Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Strá fyrir straumi, Flothetta og Skálds saga/rýni
    „Ég stend svona eins og strá fyrir straum og segi með Gretti, ber er hvur að baki nema bróður eigi" - Þetta skrifar Sigríður Pálsdóttir bróður sínum, Páli Pálssyni, skrifara á Stapa, árið 1865. Í bréfasafni Páls hafa varðveist um 250 bréf frá Sigríði á yfir 50 ára tímabili og bréfin eru grunnurinn að nýrri ævisögu Sigríðar, Strá fyrir straumi, sem kemur út á morgun. Bókina skrifar sagnfræðingurinn Erla Hulda Halldórsdóttir og um er að ræða tímamótaverk, þar sem ævisagan veitir heildstæða mynd af hinni söguríku 19. öld, en frá sjónarhorni konu. Þar er staldrað við aðra hluti en í ævisögum karla og fjallað um hið stóra og smáa: Ást, börn og bónorð, líf og dauða, bækur og sjúkdóma, hunda og hordauðar kindur, svo fátt eitt sé nefnt. Erla Hulda segir okkur nánar af bókinni í þætti dagsins.
    Við höldum okkur á tengdum miðum, en þó af allt öðrum meiði, í síðari hluta þáttar, þegar við kynnum okkur íslenska hönnunarverkefnið Flothettu. Vöruhönnuðurinn Unnur Valdís Kristjánsdóttir er hugmyndasmiðurinn á bak við Flothettu en flotmeðferðin var tilnefnd til hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Kolbrún Vaka Helgadóttir mælti sér mót við Unni Valdísi í Vesturbæjarlauginni til að fá að vita meira um Flothettu og uppruna hugmyndarinnar.
    Sölvi Halldórsson rýnir í nýútkomna bók Steinunnar Sigurðardóttur, Skálds sögu, þar sem höfundurinn veitir innsýn í eigin hugarheim, ytri og innri aðstæður og aðferðir við skriftir með 74 köflum úr höfundarlífinu.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Dagur Hjartarson/Sporðdrekar, Pétur Thomsen og Tókýó-Montana hraðlestin/rýni
    Sporðdrekar birtast á ýmsum stöðum í nýútkominni skáldsögu Dags Hjartarssonar með sama titil. Þeir eru eins og lím, endurtekið tema, tákn sem gæti verið tilviljun, eða vitnisburður um eitthvað óumflýjanlegt. Skáldsagan er umfangsmesta verk höfundar til þessa, og að baki útgáfunni er 7 ára meðganga. Ljóðrænn stíll Dags er skammt undan en Sporðdrekar er saga þrungin spennu, pælingum um dauðann og drauma, áföll, afskiptaleysi, vináttu og ytri og innri öfl sem móta manneskjuna. Sagan hverfist um örlagaríkan sólarhring, þann 28. október, og gerist að hluta til í miðborg Reykjavíkur. Við mæltum okkur mót við Dag á Prikinu í morgun.
    Pétur Thomsen hefur verið heillaður af landslagi og áhrifum mannsins á landslag frá því að hann útskrifaðist úr framhaldsnámi í ljósmyndun í Frakklandi árið 2004. Hann hefur beint linsunni að landslagi borga, sveita og hálendis og skrásett þannig samband manns og náttúru. Síðustu ár hefur hann einbeitt sér að sínu nánasta umhverfi í Grímsnesinu og myndað þar námur, tún, skurði, víði, birki og móabörð og afraksturinn verður til sýnis á sýningunni Landám sem opnar á morgun, 8.nóvember, í Hafnarborg. Ljósmyndirnar eru teknar að næturlægi en ljósmyndarinn lýsir landið upp með flassi til að afmarka sviðið. Við það fá myndirnar á sig vissan eftir-heimsendablæ, þar sem svartur himininn gefur til kynna yfirvofandi vá. Pétur segist vonast til að verkin á sýningunni fái fólk til að velta þessum málum fyrir sér, en ekki síður vonist hann til að áhorfendur fái fagurfræðilega upplifun.
    Nýverið kom út skáldsagan Tokýó-Montana hraðlestin eftir Richard Brautigan í þýðingur Þórðar Sævars Jónssonar. Þetta er safn hundrað og þrjátíu örsagna sem tengjast persónulegri reynslu höfundar þegar hann dvaldi í Japan og Montana-ríki í Bandaríkjunum. Gauti Kristmannsson rýnir í verkið í þætti dagsins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Rúnar Guðbrandsson / Svipmynd
    Rúnar Guðbrandsson hafði ekki þolinmæði fyrir einsleitninni á Íslandi á kaldastríðsárunum, ákvað strax eftir menntaskóla að fara eins langt og hann kæmist, og endaði á því að fara að mestu gangandi frá Danmörku, til Indlands og upp í Himalya fjöllin. Útrásin og forvitnin fyrir því því sem er handan hornsins, handan götunnar, hafa verið leiðarstef í lífi hans og hann varð snemma spenntur fyrir leiklist. Sýn Rúnars á leikhús umbreyttist þegar hann 17 ára sá tvær óhefðbundnar leiksýningar í Danmörku. Eftir nám og störf á því sviði þar í landi bættist við margvísleg þjálfun í leiktækni í Póllandi, Ítalíu, Bretlandi, Rússlandi og víðar.
    Rúnar hefur áralanga reynslu sem leikhúslistamaður bæði á Íslandi og erlendis. Auk þess að starfa sem leikari, höfundur og leikstjóri hefur Rúnar kennt leiktúlkun og fengist við ýmis konar tilraunstarfsemi á vettvangi sviðslista og kvikmynda. Hann stofnaði leikhópinn Lab -Loka árið 1992, sem hefur undir stjórn Rúnars hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna, og Heimilislausa leikhúsið 2015, sem leiddi af sér ýmis leikhúsverkefni á jaðrinum í Evrópu, m.a. með föngum og kynlífsverkafólki.
    Rúnar lítur á leikhúsið sem orkustöð. Hann segir aðferðafræðina skipta höfuðmáli því það vanti aldrei hugmyndir; leikhúsið sé farvegur til að nema ný lönd.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    53 min
  • Halla Þórðardóttir, Sif Margrét Tulinius og Íslenski dansflokkurinn/rýni
    Við kynnum okkur nýútkomna hljómplötu sem ber titilinn De Lumine, eða varðandi ljósið. Fiðluleikarinn Sif Margrét Tulinius segir titilinn einkennandi fyrir verkin sem hún leikur á plötunni, sem innihalda meira ljós en myrkur þrátt fyrir sterkar andstæður í tónlistinni. Um er að ræða þrjú einleiksverk fyrir fiðlu, eftir jafn mörg íslensk tónskáld, þá Hjálmar H Ragnarsson, Huga Guðmundsson og Viktor Orra Árnason. Sif Margrét kemur til okkar í lok þáttar og segir okkur nánar af verkefninu.
    Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, en hann fór á frumsýningu hjá Íslenska dansflokknum síðastliðinn föstudag. Flokkurinn sýndi tvö ný verk: Órætt algleymi eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur og Hverfa eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur.
    En við byrjum á því að heyra af nýrri ljóðabók sem kallast Sólin er hringur. Höfundur bókarinnar Halla Þórðardóttir er atvinnudansari, starfaði með Íslenska dansflokknum í áratug en Sólin er hringur er hennar fyrsta útgefna skáldverk. Það er taktur og töluverður dans í ljóðum Höllu og tengsl líkama og náttúru eru þar rauður þráður. Hún segir þessi tvö listform, dansinn og ljóðið ansi tengd, og stefnir á að virkja þau tengsl áfram.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Steingrímur Eyfjörð, Laura Marling, Skrípið / Rýni
    Við lítum inn á sýningu á verkum Steingríms Eyfjörð í Gallerí Listval. Sýningin kallast 1978 og á henni vinnur Steingrímur með avant-garde tímabilið í íslenskri listasögu. Verkin sjálf eru hugleiðingar um tímabilið 1957-1980 en upphaf tímabilsins miðar hann við komu Dieter Roth til landsins og endalok þess miðar hann við upphaf markaðsvæðingar á myndlist.
    Við heyrum einnig af nýrri plötu söngvaskáldsins Lauru Marling, Patterns in Repeat. Einlæga plötu sem fjallar um móðurhlutverkið og hin síendurteknu mynstur sem við manneskjurnar festum okkur í. Og Sölvi Halldórsson rýnir í Skrípið eftir Ófeig Sigurðsson.
    52 min
  • Slökkvistöðin, Elva Rún Kristinsdóttir, Þú ringlaði karlmaður /rýni, Aftökunóttin
    Í Slökkvistöðinni í Gufunesi opnar á morgun ljósmyndasýning á verkum Helga Vignis Bragasonar sem kallast Ábati: hugleiðing um efni. Ljósmyndun kom seint inn í líf Helga sem starfaði frá 10 ára aldri við byggingarframkvæmdir. Nú beinir hann fyrst og fremst linsunni að þeim iðnaði og með nokkuð gagnrýnu auga, sé vel að gáð. Síðustu ár hefur Helgi einbeitt sér að stærstu byggingarframkvæmd Íslandssögunnar, nýja Landsspítalanum. VIð ræðum við Helga og Birtu Fróðadóttur sýningarstjóra í þætti dagsins.
    Í dag er hrekkjavaka, upphaf hins gamla veturs, dagur hinna dauðu, - og við höldum af því tilefni á myrkari mið og minnumst þeirra skálda og menningarvita sem tekin voru af lífi í fjöldaaftökum í Sovétríkjunum á tímum stalínismans.
    Sölvi Halldórsson verður einnig með okkur í dag, og rýnir að þessu sinni í bók Rúnars Helga Vignissonar, Þú ringlaði karlmaður: tilraun til kerfisuppfærslu.
    En við hefjum þáttinn á því að heyra í fiðluleikaranum Elfu Rún Kristinsdóttur sem heldur tónleika í Fríkirkjunni á morgun.
    53 min
  • Melkorka Sigríður Magnúsdóttir / svipmynd
    Mel­korka Sig­ríður Magnús­dótt­ir, danshöfundur, nýsköpunarfræðingur og tónlistarkona var bara fimm ára þegar hún fór að sjá Þrjár systur Tchekhovs og fannst það alveg jafn skemmtilegt og að sjá Skógarlíf. Hún varð snemma heilluð af leikhúsinu svo það var í raun rökrétt skref að fara í dansnám þó röð tilviljana hafi líka átt þar hlut að máli. Sautján ára gömul flutti hún til Amsterdam til að læra danssmíði og síðar til Brussel í framhaldsnám í samtímadansi við P.A.R.T.S skólann. Í verkum sínum hefur Melkorka gjarnan kannað samband og mörk tónlistar og danslistar og oftar en ekki unnið í samstarfi við aðra listamenn. Hún myndar ásamt Árna Rúnari Hlöðverssyni dúóið Milkywhale en hann kemur einmitt að sýningunni Hverfa sem Melkorka er höfundur að og frumsýnir í samstarfi við Íslenska dansflokkinn um næstu helgi. Melkorka er gestur okkar í svipmynd dagsins.
    53 min
  • Kristín Ómarsdóttir/Móðurást:Draumþing, Óperudagar/Örlagasögur kvenna, Við erum hér/rýni
    Við lítum við í bláu húsi í gamla vesturbænum og ræðum við Kristínu Ómarsdóttur um nýútkomna bók, Móðurást: Draumþing. Þar segir hún skáldaða sögu langömmu sinnar á ofanverðri nítjándu öld í Biskupstungum, en að sögn Kristínar er bókin líka óður til vatnsins. Draumþing er annar hluti frásagnarinnar sem hófst með Móðurást: Oddnýju fyrir ári síðan, en fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin.
    Trausti Ólafsson verður einnig með okkur í dag, og að þessu sinni rýnir hann í glymskrattasöngleikinn Við erum hér, sem leikhópurinn Viðlag sýnir um þessar mundir í Tjarnarbíói.
    En við hefjum þáttinn á því að taka á móti Margréti Hrafnsdóttur söngkonu. Margrét tekur þátt í óperudögum með viðburði sem kallast Örlagasögur kvenna, ásamt rússneska píanóleikaranum Polinu Fradkina. Báðar hafa þær brennandi áhuga á því að segja sögur, og þá sérstaklega sögur af örlögum kvenna.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    58 min
  • Elín Sigríður María Ólafsdóttir, List án landamæra, Þessir djöfulsins karlar, Tóm hamingja
    Hvað væri lífið án listar, spyr Elín Sigríður María Ólafsdóttir, í samtali við Víðsjá í Hafnarborg. Elín er listamaður Listar án landamær í ár og við hittum hana á sýningu hennar Við sjáum það sem við viljum sjá.
    Einleikurinn Orð gegn orði hefur verið á fjölunum í tæpt ár og komið að leiðarlokum. Við hittum þær Þóru Karítas Árnadóttur leikstjóra og Ebbu Katrínu Finnsdóttur leikkonu og forvitnumst um ferlið og hvernig áhrif sýning hefur haft á þær.
    Katla Ársælsdóttir rýnir í verkið Tóma hamingju sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu um helgina og Gauti Kristmannsson rýnir í bókina Þessir djöfulsins karlar eftir Andrev Walden, í þýðingu Þórdísar Gísladóttur.
    56 min
  • Glerþræðirnir, Dagurinn sem Ísland stöðvaðist, Litla hryllingsbúðin-rýni, Víkingur og Wang-rýni
    Magnús Sigurðsson rithöfundur verður gestur okkar í dag en hann var að gefa út bókina Glerþræði, etnógrafísk brot. Í Glerþráðunum fléttar Magnús atvikum og persónum úr sögu landsins listilega saman og tengir við sögur úr nútímanum á einstakan hátt. Þetta er form sem Magnús hefur áður unnið með, en í þetta sinn vinnur hann einungis úr rammíslenskum heimildum. Heimildum sem margar hverjar komu úr bókahillunni á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi þar sem hægt er að nálgast gefins bækur.
    Í kvöld verður frumsýnd heimildarmyndin, Dagurinn sem Ísland stöðvaðist, en hún fjallar um aðdraganda Kvennaverkfallsins 1975. Hrafnhildur Gunnarsdóttir meðhöfundur og framleiðandi myndarinnar verður einn af gestum okkar í dag.
    Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í Sinfóníutónleikana sem fram fóru 17.október síðastliðinn og tónleika Yuja Wang og Víkings Heiðars og Katla
    Ársælsdóttir rýnir í Litlu hryllingsbúðina í uppsetningu Leikfélags Akureyrar.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners