Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Hlutskipti, Bright Future, Hreinn Friðfinnsson og Auður Haralds
    Við lítum inn í Marshallhúsið í gallerí Þulu, þar sem systurnar Ingibjörg og Lilja Birgisdætur sýna ný verk á sýningunni Hlutskipti. Litaðar ljósmyndir, skúlptúrar, vidjóverk og síðast en alls ekki síst ilmur byggður á Ajaxlykt er meðal þess sem þær systur hafa skapað upp úr umbreytingaferli sem hófst með myglufundi og búslóðaflutningum. Með verkunum umbreyta listakonurnar farganinu sem fylgir endalausum hlutum og buguninni sem getur fylgt flutningum í fegurð sem þær sækja í náttúruna.
    Bandaríska tónlistarkonan Adrianne Lenker gaf út plötuna Bright Future í síðustu viku. Öll lögin eru lifandi flutningur tekinn upp á hrátt segulband sem fangar áhrifarík augablik og miðla nærveru tónlistarmannanna á einstakan hátt. Við komum kynnum okkur plötuna í síðari hluta þáttar.
    Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt verður með okkur í þætti dagsins og að þessu sinni er hún með hugan við myndlist Hreins Friðfinnssonar.
    Einnig heyrum við brot úr þætti Jóhannesar Ólafssonar um Auði Haralds sem verður í Páskadagskrá Rásar 1. Heyrum rödd Auðar úr safni ásamt glefsum úr viðtali Jóhannesar við Dagnýju Kristjánsdóttur og Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur.
    Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Sorgmæddar hurðir, Póst-Jón, Lexíurnar
    Sýningin Making Sense í Ásmundarsal er samsýning sex listamanna sem vinna útfrá hugmyndum Vísindalista; En það er sú hugmyndafræði sem skoðar sameiginlega þætti listsköpunar og vísindarannsókna. Á sýningunni óma orgelflautur og fótboltaspark er rakið milli fjarða. Þar er dagbók úr stríði en líka lykt af hurðum sem ískra sorglega. Sunna Svavarsdóttir hélt úti rannsókn á þessum sorglega ískrandi hurðum og segir frá í þætti dagsins.
    Í vetur kom út bókin Lexíurnar eftir Magnús SigurðssonSoffía Auður Birgisdóttir rýnir í bókina í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á leikhúsrýni. Póst-Jón er íslensk staðfæring sviðslistahópsins Óðs á gamanóperunni Le postillon de Lonjumeau eftir franska tónskáldið Adolphe Adam sem var frumsýnd í París 1836. Póst Jón var frumsýnd um liðna helgi í Þjóðleikhúskjallaranum og Trausti Ólafsson lét sig ekki vanta.
    52 min
  • Hreinn Friðfinnsson
    Víðsjá dagsins er helguð Hreini Friðfinnssyni. Hreinn fæddist á Bæ í Dölum í febrúar 1943. Hann útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1960 og fluttist stuttu síðar til Amsterdam. Hann var einn af stofnendum SÚM hópsins og hefur oft verið kallaður einn af frumkvöðlum hugmyndalistar hér á landi. Hreinn vann með i8 gallerí hér á landi og fleiri galleríum víðsvegar um Evrópu, en hann sýndi reglulega vítt og breitt um heiminn. Hreinn var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1993, árið 2000 voru honum veitt virtustu myndlistarverðlaun Finnlands, Ars Fennica verðlaunin, og fyrr í þessum mánuði féll heiðursviðurkenning Myndlistarráðs í skaut Hreins. Hreinn kvaddi þennan heim á hjúkrunarheimili í Amsterdam þann 6.mars síðastliðinn.
    Viðmælendur í þættinum eru Hrafnhildur Helgadóttir, Sigurður Guðmundsson, Styrmir Örn Guðmundsson, Ragnheiður Gestsdóttir, Ólöf Kristín Sigurðardóttir, Emma Heiðarsdóttir og Börkur Arnarson.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
    54 min
  • Saga af svartri geit, hljómfræði og Jón Kristinsson
    Af hverju eru öll blúslög eins? Þessi spurning var yfirskrift Tónlistarkaffis sem haldið var í Borgarbókasafninu í spönginni um síðustu helgi. Á viðburðinum skoðaði Valgeir Gestsson, sérfræðingur í tónlistardeild safnsins, hljómfræðina sem mætti segja dvelji í undirmeðvitund okkar; hljómfræðina sem við finnum fyrir en kunnum kannski eða kannski ekki skil á. Við ræðum hljómfræðina við Valgeir í þætti dagsins.
    Nýverið gaf Angústúra út skáldsöguna Saga af svartri geit eftir Peruamal Muragan, í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur. Saga af svartri geit er saga af samfélagi, stétt og kærleika frá einum frumlegasta höfundi Indlands, en Murugan er fyrsti tamíslki höfundurinn sem gefin er út á íslensku. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins.
    Á fimmtudaginn verður blásið til málþings um Jón Kristinsson arkitekt í Veröld, húsi Vigdísar. Málþingið er haldið til að fagna 60 ára starfsafmæli Jóns og einnig til að kynna hugmyndir hans sem eru lítt þekktar hér á landi en hann er meðal annars þekktur fyrir að hafa hannað vistvænustu byggingu Hollands og fyrir uppfinningar sínar á sviði sjálfbærni. Í upphafi þessa árs hlaut hann fálkaorðu fyrir frumkvöðlastarf í vistvænni húsagerðarlist á alþjóðavettvangi. Við ræðum við Inga Rafn Ólafsson, skipuleggjanda málþingsins í þættinum.
    56 min
  • ATM, Pólskar rætur og daglegt líf á Íslandi og X
    Sýningin Pólskar rætur og daglegt líf á Íslandi, var opnuð um liðna helgi í Þjóðminjasafninu. Þar gefur að líta brot af því efni sem þegar hefur borist Þjóðháttasafni Þjóðminjasafnsins sem nú vinnur í því að safna frásögnum Pólverja af Íslandi. Við lítum inn á Þjóðminjasafnið og ræðum við þær Ágústu Kristófersdóttur og Önnu Wojtynska um rannsóknina og sýninguna í þætti dagsins.
    Eva Halldóra Guðmundsdóttir leikhúsrýnir fór að sjá X eftir breska leikskáldið Alistair Mcdowall, í Borgarleikhúsinu um liðna helgi og segir frá.
    Tríóið ATM sendi nýverið frá sér kassettu sem nefnist 1452 eða 14:52 eða 1.4.5.2 eða 1.452 - titillinn er ekki alveg skýr en plötuna má einnig nálgast á Bandcamp síðu sveitarinnar. ATM vísar meðal annars í upphafsstafi meðlima tríósins, þeirra Ara Franks Ingusonar, Tuma Torfasonar og Moritz Christiansen. Við ræðum við Ara Frank um kassettuna í þættinum.
    Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Svipmynd af rithöfundi / Margrét Tryggvadóttir
    Margrét Tryggvadóttir fæddist í Kópavogi 1972. Hana langaði til að læra myndlist en fór í Verslunarskólann til að vera skynsöm og svo í bókmenntafræði við Háskóla Íslands því hana langaði til að vinna sem ritstjóri. Hún hefur unnið með texta og myndir nær allar götur síðan, sem ritstjóri, myndritstjóri og höfundur.
    Margrét hefur gefið út fjölda bóka fyrir börn og ungmenni og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir. Í vetur gaf hún út tvær bækur, Stolt, sem er sjálfstætt framhald Sterk, sem hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2021, og bókina Íslensk myndlist og fólkið sem ruddi brautina en fyrir hana hlaut Margrét Fjöruverðlaunin á dögunum.
    Margrét verður gestur okkar í Svipmynd dagsins.
    51 min
  • Strokkvartettinn Siggi, ... og hvað með það og En agosto nos vemos
    Í þætti dagsins ræðum við við tvo af fjórum meðlimum Strokkvartettsins Sigga, en plata þeirra Atli Heimir Sveinsson: The Complete String Quartets - Siggi String Quartet, er tilnefnd sem plata ársins og þau eru einnig tilnefnd sem flytjendur ársins. Strengjakvartettar Atla Heimis spanna stóran hluta ferils hans sem tónskálds og gefa, líkt og segir í texta sem fylgir með plötunni, ómetanlega yfirsýn á hversu flinkur hann var að leika sér með alskyns form og stíla.
    Trausti Ólafsson leikhúsrýnir segir frá sinni upplifun af nýjustu afurð leiklistarhópsins Lab Loka, leikverkinu …og hvað með það.
    Og við hugum einnig af glænýrri bók, En agosto nos vemos, eftir kólumbíska rithöfundinn Gabriel García Márquez sem gefin er út þvert á fyrirmæli höfundar um förgun handritisins að honum látnum. Bókin kemur út á spænsku og ensku 12. mars 2024.
    52 min
  • Rúnir, Barbie, túlkun og upplifun
    Hugvísindaþing var haldið í Háskóla Íslands nú um helgina en þar var kvikmyndin um Barbie þar meðal annars til umræðu út frá fræðilegu sjónarhorni feminískra útópía. Við ræðum við Katrínu Pálmadóttur Þorgerðardóttur, heimspekinema, um Barbie og útópíur í þætti dagsins.
    Pistlahöfundurinn Freyja Þórsdóttir fjallar um það hvernig túlkun hefur áhrif á upplifun. Hvernig það sem við trúum hefur umbreytandi áhrif á okkur og veruleikann. Og hvernig skilningur og góð trú gerir okkur kleift að sjá skýrar, kalla fram betri möguleika og þar með skapa fallegri heim.
    Þórgunnur Snædal, doktor í rúnafræðum gaf út í vetur yfirlitsrit um rúnir á Íslandi, þar sem hún birtir afrakstur rannsókna sinna á íslenskri rúnasögu frá landnámi til nútímans. Bókin var á dögunum tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis. Við ræðum við Þórgunni í þætti dagsins.
    Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners