Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Tóma rýmið, Molly Drake og Kundera: Vesturlönd í gíslingu/rýni
    Í yfirgefnu bílaverkstæði við Skeljanes í Reykjavík hefur hópur sviðslistafólks komið sér fyrir með starfsemi undir yfirskriftinni Tóma rýmið. Þar hafa þau æfingaaðstöðu og rými til þess að prófa áfram og sýna verk á mismunandi stigum í undirbúningsferlinu. Hluti af starfsemi Tóma rýmisins felst í mánaðarlegum tilraunakvöldum, þar sem meðlimir hópsins bera á borð verk í vinnslu eða gera tilraunir í samtali við áhorfendur. Tilraunakvöld janúarmánaðar fer fram í Tóma rýminu í kvöld. Þar verður áhorfendum meðal annars boðið upp á brot úr leikverkinu Skeljar, eftir Magnús Thorlacius, og lifandi tónlistarmyndband úr smiðju systkinana Snæfríðar Sólar og Kormáks Jarls, en gestum býðst líka að skella sér í sánu við sjóinn eftir viðburðinn. Við hittum þau Snæfríði og Magnús og heyrum nánar af starfsemi Tóma rýmisins.
    Við ætlum líka að kynna okkur tónlistarkonuna Molly Drake sem var algjörlega óþekkt sem listakona á meðan hún lifði. Molly var bresk millistéttarhúsmóðir í litlu sveitaþorpi nálægt Birmingham þegar hún samdi nær alla sína tónlist. Hún skrifaði ljóð og lagatexta og samdi melódíur á heimilispíanóið, fyrst og fremst fyrir sjálfa sig. Molly datt aldrei í hug að gefa tónlistina sína út en þökk sé eiginmanni hennar eru til upptökur sem hann tók upp á heimili þeirra. Þessar upptökur voru gefnar út löngu eftir dauða Mollyar, þegar sonur hennar, Nick Drake, var orðinn heimsfrægur tónlistarmaður.
    Gauti Kristmannsson verður líka með okkur í dag og fjallar að þessu sinni um Vesturlönd í gíslingu - eða harmleik um Mið-Evrópu, tvær ritgerðir tékkneska rithöfundarins Milan Kundera, í þýðingu Friðriks Rafnssonar.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Vínartónleikar, Áslaug Jónsdóttir og Yerma/rýni
    Í gær var veisla hér í Útvarpshúsinu þegar Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar að viðstöddum viðurkenningarhöfum og gestum. Veittar voru tvær viðurkenningar úr Rithöfundasjóði og tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu. Mugison fékk Krókinn, verðlaun fyrir framúrskarandi lifandi flutning, og tilkynnt var um valið á orði ársins 2024, sem er hraunkælingarstjóri, eins og komið hefur fram í fréttum.
    Birnir Jón Sigurðsson hlaut hvatningarverðlaun Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, en þetta árið er það Áslaug Jónsdóttir sem er handhafi viðurkenningar Rithöfundasjóðs RÚV. Áslaug segir sjálf að hún sé bókverkakona, en frá 1990 hefur hún ritað og myndlýst fjölda barnabóka, skrifað ljóð og leikrit, auk þess að taka þátt í myndlistar- og bókverkasýningum. Hennar nýjustu sköpunarverk eru ljóðabókin Til minnis og limrubókin Allt annar handleggur, sem komu út árið 2023 og Skrímslaveisla sem kom út í fyrra, en Áslaug er sennilega þekktust fyrir bækurnar um skrímslin sem eru orðnar 11 talsins. Áslaug verður gestur okkar í þætti dagsins.
    Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fara fram í Eldborg Hörpu í kvöld og næstu tvo daga. Sambærilegir viðburðir fara fram í öllum helstu borgum Evrópu í upphafi árs og tónleikum Vínarfílharmóníunnar er sjónvarpað um heim allan á nýársdag. Vinsældir vínartónleika eru gífurlegar og áheyrendur flykkjast í tónleikasalina til fagna hefðinni og nýju ári í lakkskóm og pallíettukjólum. Margir gætu haldið að rætur slíkra hátíðahalda lægju í menningarblóma 19. aldar. En sagan er talsvert styttri en svo og á sér raunar nokkuð dökkar hliðar.
    Við heyrum einnig leikhúsrýni í þætti dagsins. Að þessu sinni rýnir Katla Ársælsdóttir í jólasýningu Þjóðleikhússins, Yermu eftir ástralska leikskáldið Simon Stone.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Ifigenía í Ásbrú, Unnar Örn í Óminnissafni, Moldin heit/rýni
    Í Glerhúsinu stendur nú yfir sýning sem ber titilinn Óminnissafnið - varðveislu- og rannsóknardeild. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Unnar Örn Auðarson afrakstur vangaveltna um tilraunir okkar til að skjalfesta tímann með söfnun og skrásetningu á upplýsingum úr umhverfi og samfélagi. Við hittum Unnar Örn í þætti dagsins. Við heyrum einnig bókarýni en að þessu sinni rýnir Gréta Sigríður EInarsdóttir í skáldsöguna Moldin heit, eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, en sú bók hefur verið tilnefnd bæði til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna. En við hefjum þáttinn á því að kynna okkur leikverkið Ifigenía í Ásbrú sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói í næstu viku. Verkið er einleikur og upprunalegur titill þess er Iphigenia in Splott en þær Anna María Tómasdòttir leikstjóri og Þórey Birgisdóttir leikkona þýddu og staðfærðu verkið fyrir íslenska sviðið.
    54 min
  • Mörsugur, Augljós í Neskirkju, Köttur á heitu blikkþaki / rýni
    Við hefjum þáttinn á því að fara í kirkju. Augljós kallast sýning sem opnaði þann 8.desember í Neskirkju og stendur yfir fram til 20.janúar. Þar sýnir Þórdís Erla Zoega ljósaverk sem sækja innblástur í kirkjuglugga og vinnur með sjónrænar skynvillur sem hvetja áhorfandann til að líta inn á við. Við kynnum okkur einnig nýtt verk, Mörsugur, óperu fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki, byggða á ljóðsögu eftir Ragnheiði Erlu Björnsdóttur. Mörsugur varð til í samsköpunarferli Ásbjargar Jónsdóttur tónskálds, Heiðu Árnadóttur söngkonu og Ragnheiðar Erlu Björnsdóttur ljóðskálds og tónskálds og nú fyrir helgi kom út bókverk með ljóðsögunni, ásamt grafískum útfærslum og stillum úr myndverki sem Ásdís Birna Gylfadóttir vann við Mörsug. Þær Heiða og Ásbjörg koma til okkar í hljóðstofu og segja okkur nánar af verkefninu.
    Trausti Ólafsson rýnir í Kött á heitu blikkþaki sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu þann 28.desember.
    54 min
  • Víðsjá og Lestin líta yfir farinn veg og til framtíðar - Fyrri hluti
    Sameiginlegur þáttur Víðsjár og Lestarinnar í upphafi ársins 2025.
    Í þáttum dagsins höldum við úr húsi, förum inn í lágvöruverslunina Prís í Kópavogi, verslunarmiðstöðina Eiðistorg á Seltjarnarnesi, vöðum slabbið út í strætóskýli og tökum líka upp tólið og hringjum út á land: austur, vestur, norður og suður.
    Hvað var fólk í Prís að hugsa rétt eftir jólin og hvað finnst unglingum á Eiðistorgi um bækur?
    Hvaða áhrif hefur risa myndlistarsýning á verkum Roni Horn í strætóskýlum á gangandi vegfarendur, nú eða akandi strætóbílstjóra?
    Hvað er low taper fade, hvað er best að gera á Benidorm og hvernig leggst þetta nýja ár í okkur?
    Umsjón: Kristján Guðjónsson, Halla Harðardóttir, Lóa Björk Björnsdóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    51 min
  • Jólalag ríkisútvarpsins 2024, Guðrún Hannesdóttir - Kallfæri, Sporðdrekar/rýni, Himintungl yfir heimsins ystu brún/rýni
    Í lok Víðsjár verður jólalag ríkisútvarpsins árið 2024 frumflutt, ásamt kynningu höfundar á laginu.
    Frá því í október hafa umfjallanir um bækur raðast inn í vikurnar í Víðsjá, eins og jólaskraut á tré. Bókarýnarnir okkar þrír hafa tínt upp úr jólakistlinum fjölbreyttar gjafir flóðsins og fært í samhengi og í dag veljum við úr kistlinum dýrindis gripi. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um skáldsögu Jóns Kalman, Himintungl yfir heimsins ystu brún og Sölvi Halldórsson fjallar um skáldsögu Dags Hjartarsonar, Sporðdreka.
    Þessa vikuna höfum við fjallað um ljóðabækur, sem eru eins og fíngerðasta og fallegasta skrautið, gripirnir sem raðast efst á tréð. Og í þessum síðasta þætti fyrir jól fær undurfögur og lítillát ljóðabók að bregða sér í hlutverk stjörnunnar á toppi trésins, það er ljóðabókin Kallfæri, eftir Guðrúnu Hannesdóttur. Bókin er tíunda ljóðabók Guðrúnar, sem hélt upp á áttræðisafmæli sitt í sumar, en gaf út sína fyrstu ljóðabók árið 2007. Guðrún heimsótti hljóðstofu Víðsjár í morgun.
    Með frumflutningi jólalags ríkisútvarpsins 2024 í lok þáttar óskar Víðsjá hlustendum sínum bjartra og gleðilegra jóla og þakkar samfylgdina á árinu sem er að líða.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    48 min
  • Bára Gísladóttir í Svipmynd, Flaumgosar / rýni
    Bára Gísladóttir tónskáld og kontrabassaleikari er fædd í Reykjavík árið 1989. Fjölskyldan fluttist í nokkur ár til Noregs þegar Bára var fimm ára og það var þar sem hún hóf nám á fiðlu. Hún segist þó aldrei hafa náð tengingu við fiðluna og það var ekki fyrr en hún kynntist kontrabassanum 17 ára gömul í Nýja Sjálandi að hún upplifði djúpa og sterka tengingu við hljóðfæri. Bára nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands, Verdi Akademíuna í Mílanó og Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn og hún hefur búið í Kaupmannahöfn síðastliðin 10 ár. Tónsmíðar Báru þykja einstakar, nýstárlegar og djarfar. Sjálf segir Bára sína tónlist byggja á hugmyndinni um hljóðið sem lífveru. Verk hennar eru margverðlaunuð og hafa verið flutt víða, bæði af stórum hljómsveitum sem og minni kammerhópum auk þess að vera flutt á tónlistarhátíðum víðsvegar um heiminn. Fjöldi tónlistarmanna, tónlistarhópa og hljómsveita hafa pantað hjá henni verk, en Bára sjálf er einnig virkur flytjandi. Meira um það í þætti dagsins.
    Og Soffía Auður Birgisdóttir um ljóðabókina Flaumgosa eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur.
    50 min
  • Rifsberjadalurinn, Tríó Esja, Friðsemd / rýni
    Ásdís Óladóttir samdi sitt fyrsta ljóð níu ára gömul en sýndi það ekki nokkurri manneskju. Hún tók upp þráðinn á ný átján ára gömul og byrjaði þá markvisst að skrifa. Ásdís var greind með geðklofa rúmlega tvítug og síðan þá hefur skáldskapurinn verið haldreipi hennar í lífinu. Hún hefur gefið út níu ljóðabækur og í þeirri nýjustu sem kallast Rifsberjadalurinn fjallar Ásdís í fyrsta sinn um þá lífsreynslu að veikjast, leitina að skýringum og leiðina til betra lífs. Ásdís verður gestur okkar í dag og segir okkur frá Rifsberjadalnum, en bókin var tilnefnd til Fjöruverðlauna á dögunum.
    Þær Guðrún Brjánsdóttir, Herdís Ágústa Linnet og Kristín Ýr Jónsdóttir mynda saman Tríó Esju og leika á föstudagskvöldið franska tónlist frá upphafi tuttugustu aldar á tónleikum sem hafa yfirskriftina Speglar. Tónlistin sækir innblástur úr franskri ljóðlist og frumsamin ljóð Guðrúnar fléttast við tónlistina sem þær flytja. Meira um það í þætti dagsins.
    Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Friðsemd eftir Brynju Hjálmsdóttur.
    50 min
  • Æskuteikningar Alfreðs Flóka, Veður í Æðum og Þegar sannleikurinn sefur/rýni
    Ragnheiður Lárusdóttir steig fram á ritvöllinn 2020 með ljóðabókina 1900 og eitthvað og hlaut í kjölfarið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og tilnefningu til Maístjörnunnar. Þessi fyrsta ljóðabók hennar byggði á bernskuminningum að vestan, en sú næsta, Glerflísakliður, fjallaði meðal annars um veikindi móður Ragnheiðar og erfiðan skilnað. Í síðustu bók sinni, Kona/Spendýr sem kom út 2022 beindi hún sjónum sínum almennt að hlutverki kvenna, sem lifa í heimi hönnuðum af körlum. Í sinni nýjustu ljóðabók, Veður í æðum, er Ragnheiður einnig persónuleg og yrkir um þá lífsreynslu að missa dóttur sína í heim fíkninnar, en líka um fegurðina og lífið sem gengur sinn vanagang þrátt fyrir allt. Halla ræðir við Ragnheiði í þætti dagsins.
    Við fáum líka bókarýni frá Sölva Halldórssyni, sem að þessu sinni rýnir í nýútkomna glæpasögu Nönnu Rögnvaldsdóttur, Þegar sannleikurinn sefur.
    En við hefjum þáttinn á því að grúska aðeins í gömlum teikningum. Nú eru til sýnis og sölu í Gallerí Fold æskuteikningar Alfreðs Flóka sem flestar eru frá árunum 1948-1952. Teikningarnar varðveittust innan fjölskyldunnar og þar má sjá inn í hugarheim hins unga Flóka og þekkja kunnugleg stef sem birtust í listaverkum hans ferilinn allan. Framan af voru hugðarefnin dæmigerð fyrir 11 og 12 ára gamlan strák, löggur og bófar, indjánar og kúrekar, þjóðsögur og ævintýri, Charlie Chaplin og Mikki mús, táfýla og yfirburðir KR svo eitthvað sé nefnt. Mikill húmor er í mörgum teikningunum, en einnig ber á ádeilu. Við lítum við á Rauðarárstígnum og ræðum um sýninguna við sýningarstjórann, Iðunni Vignisdóttur.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    52 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners