Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Parabóla Finnboga Péturssonar, jól í 12 tónum, Kul / rýni, Innanríkið Alexíus /rýni
    Parabóla nefnist ný sýning eftir Finnboga Pétursson, myndlistarmann, sem opnuð var í Gerðarsafni í október. Tómas Ævar lagði leið sína í safnið og ræðir í þættinum við Finnboga. Við lítum einnig inn til Lárusar Jóhannessonar í 12 tónum og heyrum af jólatónlist.
    Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Kul eftir Sunnu Dís Másdóttur en við hefjum þáttinn á rýni Sölva Halldórssonar í Innanríkið Alexíus eftir Braga Ólafsson.
    54 min
  • Þórarinn Eldjárn - Svipmynd
    Þórarinn Eldjárn fæddist í Reykjavík árið 1949. Megnið af uppvaxtarárunum bjó hann í Þjóðminjasafninu, eða þar til að faðir hans, Kristján Eldjárn, varð forseti Íslands og fjölskyldan flutti á Bessastaði. Heimilislífið einkenndist af húmor og unun af skáldskap og bestu tilsvörin voru í bundnu máli. Þórarinn lærði bókmenntafræði og heimspeki í Lundi í Svíþjóð og segist kannski meðvitað hafa reynt að læra eitthvað sem gerði hann lítt hæfan á almennum vinnumarkaði.
    Þórarinn var heimavinnandi húsfaðir í Svíþjóð þegar hann gaf út sína fyrstu bók, ljóðabókina Kvæði árið 1974. Bókin vakti mikla athygli og með henni skapaði Þórarinn sér strax sína sérstöðu; að yrkja háttbundin ljóð utan um hversdagsleg viðfangsefni, þar sem kímnin er aldrei langt undan. Þessi einkenni hafa fylgt skáldskap Þórarins alla tíð síðan þó hann hafi fljótlega afsannað það fyrir sjálfum sér og öðrum að hann þyrfti á bragarháttunum að halda til þess að koma frá sér góðum texta.
    Það er óhætt að segja að Þórarinn sé afkastamikill höfundur. Á 50 ára starfsævi hefur hann sent frá sér fjöldan allan af ljóðabókum, skáldsögum og smásagnasöfnum auk þess að vera ötull þýðandi. Hann hefur auk þess samið fjölda ljóðabóka fyrir börn í samstarfi við systur sína Sigrúnu Eldjárn og hlotið fyrir þær fjölmargar viðurkenninar. Þórarinn var borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2008 og hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu árið 1998. Auk þessa hafa bækur hans hlotið Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana. Skáldsaga hans Brotahöfuð var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 1999 og 2013 hlaut hann Viðurkenningu Sænsku akademíunnar fyrir kynningu á sænskri menningu erlendis.
    Þórarinn Eldjárn er gestur okkar í svipmynd dagsins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    52 min
  • Auður Lóa Í rósrauðum bjarma, Múffa / rýni, jazzperlur í Múlanum
    Hakk og spagetti af blendnum tilfinningum, segir Auður Lóa Guðnadóttir um sýninguna Í rósrauðum bjarma / In watermelon sugar sem nú stendur yfir í gallerí Þulu í Marshallhúsinu. Auður Lóa sækir fanga víða þegar kemur að innblæstri, en í verkunum má sjá þekkt minni úr dægurmenningunni. Vinnuaðferðir hennar vísa í keramikhefð og það sem hefur löngum verið kallað kvennalist, og segist Auður Lóa að einhverju leyti vinna gagngert á móti eigin fyrirframgefnu hugmyndum um hvað sé merkileg myndlist.
    Það er ekki á hverjum degi, og raunar mjög sjaldgæft, að jazzband sem eingöngu er skipað konum treður upp á Múlanum, en það gerist annað kvöld. Þá munu þær Helga Margrét Clarke og Vigdís Þóra Másdóttir, ásamt hljómsveit, bera á borð íslenskar jazzperlur úr eigin smiðju og annarra. Við ræðum við þær stöllur í þætti dagsins.
    Gréta Sigríður Einarsdóttir verður einnig með okkur í þætti dagsins, að þessu sinni rýnir hún í skáldsöguna Múffu eftir Jónas Reyni Gunnarsson.
    51 min
  • Gluggagallerí, Stargate og Leiðin í hundana
    Við höfum aðeins spilað og rætt um jólalög og jólatónlist, sem er sérstaklega til þess fallin að koma okkur í jólaskapið á aðventunni. Og við höfum vissulega rætt um bækur og hið svokallaða jólabókaflóð, þó þar séu fáar bækur sem beinlínis teljast jólasögur. En það leynist samt amk ein slík í flóðinu, norska skáldsagan Stargate, eftir Ingvild Rishøi. Sagan minnir um margt á eina þekktustu jólasögu hins norræna heims, Litlu stúlkuna með eldspýturnar eftir HC Andersen, en Stargate er sögð frá sjónarhorni 10 ára stúlku sem býr í fjölmenningarhverfinu Tøyen í Osló. Við hringjum í Kari Ósk Grétudóttur, íslenskan þýðanda Stargate.
    Gluggagalleríið STÉTT er nýtt sýningarrými í Reykjavík, staðsett í glugga í Bolholti 6 í Reykjavík. Umsjón með þessu nýja rými eru listamennirnir Steinunn Gunnlaugsdóttir og Snorri Páll Jónsson. Glugginn er í sama húsi og Sósíalistaflokkurinn en galleríið er ekki flokkpólitískt, umsjónarmenn segjast vera einhverskonar stjórnleysingjar í glugga stjórnmálaflokks. Fyrsta sýning Stéttar var samsýning nokkurra listamanna sem opnaði í mars, en héðan í frá verða þar einkasýningar þar sem listamönnum býðst að taka gluggann yfir og umbreyta honum. Nú sýnir listeindin sadbois þar listaverkleysuna Málvernd. Sadbois koma ekki fram undir nafni, en segjast vera „ómannlegur andlitslaus skjöldur almennra borgara sem leggja stund á neikvæða starfsemi fjármagnaða með opinberum styrkjum“.
    Gauti Kristmannsson verður einnig með okkur í þætti dagsins. Að þessu sinni fjallar hann um eitt af höfuðverkum þýskra bókmennta á tuttugustu öld, Leiðin í hundana eftir Erich Kästner. Kästner var einn þeirra höfunda sem lentu í ónáð nasista, Hann var viðstaddur þegar hans eigin bækur voru brenndar á báli í Berlín árið 1933 og sat um tíma í fangelsi fyrir skoðanir sínar. Leiðin í hundana kom nýverið út í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    50 min
  • Ásta Fanney til Feneyja 2026, Mikilvægt rusl /rýni, Nokkur jólaleg lög, leikhús í Helsinki
    Í gær var tilkynnt að Ásta Fanney Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026. Valið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í gær þar sem kampavín og kaka komu við sögu. Við ræðum við Ástu Fanneyju í þætti dagsins.
    Fyrir skömmu sendu GDRN og Magnús Jóhann frá sér sönglagaplötuna Nokkur jólaleg lög. Á plötunni flytja þau þekkt jólalög og vetrarlög í lágstemmdum en einlægum útgáfum ásamt nokkrum góðum gestum. Tómas Ævar sest niður með þeim Magnúsi og Guðrúnu og ræðir við þau um gerð plötunnar.
    Við heyrum einnig rýni í nýja skáldsögu Halldórs Armand, Mikilvægt rusl, í þætti dagsins, en Sölvi Halldórsson hefur nýlokið við lesturinn.
    Og við fáum einnig ferðasögu frá Helsinki frá Trausta Ólafssyni, einn af leikhúsrýnum þáttar, en hann var þar í mikilli leikhúsreisu.
    51 min
  • Einar Falur Ingólfsson / Svipmynd
    Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari kom í heiminn árið 1966 í Keflavík. Hann fékk sína fyrstu almennilegu myndavél í fermingargjöf og var farinn að skrifa fréttir fyrir Morgunblaðið 15 ára gamall. Stuttu síðar hófst ferill Einars Fals við blaðið sem átti eftir að spanna 40 ár, sem blaðamaður, ljósmyndari og síðar myndstjóri.
    Meðfram störfum sínum á Morgunblaðinu hefur Einar Falur gefið út ljósmyndabækur og haldið sýningar hér heima og erlendis. Hann segir þó oft hafa verið snúið að reyna að vinna í frumsköpun meðfram dagvinnu, en að listamannalaun hafi gert honum kleift að fara úr dagvinnu um tíma og hella sér af krafti í sköpunina. Hann segir hraðann í fjölmiðlum hafa ýtt sér út í hæg verkefni, þar sem hann nær að dvelja um stund og vinna mikla grunnvinnu og skapa einskonar handrit utan um viðfangsefnið. Meira um það í Svipmynd dagsins.
    52 min
  • Rakarinn frá Sevilla, Snorri Ásmundsson, Eldri konur/rýni
    Í dag leggjum við leið okkar á rakarastofu í Reykjavík til þess að hitta þau Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, söngvara og forsprakka sviðslistahóspins Óðs, sem sem sýnir nú Rakarann frá Sevilla í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll.
    Við setjumst einnig niður við píanóið með Snorra Ásmundssyni, myndlistarmanni og besta píanóleikara heims og heyrum rýni Soffíu Auðar Birgisdóttur í Eldri konur eftir Evu Rún Snorradóttur.
    52 min
  • Jötnar hundvísir, Bókin bókauppboð, Móðurást: Draumþing/rýni, Magnea Guðmundsdóttir
    Heimildirnar sem við eigum um norræna goðafræði eru yfirleitt hliðhollar ásum, þeir eru fulltrúar þess ákjósanlega, skipaninni. Í þeirri tvíhyggju uppstillingu eru jötnarnir þá hálfgerð skrýmsli og það sem þeir standa fyrir jafnvel óæskilegt. En myndin er ekki svo einföld, því jötnar eru í raun vitrir, fjölkunnugir og ríkir. Ingunn Ásdísardóttir skoðar norrænu sagnirnar út frá sjónarhorni jötna í nýútkominni bók sem ber titilinn Jötnar hundvísir og verður gestur þáttar í dag.
    Við sláum einnig á þráðinn til Eiríks Ágústs Guðjónssonar í fornbókaversluninni Bókinni og heyrum af bókauppboði.
    Sölvi Halldórsson bókarýnir verður einnig með okkur í dag. Að þessu sinni rýnir Sölvi í Móðurást:Draumþing eftir Kristínu Ómarsdóttur og við fáum að auki hugleiðingu frá Magneu Guðmundsdóttur arkitekt, sem veltir fyrir sér mótun staðaranda í samhengi við nýtilkominn miðbæ Selfoss.
    52 min
  • Óli K, píanóhátíðin Slagharpan syngur og handhafi The Booker Awards
    Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans voru kynntar við hátíðlega athöfn í Eddu í gær. Ein þeirra bóka sem tilnefnd er í flokki fræðibóka og rita almenns efnis er Óli K, en hún fjallar um Óla K. fyrsta fastráðna blaðaljósmyndara Íslands. Óli K. fór til Bandaríkjanna í nám á stríðsárunum og hóf svo störf Morgunblaðinu árið 1947 þar sem hann vann í 49 ár. Hann var einn þeirra sem skrásetti sögu landsins og var viðstaddur fjölda mikilvægra atburða í sögu þjóðarinnar, Natómótmælin á Austurvelli, Vestmannaeyjagosið, Kvennafrídaginn, komu handritanna og heimsókn Ellu Fitzgerald til landsins, svo eitthvað sé nefnt. Það er sagnfræðingurinn Anna Dröfn Ágústsdóttir sem ritaði sögu Óla K. og við ræðum við hana í þætti dagsins.
    Við hugum einnig að erlendum bókmenntum, nánar tiltekið bandarískum bókmenntum. Í síðustu viku fór fram verðlaunaafhending The National Book Award vestanhafs. Verðlaun voru veitt í fimm flokkum en skáldsagnaverðlaunin sem fara gjarnan hæst hlaut höfundurinn Percival Everett fyrir bókina James, sem er endursögn á heimsbókmenntinni Huckleberry Finn eða Stikkilsberja Finni, eftir Mark Twain. Tómas Ævar segir frá bókinni í þætti dagsins.
    Og við kynnum okkur nýja tónlistarhátíð, Slagharpan syngur. Á hátíðinni er íslensk píanótónlist frá hinum ýmsu tímabilum í forgrunni og flutt. Hátíðin samanstendur af fjöbreyttum viðburðum s.s. tónleikum, fyrirlestrum og kynningum og er opin öllum áhugasömum. Píanóleikararnir Erna Vala Arnardóttir, Peter Mate og Nína Margrét Grímsdóttir standa að hátíðinni og þau Peter og Erna Vala líta við í hljóðstofu til að segja nánar frá henni.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    53 min
  • Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari / svipmynd
    „Lífið er ekkert nema viðhorf og tímasetning,“ segir Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari. Hjá henni er allt flæði og spuni, bæði í lífinu og listinni. „Það þarf að skynfinna myndlist, skynja frekar en að skilja.“
    Það má segja að náttúran sé helsti innblástur Brynhildar og rekur hún það til æskustöðvanna en einnig til sterkrar náttúruupplifunar á hálendinu, þar sem hún starfaði sem landvörður meðfram myndlistarnáminu. Steypa og gler eru helsti efniviður Brynhildar. Hún hóf að vinna með gler í framhaldsnámi í Amsterdam en það var í Kaliforníu sem hún segist hafa uppgötvað eðli og tungumál efnisins.
    Efnið ræður alltaf för í hennar verkum og glerið er oftar en ekki útgangspukturinn. Svo tekur við leikur á milli kraftanna í efninu og kraftanna í Brynhildi sjálfri.
    56 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners