Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Íslensku bókmenntaverðlaunin, Kannibalen, andrúmsloft og Fairuz
    Líbanska söngkonan Fairuz er ekki aðeins í hálfgerðri dýrlingatölu á Mið-Austurlöndum heldur er hún dýrkuð víða um veröld. Á Vetrarhátíð fara fram tónleikar í Salnum í Kópavogi þar sem tónlist Fairuz mun hljóma í flutningi hóps tónlistarfólks og gestasöngvara. Við ræðum við Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur sem er einn af listrænum stjórnendum viðburðar. Viktoría Blöndal, höfundur og leikstjóri, verður einnig með okkur í dag en hún er á höttunum eftir andrúmslofti og í sínum öðrum pistli um fyrirbærið ætlar að reyna að fanga andrúmsloft í netagerð. Nína Hjálmarsdóttir rýnir í Danska verðlaunaleikverkið Kannibalen eftir eftir Johannes Lilleøre sem hefur verið í sýningum í Tjarnabíó um þessar mundir. Og við stiklum einnig á stóru um verðlaunahafa Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
    Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
    52 min
  • Molta og Svipmynd af listahópi / Óður
    Í Svipmynd dagsins hittum við tvo meðlimi Sviðslistahópsins Óðs, þau Þórhall Auð Helgason og Sólveigu Sigurðardóttur, en hópurinn var á dögunum valin Listhópur Reykjavíkur fyrir árið 2024. Óður hefur það yfirlýsta markmið að útrýma þeim háa þröskuldi sem almennir áhorfendur upplifa við að horfa á óperur. Þau neitar að geyma óperur í glerkössum og vilja miklu frekar taka þær upp, hrista af þeim rykið og leika sér að þeim.
    Einnig heyrum við rýni Trausta Ólafssonar á sviðslistaverkinu Moltu eftir danshöfundinn Rósu Ómarsdóttur sem frumsýnt var í Gerðarsafni síðustu viku.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    52 min
  • Vaðlaheiðagöng, berskjöldun og Dúnstúlkan í þokunni
    Einkenni kulnunar og einnig hin súrrealíska veröld belgíska listmálarans Magritte voru mikill innblástur við gerð leikverksins Vaðlaheiðagöng sem frumsýnt verður á næstunni í Borgarleikhúsinu. Leikhópurinn Verkfræðingarnir standa að uppfærslunni. Við ræðum við tvo meðlimi hópsins þau Karl Ágúst Þorbergsson og Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur í þætti dagsins. Við hugum einnig að berskjöldun og náum tali af Nönnu Hlín Halldórsdóttur, heimspekingi, um grein sem hún skrifaði um hugtakið og birti í tímaritinu Hug nú á dögunum og svo fáum við að heyra hvað Soffíu Auði Birgisdóttur fannst um bókina Dúnstúlkan í Þokunni eftir Bjarna Bjarnasson.
    Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
    57 min
  • Mona Lisa, gítartónlist Suður ameríku og tjaldbúðir við Austurvöll
    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, fjallar í þætti dagsins um Austurvöll, heilaga staði, grjót, völd og tjöld. Einnig hittum við gítarleikarann Rúnar Þórisson sem heillaðist ungur af tónlist Suður Ameríku. Tónlist sem getur bæði verið full af gleði og trega á sama tíma. Hann hefur nú gefið út gítarplötuna Latin America þar sem hann flytur nokkur lög þekktra höfunda á borð við Piazolla, Barrios og Ayala. Við ferðumst til Parísar í þættinum og gaumgæfum skemmdarverk sem aðgerðarsinnar á vegum Riposte Alimentaire unnu á Monu Lisu á Louvre listasafninu um helgina.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    52 min
  • Myrkir músíkdagar, Lynx Books, Lúna og Ísak Harðarson
    Jónas Ásgeir Ásgeirsson er sjálfstætt starfandi harmonikkuleikari með búsetu í Kaupmannahöfn sem einblínir sérstaklega á flutning íslenskrar samtímatónlistar. Hann tekur þátt í tvennum tónleikum á Myrkum músíkdögum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og dúóinu No more no less. Við ræðum við Jónas Ásgeir í þætti dagsins. Við hugum einnig að versluninni Lynx books stefnir á að opna þann 1. apríl næstkomandi en búðin sérhæfir sig í sölu á bönnuðum bókum og er leið rithöfundarins Lauren Groff og eiginmanns hennar Clay Kallman til að sporna við bylgju bókabanna sem gengur nú yfir í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í leikverkið Lúnu eftir Tyrfing Tyrfingsson, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi og við heyrum í Þórði Sævari Jónssyni og Kristínu Svövu Tómasdóttur um ljóðakvöld til minningar um skáldið Ísak Harðarson.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    55 min
  • Svipmynd af sellóleikara / Gunnar Kvaran
    Gunnar Kvaran sellóleikari var átta ára gamall þegar foreldrar hans sendu hann til náms í þá nýstofnaðan Barnamúsíkskóla Reykjavíkur. Þar lærði hann undir handleiðslu Doktor Heinz Edelstein sem ákvað að sellóið yrði hans hljóðfæri. Eftir brottfararpróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hélt Gunnar út til náms, fyrst til Kaupmannahafnar, þar sem hann hóf líka að kenna við Konunglega tónlistarháskólann, og svo til Basel og Parísar. Eftir 17 ár erlendis flutti Gunnar aftur heim og hefur síðan verið einn af okkar ástsælustu einleikurum auk þess að hafa jöfnum höndum kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskólann.
    Gunnar hefur haldið einleikstónleika víða um heim auk þess að leika einleik með hinum ýmsu Sinfóníuhljómsveitum. Hann hefur einnig átt í farsælu samstarfi við eiginkonu sína, Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara í Tríói Reykjavíkur. Honum hafa fallið ýmis verðlaun í skaut, verið bæjarlistamaður Seltjarnarness og hann er líka handhafi fálkaorðunnar. Gunnar sinnir ekki aðeins tónlistinni af innri köllun, heldur hefur hann eytt drjúgum tíma í að miðla henni til þeirra sem annars fengju hennar ekki notið. Því hann trúir því einlæglega að tónlistin sé mannbætandi afl sem næri og jafnvel lækni sálina. Meira um það í samtali okkar við Gunnar, sem setur hér fyrsta verkið á fóninn.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    55 min
  • Ljósið og ruslið, D vítamín og Kafka
    Sýningin D-vítamín verður opnuð gestum næstkomandi föstudag í hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur en þar kemur saman úrval upprennandi listamanna með glæný og nýleg verk í anda þeirrar hefðar sem mótast hefur í áralangri sýningarröð Listasafnsins í D-sal. Við náum tali af Aldísi Snorradóttur, og Björk Hrafnsdóttur, sýningarstjórum í þætti dagsins.
    Ljósið og ruslið er marglaga sviðs- og tónverk eftir Benedikt Hermann Hermannsson tónskáld og Ásrúnu Magnúsdóttur danshöfund en það verður frumsýnt í Tjarnarbíói núna á fimmtudaginn. Verkið er samið fyrir og flutt af kvennakór og hljómsveit, og samanstendur sýningin af 10 lögum sem hvert felur í sér sitt eigið sögusvið og hljóðheim. Við ræðum við Benna Hemm Hemm og Maríu Rán Guðjónsdóttur, útgefanda, sem er einn kórmeðlima.
    Við rifjum einnig upp erindi Snorra Rafns Hallssonar um Kafka, skrifræði og draumaland reglnanna og mun hann grípa niður í Réttarhöldin og bók bandaríska mannfræðingsins og anarkistans David Graeber, Utopia of rules.
    55 min
  • Ljóðstafur Jóns úr Vör, Molta og Frelsi
    Vala Hauksdóttir hlaut á sunnudag Ljóðstaf Jóns úr Vör við hátíðlega athöfn í Salnum í kópavogi fyrir ljóð sitt, Verk að finna. Við setjumst niður með Völu og ræðum um ljóðið og skrifin í þætti dagsins. Molta er þverfagleg og lifandi innsetning sem verður opin gestum og gangandi í Gerðarsafni í Kópavogi frá fimmtudegi. Hægt verður að njóta hennar á opnunartíma safnsins, en einnig verða sérstakar sýningar sem sýndar verða að kvöldi til eftir að hefðbundum opnunartíma líkur, fjórum sinnum á næstu vikum. Við hittum Rósu Ómarsdóttur höfund Moltu í þætti dagsins og heyrum af rótum, rotnun, bakteríum og umróti ýmiskonar. Freyja Þórsdóttir verður einnig með okkur í þættinum en í dag fjallar hún um mismunandi gerðir af frelsi. Í því samhengi veltir hún m.a. fyrir sér ólíkum áhrifum listarinnar og auglýsinga á andlega velferð.
    53 min
  • Flökkutaugin, andrúmsloft í réttum og streymisveitur
    Flökkusinfónía, samstarfsverkefni Gjörningaklúbbsins og Sinfóníuhljómsveitar íslands, verður frumflutt á myrkum músíkdögum næstkomandi fimmtudag. Við gerð verksins fengu þær Gjörningaklúbbskonur, Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, tónskáldin Unu Sveinbjarnardóttur og Óla Björn Ólafsson til liðs við sig ásamt einvala liði kvikmyndagerðar­ fólks, dansara, leikara og fimleikafólks. Útkoman verður veisla fyrir öll skynfæri og útkoman mun mögulega örva flökkutaugina.
    Víðsjá kynnir einnig til leiks nýjan pistlahöfund. Viktoría Blöndal, höfundur og leikstjóri, ætlar að reyna að fanga andrúmsloft hér á næstu vikum. Og í sínum fyrsta pistli í dag kannar hún andrúmsloftið í sauðfjárréttum norður í Hörgársveit.
    Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur sendi á dögunum frá sér pistil á samfélagsmiðlinum Linkedin sem fjallaði um vandasamt streymisveitumál sem íslenskir tónlistarmenn standa frammi fyrir í dag. Gígja Hólmgerisdóttir ræðir við hann í þætti dagsins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    51 min
  • Svipmynd af heimspekingi / Sigríður Þorgeirsdóttir
    Sigríður Þorgeirsdóttir er heimspekingur og prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Hún lagði stund á fagið í Boston og Berlín þaðan sem hún lauk doktorsprófi 1993 og fjórum árum síðar varð hún fyrst kvenna til að verða fastráðinn kennari í heimspeki við Háskóla Íslands.
    Á ferli sínum hefur Sigríður leitast við að stunda rannsóknir á heimspeki sem byggir á reynslu og upplifun; lífinu sjálfu. Hún hefur rannsakað þátt kvenna í sögu heimspekinnar og sýnt að konur hafa allt frá fornöld lagt stund á fagið þó lítið verið gert úr framlagi þeirra í hugmyndasögu fræðanna. Undanfarin misseri hefur Sigríður staðið fyrir heimspekigjörningnum Minisophy eða Smáspeki sem rannsakar heimspekilega vídd hversdagslegra fyrirbæra, en innan háskólans hefur hún leitt rannsóknarverkefnið Líkamleg gagnrýnin hugsun eða Embodied Critical Thinking, verkefni sem endurnýjar aðferðir heimspekilegrar hugsunar með að hugsa markvisst út frá reynslu.
    48 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners