Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Bjarni Frímann Bjarnason, Arðsemi menningar, Eltum veðrið
    Við hittum Bjarna Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóra og píanóleikara á bílaverkstæði við Smiðjuveg í þætti dagsins. Bjarni mun halda þar tónleika um næstu helgi sem eru hluti af tónlistarhátíðinni State of the Art sem hefst á morgun og stendur til 12.október.
    Við munum einnig kynna okkur skýrslu sem heitir Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi. Hún er unnin fyrir Menningar- og viðskiptaráðuneytið af Ágústi Ólafi Ágústssyni hagfræðingi. Ágúst Ólafur og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknarseturs Skapandi greina, verða gestir okkar í dag.
    Nína Hjálmarsdóttir verður einnig með okkur í þætti dagsins, en hún fór að sjá Eltum veðrið, sem frumsýnt var í þjóðleikhúsinu á föstudag.
    54 min
  • Arnheiður Eiríksdóttir, Gallerí Undirgöng, Ólafur á Söndum
    Við förum á Hverfisgötu þar sem Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar sýnir veggverk í Gallerí Undirgöngum. Verkið,sem hún kallar Eftirlits- og hagsmunaaðilar, varpar fram spurningum um opinbera fagurfræði, valdajafnvægi og manngerð kerfi með aðstoð tákna og lógóa.
    Við komum einnig við í Eddu og hittum þar fyrir þær Margréti Eggertsdóttur og Þórunni Sigurðardóttur, en þær unnu að útgáfu bókar sem kom út í sumar, Söngbók Séra Ólafs Jónssonar á Söndum. Ólafur var meðal vinsælustu skálda í sinni tíð, en hann var prestur í Dýrafirði um aldamótin 1600 og safnaði kveðskap sínum í eina bók sem kölluð er Kvæðabók.
    Í gærkvöldi hlaut íslenska messósópransöngkonan Arnheiður Eiríksdóttir verðlaun á stærstu óperuverðlaunahátíð heims, í flokknum "Rising Star" - eða rísandi stjarna. Við heyrum í Arnheiði í þætti dagsins.
    53 min
  • Svipmynd - Lilja Ingólfsdóttir
    Kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir var komin með nóg af klisjukenndum kvenpersónum þegar hún hófst handa við að skrifa Elskling. Aðalpersóna Elskling er ófullkomin og þreytt fjögurra barna móðir sem reynir að sinna starfsframanum um leið og hún reynir að halda hjónabandinu gangandi. Elskling hefur sópað að sér verðlaunum og góðri gagnrýni frá því að hún var frumsýnd í sumar, en hún er er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem Lilja bæði skrifar og leikstýrir. Hún á að baki fjölda stuttmynda og einnig fjórar kvikmyndir sem hún var handritshöfundur að, og segir Lilja sjálf að hún líti fyrst og fremst á sig sem handritshöfund, hún sé leikstýrandi handritshöfundur.
    Lilja er dóttir norska þýðandans Tone Myklebost, sem er margverðlaunuð fyrir þýðingar úr íslensku yfir á norsku, og Ingólfs heitins Margeirssonar, blaðamanns og rithöfundar sem lést vorið 2011. Hún ólst upp bæði á Íslandi og í Noregi en lærði kvikmyndagerð í London og Prag. Hún bjó um tíma í París þar sem hún gerði yfir 20 stuttmyndir en býr í dag í Osló þar sem hún kennir við kvikmyndaháskólann og elur upp börnin sín fjögur auk þess að starfa við kvikmyndagerðina.
    Lilja Ingólfsdóttir, handritshöfundur og kvikmyndaleikstjóri, er gestur okkar í svipmynd dagsins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Tarotspil norrænna goðsagna, Ólöf Arnalds-Teens, Voðaverk í Vesturbænum-rýni
    Á dögunum komu út hjá Bókabeitunni eftirtektarverð tarotspil. Spilin eru eftir hefðbundinni forskrift en höfundur þeirra, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, hefur endurhugsað þau út frá norrænni goðafræði, sér í lagi sögnum úr Snorra-Eddu og Eddukvæðum. Kristín Ragna er höfundur myndanna en hefur líka skrifað ítarlega skýringarbók með spilunum, sem inniheldur bæði leiðbeiningar fyrir lagnir og túlkun og mikinn fróðleik um goðin og sögurnar. Melkorka settist niður með Kristínu Rögnu og fékk hana til þess að spá í spilin fyrir sig.
    Um næstu helgi verður tónverkið Teens - Questions for Teenagers, flutt í Salnum í Kópavogi, en það er innblásið af röddum unglinga og viðtölum sem tekin voru við ungmenni frá Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi í fyrravetur. Verkið er eftir færeyska tónlistarmannin Teit en samið í samstarfi við kammersveitina Ensemble MidtVest, grænlenska söngvaskáldið Nive Nielsen og Ólöfu Arnalds, sem segir frá verkefninu í þætti dagsins.
    En við hefjum þáttinn á bókarýni. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýútkomna glæpasögu Jónínu Leósdóttur, Voðaverk í Vesturbænum.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    52 min
  • Stólasmíði og Enzo Mari , Sjáumst í ágúst, Feneyjatvíæringur, Eyrnakonfekt
    Við hittum Friðrik Stein Friðriksson hönnuð og smíðakennara, en hann mun leiða smiðju í Hönnunarsafninu þar sem gestum tækifæri til að búa til sinn eigin stól. Stólarnir eru unnir að fyrirmynd Enzo Mari sem taldi að allir gætu gert sinn eigin stól.
    Gauti Kristmannsson rýnir í skáldsöguna Sjáumst í ágúst eftir Gabriel Garcia Marqués, sem kom nýverið út í þýðingu Jóns Halls Stefánssonar, 10 árum eftir andlát höfundarins.
    Einnig heyrum við Eyrnakonfekt, en að þessu sinni er það Freyja Gunnlaugsdóttir, klarinettuleikari og skólameistari Menntaskóla í tónlist, sem segir frá sínu uppáhaldsverki.
    Og Grétar Þór Sigurðsson flytur pistil frá Feneyjatvíæringnum.
    50 min
  • Líf Arnars Jónssonar í ljóðum, Ungsveit Sinfóníunnar, Connie Converse, Sýslumaður dauðans /rýni
    Arnar Jónsson leikari lítur við til að ræða ljóð í þætti dagsins, en hann ætlar að fara yfir ævi sína í ljóðum í Landnámssetrinu í Borgarnesi um næstu og þarnæstu helgi. Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í tvenna tónleika, tríótónleika á vegum kammermúsíkklúbbsins og fyrstu tónleika grænu raðarinnar hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, og Katla Ársælsdóttir rýnir í Sýslumann dauðans eftir Birni Jón Sigurðsson sem frumsýnt var nýverið. Og Víðsjá lítur einnig inn á æfingu hjá Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
    55 min
  • Herdís Egilsdóttir - Svipmynd
    Gestur Svipmyndar í dag er engin önnur en Herdís Egilsdóttir, kennari og rithöfundur.
    Herdís fæddist á Húsavík þann 18. júlí árið 1934 og fagnaði því níræðisafmæli sínu í sumar. Hún hóf kennslu í Ísaksskóla árið 1953 og starfaði þar í 45 ár, eða fram til ársins 1998. Herdís hefur skrifað fjölda bóka, leikrit, sjónvarpsefni og námsefni fyrir börn. Þar á meðal eru bækurnar um Pappírs-Pésa og Siggu og skessuna og kennsluhandbók í lestri sem nefnist Það kemur saga út úr mér. Herdís hefur þróað merkilegar kennsluaðferðir, á borð við Landnámsaðferðina, sem vakið hafa mikla athygli. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir framlag sitt til barnamenningar og segist hvergi nærri hætt.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
    53 min
  • Örverur á heimilinu, Dagbók frá Gaza-rýni, Cauda Collective
    Um næstu helgi opnar á Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ sýning sem beinir kastljósinu að sambandi manna og örvera. Þrátt fyrir að þetta samband sé okkur alla jafna dulið þá er það í meira lagi margslungið, á sér til að mynda stað innan og utan líkamans, innan og utan heimilis, og innan og utan á matnum okkar. Örverur á heimilinu er ein af afurðum þverfaglega rannsóknarverkefnisins Samlífi manna og örvera í daglega lífinu undir stjórn dr. Valdimars Tr. Hafstein. Ragnheiður Maísól Sturludóttir, tók þátt í rannsókninni og er jafnframst sýningarstýra sýningarinnar. Við hittum hana og nokkrar örverur í þætti dagsins.
    Rithöfundurinn Atef Abu Saif hefur starfað sem menningarmálaráðherra palestínskra stjórnvalda og skrifað skáldsögur, smásögur og bók um stjórnmál. Þegar sprengjum tók að rigna yfir Gaza síðastliðið haust ákvað hann og sonur hans að halda kyrru fyrir, í stað þess að flýja, og Abu Saif tók að skrásetja lífið á Gaza. Brot úr Dagbók frá Gaza birtust reglulega í vestrænum fjölmiðlum frá upphafi árása Ísraelshers og eru meðal mikilvægustu vitnisburða sem þaðan hafa borist. Síðastliðið vor voru skrif hans frá fyrstu fjórum mánuðum árásanna gefin út á bók í 11 löndum og hér á landi kom hún út hjá Angústúru, í þýðingu Bjarna Jónssonar. Gauti Kristmannsson rýnir í Dagbók frá Gaza í þætti dagsins.
    En við hefjum þáttinn á innliti frá einum virkasta kammerhóp landsins, Cauda Collective. Hópurinn tekur á sig ýmsar myndir, er breytilegur að stærð og tekst á við verkefni sem tilheyra hinum ýmsu stílum og tegundum tónlistar. Listrænir stjórnendur Cauda Collective eru þær Sigrún Harðardóttir, Björk Níelsdóttir, Þórdís Gerður Jónsdóttir og Þóra Margrét Sveinsdóttir og þær Sigrún og Björk litu við í Efstaleiti til þess að segja okkur aðeins af verkefnum vetrarins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    56 min
  • Hafnarfest, Listasafn Árnesinga, Taktu flugið beibí-rýni
    Í Hafnarhúsi við Tryggvagötu hafa hátt í 300 listamenn, hönnuðir, forritarar, frumkvöðlar og annað skapandi fólk aðsetur í um 90 vinnustofum og samstarfsrýmum undir hatti Hafnar haus. Verkefnið hófst að frumkvæði hóps sem leiddur var af Haraldi Þorleifssyni, frumkvöðli, en á aðeins tveimur árum hefur í hafnarhaus orðið til suðupottur hugmynda og samsköpunar, samfélag forvitni og sköpunargleði, sem leitt er af notendunum sjálfum. Víðsjá kom við á opnu húsi í Hafnarhúsi á laugardag og kynnti sér þá gríðarlegu grósku sem þar fer fram.
    Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, en hann fór að sjá sýninguna taktu flugið, beibí, sem frumsýnd var í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 12 september síðastliðinn.
    En við hefjum þáttinn á því að fara austur fyrir fjall. Í Listasafni Árnesinga í Hveragerði standa nú yfir tvær einkasýningar og fjórar samsýningar.
    Sigurður Guðjónsson sýnir verkið Hljóðrof í sal eitt, þar sem strúktúr baðaður ljósi og hljóði verður alltumlykjandi í rökkvuðu rýminu. Í næsta sal sýnir sýnir Þórdís Jóhannesdóttir verk sem hún byggir á ljósmyndatækninni, en sýninguna kallar hún Millibil. Í öðrum rýmum safnsins er að samsýningar á verkum eftir íslenska og erlenda listamenn sem allir eiga það sameiginlegt að tengja saman á einhvern hátt listir og vísindi. Safnstjórinn Kristín Scheving er sýningarstjóri sýningarinnar Lífrænar hringrásir í samstarfi við Jennifer Heliu DeFelice og hún tók á móti Víðsjá í safninu.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    51 min
  • Tónar útlaganna, Hreinn Friðfinnsson, Palestína í Feneyjum
    Í vikunni gaf Hið íslenska bókmenntafélag út bókina Tónar útlaganna eftir Árna Heimi Ingólfsson. Þar er farið yfir sögu þriggja hámenntaðra tónlistarmanna sem flúðu heimalönd sín í Evrópu snemma á síðustu öld, fluttu til Íslands og höfðu veruleg áhrif á íslenskt menningarlíf, þá Róbert Abraham Ottóson, Heinz Edelstein og Victor Urbancic. Við gluggum í bókina og gröfum upp gamlar upptökur í þætti dagsins.
    Einnig er rætt við Markús Þór Andrésson um yfirlitssýningu á verkum Hreins Friðfinnssonar sem opnar í Hafnarhúsinu á laugardag og við heyrum pistil frá Mirru Elísabetu Valdísardóttur um viðveru Palestínu á Feneyjatvíæringnum.
    54 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners