Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Aldan í Þorlákshöfn, Í myrkrinu fór ég til Maríu, Anatólískt rokk, ólesnar bækur
    „Íslendingar eru ekki alveg búnir að fatta hversu mikil auðlind aldan er, og hversu mikið aðdráttarafl býr í Þorlákshöfn.“ Þetta segir Elín Signý Ragnarsdóttir, dansari og einn af stórnarmeðlimum í Brimbrettafélagi Íslands, en nú stendur til að setja landfyllingu í höfnina og þar með eyðileggja öldu sem er sú besta á landinu og þó víðar væri leitað. Gegn þessum framkvæmdum berst Brimbrettafélag Íslands og á morgun halda þau viðburð í Bíó Paradís þar sem tvær heimildamyndir um brimbrettamenningu verða sýndar. Elín Signý verður gestur okkar í þætti dagsins.
    Einnig rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í ljóðbók Sonju B. Jónsdóttur, Í myrkrinu fór ég til Maríu, sem tilnefnd var á dögunum til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunar, Þorleifur Sigurlásson fjallar um anatólískt rokk og Tómas Ævar veltir fyrir sér hálflesnum. bókum.
    54 min
  • Viibra, ekkert og Grafreiturinn í Barnes
    Í þættinum heyrum við af nýrri plötu og útgáfutónleikum flautuseptettsins Viibru, en stallsysturnar sjö sem sveitina skipa ferðuðust víða um heim með Björk Guðmundsdóttur á síðustu árum, blésu í fjölbreyttar flautur sínar og runnu í raun nánast saman við tónlistina. Við hittum í þættinum Berglindi Maríu Tómasdóttur, flautuleikara og Margréti Bjarnadóttur, danshöfund, og ræðum tónleika í Hörpu á sunnudag, nýju plötuna og samstarfið við Björk.
    Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur, rýnir í þýðingu Gyrðis Elíassonar á bók breska rithöfundarins Gabriel Josipovici, Grafreiturinn í Barnes.
    Og við rifjum upp innslag frá árinu 2021 um umdeilda sölu á verki ítalska myndlistarmannsins Salvatore Garau, verkinu Il sono, sem mætti þýða sem, ég er, en salan komst í heimsfréttirnar vegna þess að verkið sjálft er eiginlega ekki neitt. Ekkert. Tómarými.
    52 min
  • Vinna
    Víðsjá dagsins verður tileinkuð vinnu í víðum skilningi. Vinna er nefnilega ekki bara störfin sem við gegnum heldur getur hún verið nánast hvað sem við tökum okkur fyrir hendur, ennfremur er hún efnahagsleg og þekkingarfræðileg undirstaða mannlegra samfélaga. Í þættinum veltum við meðal annars fyrir okkur tengslum vinnu og sjálfsmyndar, kulnun, borgaralaunum og andvinnuhreyfingunni.
    55 min
  • IceCon, Cancion Ranchera og Feneyjatvíæringurinn
    Við fáum sendingu frá Feneyjum í þættinum. Starfsnemar í listfræði, myndlist og sýningastjórnun við Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands munu á næstu vikum flytja stutt erindi um sýningar Feneyjartvíæringsins. Í pistli dagsins tekur Auður Mist, oftast kölluð Auja Mist, myndlistakona frá Reykjavík, til máls og segir meðal annars frá því hvernig jaðarsettir hópar í myndlist hafa nýtt dulspeki sem sameiningartákn
    Þorleifur Sigurðsson verður einnig með í þættinum en hann hefur verið að skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif. Að þessu sinni mun hann segja frá Cancion Ranchera sem er mexíkósk þjóðlagahefð og er eitt helsta menningareinkenni Mexíkó.
    IceCon-furðusagnahátíðin hefur göngu sína í fjórða sinn núna um helgina. Hugtakið furðusögur nær yfir fantasíur, vísindaskáldskap og hrollvekjur og allt þar á milli. Heiðursgestir í ár eru rithöfundarnir Emil Hjörvar Petersen, sem er einn stofnenda hátíðarinnar, Hugo-verðlaunahafinn John Scalzi og Lambda-verðlaunahafinn Kirsty Logan. Hátíðin hefst nú um helgina og verða hinir ýmsu viðburðir á dagskrá í Veröld Húsi Vigdísar. Anna María Björnsdóttir ræðir við þá Emil Hjörvar Petersen og Júlíus Árnason Kaaber, einn skipuleggjenda hátíðarinnar í ár í þættinum.
    53 min
  • Vaxtaverkir, Orðabók hinna týndu orða, sjósund í Gufunesi
    Á sýningunni Vaxtaverkir í Árbæjarsafni setur hönnunarhópurinn ÞYKJÓ fram skólasögu Reykjavíkur á frumlegan hátt. Þróun námsgreina og kennsluaðferða er miðlað á óvæntan hátt með dýrmætum safngripum, ljósmyndum og frásögnum frá fyrri tíð. Við hittum Sigríði Sunnu Reynisdóttur, listrænan stjórnanda Þykjó, í Árbæjarsafni í þætti dagsins og ræðum um sýninguna.
    Við bryggjuna í Gufunesi hafa vaskir nemar í arkitektúr hannað og smíðað aðstöðu til sjósundsiðkunar undanfarnar vikur. Aðstaðan var formlega opnuð um síðustu helgi svo nú gefst sundfólki kostur á að komast í sundfötin í skjóli og komast út í sjó án þess að klöngrast yfir varnargarðinn. Við höldum í Gufunesið í þætti dagsins og hittum fyrir nokkra nema og Birtu Fróðadóttur, lektor og fagstjóri yfir BA arkitektúr við LHÍ.
    Og Gréta Sigríður Einarsdóttir fjallar um Orðabók hinna týndu orða eftir Pip Williams, sem kom nýverið út í þýðingu Ugga Jónssonar.
    52 min
  • Svipmynd: Rúnar Rúnarsson leikstjóri
    Það má segja að stuttmyndin Síðasti bærinn hafi sett ákveðin tón í höfundaverk Rúnars Rúnarssonar leikstjóra sem hefur ómað síðan. Kvikmyndir Rúnars eru oftar en ekki teknar á filmu, þær eru ljóðrænar þroskasögur um fólk á tímamótum, þar sem umhverfið leikur stórt hlutverk. Þetta eru stórar sögur sem fjalla um það smáa í tilverunni.
    Hann komst inn í Danska kvikmyndaháskólann með Síðasta bænum og hún ferðaðist um heiminn, hlaut fjölda alþjóðlegra verðlauna og var þar að auki tilnefnd til Óskarsverðlauna. Tvær stuttmyndir sem einnig nutu mikilla velgengni fylgdu í kjölfarið og árið 2011 frumsýndi Rúnar Eldfjall, sína fyrstu mynd í fullri lengd. Þrestir og Bergmál komu í kjölfarið og velgengni Rúnars á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum hélt áfram.
    Rúnar frumsýnir sína nýjustu kvikmynd Ljósbrot á Cannes á næstu dögum en hún er opnunarmynd í Un Certain Regard-flokki hátíðar­inn­ar, þar sem kvik­mynd­um sem sýna list­ræna djörf­ung er hampað. Rúnar verður gestur Víðsjár í Svipmynd dagsins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
    54 min
  • Margpóla, Fearless Movement, Freyja Þórsdóttir
    Á sýningunni Margpóla í Listasafni Íslands beinir Anna Rún Tryggvadóttir sjónum okkar að ósýnilegum kröftum sem hafa margvísleg áhrif á allt okkar líf. Þessir kraftar leynast í segulsviði jarðar og birtast okkur með ólíkum hætti á sýningunni í pastellituðum vatnslitaverkum og eldrauðum skúlptúr. Í ljóðrænni nálgun sinni á viðfangsefnið bendir Anna Rún meðal annars á mannhverfa sýn okkar á náttúruna og möguleg tengslarof við hana. Við hittum listamanninn við verkin í þætti dagsins.
    Freyja Þórsdóttir heimspekingur verður einnig með okkur í dag. Að þessu sinni fjallar hún um gleði og drauma. Og við kynnum okkur einnig plötuna Fearless Movement úr smiðju bandaríska tónlistarmannsins, tónskáldsins og hljómsveitarstjórans Kamasi Washington.
    53 min
  • Gestabók, Hundrað þúsund, Rætur að rekja í Nýlistasafni
    Gestabók nefnist safn smásagna sem hverfast allar um sömu veisluna og gestina sem þangað koma þó flestir virðist koma í veislu af skyldurækni en löngun. Að baki bókinni eru 10 ritlistarnemar og 3 ritstjórnarnemar við Háskóla Íslands. Við ræðum við Karólínu Rós, Birgittu Björgu og Vigni Rafn í þætti dagsins
    Í Nýlistasafninu opnaði um liðna helgi útskriftarsýning meistaranema í myndlist við Listaháskóla Íslands. Rætur að rekja – hin örþunna íðilrót nefnist sýningin þar sem átta listamenn sýna útskriftarverkefni sem marka lok á tveggja ára námi. Við ræðum við sýningarstjórann Birtu Guðjónsdóttur og útskriftarnemana Sunnevu Ásu Weishappel og Julie Sjöfn Gasiglia.
    Trausti Ólafsson rýnir í óperuna Hundrað þúsund sem sýnd er í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.
    56 min
  • Svipmynd af tónlistarmanni / Steingrímur Karl Teague
    Steingrímur Karl Teague er söngvari, djazzpíanisti, lagahöfundur og bókmenntafræðingur, sem ólst upp á Seltjarnarnesi með viðkomu í Bandaríkjunum. Hann er hvað þekktastur fyrir að vera einn af meðlimum hljómsveitarinnar Moses Hightower, sem setti alveg nýjan tón í íslenska tónlistarflóru árið 2010 með plötunni Búum til börn. Sálarskotinn fönk hljóðheimurinn í bland við hrífandi íslenska texta hefur svo þróast áfram á fjórum plötum, nú síðast Lyftutónlist sem kom út 2020.
    Steingrímur hefur auk þess spilað og sungið með fjöldanum öllum af tónlistarfólki í gegnum árin, þar á meðal Of Monsters and Men og Uppáhellingunum sem einmitt gáfu út plötuna Tempó Primo. Árið 2021 gaf Steingrímur út plötuna More Than You Know með söng­kon­unni Silvu Þórðardótt­ur þar sem dúóið útsetur og leikur sér með fræga djazzstandarda.
    53 min
  • Hundrað þúsund, Í tíma og ótíma og Híbýlaauður
    Óperan Hundrað þúsund var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu um liðna helgi. Verkið, sem þær Kristín Eiríksdóttir og Þórunn Gréta Sigurðardóttir byggja á gamla Grimmsævintýrinu um spunakonurnar, fjallar um ástandið í samtíma okkar og misskiptinguna sem það ástand skapar. Neyslukapphlaup, stéttaskiptingu og viðhorf til vinnu. Við ræðum við leikstjórann Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og tónskáldið Þórunni Grétu í þætti dagsins.
    Við lítum einnig við inn í Hafnarborg þar sem sýningin Í tíma og ótíma opnar um næstu helgi. Þar er sjónum beint að margvíslegum birtingarmyndum tímans í verkum ‏þ‏‏riggja alþjóðlegra samtímalistakvenna, þeim Örnu Óttarsdóttur, Leslie Roberts og Amy Brener. Við ræðum við sýningarstjórann Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur í þættinum.
    Hildigunnur Sverrisdóttir veltir fyrir sér arkitektónískum og hagrænum rannsóknum á húsnæðisuppbyggingu hér á landi.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners