Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Grátur steinanna, ástarbréf og List í ljósi
    Ástin mun svífa yfir vötnum í þætti dagsins. Á morgun er dagur heilags Valentínusar og af því tilefni hefur Kvennasögusafnið boðað Dag ástarbréfsins, í Landsbókasafninu á degi ástarinnar, í samstarfi við Ástarsögufélagið, Ástarrannsóknarfélagið og fleiri. Þar mun fara fram fjölbreytt dagskrá, þar sem meðal annars verða sýnd ástarbréf úr safnkosti og flutt örerindi um ástarbréf. Meðal þeirra sem flytja erindi er Guðrún Friðriksdóttir, þjóðfræðingur og meðlimur í ástarsögufélaginu og hún verður gestur okkar í dag. Segir okkur frá sínum hugmyndum um ástarbréf og les eitt slíkt fyrir okkur. Einnig munu Lóa Björk Björnsdóttir og Baldur Örlygsson. starfsmenn hér í Ríkisútvarpinu segja okkur sína skoðun á þessu fyrirbæri, ástarbréfinu.
    Það er ekki til rómantískari byrjun á febrúarmorgni í Reykjavík en að bjóða sér í heimsókn hjá ungu pari sem sérhæfir sig í flutningi á barokktónlist frá Ítalíu. "Sólveig er ástin mín, en svo kemur lútan", sagði lútuleikarinn Sergio Coto Blanco, sem undirbýr ásamt hörpuleikaranum Sólveigu Thoroddsen og sópransöngkonunni Ievu Sumeja tónleika sem þau flytja í Einarssafni á sunnudag og nefna Grátandi steinar. Við fáum útskýringu á nafngiftinni hér síðar, en á efnisskránni eru meðal annars sönglög eftir tvær stórmerkilegar konur, þær Barböru Strozzi og Fransescu Caccini, sem voru meðal mikilvægustu barokktónskálda á Ítalíu upp úr aldamótunum 1600.
    En við hefjum þáttinn á fréttum frá menningarvígi Austurlands, Seyðisfirði.
    Víðsjá sló á þráðinn til Sesselíu Hlínar Jónasardóttur, en hún var í mörg ár ein af hvatamanneskjunum á bak við Lunga, Listahátíð ungs fólks á Austfjörðum, en stendur líka að baki annari menningarveislu sem hefst á morgun og kallast List í ljósi.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    56 min
  • Kristófer Rodriques Svönuson / svipmynd
    Kristofer Rodríquez Svönuson, slagverksleikari og tónskáld, hefur vakið athygli fyrir þá Suður-Amerísku strauma sem hann hefur blásið í íslensku tónlistarsenuna, bæði sem trommari í félagi við aðra, en líka með sinni eigin hljómplötu, Primo, sem var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2020. Hann nam slagverksleik í FÍH og hélt svo í framhaldsnám til Kúbu og Kólumbíu. Á vesturströnd Kólumbíu lærði hann á conga trommu, sem þar er álitin heilög og mikilvægt tæki til að færa heiminum gleði, en hann lærði þar einnig nýtt viðhorf til tónlistarsköpunar. Eftir nám í tónlist lærði Kristófer hjúkrunarfræði, sem honum finnst vera nátengd tónlistinni.
    Kristófer er fæddur árið 1988 í Kópavogi og er hann sem stendur bæjarlistamaður Kópavogs. Og hann er gestur okkar í Svipmynd Víðsjár þessa vikuna.
    50 min
  • Hope Inga Bjarna Skúlasonar, Sally Mann og ritskoðun í Texas, Heim/rýni
    Hope nefnist nýútkomin plata píanóleikarans Inga Bjarna Skúlasonar en á henni leikur hann ný lög úr eigin smiðju ásamt Hilmari Jenssyni, Anders Jormin og Magnúsi Tryggvasyni Eliassen. Við ræðum við Inga Bjarna um plötuna í þætti dagsins og heyrum nokkur vel valin brot af henni.
    Trausti Ólafsson rýnir í Heim eftir Hrafnhildi Hagalín sem er sýnt um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu.
    Og við veltum fyrir okkur ritskoðun á verkum Sally Mann í Texas.
    51 min
  • Sally Mann, Skeljar og Kristín Þorvaldsdóttir, huldukona í íslenskri myndlist
    Á Listasafni Ísafjarðar stendur nú yfir merkileg myndlistarsýning. Um er að ræða sögusýningu, og að öllum líkindum fyrstu einkasýningu, myndlistarkonunnar Kristínar Þorvaldsdóttur. Kristín var fædd á Ísafirði árið 1870 og fór 12 ára gömul til Kaupmannahafnar í myndlistarnám. Hún lærði líka í Þýskalandi og hugði á framhaldsnám í Róm þegar hún var kölluð heim til að annast börn systur sinnar, sem hafði látist af barnsförum. Kristín var hæfileikarík og vel menntuð og hefði vel getað orðið fyrsta íslenska konan til þess að helga sig myndlist. En eftir þennan örlagaríka atburð hætti hún alfarið að mála og lokaði verk sín ofan í læstum skúffum. Hún er því sannkölluð huldukona í íslenskri myndlist, en þær Rannveig Jónsdóttir og Guðfinna Hreiðarsdóttir, á Listasafni Ísafjarðar, hafa nú haft upp á úrvali verka hennar og sett saman sýningu Kristínu til heiðurs.
    Nýverið voru fjórar ljósmyndir eftir Sally Mann teknar niður af veggjum nýlistasafnsins í bænum Forth Worth í Texas, og í síðustu viku var staðfest að ljósmyndirnar væru í haldi lögreglu. Yfirtaka lögreglunnar á listaverkunum kom i kjölfar mikillar gagnrýni íhaldsafla í bænum sem segja verkin vera barnaklám. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ljósmyndir Sally Mann vekja umtal og gagnrýni. Verk hennar vöktu heitar umræður þegar þær komu fyrst fyrir sjónir almennings og hafa gert það reglulega síðan. Mann er einn virtasti ljósmyndari Bandaríkjanna, hefur sýnt verk sín í öllum helstu söfnum landsins og miklu víðar, gefið út verðlaunaðar bækur og hlotið fjölda viðurkenninga. Viðfangsefni verka hennar eru fjölbreytt en, líkamar, umbreytingaferli og landslag eru rauður þráður í verkum hennar, sem og fagurfræði ljósmyndatækni síðustu og þar síðustu aldar. Og það vill svo skemmtilega til að verk hennar eru nú til sýnis á Listasafni Íslands, á samsýningunni Nánd hversdagsins þar sem fimm alþjóðlegir ljósmyndarar eiga verk. Við hittum Einar Fal Ingólfsson við verk Mann í þætti dagsins.
    Við heyrum einnig leikhúsrýni, að þessu sinni rýnir Katla Ársælsdóttir í Skeljar, nýtt íslenskt verk eftir Magnús Thorlacius sem sýnt er í Ásmundarsal.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Lífið- leiksýning, Brúðkaup Fígarós/rýni, Jelena Ciric/tónlistarpistill
    Í dag flytur tónlistarkonana Jelena Ciric sinn annan pistil um tónlistarmenn sem gáfu aðeins út eina hljómplötu á ferlinum en sem höfðu samt sem áður mikil áhrif á söguna. Pistill dagsins fjallar um þau Jeff Buckley og Sophie, en bæði létust langt fyrir aldur fram. Stjarna beggja skín enn skært, og stjarna Buckley sérstaklega síðustu daga því nýverið var frumsýnt heimildamynd um hann á Sundance kvikmyndahátíðinni sem hefur hlotið lofsamlega dóma.
    Trausti Ólafsson verður einnig með okkur í dag, að þessu sinni rýnir hann í uppfærslu Kammeróperunnar á Brúðkaupi Fígarós í Borgarleikhúsinu. Og við fjöllum einnig um leiksýningu sem hlýtur að vera ein sú langlífasta og víðförulasta sem íslenska sviðið hefur getið af sér.
    Leiksýningin Lífið, sem leikhúsið 10 fingur setti upp árið 2014 dansar á mörkum leikhúss og myndlistar þar sem leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson og Sólveig Guðmundsdóttir standa á sviðinu í mold og drullumalla Lífið fyrir áhorfendur. Leiksýningin hlaut tvenn grímuverðlaun árið 2015 sem barnasýning ársins og sproti ársins. Þó að það séu rúm tíu ár frá frumsýningu leiksýningarinnar þá lifir hún enn góðu lífi og hefur verið sýnd víða um heiminn. Við setjumst niður með þeim Sveini og Sólveigu og heyrum af þessu óvenjulega ferðalagi.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Stefán Máni - Svipmynd
    Margverðlaunaði metsöluhöfundurinn Stefán Máni er einhver afkastamesti rithöfundur landsins og heldur á næsta ári upp á 30 ára rithöfundaafmæli sitt með fleiri en 30 bækur útgefnar. Hann er fæddur í Reykjavík en ólst upp í Ólafsvík og bjó þar fram yfir tvítugt. Stefán Máni hefur gefið út skáldsögur frá árinu 1996 en sló í gegn með glæpasögunni Svartur á leik árið 2004, sem kvikmynduð var nokkrum árum síðar. Söguna vann hann upp úr úrklippusafni sem hann hafði byggt upp frá því að hann var barn, úrklippum um glæpi, mannshvörf og fleiri skyld áhugamál. Hann segist hafa verið algjör introvert, og að á þeim tíma hafi upplestur á eigin verkum verið algjört kvalræði í hans huga. En hann neyddist til að vinna sig út úr sjálfsefanum því allt í einu var komin eftirspurn eftir því sem hann var að gera.
    Nokkru síðar kynnti Stefán Máni lögreglumanninn Hörð Grímsson fyrir lesendum sínum, og síðan hafa komið út 12 bækur um Hörð, sem er einhver vinsælasta sögupersóna íslenskrar bókmenntasögu. Stefán Máni hefur hlotið Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, fjórum sinnum, nú síðast fyrir skáldsöguna Dauðinn einn var vitni, en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í síðustu viku.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Snorri Sigfús Birgisson, Pull í Rýmd, Duna/rýni
    Snorri Sigfús Birgisson verður einn af gestum Víðsjár í dag. Við ræðum verkið Fantasy and Clockwork sem Snorri Sigfús samdi og tileinkaði vini sínum, Hreini Friðfinnssyni myndlistarmanni. Hreinn varð áttræður í febrúar 2023 og skipulögðu vinir hans óvænta veislu af því tilefni, þar sem Snorri Sigfús frumflutti verkið. Við heyrum af veislunni, tilurð verksins og innblæstri, en þeir Snorri Sigfús og Hreinn kynntust á námsárunum í Amsterdam.
    Við heyrum einnig rýni Soffíu Auðar Birgisdóttur í Dunu, sögu af kvikmyndagerðakonu, eftir þær Kristínu Svövu Tómasdóttur og Guðrúnu Elsu Bragadóttur, og við hittum Völu Sigþrúðar Jónsdóttur á sýningu hennar Pull, í sýningarsalnum Rýmd í Breiðholti.
    53 min
  • Víkingur fær Grammy, Hliðarspor, Strá fyrir straumi / rýni, Árið án sumars / rýni
    Við hefjum þáttinn á því að hringja í nýbakaðan Grammy-verðlaunahafa, Víking Heiðar Ólafsson.
    Þær Kristín Sveinsdóttir söngkona og Þórunn Guðmundsdóttir verða einnig gestir okkar í dag. Kristín syngur í Hliðarspori, nýrri óperu Þórunnar sem fruflutt verður á fimmtudag, og í Brúðkaupi Fígarós, sem Kammeróperan sýnir nú í Borgarleikhúsinu. Báðar óperurnar, og reyndar Rakarinn í Sevilla sem Óður sýnir í Sjálfstæðishúsinu, eru byggðar á leikritum sama leikskálds og fjalla að miklu leyti um sömu persónurnar, en þó á ólíkum tímum. Við ræðum þessa óperuveislu í þætti dagsins.
    Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Strá fyrir straumi, bók Erlu Huldar Halldórsdóttur um ævi Sigríðar Pálsdóttur.
    Trausti Ólafsson rýnir í Árið án sumars, sem Marmarabörnin frumsýndu í Borgarleikhúsinu um helgina.
    53 min
  • Veðurskeytin, Jinn andar, Ifigenía í Ásbrú/rýni, Myrkir músíkdagar/rýni
    Veðurskeytin er leikin heimildarmynd sem verður frumsýnd í Rotterdam um helgina. Myndin fjallar um tímamót í lífi ástríðufulls fræðimanns, en Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í miðaldafræðum frá Cambridge-háskóla, þarf að endurskoða líf sitt þegar hann er greindur með geðhvörf. Bergur Bernburg leikstýrir og skrifar einnig handritið ásamt Jóni Atla Jónassyni, en þeir eru æskuvinir Marteins Helga. Jón Atli verður gestur okkar í dag.
    Annað kvöld býður Lífspekifélagið upp á fyrirlestur um yfirnáttúrulega anda í íslamskri trú og menningu. Fyrirlesturinn flytur Kristján Þór Sigurðsson, doktor í mannfræði, sem hefur sérhæft sig í íslamskri menningu. Hann kom í hljóðstofu í morgun og gaf okkur smá innsýn inn í tilvist þessara ósýnilegu eld-anda, sem kallaðir eru Jinn.
    Trausti Ólafsson rýnir í Ifígeníu í Ásbrú og Halldór Hauksson rýnir í upphafstónleika Myrkra músíkdaga.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners