Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Hendi næst, Dulstirni/Meðan glerið sefur og All of This is Chance
    All of This is Chance nefnist plata úr smiðju írska tónlistarmannsins Lisu O'Neill, en hún kom út í fyrra og vakti þónokkra athygli. Á plötunni sækir Lisa í írska þjóðlagatónlist og miðlar textum um móðurástina, hina kvenlægu orku, föglasöng og hina vægðarlausu raun sem liggur að baki allra tákna. Við kynnum okkur þessa mögnuðu plötu í þætti dagsins.
    Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur, verður einnig með okkur í þættinum og að þessu sinni hugar hún að bókunum Dulstirni og Meðan glerið sefur sem Gyrðir Elíasson sendi frá sér fyrir jól.
    Við lítum líka inn á sýninginuna Hendi næst í Ásmundasafni, þar sem verk samtímalistamanna sem skapa myndverk með eigin höndum og nýta handverkshefðir, eiga í samtali við verk Ásmundar. Við hittum Becky Foresythe, sýningarstjóra, og tökum hana tali um sýninguna í þættinum.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    54 min
  • Saknaðarilmur, tómið og Heaven
    Í haust kom bókin Heaven, eftir japanska rithöfundinn Mieko Kawakami, út í áskriftarröð Angústúru. Í bókinni lætur höfundur sig varða afar þung umfjöllunarefni; einelti, útskúfun og einmannaleika en þræðir í gegnum þau frásögn af nokkuð óvenjulegri vináttu. Við ræðum við Jón Stefán Kristjánsson, þýðanda Heaven í þætti dagsins.
    Við hugum einnig að tóminu með heimspekingnum Freyju Þórsdóttur. Í dag fjallar hún um mikilvægi auða svæðisins og skoðar það frá ýmsum hliðum. Náttúran þarf pláss til að athafna sig og halda jafnvægi, en þegar við gleymum mikilvægi plássins, eigum við það til að trufla náttúrulegt flæði lífsins.
    Og Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í leikverkið Saknaðarilm sem frumsýnt var í þjóðleikhúsinu um síðustu helgi.
    Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
    54 min
  • Hreint ekki neitt, Póstkort og svipbrigði, Andrúmsloft Viktoríu Blöndal
    Póstkort og svipbrigði er yfirskrift tónleika sem þær Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Elísabet Waage hörpuleikari halda í Salnum í Kópavogi á sunnudag. Á efnisskrá eru verk eftir eftir úkraínska fiðluleikarann Andrii Didorenko og hollenska tónskáldið Jurriaan Andriessen en þar að auki þrjú verk sem samin eru sérstaklega fyrir þær Laufeyju og Elísabetu, verkin Árferð eftir Báru Grímsdóttur, Svipbrigði eftir Kolbein Bjarnason og Notre Dame eftir Pál Ragnar Pálsson. Við ræðum við þær stöllur um verkin í þætti dagsins, og samstarfið sem nú hefur staðið í þrjá áratugi.
    Einnig heimsækjum við Portfolio gallerí þar sem Halldór Ragnarsson sýnir Hreint ekki neitt og Viktoría Blöndal veltir fyrir sér andrúmslofti.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    54 min
  • Svipmynd af rithöfundi / Eva Björg Ægisdóttir og Lífið er staður þar sem bannað er að lifa.
    Eva Björg Ægisdóttir hlaut á dögunum Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun, fyrir bókina Heim fyrir myrkur Bókin er hennar sjötta glæpasaga á jafnmörgum árum, en Eva Björg kom fyrst fram á sjónarsviðið 2018 þegar hún sigraði í samkeppninni Svartfuglinn þar sem nýir höfundar geta sent inn handrit að glæpasögu. Sú bók, Marrið í stiganum, hlaut bresk glæpasagnaverðlaun og hefur verið þýdd á nokkur tungumál.
    Eva Björg er fædd og uppalin á Akranesi og kemur heimabærinn mikið við sögu í hennar skáldskap. Hún hefur fengist við skriftir frá ungaaldri en bjóst þó ekki við að verða rithöfundur. Hún lærði félagsfræði og afbrotafræði í Háskóla Íslands áður en hún gaf út sína fyrstu bók, enda alla tíð haft brennandi áhuga á fólki, aðstæðum þeirra og forsögu, sem oftar en ekki er kveikjan að hugmynd að glæp.
    Í þættinium rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í bókina Lífið er staður þar sem bannað er að lifa, eftir Steindór Jóhann Erlingsson.
    Umsjón:
    Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
    53 min
  • Paul Lydon Umvafin loforðum, Mér líður ágætlega en gæti liðið betur, Bögglapóststofan
    Tónlistarmaðurinn Paul Lydon var að gefa út plötuna Umvafin loforðum og heldur tónleika í Mengi í næstu viku. Paul hefur spilað á píanó síðan hann var unglingur í Boston en hann fluttist hingað til lands fyrir 30 árum síðan, nánast fyrir tilviljun. Paul, sem einnig þýðir ljóð úr persnesku, er heillaður af íranskri tónlist og þau áhrif, auk írskra róta hans, segir hann vera undirliggjandi í tónsmíðunum. Við ræðum við Paul í þætti dagsins.
    Einnig verður rætt við Braga Ólafsson um bók sem hann gaf út 2014 í samstarfi við leigufélagið Gamma, og sem var aðeins dreift til starfsmanna og viðskiptavina þess.
    Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í smásagnasafn Lydiu Davis, Mér líður ágætlega en mér gæti liðið betur sem kom út í íslenskri þýðingu Berglindar Ernu Tryggvadóttur í vetur.
    52 min
  • Smiðjan, Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, Skvísubókmenntir
    Valentínusardagurinn nálgast og eflaust munu margir gera sér glaðan dag í því tilefni þó svo að hefð þessi sé ekki rótgróin hér í okkar samfélagi. En að gefnu tilefni ætlum við í þættinum að huga sérstaklega að ástinni og mætti hennar innan bókmenntanna og þá sérstaklega innan skvísubókmennta.
    Einnig verður Hildigunnur Sverrisdóttir með okkur í dag, og að þessu sinni fjallar hún um Smiðjuna, nýja viðbyggingu Alþingis, sem hönnuð er af teiknistofunni Studio Granda.
    Við heimsækjum einnig vinnustofu í Þingholtunum þar sem Íris Ólöf Sigurjónsdóttir vinnur myndlistarverk úr steinum og textíl. Íris Ólöf, sem í grunninn er textílforvörður, hafði lengi unnið við allskyns störf tengd menningargeiranum, en ákvað að hætta að vinna sem safnstjóri þegar hún varð sextug, til að geta einbeitt sér að því sem alltaf hefur verið hennar ástríða, myndlist. Við fáum að heyra af verkunum hennar sem eru að einhverju leyti afsprengi alls þessa, en Íris Ólöf opnar sýningu í Kirsuberjatrénu á fimmtudag.
    52 min
  • Cauda Collective og Eldjárn, Blængur, Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar
    Við lítum í heimsókn í vinnustofu úti á Granda, þar sem tónlistamennirnir og bræðurnir Halldór og Úlfur Eldjárn taka á móti okkur, en ný tónverk eftir þá bræður verða frumflutt af kammerhópnum Cauda Collective í Hörpu næstkomandi sunnudag. Í strengjakvartettinum Flug/ Vindur sækir Halldór innblástur í teikningar af vindáttum og flugvöllum en í verkinu Mirari veltir Úlfur fyrir sér hæfileika okkar til að komast yfir erfiðleika og sjá ljósið í myrkrinu. Á tónleikunum mun Cauda Collective einnig flytja verkið Fratres eftir Arvo Pert.
    Trausti Ólafsson verður einnig með okkur í þættinum og að þessu sinni rýnir hann í leikverkið Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar sem sýnt er um þessar mundir í Borgarleikhúsinu.
    En við byrjum á íslensku bókmenntaverðlaununum. Það vakti talsverða athygli þegar verðlaunin voru veitt síðastliðin miðvikudag að nýr verðlaunagripur hvíldi í höndum verðlaunahafa. Gripurinn nefnist Blængur og er bronshrafn og tekur hann við af verðlaunagrip Jóns Snorra Sigurðssonar, op­inn­ar bók­ar á granít­stöpli. Höfundurinn, myndhöggvarinn Matthías Rúnar Sigurðsson, er gestur okkar í dag.
    51 min
  • Svipmynd af myndlistarmanni / Ragna Róbertsdóttir
    Ragna Róbertsdóttir er fædd í Reykjavík 1945. Hún stundaði nám í Myndlista- og handíðaskólanum og í Konstfack listaháskólann í Stokkhólmi en hefur búið og starfað jöfnum höndum í Reykjavík, Arnarfirði og Berlín. Ragna er hjá Parsons Projects gallerý í Berlín og i8 hér heima.
    Ragna er einn fremsti listamaður landsins og hefur sýnt víða um heim. Hún hefur verið tilnefnd til hinna mikilsvirtu Carnegie-verðlaunanna og nýverið hlaut hún Gerðarverlaunin en þau eru veitt lista­manni fyr­ir ríku­legt fram­lag til högg­mynda- og rým­islist­ar á Íslandi. Í verkum hennar eru náttúruleg efni, þá sérstaklega jarðefni ráðandi og kannast eflaust margir við torfrúllur hennar, sagaða hraunið, þornað salt á gleri og vikurinn á veggjum.
    Ragna hefur einnig, ásamt eiginmanni sínum Pétri Arasyni sem nýverið féll frá, verið stórtækur listaverkasafnari í gegnum tíðina. Hún er ein af stofnendum Gallerí Langbrókar en einnig rak hún ásamt Pétri sýningarrými bæði í Reykjavík og Berlín. Safn þeirra hjóna er það stærsta í einkaeigu á Íslandi og jafnframt eitt stærsta safn erlendrar samtímamyndlistar á landinu.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    49 min
  • Samfélag eftir máli, djazzdúettar á Múlanum
    Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi, eftir Harald Sigurðsson skipulagsfræðing, hlaut á dögunum Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns efnis. Haraldur hefur eftir þrjátiu ára störf við skipulagsmál enn trú á sömu hlutum og toguðu hann upphaflega í nám til Toronto. Mikilvægast af öllu sé verndun náttúrunnar, að nýta landið vel og með kynslóðir framtíðar í huga. Að sama skapi sé fjölbreytt húsnæði, blöndun félagshópa og lækkun húsnæðiskostnaðar mikilvægasta verkefnið. Haraldur verður gestur okkar í dag.
    Vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans hófst á Björtuloftum í Hörpu í síðasta mánuði en tónleikar á þeirra vegum munu fara fram á hverju miðvikudagskvöldi fram í lok máimánaðar. Næsta miðvikudagskvöld verður dúettakvöld og stíga á stokk tveir nokkuð framsæknir dúettar. Annars vegar eru það Tumi Torfason og Bjarni Már Ingólfsson og hins vegar Sölvi Kolbeinsson og Magnús Trygvason Elíassen. Við ræðum við einn útsendara úr hverri sveit í þætti dagsins, þá Tuma og Sölva.
    56 min
  • Þór Wiium ljóðaslammari, Arnbjörg M. Daníelsen um Egil Sæbjörns, Vaðlaheiðargöng
    Um liðna helgi fór fram árleg ljóðaslammkeppni Borgarbókasafnsins þar sem Þór Wiium bar sigur út býtum með ljóðið Merktur. Ljóðið fjallar um upplifun Þórs á því að vera trans karlmanður og viðbrögð samfélagsins. Í ljóðaslammi er það ekki síst flutningurinn sjálfur og tenging við áhorfendur sem skiptir máli og óhætt er að segja að flutningur Þórs hafi hitt alla viðstadda í hjartastað. Þór verður gestur okkar í þætti dagsins.
    Egill Sæbjörnsson og óendanlegir vinir alheimsins nefnist stórsýning sem stendur yfir í Listasafni Íslands um þessar mundir. En þar má bera augum ný og eldri verk eftir Egil í þremur sölum safnsins þar sem áhersla er lögð á þá mörgu karaktera sem birtast í verkum hans. Við gerum okkur ferð niður í Listasafn og ræðum við Arnbjörgu Maríu Danielsen, sýningarstjóra.
    Og Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir að þessu sinni í leiksýninguna Vaðlaheiðagöng sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi.
    57 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners