Vikulokin

Vikulokin

By RÚV
Download on the App Store
  • Favorites

    21

    Followers

  • Typical duration

    57 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Vikulokin episodes

  • Kolbrún, Guðrún og Óskar Steinn
    Gestir þáttarins voru Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi umhverfisráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, og Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, leikskólastarfsmaður og varaforseti Ungra jafnaðarmanna. Rætt var um Óskarsverðlaun Hildar Guðnadóttur, óvissu um starfsemi álvers Rio Tinto í Hafnarfirði, kjaramál og verkfallsaðgerðir, kólnun í hagkerfinu, leiðir til að sporna við því og hlutverk nýsköpunar.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Mark Eldred
    55 min
  • Anna Margrét, Dagný Ósk og Vilhjálmur
    Gestir þáttarins voru Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri á Nóaborg, Dagný Ósk Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB, og Vilhjálmur Egilsson, fráfarandi rektor Háskólans á Bifröst. Rætt var um kjaraviðræður Eflingar og BSRB og yfirvofandi verkfall, málefni hælisleitenda eftir að brottvísun fjölskyldu sjö ára drengs var afstýrt, útbreiðslu 2019-kórónavírussins, kólnun í hagkerfinu og hugmyndir um sölu á Íslandsbanka.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
    55 min
  • Bryndís, Guðbjörg og Otti
    Bryndís Sigurðardóttir, smitsjúkdómalæknir á Landspítalanum, Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Otti Rafn Sigmarsson, varaformaður Landsbjargar og félagi í björgunarsveitinni Þorbirni voru gestir í vikulokin. Rætt var um óvissustig í Grindavík vegna landriss og skjálftavirkni, áhrif á íbua og álag á björgunarsveitir; Wuhan-veirusmit, varnir og viðbrögð og kjaramál.
    Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
    Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
    55 min
  • Ásta, Viðar og Þröstur
    Gestir Vikulokanna voru Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð og fyrrverandi bæjarstjóri í Árborg, Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, og Þröstur Ólafsson, hagfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Dagsbrúnar. Rætt var um kjaradeilu Eflingar og Reykjavíkurborgar en kosning um hvort ráðist eigi í verkfallsaðgerðir stendur yfir hjá Eflingu, kjör borgarstarfsfólks, styttingu opnunar leikskóla í Reykjavík og áform umhverfisráðherra um stofnun hálendisþjóðgarð.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Mark Eldred.
    55 min
  • Guðmundur, Gylfi og Steinunn Guðný
    Vikulokin voru send út frá Gunnukaffi á Flateyri, þar sem mannbjörg varð í þegar snjóflóð féll fyrir ofan bæinn fyrr í vikunni og olli stórtjóni. Rætt var við þau Guðmund Gunnarsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, Gylfa Ólafsson, forstöðumann Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og Steinunni Guðnýju Einarsdóttur, gæðastjóra og íbúa á Flateyri.
    Umsjón: Sigríður Dögg Auðunsdóttir
    Tæknimaður: Jóhannes Jónsson
    55 min
  • Gunnar Smári, Ólína Kjerúlf og Teitur Björn
    Gestir þáttarins voru Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður og einn stofnanda Sósíalistaflokksins, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, og Teitur Björn Einarsson, lögfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Rætt var um ferðamenn í lífshættu á Langjökli, bætur sem ríkið greiddi Ólínu Þorvarðardóttur eftir að Þingvallanefnd braut jafnréttislög við ráðningu þjóðgarðsvarðar, loðnuleit og fundarhöld Gunnars Smára og Ögmundar Jónassonar um kvótakerfið og álag á Landspítalanum.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
    55 min
  • Davíð, Margrét og Una
    Gestir þáttarins voru Davíð Stefánsson, ritstjóri Fréttablaðsins, Margrét Jónsdóttir Njarðvík, nýráðin rektor Háskólans á Bifröst, og Una Sighvatsdóttir, starfsmaður Nato í Georgíu. Þau ræddu stríðshættu í Miðausturlöndum eftir að Bandaríkjamenn réðu æðsta herforingja Íran af dögum, hamfarir af völdum skógarelda í Ástralíu, skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um afleiðingar loftslagsváar á Íslandi, auk þess sem gestir spáðu í spilin fyrir komandi ár.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Mark Eldred
    55 min
  • Andrés, Kristján og Þóra Kristín
    Gestir þáttarins voru Andrés Magnússon blaðamaður, Kristján B. Jónasson útgefandi og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar. Farið var yfir ýmist af helstu fréttamálum ársins sem leið.
    Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
    Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
    55 min
  • Eiríkur Bergmann, Heiðdís Lilja og Hulda Ragnheiður
    Aftakaveðrið og það sem því fylgdi, rafmagnsöryggi á landsbyggðinni, tryggingar, skarður hlutur kvenna í stjórnendastöðum fyrirtækja í jafnréttisparadísinni Íslandi, Brexit, ákærur á hendur Donald Trump, stuðningur þess opinbera við fjölmiðla og fjölmiðlafrumvarpið sem lagt var fram undir þinghlé var meðal þess sem þau Eíríkur Bergmann Einarsson prófessor á Bifröst, Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, lögfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd og Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands og formaður Félags kvenna í atvinnulífinu ræddu um í þættinum.
    Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir.
    Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson.
    55 min

About Vikulokin

From the publisher's feed

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Best of Vikulokin

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Vikulokin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Spegillinn by RÚV

Spegillinn

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners