Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Annars flokks æðardúnn, kirkjugarður í París, Exotica tónlistarstefnan
    Í Ásmundarsal varpar hönnunarteymið Erindrekar ljósi á notagildi og gæði annarsflokks æðardúns. Íslenski æðardúnninn er fyrir löngu orðin þekktur sem hágæða vara víða um heim en nú vilja ungir hönnuðir, sem einnig eru æðarbændur á Skálanesi í Seyðisfirði, nýta það sem fellur frá við hreinsun á fyrsta flokks æðardúni. Við hittum hönnuðinn og æðarbóndann Signýju Jónsdóttur á sýningunni.
    Þorleifur Sigurlásson segir frá tónlistarstefnunni Exotica sem dregur nafn sitt af plötu eftir bandaríska tónlistarmanninn Martin Denny og einkennist af píanóleik, slagverki og fuglaköllum.
    Við heimsækjum einnig kirkjugarð í París í þætti dagsins.
    53 min
  • Þjóðarópera, Halla Einarsdóttir og D-vítamín, La nueva cancion Chilena
    Fyrir rétt rúmri viku var mælt fyrir breytingu á lögum um sviðslistir þar sem stofnað er til nýrrar Þjóðaróperu. Gestur Víðsjár í dag verður Finnur Bjarnason, óperusöngvari og verkefnisstjóri um stofnun Þjóðaróperu sem unnið hefur að málinu á síðustu mánuðum. Hann segir okkur frá þessari þróun í þættinum.
    D-vítamín í Hafnarhúsi líkur á sunnudag svo það fer hver að verða síðastur að sjá hvað listamenn af yngri kynslóðinni eru að hugsa, en ákveðna þræði má greina í verkunum. Fókus á mennskuna, handverkið og söguna eru áberandi þræðir á sýningunni og Halla Einarsdóttir kafar einmitt ofan í sögu kvenna frá fyrri öldum og setur fram í áhugaverðu verki. Hún mun flytja gjörning í verkinu í kvöld og verður gestur Víðsjár í dag.
    Þorleifur Sigurlásson fjallar um tónlistarstefnu sem varð til í Chile og breyddist út um alla Suður-Ameríku.
    54 min
  • Reggie Watts og hlaðvörp
    Bandaríski uppistandarinn, tónlistarmaðurinn og leikarinn Reggie Watts hefur getið sér gott orð víða um heim fyrir sýningar sem blanda saman tónlist, improvi, uppistandi, eftirhermum og einkennilegum hugvekjum. Reggie Watts hélt um helgina tvær uppistandssýningar hér á landi. Annars vegar í Samkomuhúsinu á Akureyri og hins vegar í Gamla bíói í Reykjavík en hann mun síðan halda aðra sýningu á Flateyri þann um næstu helgi. Við ræðum við hann og Margréti Erlu Maack í þætti dagsins.
    Við kynnum okkur einnig sístækkandi menningarfyrirbærið hlaðvarp. Það er um áratugur síðan hlaðvarpið sprakk út og miða margir þá blómstrun við hið feikivinsæla bandaríska hlaðvarp; Serial. Við ræðum við hlaðvarpsritstjóra Rúv, og aðra starfsmenn í efstaleiti um uppáhaldshlaðvörp.
    51 min
  • Ensamble Adapter, Cage og Takemitsu, Djazzdagurinn, heimspekipistill
    Næstkomandi sunnudag mun kammerhópurinn Ensamble Adapter frumflyjta tónverk eftir John Cage og Toru Takemitsu í Hörpu, tónverk sem kallast Vis á vis, og sem hefur verið týnt frá 1986. Eftir ævintýralega rannsóknarvinnu þeirra Gunnhildar Einarsdóttur hörpuleikara og Matthias Engler slagverksleikara, þar sem viðtöl og bókasafnsgrúsk í Bandaríkjunum, antíkbúð í Japan og plötusafn frá Reykjavík koma við sögu, hefur hópnum tekist að endurskapa verkið. Meira um það í þætti dagsins.
    Sigmar Þór Matthíasson, Óskar Guðjónsson og Rebekku Blöndal kom í heimsókn og segja frá Alþjóðlega djazzdeginum sem haldinn verður hátíðlegur um alla borg á morgun.
    Freyja Þórsdóttir fjallar um tengsl við menningu og náttúru í heimspekipistli.
    52 min
  • Svipmynd af listamanni / Ásta Fanney Sigurðardóttir
    Ásta Fanney Sigurðardóttir er ljóðskáld, myndlistarmaður, kvikmyndargerðarmaður og tónlistarmaður sem uppalin er í grafarvogi og fékk snemma á lífsleiðinni kassettutæki í afmælisgjöf. Upptökutæki sem hún notaði til að taka upp sögur og ljóð. Ásta Fanney stundaði nám við Menntaskólan í Reykjavík en þar gaf hún út sín fyrstu ljóð í skólablaði og kynntist heimi myndlistarinnar í áfanga sem hún fékk 10 í. En eftir menntaskólann hélt hún svo í nám í myndlist við Listaháskóla Íslands.
    Fyrsta ljóðabók Ástu Fanneyjar, Herra Hjúkket, kom út í seríu Meðgönguljóða 2012. Þar á eftir fylgdi bókverkið Kaos Lexicon 2017. Árið 2019 kom ljóðabókin Eilífðarnón út og vakti hún athygli hér á landi og víðar, þar á eftir fylgdu Gluggi-draumskrá og Sería forma báðar árið 2021 og Hyena Called Yesterday árið 2023. Ásta Fanney hefur samið tónlist fyrir kvikmyndirnar Hux og Apausalypse sem og framleitt kvikmyndina Munnhola sem er safn gjörninga þar sem hljóð, ljóð, hljóðaljóð, tónar, stafir, orð og orðlausar senur mynda saman súrrealískan draumheim skynjunar.
    Ásta Fanney var handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör árið 2017 og var tilnefnd til Bernard Heidsieck-verðlaunanna í Pompidou árið 2021.
    54 min
  • Parísardepurð, Zamrokk og fuglar
    Á dögunum kom út bókin Parísardepurð; stutt ljóð í lausu máli eftir Charles Baudelaire í fyrsta sinn í íslenskri þýðingu. Þýðandi er Ásdís Rósa Magnúsdóttir Prófessor í frönsku máli og bókmenntum en ritstjóri er Kristín Guðrún Jónsdóttir og er bókin hluti af ritröð þýðinga sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir. Við ræðu við Ásdísi Rósu um bókina í þættinum.
    Þorleifur Sigurlásson, tónlistarmaður, hefur verið að skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif, bæði á stöðum sem þær spretta fram sem og annarsstaðar í heiminum. Að þessu sinni ferðast hann til Zambíu ársins 1964.
    Við höldum áfram að rifja upp umfjallanir Jóhannesar Ólafssonar um fugla frá árinu 2018. Að þessu sinni sest hann niður með Ragnari Helga Ólafssyni, rithöfundi og skáldi og ræðir við hann, meðal annars, um fugla-athuganir í Flatey.
    54 min
  • Vínylplötur, fuglar og Þór Vigfússon
    Víðsjá heimsækir Gerðarsafn í Kópavogi og ræðir við Þór Vigfússon myndistarmann sem þar sýnir nú verk sín á sýningu sem hann kallar Tölur, staðir. Í salnum sem Þór leggur undir sig eru fjórir jafnstórir ferningar, myndaðir úr sjö minni ferningum úr lituðu gleri sem dreifast um salinn eftir ákveðinni reglu. Við hittum Þór Vigfússon þegar hann var að vinna að uppsetningu innsetningarinnar á dögunum og heyrum það spjall í þættinum.
    Við hugum einnig að plötum í tilefni Alþjóðlega plötubúðardagsins sem fram fór um helgina. Við kíkjum í heimsókn og skoðum plötusafn Benedikts Freys Jónssonar sem hefur einnig notast við plötusnúðsnafnið Benni B-Ruff. Að lokum rifjum við upp pistil frá árinu 2018 sem Jóhannes Ólafsson flutti um fugla og veltir fyrir sér blaðagrein um þá eftir bandaríska rithöfundinn Jonathan Franzen.
    53 min
  • Feneyjatvíæringurinn og Alþjóðlegi plötubúðadagurinn
    Hildigunnur Birgisdóttir er fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í ár og sýning hennar, Þetta er mjög stór tala / commerzbau, opnar formlega í dag. Sýningarstjóri er Dan Byers. Við hringjum til Ítalíu og og heyrum í Hildigunni og Auði Jörundsdóttur, forstöðumanni Myndlistarmiðstöðvar. Einnig hugum við óbeint að Alþjóðlega plötubúðadeginum sem haldinn verður hátíðlegur í plötubúðum um allan heim næsta laugardag. Að því tilefni veltum við fyrir okkur miðlun tónlistar en ekki vínylplötunni sem er hvað háværust þegar kemur að plötubúðardeginum heldur geisladisknum sem hefur verið að hnigna undanfarin ár. Ólöf Rún Benediktsdóttir hóf fyrir um tveimur árum síðan að safna geisladiskum og kíkir til okkar með safnið sitt.
    52 min
  • Maístjarnan, Feneyjatvíæringurinn og svipmynd af kvikmyndargerðarkonu
    Í Víðsjá dagsins hugum við að þeim fregnum frá Feneyjartvíæringnum að Ruth Patir, fulltrúi Ísraels, hafi ásamt sýningarstjórum sínum, ákveðið að loka dyrum að ísraelska skálanum þar til vopnahlé á Gaza og endurheimt gísla hefur átt sér stað. Einnig heyrum við hvaða ljóðskáld eru tilnefnd til Maístjörnunnar fyrir árið 2023 og drögum upp svipmynd af kvikmyndagerðarkonu:
    Anna Karín Lárusdóttir er kvikmyndargerðarmaður uppalin í breiðholti og á Egilsstöðum. Hún heillaðist snemma af kvikmyndaforminu þá í gegnum föstudagskvikmyndir Rúv og á vídeóleigu Kidda Videoflugu á Egilsstöðum. Hún skráði sig í Kvikmyndaskóla Íslands eftir að mamma hennar ráðlagði henni að leggja fyrir sig fagið en í kvikmyndaskólanum framleiddi hún stuttmyndina XY, kvikmynd sem kannar upplifanir unglingsins Lísu af því að vera intersex. XY vakti þónokkra athygli þegar hún kom út og hlaut shortfish verðlaunin á Sprettfiskshátíðinni árið 2019.
    Næsta stuttmynd Önnu Karínar Felt Cute eða sætur kom út á síðasta ári og fjallar hún um Breka, ellefu ára dreng sem prófar sig áfram með farða systur sinnar og föt þegar hann er einn heima - en Felt Cute hlaut einnig shortfishverðlaunin 2024 og tvö Edduverðlaun, ein í flokki stuttmynda og önnur í flokki barna og unglingamynda. Anna Karín stefnir á útgáfu lengri kvikmyndar á næstu árum og langar henni að halda áfram að rannsaka veröld barna og unglinga sem og þá undarlegu stemningu sem skapast getur í tónlistarskólum landsins.
    53 min
  • Börsenbruninn, tónlist Kambódíu og American Fiction
    Bandaríska kvikmyndin American Fiction í leikstjórn Cord Jefferson hlaut á dögunum óskarsverðlaun fyrir besta aðlagaða handrit. Kvikmyndin byggir á bók eftir Percival Everett frá árinu 2001 sem nefnist Erasure og fjallar um prófessorinn og rithöfundinn Monk sem skrifar í stríðni nóvellu þar sem hann notast við slæmar staðalímyndir svarts fólks og sendir umboðsmanni sínum. En þessi gjörningur hefur ófyrirséðar afleiðingar.
    Þorleifur Sigurlásson, tónlistarmaður, hefur verið að skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif, bæði á stöðum sem þær spretta fram sem og annarsstaðar í heiminum. Að þessu sinni fer hann með okkur til Kambódíu ársins 1953.
    Við hugum að brunanum í Kaupmannahöfn í þætti dagsins. Guðjón Friðriksson, sagnfræðing, kemur til okkar og bregst við brunanum á Börsen, þessari sögufrægu byggingu sem menningarmálaráðherrann Jakob Engel-Schmidt hefur sagt að hann muni gera allt sem í hans valdi standi til þess að endurgera sem og hinn íkóníska turn sem hefur verið kennileiti í borginni í 400 ár.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners