Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Eldri konur, Jarðljós/rýni, Nordic Affect og Norðuróp/rýni
    Við lítum í heimsókn til Evu Rúnar Snorradóttur, rithöfundar og sviðslistakonu, í þætti dagsins. Eva Rún var að gefa út Eldri konur, sína fyrstu skáldsögu, en áður hefur Eva Rún gefið skáldverkið Óskilamuni og þrjár ljóðabækur. Eldri konur fjallar um konu með þráhyggju fyrir eldri konum. Aðalpersónan rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsáranna gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana. Bókina byggir Eva Rún að einhverju leyti á eigin reynslu.
    Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í tónleika Nordic Affect sem fóru fram í Mengi þann 18.nóvember, og óperugalatónleika Norðuróps sem fóru fram þann 16.nóvember í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.
    Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Jarðljós, tíundu ljóðabók Gerðar Kristnýjar.
    55 min
  • Helga Lilja Magnúsdóttir fatahönnuður, Þín eru sárin, Reykjavík Dance Festival / rýni
    Við förum út á Granda í þætti dagsins og heimsækjum fatahönnuðinn Helgu Lilju Magnúsdóttir. Helga Lilja hlaut hönnunarverðlaun Íslands í byrjun mánaðarins í flokknum vara ársins fyrir ullarpeysuna James Cook. Í umsögn dómnefndar er peysan sögð vera gott dæmi um framúrskarandi íslenska hönnunarvöru sem hafin er yfir síkvika strauma tíðarandans, hugsuð og framleidd fyrir íslenskan veruleika og veðurfar. Við heyrum af sköpunarferlinu, hægri tísku og umhverfi fatahönnuða hér á landi.
    Einnig heyrum við rýni Soffíu Auðar Birgisdóttur í nýja bók Þórdísar Þúfu Björnsdóttur, Þín eru sárin. Og Nína Hjálmarsdóttir fjallar um Reykjavík Dance Festival.
    53 min
  • Á okkar máli, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, Reykjavík Dance Festival/rýni
    Fyrir nokkrum árum síðan varð myndlistarkonan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir vör við fjölgun flóttamanna í heimabæ sínum, Hafnarfirði. Hún tók líka eftir því að þar var fátt sem greip fólkið og ákvað að hafa frumkvæði að því að búa til vettvang þar sem fólk með ólíkan bakgrunn hefði tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í samfélaginu. Úr varð fjölbreytt starf með reglulegum listasmiðjum, viðburðum og samverustundum og stofnun hjálparsamtakanna GETU, sem styður við flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Hafnarfirði, Kópavogi og nágrenni. Hafnarborg er meðal samstarfsaðila GETU og þar verður á laugardag boðið upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem arabísk leturtákn verða innblástur fyrir listræna sköpun, undir leiðsögn listamannanna Yöru Zein og Ingunnar Fjólu. Við lítum við á vinnustofu þeirra í hafnarfirði og heyrum af viðburðinum og samstarfinu.
    Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð fyrir 20 árum og heldur upp á það með tvennum tónleikum í Langholtskirkju um helgina. Sveitin var stofnuð um það leyti sem sett var tónlistardeild við Listaháskóla Íslands því það vantaði vettvang fyrir nemendur Gunnsteinn Ólafsson hljómsveitarstjóri er einn stofnenda hljómsveitarinnar og verður gestur okkar í þætti dagsins.
    Reykjavík Dance Festival lauk eftir nokkurra daga veislu síðastliðinn sunnudag. Katla Ársælsdóttir og Nína Hjálmarsdóttir fóru á nokkrar sýningar sem þær munu rýna í, í þætti dagsins og í næsta þætti. Katla ríður á vaðið í dag með umfjöllun um Konukroppa og When a duck turns 18 a boy will eat her.
    En við hefjum þáttinn á símtali við semballeikarann Halldór Bjarka Arnarson, sem búsettur er í Sviss, en heldur tónleika undir yfirskriftinni Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, í Breiðholtskirkju á laugardag.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    53 min
  • Hallveig Rúnarsdóttir - Svipmynd
    Hallveig Rúnarsdóttir kemur úr mikilli tónlistarfjölskyldu og vissi snemma að hún myndi syngja mikið alla ævi. Hún ætlaði samt ekki endilega að verða söngkona, langaði frekar að verða leikkona og dreymdi um að komast í Guildhall School of Music and Drama í London sem slík. En söngurinn tók yfir og Hallveig endaði í óperudeild skólans. Hún er oft spurð að því hvort alþjóðlega óperusviðið hafi ekki heillað hana en dreymdi miklu frekar um að verða alhliða söngvari. Það hefur sannarlega orðið úr, og verkefnalistinn er orðinn langur og fjölbreyttur, á um 33 ára ferli. Hallveig hefur sungið þó nokkur óperuhlutverk og kemur reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit íslands. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í sígildri- og samtímatónlist árið 2013 fyrir hlutverk sitt sem Michaëla í Carmen hjá Íslensku óperunni, og aftur árið 2018 fyrir hlutverk sitt sem Gilitrutt og söng sinn á Klassíkinni okkar með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún hefur verið sérstaklega virk í flutningi nýrrar tónlistar og er listrænn stjórnandi og stofnandi tónlistarhópsins Cantoque Ensemble, sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir flutning sinn. Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir er gestur Svipmyndar í Víðsjá dagsins.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Steinunn Sigurðardóttir um Skálds sögu, Eyrnakonfekt Valdísar Þorkelsdóttur, Ég færi þér fjöll / rýni
    Steinunn Sigurðardóttir ætlaði sér aldrei að verða skáld. Kvenfyrirmyndir voru ekki margar og um tíma var hún spéhrædd við gáfumennin sem gerðu grín að kerlingabókmenntum. En svo tóku skrifin bara yfir og þegar bókunum fjölgaði, fengu viðurkenningu og fóru að ferðast til útlanda þá var hún orðin skáld, hvort sem henni líkaði betur eða verr. Við ræðum við Steinunni um Skálds sögu í þætti dagisns, en í þessu nýjasta verki hennar segir hún frá sjálfri sér, vinnuherbergjum, vinnuaðferðum og afstöðu sinni til skáldskaparins.
    Valdís Þorkelsdóttir, viðburðastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, verður gestur okkar í í þætti dagsins og segir frá sínu uppáhalds tónverki.
    Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Ég færi þér fjöll eftir Kristínu Marju Baldursdóttur.
    52 min
  • Börn í Reykjavík, prjónaiðnaður og sellóverk Veronique Vöku
    Við hefjum þátt dagsins á nýju tónverki af plötu sem kom út í síðustu viku, Neige éternelle, five pieces for solo cello, eftir tónskáldið Veronique Vöku, í flutningi Sæunnar Þorsteinsdóttur. Veronique Vaka hefur búið hér á landi frá því að hún útskrifaðist með meistarpróf í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og eru verk hennar innblásin af íslenskri náttúru. Á þessari nýju plötu er að finna fimm verk en hvert og eitt þeirra túlkar eitt skeið í myndun jökuls. Þær Sæunn hafa starfað saman í nokkurn tíma en þessi plata sprettur úr sellókonstertinum Gemæltan sem Veronique samdi sérstaklega fyrir Sæunni og sem var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna í fyrra.
    Við kynnum okkur nýútkomið stórvirki, Börn í Reykjavík, eftir Guðjón Friðriksson. Bókin er stór og vegleg, vandlega upp sett og hana prýða hátt í sex hundruð ljósmyndir. Börn í Reykjavík var skrifuð að beiðni Barnavinafélagsins Sumargjafar, í tilefni af 100 ára afmæli félagsins, og er skrásett saga barna í Reykjavík frá því seint á 19. öld og fram til okkar daga. Þar er sagt umhverfi barna, námi þeirra og skyldum, leikjum, skemmtunum og félagsstarfi, auk þess sem fjallað er um þróun í barnaverndar-, uppeldis- og skólamálum. Guðjón lítur við í hljóðstofu og segir okkur aðeins af bókinni.
    Prjónavetur í Lista­safni Sigur­jóns í Laugar­nesi er röð sýn­inga og við­burða sem hófust um liðna helgi um munu standa fram á vor. Þær Brynhildur Pálsdóttir, hönnuður og ein af stofnendum Vík Prjónsdóttur, og Andrea Fanney Jónsdóttir, klæðskeri og prjónahönnuður, standa að baki verkefninu en markmiðið er að varpa ljósi á þá prjónahönnun sem hefur verið framleidd á Íslandi síðustu ár og einnig velta upp stöðu prjónaiðnaðarins, sem þær telja að standi höllum fæti.
    Prjónaveturinn hefst með sýningunni För, þar sem Andrea Fanney sýnir flíkur sem hún hefur hannað og framleitt síðustu ár. Flíkurnar eru innblásnar af fuglalífi höfuðborgarinnar en hver flík er sprottin úr minningum af fuglum og manneskjum sem þeim tengdust. Staðsetning sýninga og viðburða í Listasafni Sigurjóns er engin tilviljun því Andrea tengist Laugarnesinu sterkum böndum og er ein þeirra sem berst gegn uppbyggingu Faxaflóahafn og Veitna á svæðinu.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    56 min
  • Veður fyrir Veðurstofuna, Heimur í orðum, Rúmmálsreikningur/rýni
    Á laugardaginn opnar samsýningin Veður fyrir veður í húsnæði Veðurstofu Íslands og í undirgöngunum þar sunnan við. Sýningarstjórn er í höndum þeirra Söru Riel og Eddu Ýrar Garðarsdóttur en markmið sýningarinnar er, að sögn Söru, að gefa sálarfæði inn í hversdaginn, fyrir starfsfólk Veðurstofunnar. Sýningin samanstendur af úrvali verka íslenskra listamanna, sem eiga það sameiginlegt að hverfast um veðrið. Hún fær að standa í sex mánuði fyrir starfsfólk Veðurstofunnar, en verður opin almenningi þessa einu helgi. Hluti sýningarinnar er þó kominn til að vera, útilistaverk Söru Riel, í undirgöngunum undir Bústaðaveginn. Raunar spratt hugmyndin að samsýningunni út frá útilistaverkinu, sem varð að nokkurs konar samfélagsverkefni síðasta sumar, þegar íbúar Suðurhlíðar tóku þátt í að mála sólskinið inn í göngin. Við könnum veðrabrigðin í göngunum milli lífs og dauða í síðari hluta þáttar.
    Gauti Kristmannsson verður einnig með okkur í dag. Að þessu sinni rýnir hann í fyrsta og annað bindi af Rúmmálsreikningi Solvej Balle, í þýðingu Steinunnar Stefánsdóttur. En við hefjum þáttinn á því að fara í Eddu þar sem fyrsta handritasýning hússins opnar um helgina.
    Það var stór stund í vikunni þegar fyrstu handritin voru flutt úr Árnagarði og yfir í nýtt öryggisrými í Eddu. Handritin hafa verið geymd í í Árnagarði síðan í byrjun áttunda áratugarins en 20 ár eru síðan hætt var að sýna handritin þar, vegna lélegrar aðstöðu og ótryggs sýningarrýmis. Handritasýn­ing­ Árnastofnunar var í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu á árunum 2002 til 2013 en var einnig lokað vegna ör­ygg­is­mála. Sýningin Heimur í orðum verður opnuð í Eddu á degi íslenskrar tungu, laugardaginn 16. nóvember, og þá gefst í fyrsta sinn í langan tíma kostur á að sjá þennan ómetanlega menningararf, en meðal handrita á sýningunni eru frægustu íslensku miðaldahandritin, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Emiliana Torrini - Svipmynd
    Emilíana Torrini fór snemma að syngja og spinna upp sögur og segist drifin áfram af forvitni um fólk og fínni blæbrigði í lífinu. Hún ólst upp hjá iðnum foreldrum í Kópavoginum en dvaldi stóran hluta af barnæskunni hjá ömmu á Borgarfirði Eystri og frændfólki í Þýskalandi. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu sextán ára en síðan eru þær orðnar átta og verkefnin fjölmörg og fjölbreytt, meðal annars í samstarfi við nokkrar stórstjörnur tónlistariðnaðarins.
    Emilíana segir fullkomnunaráráttuna hafa minnkað með aldrinum, og að eftir fertugt hafi hún lært að njóta betur og að vera bara drullusama. Hún er nýkomin heim úr fimm vikna tónleikaferðalagi, þar sem hún fylgdi eftir nýjustu plötu sinni Miss Flower. Og hún er er gestur Svipmyndar í dag.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    51 min
  • Reykjavík Dance Festival /Ólöf Ingólfsdóttir, Birta Ásmundsdóttir, Listdans á Íslandi/Ingibjörg Björnsdóttir
    Reykjavík Dans Festival hefst með pompi og prakt á morgun, miðvikudag, og stendur yfir fram á sunnudag. Hátíðin var stofnuð árið 2002 og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af hápunktum menningarársins. Síðastliðin ár hefur reykjavík dance festival tengt sig við Lókal svo úr hefur orðið ein allsherjar sviðlistahátíð. Við tökum forsmekk á sæluna í þætti dagsins sem verður undirlagður undir dans.
    Listdans á sér rúmlega hundrað ára sögu á Íslandi, og nú gefst unnendum og áhugasömum tækifæri til að lesa um sögu danslistarinnar í glænýrri og veglegri bók sem ber titilinn Listdans á Íslandi. Þar rekur Ingibjörg Björnsdóttir, dansari, danshöfundur og sagnfræðingur, sögu þeirra sem ruddu braut listdansins hér á landi á síðustu öld og segir frá stofnun og starfsemi Listdansskóla Þjóðleikhússins. Saga Íslenska dansflokksins, barátta hans, andstreymi og sigrar, er síðan meginefni bókarinnar. Ingibjörg segir söguna af innsæi og þekkingu, enda sjálf þátttakandi í sögu danslistar á Íslandi í sjötíu ár, og hún lítur við í hljóðstofu í lok þáttar.
    Við hugum líka að tveimur nýjum dansverkum sem frumsýnd verða á hátíðinni, When a duck turns 18 a boy will eat her, eftir Birtu Ásmundsdóttur og Eitthvað um skýin, eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Birta rannsakar mörk kvenleikans með hjálp anda. Hugmyndin kviknaði í París, þar sem Birta, á ferð sinni ein um götur borgarinnar, upplifði hvernig karlmenn horfðu á hana á annan hátt en á Íslandi, og hvað það gat verið þreytandi. Í verkinu Eitthvað um skýin veltir Ólöf Ingólfsdóttir fyrir sér eðli og fjölbreytileika tilfinninga, sem svífa um vitundina og eins og ský yfir himininn. Verkið fléttar saman barokksöng og samtímadansi og markmiðið er að sögn höfundar að heiðra tilfinningar í öllum sínum myndum.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    52 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners