Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Lífið er staður þar sem bannað er að lifa og Fjöruverðlaunin
    Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum það eru Flokkur fagurbókmennta, flokkur barna og unglinabókmennta og flokkur fræðibóka og rita almenns eðlis. Verðlaunahafar að þessu sinni voru: Í flokki barna- og unglingabókmennta: Íslensk myndlist og fólkið sem ruddi brautina eftir Margréti Tryggvadóttur. Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis: Með verkum handanna. Íslenskur refilsaumur fyrri alda eftir Elsu E. Guðjónsson og Lilja Árnadóttir bjó til prentunar. Í flokki fagurbókmennta: Móðurást: Oddný eftir Kristínu Ómarsdóttur.
    Við ræðum við Kristínu Ómarsdóttur um Móðurást: Oddný í þætti dagsins. Einnig náum við tali af Steindóri J. Erlingsyni um bókina Lífið er staður þar sem bannað er að lifa.
    Lífið er staður þar sem bannað er að lifa er bók um geðröskun og von eftir Steindór J. Erlingsson þar sem hann rekur þrjátiu ára leit að bata við þunglyndi og kvíða. Bata sem hann fann með sálfræðimeðferð í stað lyfja, en einnig með aðstoð bókmennta og annara lista. Steindór verður gestur okkar í þætti dagsins.
    53 min
  • Svipmynd af ritöfundi / Dagur Hjartarson
    Dagur Hjartarson rithöfundur er gestur Víðsjár í Svipmynd vikunnar. Dagur hóf ritferil sinn á birtingu ljóða í Lesbók Morgunblaðsins og örfáum árum síðar hlaut hann Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir sína fyrstu ljóðabók, Þar sem vindarnir hvílast. Síðan þá hefur Dagur gefið út smásagnasafn, skáldsögur og fleiri ljóðabækur. Hann hefur hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör og verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins. Á ferli sínum hefur Dagur fengist við pistlaskrif og hann er einn af stofnendum Tungls forlags.
    Við ræðum skáldskapinn og allt þar á milli við Dag. Um gleðina í ljóðinu og glímuna við skáldsöguna, upptendrun í ritlistarnámi og æskuna í Gravarvogi þar Dagur svaf innan um bækur og lét sig dreyma um atvinnumennsku í golfi. Hann þakkar fyrir að hafa alist upp fyrir tíma algóritmans, að hafa fengið að leiðast og vera á valdi örlaganna en ekki stórfyrirtækjanna. Við ræðum líka myndhverfingar og hvernig ráðamenn nýta þær sér í hag, bæði til góðs og ills.
    55 min
  • Tinna Royal, Orðið og Refaat Alareer
    Í þættinum hittir Víðsjá mynslistakonuna Tinnu Royal á vinnustofu sinni á Akranesi. Undanfarin ár hefur Tinna vakið nokkra athygli fyrir afar fjölbreytt verk. Allt frá málverkum til höggmynda af kleinuhringjum og nammiumbúðum til lágmynda af ryðguðum húsum til eyrnalokka og jólaskrauts.
    Sýningin Orðið var opnuð um liðna helgi í Neskirkju en þar sýnir Jóna Hlíf Halldórsdóttir úrval verka sem hún hefur unnið á undanförnum árum. Í verkum sínum vinnur Jóna Hlíf með tungumálið í allri sinni breidd og dýpt. Innblásturinn sækir hún oft á tíðum í forna bókmenntatexta sem hún nýtir, meðal annars, til að varpa ljósi á málefni samtímans. Sjálf segist hún í kjarnann alltaf vera að skoða hvað það þýði að vera manneskja. Við lítum við á sýningunni í þættinum.
    Nýtt TMM kom út fyrir skemmstu og þar er að finna þýðingu á ljóði eftir palestínska ljóðskáldið Refaat Alareer en hann var drepinn í loftárás ísraelsmanna þann 6. Desember síðastliðin. Þórdís Helgadóttir þýddi ljóðið fyrir tímaritið og flytur í þættinum.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    55 min
  • Afbygging stóriðju í Helguvík, Frost, andrúmsloft
    Libia Castro & Ólafur Ólafsson hafa unnið saman að myndlist frá því að þau kynntust í Holland 1997. Þau starfa jöfnum höndum í Berlín, Malaga og Reykjavík en verk þeirra byggja oftar en ekki á þverfaglegum samvinnuverkefnum sem taka á sig mynd í ólíkum miðlum. Ólafur og Libia hafa sýnt víða um heim og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín. Þau fóru fyrir hönd Íslands á Feneyjartvíæringinn 2011 og 2020 voru þau valin myndlistarmenn ársins hér á landi fyrir sýninguna Í leit að töfrum – tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland. Þau sýna um þessar mundir í Listasafni Reykjanesbæjar, sýningu sem kallast Afbygging stóriðju í Helguvík og við lítum þangað inn í þætti dagsins.
    Nína Hjálmarsdóttir rýnir í Disney söngleikinn Frost sem frumsýndur var um liðna helgi í Þjóðleikhúsinu.
    Viktoría Blöndal sviðslitakona heldur áfram að leita uppi andrúmsloft í sínu fjórða innslagi af sex.
    53 min
  • Hreinn Friðfinnsson, María Elísabet Bragadóttir, Íslensku myndlistarverðlaunin,Eitruð lítil pillla
    Við hittum Styrmi Örn Guðmundsson myndlistarmann við verkið Klett eftir Hrein Friðfinnsson í þætti dagsins. Verkið var fyrst sett upp í Berlín 2017 en er nú til sýnis í Ásmundarsal. Hreinn fæddist á Bæ í Dölum 1943 og útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1960. Hann var einn af stofnendum SÚM hópsins og er oft kallaður einn af frumkvöðlum hugmyndalistar hér á landi. Hann fluttist til Amsterdam 1971 þar sem hann hefur búið allar götur síðan. Og þar starfaði Styrmir Örn með honum í rúman áratug.
    Í hádeginu var tilkynnt um þrettán tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins og meðal tilnefninganna er bók Maríu Elísabetar Bragadóttur Sápufuglinn. Við tökum Maríu tali um verðlaunin og bókina í þætti dagsins.
    Einnig rýnir Nína Hjálmarsdóttir í söngleikinn Eitruð lítil pilla sem var frumsýndur var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi.
    En við hefjum þáttinn á því að tilkynna hvaða listamenn eru tilnefndir til Myndlistarverðlauna Íslands.
    52 min
  • Hark og svipmynd af kollektífu / Yrkjur
    Í þætti dagsins heyrum við af upplifun Trausta Ólafssonar af gamanrokksöngleiknum Hark sem frumsýndur var í síðustu viku í Tjarnabíói. Síðan tekur svipmynd af Skáldakollektífunni Yrkjum við.
    Yrkjur er skáldakollektífa ungra kvenna sem stofnuð var í byrjun árs 2022. Markmið þeirra er að skapa samfélag þar sem ungir höfundar geta komið saman, lært hver af öðrum og komið sér á framfæri, hvort sem er á upplestrarkvöldum, í vinnustofum eða með bókaútgáfu. Yrkjur hófu starfsemi sínu með því að bjóða upp á ritsmiðju á Hátíðinni á Borðeyri en vöktu mikla athygli þegar þær hleyptu af stað ljóðakvöldum í Mengi síðasta vor þar sem ungskáld úr öllum áttum fengu tækifæri til að koma fram, tjá sig, prófa sig áfram og kynnast hvert öðru.
    Kollektífuna Yrkjur skipa þær Ása Þorsteinsdóttir, Eyrún Úa Þorbjörnsdóttir, Jana Björg Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Guðjónsdóttir og Steinunn Kristín Guðnadóttir. Þær eiga það allar sameiginlegt að skrifa og leggja stund á nám allt frá bókmenntafræði yfir í ensku, frönsku, kennaranám og myndlist. Fyrir svipmynd dagsins fáum við tvo meðlimi kollektífunnar í hljóðstofu, þær Ásu Þorsteinsdóttur og Ragnheiði Guðjónsdóttur og ræðum við þær vítt og breitt um kollektífuna.
    53 min
  • Ragnar Kjartansson á vinnustofunni, Satu Ramö, And Björk of course
    Kikkið við myndlistina er sennilega frelsið, segir Ragnar Kjartansson sem opnaði sína fimmtu sýningu í i8 gallerí í síðustu viku. Sýningin kallast Móðir og barn, gin og tónik og þar gefur að líta ný málverk eftir Ragnar. Ragnar hefur tekist á við málverkið allan sinn feril en oft á tíðum er það afsprengi gjörninga, sem það er líka að einhverju leyti á þessari sýningu. Afsprengi ákveðins ástands sem hefur verið í gangi á vinnustofunni. Við lítum þangað inn í þætti dagsins.
    Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í leikverkið And Björk, of course eftir Þorvald Þorsteinsson var frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri um síðustu helgi.
    Við ræðum einnig við einn vinsælasta rithöfund Finnlands, Satu Rämö. Vinsældir Satu eiga að miklu leyti rætur að rekja til nýlegs glæpasagnabálks hennar um rannsóknarlögreglukonuna Hildi sem býr og starfar á Ísafirði, en Ísafjörður hefur einmitt verið heimabær Satu síðastliðin fimm ár.
    54 min
  • Unuhús, arkitektúr í Palestínu og Íslensku þýðingaverðlaunin
    Við gerum okkur ferð að Unuhúsi í þætti dagsins og hittum Jón Karl Helgasson bókmenntafræðing og prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands en hann heldur námskeið um húsið og arfleifð þess hjá Endurmenntun frá og með næstu viku. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, flytur pistil um arkitektúr í Palestínu sem nú á dögum er á undanhaldi en byggir á ríkulegri hefð, baráttuhug og seiglu - og mætir nú ægivaldi græðgi og eyðileggingar. Og við hugum einnig að Íslensku þýðingaverðlaununum sem veitt voru á föstudag en þau hlaut Jón Erlendsson fyrir þýðingu sína á Paradísarmissi eftir John Milton. Við heyrum í þýðandanum og Ástráði Eysteinssyni sem ritar inngang að þýðingunni í þættinum.
    51 min
  • Með verkum handanna, Ice Hot Nordic Dance, Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
    Í Þjóðminjasafni stendur yfir merkileg sýning sem kallast Með verkum handanna, en þar er hægt að sjá einhver mestu verðmæti íslenskrar listasögu. Um er að ræða þau fimmtán íslensku refilsaumsklæði sem varðveist hafa, samankomin í fyrsta sinn. Níu þeirra eru varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands en sex þeirra eru fengin að láni frá erlendum söfnum. Við hittum Svanhildi Óskarsdóttur, prófessor í norrænum fræðum, á sýningunni.
    Nina Hjálmarsdóttir segir frá Icehot Nordic Dance Platform, viðburði sem haldinn er annaðhvert ár í einhverri borg á Norðurlöndunum, þar sem boðið er upp á það nýjasta í samtímadansi.
    Einnig lítum við inn í Gunnarshús þar sem tilnefningar til Norrænu bókmenntaverðlaunanna vory kynntar í morgun.
    56 min
  • Svipmynd af píanóleikara / Edda Erlendsdóttir
    Edda Erlendsdóttir fæddist á gamlársdag árið 1950 í Reykjavík og ólst upp í Laugarneshverfinu. Hún stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og fór í framhaldsnám í tónlistarháskólann í París og hefur verið búsett í borginni nánast allar götur síðan. Á ferli sínum hefur Edda komið víða við, haldið tónleika um víða veröld og gefið út fjölda diska. Hún hefur kennt og starfað við við Tónlistarháskólann í Lyon og í Versölum en er nú gestakennari við Listaháskóla Íslands. Edda verður gestur okkar í svipmynd dagsins.
    54 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners