Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Sjomlar
    Sjomlahorn Víðsjár er smásería sem hefst í dag. Hún greinir menningarsjomla og sjomlaverk úr baksýnisspegli þeirra sem hafa velt sér upp úr þeim. Í þessu fyrsta horni ætlum við að skoðum við hina víðfrægu bók Infinite Jest eftir bandaríska rithöfundinn David Foster Wallace. Þúsund blaðsíðna doðrant með óskýrum söguþræði, litlu letri og um 300 aftanmálsgreinum og öllu tilheyrandi. Bókin er afar erfið lestrar og hefur það haft þær afleiðingar í för með sér að margir hafa brugðið á það ráð að þykjast hafa lesið verkið til að slá um sig og öðlast menningarauðmagn í augum annarra. Samferða okkur í þættinum verður rithöfundurinn Sverrir Norland sem kafað hefur ofan í katalóg Davids Foster Wallace.
    52 min
  • Flökt, Molem tónlist og nýræktarstyrkir
    Tveir rithöfundar hlutu á dögunum nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Að þessu sinni hlutu þau Birgitta Björg Guðmarsdóttir og Sölvi Halldórsson styrkinn. Við komum til með að heyra þau segja frá verkunum og lesa uppúr þeim í þætti dagsins.
    Þorleifur Sigurlásson verður einnig með okkur í dag en undanfarnar vikur hefur hann verið að segja frá tónlistarstefnum frá ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif. Og í dag er hann með hugann við Molem tónlist frá Tælandi.
    Við kynnum okkur Dansverkið Flökt sem sýnt er á Listahátíð í Borgarleikhúsinu. Höfundarnir, þær Tinna Ottesen og Bára Sigfúsdóttir, lýsa verkinu sem sjónrænu dansverki í síkvikri veröld. Tinna er rýmissagnahöfundur og Bára starfar sem dansari í Osló en leiðir þeirra lágu saman þegar þær voru báðar í námi í Belgíu.
    52 min
  • Kassíópeia, Minnisvarðar Friðgeirs
    Guðný Guðmundsdóttir hefur búið í Þýskalandi frá því að hún útskrifaðist úr Mynd- og handíðaskólanum 1993. Í listsköpun sinni vinnur Guðný með ólíka miðla, teikningu, málverk, klippimyndir, skúlptúr, vidjó og ljósmyndun. Á sýningunni Kassíópeiu í Hafnarborg notar Guðný reynslu sína af því að vera hafnað og speglar í grískri goðafræði, og veltir um leið fram spurningum um sjálfselsku og sært egó. Meira um það í seinni hluta þáttarins.
    Við ætlum að hefja leika í dag á því að halda áfram að glugga í Tímarit máls og menningar en annað tölublað ársins kom út nú á dögunum en þar hefur Friðgeir Einarsson verið að birta hugvekjur um minnisvarða. Tvær slíkar greinar komu út í 1. Og 2. Tölublaði og eru tvær til viðbótar væntanlegar í næstu tölublöðum en í þeim veltir hann fyrir sér þessu stóra hugtaki frá nokkrum sjónarhornum. Friðgeir verður gestur okkar í þætti dagsins.
    52 min
  • Happy Pinoy, sending frá Feneyjum og Mahler
    Happy Pinoy er listhópur Filippseyinga á Íslandi, og þau ætla að taka Klúbb listahátíðar yfir í Iðnó á laugardag. Hópurinn lýsir sér sem asísku klisjunni því saman hlæja þau, elda og syngja. Á viðburðinum ætla þau að bjóða upp á filippíska menningu, meðal annars Sinulog-dansa, hlaðborð matar á bananalaufum, harana-serenöður, ljóðlist – og karókí. Við kíkjum í heimsókn til Marví Gil en íbúð hennar var full af vinum og vandamönnum, mat, blómum, kertum og skrautlegum búningum þegar Víðsjá bar að garði.
    Nýútskrifaðir nemar úr myndlist frá Listaháskólnum og úr listfræði frá Háskóla Íslands sem eru staddir í Feneyjum sem starfsnemar senda okkur hugleiðingu í þættinum um það sem fyrir augu ber á Feneyjartvíæringnum. Að þessu sinni er það Herdís Hlíf Þorvaldsdóttir sem lætur í sér heyra.
    Og við kynnum okkur einnig hina feiknarstóru og mikilfenglegu Þriðju sinfóníu Mahlers, en hún fær að hljóma í Hörpu í kvöld í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þriggja kóra og einsöngvara, undir stjórn Evu Ollikainen.
    56 min
  • Svipmynd: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
    Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er myndasöguhöfundur, barnabókahöfundur, tónlistarkona og myndlistarkona. Lóa Hlín elskar að reyna að skilja fólk og í myndasögum hennar birtist hárbeitt samfélagsrýni þar sem hún greinir tíðarandann á einstakan hátt. Hún er einn af stofnendum hljómsveitarinnar FM Belfast og hefur gefið út nokkrar barnabækur, bæði sem myndhöfundur og rithöfundur og var bók hennar Grísafjörður tilnefnd til Norrænu barna- og ungmennabókverðlaunanna og framhald hennar Hérafjörður var nýverið tilnefnd til Vestnorrænu barnabókaverðlaunanna. Lóa lærði myndlist í FB og Listaháskóla Íslands, myndskreitingar við Parsons listaskólann í New York og ritlist í Háskóla Íslands. Hún gefur samt ekki mikið fyrir prófgráður og leggur mesta rækt við að lifa gleðiríku lífi og vera samkvæm sjálfri sér. Lóa Hlín er eldheitur aktivisti sem brennur fyrir félagslegu réttlæti og í þá átt rennur sköpunarkraftur hennar þessi dægrin. Lóa Hlín verður gestur okkar í svipmynd vikunnar.
    50 min
  • Typisch gluggaveður, Surtsey á mannöld
    Davíð Örn Halldórsson hefur fyrir löngu skapað sér sess í íslensku myndlistarlífi. Hann útskrifaðist úr Listaháskólanum árið 2002 og hefur síðan haldið fjölda einkasýning hér og erlendis. Verk Davíðs eru jafnan litrík abstrakt málverk, þar sem birtast vísanir í óvæntar áttir, jafnt teiknimyndir, graffíti eða vestræna listasögu. Hann notar jöfnum höndum sprey, málningu, liti og lökk, og festir hugarheim sinn oft á tréplötur en útilokar ekkert í þeim efnum, og segir varla auðan blett að finna á vinnustofunni í Stuttgart, þar sem hann hefur búið síðastliðin ár. Við hittum Davíð Örn í Þulu í þætti dagsins.
    Sýningin Brot úr framtíð sem opnar í Þjóðminjasafni um næstu helgi, en hún byggir á listrannsókn og myndlistarverkefni Þorgerðar Ólafsdóttur þar sem hún veltir fyrir sér fyrirbærum tengdum mannöld. Á sýningunni verður hægt að sjá verk unnin með hliðsjón af munum úr safneign Þjóðminjasafns Íslands sem falla undir flokk núminja og einnig verða þar verk sem tengjast verkefni Þorgerðar í Surtsey sem kom út í bókinni Esseyja í fyrra. Víðsjá ræddi við Þorgerði um það verkefni í fyrra og einnig Þóru Pétursdóttur fornleifafræðing sem á grein í Esseyju, en Sýningin er einmitt unnin í samstarfi við rannsóknarverkefnið Relics of Nature sem Þóra leiðir við háskólann í osló. Við rifjum hluta þeirrar umfjöllunar upp í þætti dagsins.
    54 min
  • Gildi, Á milli mála, lýðræðisvæðing listanna
    Við hefjum þáttinn á því að fara niður að Tjörn, þar sem þær Agnes Ársæls og Anna Andrea Winther sýna keramikskúlptúra í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Verkið, sem þær kalla Milli mála er hluti af stærra rannsóknarverkefni þar sem þær rannsaka samband manns við umhverfi sitt og stigveldið sem birtist í fagurfræði og framkomu okkar við dýr. Listamennirnir segjast pínu hræddir um afdrif verkanna við Tjörnina, svona í ljósi sögunnar, en hvað sem gerist verði væntanlegar uppákomur alltaf hluti af verkinu sjálfu. Það vildi einmitt til að í miðju viðtali var reynt að stela hluta verksins svo óhætt er að segja að það sé í stöðugri vinnslu.
    Freyja Þórsdóttir heimspekingur verður einnig með okkur í þætti dagsins. Í dag fjallar Freyja um gildi og siðferðilegt hugrekki, meðal annars með vísun í Rosu Parks, Audre Lorde og atburði í Reykjavík síðastliðin föstudag þar sem lögreglan beitti valdi gegn friðsömum mótmælendum.
    Síðastliðinn fimmtudag hélt breski menningarráðgjafinn Steven Hadley erindi í Norræna húsinu á vegum Háskólans á Bifröst. Erindið kallaði hann: Líkt og kynlíf og súkkulaði? - Menning, lýðræði og endalok listanna. Spurningar sem þar voru til grundavallar voru meðal annars: Hvernig hefur gengið að lýðræðisvæða listirnar? Er það eftirsóknarvert í sjálfu sér, eða er nóg að við segjum að allir hafi aðgang? Hafa allir jafnan aðgang að listum og menningu? Og hvað myndi það þýða ef svo væri?
    Við ræðum við Stephen Hadley í þættinum.
    54 min
  • Vigdís Finnbogadóttir í Loftskeytastöðinni, nornir í dönskum bókmenntum
    Hvað varð til þess að Vigdís Finnbogadóttir varð fyrsta konan í heiminum til að verða kjörin þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum? Þessari spurningu leitast sýningin Ljáðu mér vængi í Loftskeytastöðinni við að svara, auk þess að varpa ljósi á ævi og störf Vigdísar. Við sækjum sýninguna heim og ræðum við Maríu Theódóru Ólafsdóttur forstöðumann Loftskeitastöðvarinnar.
    Auk þess verður rætt við Snædísi Björnsdóttur en hún birti á dögunum grein í Tímariti máls og menningar þar sem hún skoðar helstu stef og stefnur innan danskra samtímabókmennta, en þar eru nornir og sögulegur skáldskapur í brennidepli.
    54 min
  • Svipmynd af klarínettuleikara / Arngunnur Árnadóttir
    Arngunnur Árnadóttir er tónlistarkona og rithöfundur. Hún byrjaði snemma að læra á hljóðfæri. Eftir að hafa lokið forskóla Tónmenntaskólans í Reykjavík langaði hana að hefja nám á saxófón en vegna fingralengdar var henni frekar ráðlagt að leggja fyrir sig klarínett. Á unglingsárum sínum kom henni til hugar að hætta hljóðfæranámi en á þeim tíma spilaði hún í fyrsta skipti með sinfóníuhljómsveit og komst hún í tæri við töfra flutningsins. Arngunnur stundaði síðan framhaldsnám í klarínettuleik við Listaháskóla Íslands og við Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín og hefur frá haustinu 2012 gegnt stöðu fyrsta klarínettuleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
    Samhliða tónlistinni hefur Arngunnur sent frá sér tvær ljóðabækur og eina skáldsögu. Fyrstu ljóðabók sína, Unglingar, byrjaði hún að skrifa í vetrarfríi í Berlín og gaf út í seríu Meðgönguljóða árið 2013. Skáldsagan Að heiman fylgdi þar á eftir og lýsir í meitluðum og stílhreinum prósa tilveru Unnar í Reykjavík og segir frá ferðalagi hennar út á land. Síðast sendi Arngunnur frá sér ljóðabókina Ský til að gleyma, sem fjallar meðal annars um tregablandna eftirsjá eftir tíma og fólki sem rennur ljóðmælanda úr greipum.
    56 min
  • Púls, félagslegt húsnæði og nýr leikhússkóli
    Um liðna helgi opnuðu tvær sýningar í Listval við Hverfisgötu, á bak við þær eru listamennirnir Helga Páley Friðþjófsdóttir og Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttur. Sýning Hólmfríðar Sunnu kallast Púls og sýnir málverk þar sem efnið sjálft ræður för á ferð um hringrás náttúrunnar; himinn, jörð, plöntur, hold og kynjaverur og allskyns óvænt form birtast þar í mjúkum tónum og lífrænum formum. Hólmfríður er með bakgrunn í heimspeki og segir þau fræði vera samofin hennar myndlistarpælingum. Við lítum inn í Listval í þætti dagsins.
    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, verður einnig með okkur í dag og að þessu sinni fjallar hún um hnignun félagslegs húsnæðis á Íslandi.
    Og við hugum líka að menntun í þættinum. Þjóðleikhúsið hefur sett á laggirnar nýjan leikhússkóla fyrir fólk á aldrinum 18-22 ára. Skólinn tekur til starfa í haust og inntökuferli hefst nú í maí. Við ræðum við skólastjórann og aðalkennara námsins, Völu Fannell, í þættinum.
    52 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners