Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Syngjandi stjórnandi, arkitektúr í Afríku og Á bláþræði
    Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir hefur vakið umtalsverða athygli undanfarin misseri. Ekki aðeins fyrir fiðluleik og söng, heldur einnig fyrir hljómsveitarstjórn, og kannski ekki síst fyrir að blanda þessu tvennu saman, söng og hljómsveitarstjórn. Við ræðum við þessa ungu tónlistarkonu í þætti dagsins. Einnig fáum við pistil frá Hildigunni Sverrisdóttur, arkitekt, sem að þessu sinni fjallar um það sem efst er á baugi í afrískum arkitektúr. Og síðan stingum við einnig inn nefinu á sýningu Herdísar Hlíf Þorvaldsdóttur, Á bláþræði, í Portfolio Galleríi á Hverfisgötu.
    55 min
  • Venjulegir staðir, Kannibalen og Árstíðirnar
    Í Gerðarsafni var fyrsti fasi sjónlistasýningarinnar Venjulegir staðir opnaður um síðustu helgi. Venjulegir staðir er sýning þar sem sjónarhorn ljósmyndarinnar er kannað með verkum sem vísa í staðleysur, hversdagsleika og brenglun hans. Við ræðum við ljósmyndarann Ívar Brynjólfsson og sýningarstjórann Brynju Sveinsdóttur í þættinum.
    Einnig fáum við að heyra hvað Trausta Ólafssyni finnst um nýtt íslenskt Dansverk; Árstíðirnar sem frymsýnt var í Borgarleikhúsinu um helgina.
    Danska verðlaunaverkið Kannibalen, sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói í vikunni, fjallar um einn umtalaðasta mannátsglæp síðari ára. Aðstandendur verksins segja það ekki vera neitt hryllingsklám, heldur einlæga leit að skilningi á slíkum verknaði. Ekkert sé skafað af ofbeldinu en jafnvel meira sláandi er það sem mæti áhorfendum þegar kafað sé undir yfirborð þessara einstaklinga. Við ræðum við leikstjórann Adolf Smára Unnarsson og leikarana tvo, Fjölni Gíslason og Jökul Smára Jakobsson, í þætti dagsins.
    54 min
  • Glæpur og refsing, Árstíðirnar og Pan Afrikan Peoples Arkestra
    Í janúar mun Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi og sjálfstætt starfandi fræðimaður bjóða upp á leiðsagnarnámskeið á Hótel Holti um bókina Glæpur og refsing eftir Fjodor Dostojevskíj. Við tökum Gunnar tali um bókina og höfundinn í þætti dagsins. Við fáum líka við til okkar þær Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur sem frumsýna nýtt íslenskt dansverk í Borgarleikhúsinu um næstu helgi. Verkið er innblásið af árstíðum Vivaldis og í því mætast 20 ólíkir dansarar. Ólíkir, því þar er að finna bæði atvinnudansara og dansara sem eru á leið í atvinnumennsku, og svo leikara sem eru ástríðudansarar. Einnig kynnumst við hljómsveitinni Pan Afrikan Peoples Arkestra sem hefur verið starfandi í suðurhluta Los Angeles frá árinu 1961.
    53 min
  • Svipmynd af skáldi / Gerður Kristný
    Í dag verður dregin upp svipmynd af skáldi sem nýverið hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, Gerði Kristnýju.
    Gerður Kristný ólst upp í Háaleitishverfinu og stefndi á að verða myndlistarmaður eða jafnvel barnaskólakennari þegar hún yrði stór. Barnaskólakennari sem gæfi út barnabækur. Því frá unga aldri hafði hún gaman að því að semja vísur og sögur. Gerður lærði frönsku og bókmenntafræði við Háskóla Íslands og síðar nám í hagnýtri fjölmiðlun við sama skóla og árið 1994 gaf Gerður út sína fyrstu ljóðabók, Ísfrétt. Hún var ritstjóri Mannlífs í 6 ár og hlaut 2005 Blaðamannaverðlaun fyrir bókina Myndin af pabba - Saga Thelmu.
    Gerður hefur starfað sem rithöfundur í fullu starfi frá 2004 og skrifar hún jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir.
    48 min
  • Á eigin fótum, Fay Weldon
    Um liðna helgi var leikverkið Á eigin fótum frumsýnt í annað sinn í Þjóðleikhúsinu. Verkið var fyrst sýnt 2017 í Tjarn­ar­bíói og hlaut það árið til­nefn­ingu til Grímu­verðlaun­a sem barna­sýn­ing árs­ins. Leikstjórinn Agnes Wild og búninga- og leikmyndahönnuðurinn Eva Björg Harðardóttir verða gestir okkar í þætti dagsins.
    Einnig rifjum við upp ársgamla umfjöllun um Fay Weldon þar sem þær Dagný Kristjánsdóttir og Elísa Björg Þorsteinsdóttir voru gestir þáttarins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir
    54 min
  • Á eigin fótum, Fay Weldon
    Um liðna helgi var leikverkið Á eigin fótum frumsýnt í annað sinn í Þjóðleikhúsinu. Verkið var fyrst sýnt 2017 í Tjarn­ar­bíói og hlaut það árið til­nefn­ingu til Grímu­verðlaun­a sem barna­sýn­ing árs­ins. Leikstjórinn Agnes Wild og búninga- og leikmyndahönnuðurinn Eva Björg Harðardóttir verða gestir okkar í þætti dagsins. Einnig rifjum við upp ársgamla umfjöllun um Fay Weldon þar sem þær Dagný Kristjánsdóttir og Elísa Björg Þorsteinsdóttir voru gestir þáttarins.
    54 min
  • Frá Innri-Fagradal, Ida Pfeiffer, heimspekipistill
    Í þætti dagsins ræðum við áhrif lita, leit að fegurð, skynjun handan rökhugsunar, skilgreiningar listasögunnar og margt fleira sem á sér stað í málverkinu, með Sigrúnu Hrólfsdóttur, en sýning hennar Frá Innri-Fagradal í Gallerí Gróttu lýkur um næstu helgi.
    Einnig kynnum við okkur Idu Pfeiffer sem ferðaðist um Ísland árið 1885 og heimspekingurinn Freyja Þórsdóttir snýr aftur með nýja pistlaseríu.
    Umsjón: Halla Harðardóttir
    59 min
  • Frá Innri-Fagradal, Ida Pfeiffer, heimspekipistill
    Í þætti dagsins ræðum við áhrif lita, leit að fegurð, skynjun handan rökhugsunar, skilgreiningar listasögunnar og margt fleira sem á sér stað í málverkinu, með Sigrúnu Hrólfsdóttur myndlistarkonu, en sýning hennar Frá Innri-Fagradal í Gallerí Gróttu lýkur um næstu helgi. Einnig kynnum við okkur Idu Pfeiffer sem ferðaðist um Ísland árið 1885 og heimspekingurinn Freyja Þórsdóttir snýr aftur með nýja pistlaseríu. Umsjón: Halla Harðardóttir
    59 min
  • Auður Haralds, Skærlitað gúmmulaði og Edda
    Skærlitað gúmmulaði nefnist sýning sem verður á gallerý-vegg verslunarinnar Havarí í álfheimum um helgina. Páll Ivan frá Eiðum stendur að baki sýningunni. Við tökum hann tali um sýninguna og gervigreind í þætti dagsins. Auður Haralds rithöfundur og blaðamaður lést á Landsspítalanum við upphaf þessa árs. Við minnumst Auðar með því að endurflytja viðtal Þorgerðar E Sigurðardóttur við hana um Hvunndagshetjuna frá 2015. Leikritið Edda eftir þau Þorleif Örn Arnarsson, Jón Magnús Arnarsson og Hörpu Rún Kristjánsdóttur var frumsýnt á fjölum Þjóðleikhússins á annan í jólum. Nína Hjálmarsdóttir fór í leikhúsið og segir frá í þættinum.
    55 min
  • Svipmynd af tónlistarmanni / Samúel Jón Samúelsson
    Samúel Jón Samúelsson, tónlistarmaður, er Reykvíkingur sem hóf tónlistarnám sitt á Ísafirði. Þar komst hann í kynni við básúnuna sem hefur fylgt honum síðan. Það var svo í Tónmenntarskóla Reykjavíkur sem hann kynntist því að spila með hljómsveit, nokkuð sem honum finnst að allir menn ættu einhvertíman að upplifa. Hann lauk kennaraprófi frá FÍH árið 1999 og einleikaraprófi ári síðar, og hefur starfað sem tónlistarmaður síðan, bæði sem básúnuleikari, tónskáld og útsetjari. Hann starfaði lengi með fönksveitinni Jagúar og stofnaði Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar 2005. Auk þess hefur hann starfað með fjölda tónlístarmanna og sveita, svo sem Sigur Rós, Tómasi R. Einarssyni, Hjálmum, Junius Meyvant, Stuðmönnum, Páli Óskari, Retro Stefsson og Stórsveit Reykjavíkur. Samúel verður gestur okkar í Svipmynd vikunnar.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners