Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Stífluhringurinn, Að safna regni, Listasafn Akureyrar
    Við lítum inn á vinnustofu myndlistarkonunnar Nínu Óskarsdóttur á Hólmaslóð og forvitnumst um sýningu sem hún er með í undirbúningi, opnar á laugardag í Höggmyndagarðinum og heitir Að safna regni. Við tökum einnig á móti tónskáldinu Guðmundi Steini Gunnarssyni en verk hans Stífluhringurinn verður frumflutt af Caput hópnum í Hörpu á morgun. En við hefjum þáttinn á því að heyra fréttir að norðan, því í Listasafni Akureyrar hófst haustdagskráin með miklum látum um helgina. Freyja Reynisdóttir verkefnastjóri sýninga tók símann í morgun og var spurð út í opnanir liðinnar helgar og út í grasrótina.
    54 min
  • Hildur Elísa Jónsdóttir Ygallerí, Eyrnakonfekt, tónleikaveturinn
    Tónlistin er fyrirferðarmikil í þætti dagsins og undir lok þáttar kynnum við nýjan dagskrárlið, Eyrnakonfektið, sem boðið verður upp á reglulega yfir vetrarmánuðina. Þar kemur til okkar fólk úr ýmsum áttum og segir hlustendum frá sínu uppáhalds tónverki. Í lok þessa þáttar fáum við fyrsta molann, þegar Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóluleikari í sinfóníuhljómsveit Íslands, býður upp á Eyrnakonfekt dagsins.
    Við lítum einnig inn á Hamraborgarhátíðina, nánar tiltekið í Y gallerí, og ræðum við Hildi Elísu Jónsdóttur um tónlistardrifna gjörninginn Seeking Solace.
    55 min
  • Félagslegt húsnæði, Sumartónleikar í Skálholti, tilfinningaleg berskjöldun og tvær skáldsögur frá Suður Ameríku
    Í þætti dagsins ræðum við við Benedikt Kristjánsson tenorsöngvara og listrænan stjórnanda Sumartónleikar í Skálholti; tónleikaraðar sem hefur verið starfandi frá árinu 1975.
    Freyja Þórsdóttir flytur pistil þar sem hún veltir fyrir sér þroska og einlægri nánd með hjálp grísku goðsagnarinnar um Pygmalion.
    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, tekur saman fjögurra pistla seriu sem hún hefur flutt undanfarnar vikur um félagslegt húsnæði og uppbyggingu þess og lýkur hugleiðingum sínum á því að ræða um Híbýlaauð, hóp sérfræðinga sem að eigin frumkvæði hefur tekið sig saman til að bæta og styrkja umræðu og gæði húsnæðisuppbyggingar á Íslandi.
    Einnig heyrum við af tveimur nýjum bókum, Hrein eftir Aliu Trabacco Zerán og Drottningarnar í garðinum eftir Caliu Sosa Villada.
    52 min
  • Svipmynd af saxófónleikara / Guðjón Steinn Skúlason
    Guðjón Steinn Skúlason, saxófónleikari og tónsmiður, er fæddur árið 2004. Hann ólst upp í Reykjanesbæ og var snemma farinn að skapa. Þegar hann var síðar kominn í einkatíma í saxófónleik fékk hann einfalda spurningu: hvort hann ætlaði að sinna djasstónlistinni af alvöru. Svarið var nokkuð klárt og nú stundar Guðjón Steinn nám í saxófónleik við Manhattan School of Music í New York, einn fjórtán saxófónleikara sem þar hófu nám við skólan á fyrsta ári bakkalársnáms.
    Guðjón fékk sér kryddbrauð og kaffi í morgunmat áður en hann kom í þáttinn. Hann nýtur þess að vera heima í sumarfríi í foreldrahúsum, en í kvöld fer hann fyrir kvartetti sínum á tónleikum í djassklúbbnum Múlanum í Hörpu. Með honum leika þar Hilmar Jensson á gítar, Birgir Steinn Theodórsson á bassa og Matthías MD Hemstock á trommur. Á tónleikunum mun þeir leika nýlegar frumsamdar tónsmíðar Guðjóns Steins sem margar hverjar eru innblásnar af dvöl hans í New York borg í bland við íslenskar rætur hans.
    53 min
  • Skref fyrir skref, tónlistarmenn af frumbyggjaættum og sumarkveðja
    Við lítum inn í sýningarrýmið Á milli, við ingólfsstræti, en þar hanga upp olíumálverk eftir Sturlu Sigurðarson. Sýningin nefnist Skref fyrir skref og samanstendur af 6 málverkum í abstrakt expressjónískum stíl sem hverfast öll minningar sem eru duldar í líkamanum. Við ræðum við Sturlu í þætti dagsins.
    Við rifjum upp tónlistarpistil Jelenu Ciric frá því í fyrra um tónlistarmenn af frumbyggjaættum sem starfa í Kanada. Tónlistarmenn sem verða fyrir áhrifum frá ólíkum tónlistarstefnum, allt frá kántrý til Dubstep sem þeir blanda svo við hljóðheim og málefni frumbyggjaþjóða til að skapa eitthvað alveg nýtt.
    Einnig heilsum við íslensku sumri með hjálp hljóðritasafns Ríkisútvarpsins. Við týnum við fram nokkur sumarbrot og setjum saman að hætti hússins, þetta eru væntingar og stemningar, hugarleikfimi fyrri tíma um þann dásemdartíma sem sumarið er og á að vera og þær vonir sem ferðalög innibera.
    55 min
  • Læknar og borgarskipulag, Hallbjörg Bjarnadóttir og afmæliskort frá Hildigunni Birgisdóttur
    Í þættinum kíkjum við inn á Mokkakaffi við Skólavörðustíg. Þar var opnuð á dögunum sýning á pínupínu litlum vatnslitamyndum í stórum álrömmum. Og myndefnið á myndunum kemur allt úr einu og sama afmæliskortinu. Það er Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarmaður sem nú sýnir líka verk sín fyrir Íslands hönd á tvíæringnum í Feneyjum, sem hefur sett þessar litlu dularfullu myndir upp á veggina á Mokka í sýningu sem hún kallar Innilegar hamingjuóskir með afmælisdaginn.
    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, heldur áfram umfjöllun sinni um félagsleg húsnæði hér á landi. Í dag er hún með hugan við þátt lækna í uppbyggingu Reykjavíkurborgar.
    Að lokum hugum við að söngkonunni og skemmtikraftinum Hallbjörgu Bjarnadóttur og kynnum okkur menningarólgu við landnám djasstónlistar á Íslandi.
    51 min
  • Margrét Blöndal i8, Kúmbíu tónlist, Herdís Anna Við Djúpið
    „Það eru undur allt í kringum okkur, við þurfum bara að gefa þeim gaum,“ segir myndlistarmaðurinn Margrét Blöndal sem sýnir um þessar mundir í i8 galleríi. Þetta er fjórða einkasýning Margrétar í i8, en hún er löngu þekkt fyrir sín fíngerðu og ljóðrænu verk sem unnin eru þvert á miðla, og sem hafa verið sýnd víða, hér heima og erlendis. Þín er vænst / Do not go roughly into that good night, kallast innsetningin þar sem teikningar á pappír eiga í samtali við gallerís rýmið. Í teikningum ráða eiginleikar efnisins útkomunni, en um leið samband listamannsins við efnið. Við lítum inn í i8 með Margréti í þætti dagsins.
    Þorleifur Sigurlásson verður einnig með okkur í dag, og að þessu sinni fjallar hann um tónlist frá Kólumbíu. En við byrjum á annarskonar tónlist, sem nú ómar á Ísafirði, þar sem tónlistarhátíðin Við Djúpið stendur nú yfir. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður Rúv á Vesturlandi, og bókmenntarýnir okkar hér í Víðsjá, er stödd á hátíðinni og hún fór í göngutúr um bæinn með Herdísi Önnu Jónasdóttur söngkonu.
    52 min
  • Svipmynd af myndlistarmanni / Haraldur Jónsson
    Har­ald­ur Jóns­son myndlistarmaður var getinn í Noregi, fæddist árið 1961 í Helsinki og náði svo að búa í Danmörku áður en hann sigldi með Gullfossi til Íslands á leikskólaaldri. Hann hóf nám í barnaskóla ári á undan jafnöldrum sínum og fluttist til Frakklands þegar hann lauk MR nítján ára gamall. Hann segir framandgervingu alltaf hafa verið hluta af sér, honum líði best í kjarnanum. Haraldur lítur á tungumálið sem skúlptúr en það var meðal annars latína og orðsifjafræði sem leiddu hann á braut myndlistarinnar. Líkaminn, tilfinningar og skynjun mannsins á umhverfi sitt eru einnig þræðir sem ganga í gegnum höfundaverk Haraldar. Hann nam myndlist í Frakklandi , Þýskalandi og á Íslandi og nefnir Joseph Beuys, Fellini og Meredith Monk sem áhrifavalda. Har­ald­ur hef­ur haldið tugi einka­sýn­inga og tekið þátt í ótal sam­sýn­ing­um um víða ver­öld. Verk hans eru í eigu helstu op­in­beru safna á Íslandi sem og í einka­söfn­um í Evr­ópu og Banda­ríkj­un­um. Haraldur er gestur okkar í Svipmynd Víðsjár þessa vikuna.
    54 min
  • Þjóð í mynd, Bruce Springsteen í Sjomlahorni
    Sjomlahornið heldur áfram göngu sinni í þættinum en þar skoðum við hin ýmsu menningarfyrirbæri sem karlmenn hafa laðast sérstaklega að í gegnum tíðina með þeim afleiðingum að skapast hefur eins konar gaurastemning í kringum tiltekin verk eða listamenn. Að þessu sinni hugum við að bandaríska tónlistarmanninum Bruce Springsteen og fáum hjálp frá Bergi Ebba til að greina sjomlastemninguna í kringum goðið.
    En við hefjum þáttinn í Þjóðminjasafninu. Í gær voru 80 ár frá stofnun lýðveldisins Íslands og af því tilefni opnaði þar dyr sínar sýningin Þjóð í mynd. Markmið sýningarinnar er að varpa ljósi á þátttöku og upplifun almennings í landinu við stofnun lýðveldisins. Við hittum þau Bryndísi Erlu Hjálmarsdóttur, verkefnisstjóra sýningarinnar og Gunnar Tómas Kristófersson hjá Kvikmyndsasafninu, og fáum innsýn í þeirra vinnu.
    51 min
  • Skjóta, hýbýlahollusta og Rótarskot
    Skjóta nefnist ný íslensk ópera eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur en hún var frumflutt í Ásmundarsal um síðustu helgi. Óperan fjallar um fótbolta og loftslagsbreytingar og hvernig hálfleikur í fótbolta getur verið myndlíking fyrir afmarkaðan tíma, til ákvarðanatöku, í loftslagsmálum. Verkið blandar saman nýklassískum söng og kraftmikilli danstónlist en leikur sér einnig með rýmið í Ásmundarsal á skapandi hátt. Við ræðum við Sigrúnu Gyðu í þætti dagsins.
    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, verður einnig með okkur í dag og heldur áfram að fjalla um félagslegt húsnæði og hýbílaprýði hér á landi.
    Fjölmenningarsamfélag krefst nýrra orða, hugmynda og nálgana. Hvaða orð og hugtök skortir okkur til þess að fanga breyttan veruleika? Getur þróun tungumálsins haldið í við síbreytilegt samfélag? Þessum spurningum og eflaust mörgum fleiri verður velt upp í Eddu, húsi íslenskunnar, í tengslum við listahátið á sunndag. Viðburðurinn kallast Rótarskot og er einskonar stefnumót skálda með innflytjendabakgrunn og fræðafólks frá Árnastofnun. Rithöfundurinn Pedro Gunnlaugur Garcia, sem stýrir viðburðinum, verður gestur okkar í dag, og einnig flytur skáldið Ewa Marcinek ljóð.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners