tæpt á samgöngumálum í höfuðborginni í ljósi samkomulags um samgöngubætur og loftslagsmál.
    Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
    Tæknimaður í Efstaleiti: Ragnar Gunnarsson, Tæknimaður á Akureyri: Björgvin Kolbeinsson
    55 min
  • Flosi, Jón, Sóley, Þorbjörg
    Gestir þáttarins voru Sóley Tómasdóttir, ráðgjafi í jafnréttismálum, Jón Gunnarsson, þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins, Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar. Rætt var um alþjóðlega ráðstefnu um #metoo og áhrif hreyfingarinnar, samkomulag ríkis og sveitarfélaga um samgönguuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu sem verði að hluta greidd með veggjöldum og synjun ríkislögmanns á kröfu Guðjóns Skarphéðinssonar, sem sýknaður var í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Mark Eldred
    55 min
  • Bryndís, Logi, Ólafur og Steinunn Þóra
    Gestir þáttarins voru þingmennirnir Bryndís Haraldsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Logi Einarsson, Samfylkingu, Ólafur Ísleifsson, Miðflokki, og Steinunn Þóra Árnadóttir, Vinstri grænum. Rætt var um fjárlagafrumvarpið og forgangsröðun þess, framlög til loftslagsmála, veggjöld og borgarlínu og þingveturinn framundan.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
    55 min
  • Áslaug Arna, Borgar Þór, Halla, Kristján
    Í þættinum var byrjað á að ræða við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem er nýtekin við embætti dómsmálaráðherra. Síðar í þættinum var rætt við Höllu Gunnarsdóttur, ráðgjafa forsætisráðherra, Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmann utanríkisráðherra, og Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðing, um Íslandsheimsókn Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, utanríkisstefnu Íslands, samskipti við Kína og Brexit.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Ragnar Guðmundur Gunnarsson
    55 min
  • Áslaug, Eyrún, Pétur, Ragnar Þór
    Gestir þáttarins voru Áslaug María Friðriksdóttir, sérfræðingur hjá Sjá og fyrrverandi borgarfulltrúi, Eyrún Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Kjarnans, Pétur G. Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu og Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands. Rætt var um umræðu um skólamötuneyti, myglu í skólum og skólamál almennt, loftslagsvá og mótmæli Grétu Thunberg fyrir framan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknistjórn: Mark Eldred.
    55 min
  • Aldís Hafsteinsdóttir, Kristinn Schram og Sonja Ýr Þorbergsdóttir
    Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kristinn Schram dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB sem gegnir formennsku í Norræna verkalýðssambandinu ræddu um Grænland og áhuga Bandaríkjaforseta á að kaupa það, stöðu Grænlendinga gagnvart Danmörku, komu Mikes Pence, varaforseta Bandaríkjanna til Íslands og það að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verður ekki á landinu þegar hann kemur, kjaramál, styttingu vinnuvikunnar og sameiningu sveitarfélaga.
    Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
    Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir
    55 min
  • Dagur B. Eggertsson, Jón Gunnarsson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir
    Samgöngumál, Gleðigöngu, 3. orkupakkann og heimsóknir Mikes Pence, varaforseta Bandaríkjanna og Angelu Merkel, kanslara Þýskalands bar á góma hjá Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra (S) , Jóni Gunnarssyni þingmanni (D) og Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, formanni Samtakanna ´78.
    Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
    Tæknimaður: Hrafnkell Sigurðsson
    55 min

About Vikulokin

From the publisher's feed

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Best of Vikulokin

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Vikulokin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners