Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Úthverfa, Sólon í Slunkaríki, Innkaupapokinn
    Síðastliðinn föstudag opnaði ný sýning í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Þetta er samsýning fjögurra listamanna, þeirra Önnu Hrundar Másdóttur, Eyglóar Harðardóttur, Ingibjargar Sigurjónsdóttur og Katrínar Agnesar Klar. Sýningin kallast í Í lit, sýningarstjóri er Ingólfur Arnarsson, en hann var einmitt fyrsti listamaðurinn til að sýna í Úthverfu, sem áður hét Slunkaríki, fyrir akkúrat 40 árum síðan. Við hringjum á Ísafjörð og ræðum við Elísabetu Gunnarsdóttir, sem rekur Úthverfu ásamt fleirum.
    Við grúskum auk þess í safni Ríkisútvarpsins eftir áhugaverðum sögum af Sóloni Guðmundssyni og Katla Ársælsdóttir rýnir í Innkaupapokann í uppsetningu Kriðpleirs í Borgarleikhúsinu.
    58 min
  • Karnival hefðin, Ólga, Birnir Jón Sigurðsson: Örvæntingarpistill
    Ólga er samsýning sem fjallar um hlutverk kvenna í mótun íslenskrar listasenu á níunda áratugnum. Önnur bylgja femínisma hafið skollið með látum á vestrænan heim áratuginn á undan með tilheyrandi umbreytingum og auknum sýnileika kvenna á öllum sviðum þjóðfélagsins, líka í myndlistinni. Við ræðum við sýningarstjórann Becky Forsythe í þætti dagsins.
    Einnig verður rætt við Gunnellu Þorgeirsdóttur um karnivalískar hefðir og Birnir Jón Sigurðsson stígur á stokk með sinn fyrsta pistil í örvæntingarpistlaröð. „Ef menningin á öðrum áratug þessarar aldar var Obama, #metoo, Angela Merkel, veganismi, Gréta Thunberg, réttlætisriddarar og parísarsáttmálinn, þá er menningin nú á þriðja áratugnum kjötát, incels, trad wives, ræktin og fasismi,“ segir Birnir meðal annars í pistli dagsins.
    52 min
  • Bækur og brjáluð fræði, tónlistarpistill Jelenu Ciric og Stífluhringurinn
    Þegar vísindasagnfræðingurinn og rithöfundurinn Steindór J Erlingsson hlustaði á nýja hljómplötu Inga Bjarna Skúlasonar fylltist hann skyndilega fítonskrafti og lagði í að lesa óhreyft ljóðahandrit sem hann hafði skrifað á myrkum tíma í lífi sínu. Steindór er meðal fjögurra fyrirlesara á málþingi undir yfirskriftinni Bækur og brjáluð fræði, sem fer fram í Norræna húsinu á laugardag. Gunnhildur Una Jónsdóttir, meistaranemi í fötlunarfræði er ein þeirra sem halda utan um málþingið, en hún vinnur að rannsóknum á sviði svokallaðra brjálaðra fræða, fræðasviðs sem er í mótun og fjallar um sögu, menningu, pólitík og baráttumál þeirra sem glíma við andlegar áskoranir. Við tökum á móti þeim Gunnhildi og Steindóri hér rétt á eftir og heyrum nánar af þessu nýja fræðasviði, málþinginu og skrifunum.
    Í lok þáttar fáum við líka innsýn inn í líf tveggja tónlistarkvenna sem áttu það sömuleiðis sameiginlegt að glíma við ytri og innri mótstöðu. Tilfinninganæmið gerði tónlistarkonurnar Mary Margaret O'Hara og Lauryn Hill berskjaldaðar fyrir hörku tónlistarbransans, sem mögulega varð til þess að tónlistarferill þeirra varð ekki langur. Í síðasta pistli sínum af fjórum fjallar Jelena Ciric um þær Hill og O´Hara, sem eiga það sameiginlegt að hafa aðeins gefið út eina plötu.
    Og um miðbik þáttar rifjum við upp umfjöllun um allt annars konar hljómplötu. Sú er glæný og tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna í ár. Halla Harðardóttir hitti tónskáldið Guðmund Stein Gunnarsson síðasta haust og ræddi við hann um geislaplötuna Stífluhringurinn, og við rifjum upp þá umfjöllun í þætti dagsins.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir og Halla Harðardóttir
    56 min
  • Þórunn Elísabet Sveinsdóttir / Svipmynd
    „Ég lærði dáldið mikið seint, að ef maður er hræddur við eitthvað, þá á maður að gera það. En ég var hrædd lengi,“ segir Þórunn Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, myndlistarkona og margverðlaunaður búninga- og sviðsmyndahönnuður. Þórunn Elísabet er fædd árið 1952 á Siglufirði. Hún stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og árið 1982 hélt hún sína fyrstu einkasýningu í Nýlistasafninu í Reykjavík. Allar götur síðan hefur hún unnið að myndlist meðfram því að hanna búninga og sviðsmyndir fyrir leikhús og kvikmyndir. Þórunn hefur haldið einkasýningar og tekið þátt fjölda samsýninga en um þessar mundir sýnir hún á Listasafninu á Akureyri, verk þar sem 100 slæður blökta og gefa frá sér ólíka ilmi. Í verkum sínum vinnur Þórunn Elísabet með efniskennd hlutanna, söguna, endurvinnslu, handverkið, dagdrauma og ekki síst alltumlykjandi kvennaarfinn. Heimili Þórunnar Elísabetar er eins og eitt stórt listaverk og þar tekur hún á móti Víðsjá í Svipmynd vikunnar.
    54 min
  • Misskilningur í skipulagsmálum, Hjálparsagnir hjartans, uppáhaldstónverk Egils Arnarssonar
    Við komum við í Kling og bang úti á Granda og hittum þar listamanninn Sólbjörtu Veru Ómarsdóttir og ræðum við hana um sína fyrstu einkasýningu sem opnuð var þar í rýminu um síðustu helgi og nefnist Misskilningur í skipulagsmálum. En í verkunum skoðar hún hversdagslega hluti sem til eru innan veggja flestra heimila út frá tengslum okkar við þá en leitast einnig við að mæta hlutunum á þeirra eigin forsendum.
    Gauti Kristmannsson rýnir í Hjálparsagnir hjartans eftir Pjéter Ezterházy í þýðingu Jónu Dóru Óskarsdóttur, og Egill Arnarsson segir frá sínu uppáhaldstónverki.
    51 min
  • Fyrirgef mér námslánin mín, Glerþræðirnir og Sun Ra
    Fyrirgef mér námslánin mín kallast sýning Unu Gunnarsdóttur í gallerí Fyrirbæri við Ægisgötu. Þetta er yfirlitssýning verka sem Una hefur unnið eftir útskrift úr námi í Danmörku fyrir tæpum áratug, en hún lærði myndlist í Det Kongelige Danske Kunstakademi með áherslu á listmálun og heimspeki. Titill sýningarinnar vísar í námslánatímabilið. Tímabil mikillar jafnvægislistar milli náms, vinnu og barneigna. Marvaðatímabilið sem steypir okkur í skuldir. Una er á því að slíku skuldafeni fylgi einhverskonar hnignun. Hegðunin verði meira dekedent og minna pragmatísk. Siðferðisþröskuldurinn og virðingin gagnvart afborgunum verði lægri og ásókn í lúxus meiri.
    Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Glerþræðina, etnógrafísk brot, eftir Magnús Sigurðsson. Og undir lok þáttar hugum við að bandaríska djasstónlistarmanninum Sun Ra og leggjum við hlustir á nýútkomna plötu stórsveitar hans, Lights on a Satellite.
    51 min
  • Brotin kona e. Simone de Beauvoir, Negla í Salnum
    Smásagnasafnið Brotin kona eftir femíníska tilvistarspekinginn Simone de Beauvoir kom út árið 1967 og var hennar síðasta skáldverk. Þar er að finna þrjár sögur sem endurspegla á ólíkan hátt togstreytuna á milli sjálfsmyndar kvenna og hefðbundinna kynhlutverka. Bókin kom út þýðingu Jórunnar Tómasdóttur í haust, Ásdís Rósa Magnúsdóttir ritstýrði og Irma Erlingsdóttir, ritaði innganginn. Við ræðum við Irmu í þætti dagsins.
    Einnig verður rætt við Hrafnhildi Mörtu Guðmundsdóttur, sellóleikara og Sólveigu Sigþórsdóttur, fiðluleikara, meðlimi í píanókvartettinum Neglu. Negla leikur í Salnum á sunnudag og þar mun meðal annars tenórsöngvarinn James Joyce koma við sögu.
    52 min
  • Svipmynd af vinnustofu í Varanasi
    Síðustu ár hefur hópur íslenskra listamanna heimsótt Varanasi á Indlandi og dvalið þar á vinnustofum Kriti gallerísins, sótt sér næringu og innblástur. Afrakstur dvalarinnar má sjá á sýningu sem nú stendur yfir í Listasafni Árnesinga og hefur yfirskriftina Meðal guða og manna. Um sýningarstjórn sér Pari Stave, en hópurinn telur sex mótaða og margreynda íslenska listamenn, þau Margréti H. Blöndal, Guðjón Ketilsson, Eygló Harðardóttur, Sólveigu Aðalsteinsdóttur, Sigurð Árna Sigurðsson og Einar Fal Ingólfsson, sem er forsprakkinn að þessu viðamikla verkefni.
    Það finnast varla ólíkari lönd og menningarheimar en Ísland og Indland og íslensku listamennirnir sem héldu til Varanasi fetuðu í fótspor margra annarra listamanna og hugsuða sem hafa farið þangað í leit að áhrifum og upplifunum. Varanasi er borg öfga, lita og fjölskrúðugs mannlífs, þar sem dauðinn er alltaf nálægur við hið helga Gangesfljót. Við heyrum af upplifunum listamannnanna sex, ásamt stofnanda gallerísins og vinnustofunnar, Navneet Raman. Svipmynd dagsins er af vinnustofu í Varanasi.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Heimildamynd Yrsu Roca Fannberg um Grund, Natasha S. um rússneskar bókabúðir
    Kvikmyndagerðakonan Yrsa Roca Fannberg hefur starfað á hjúkrunarheimilinu Grund undanfarin 16 ár meðfram því að búa til heimildamyndir og kenna skapandi heimildamyndagerð í Háskóla Íslands. Árið 2014 frumsýndi hún Salóme en hún fjallaði um móður Yrsu og samband þeirra mæðgna en líka um samband kvikmyndagerðamanns við viðfangsefni sitt. Árið 2019 kom Síðasta haustið, mynd um síðasta haust ábúenda á afskekktum sauðfjárbæ á Ströndum. Og innan skamms frumsýnir hún sína þriðju mynd, Jörðin undir fótum okkar, en hún fjallar um lífið á Grund, sem Yrsa hefur skrásett með sínum hætti undanfarin 3 ár. Við ræðum við Yrsu í þætti dagsins, og einnig Skúla Jónasson, einn af heimilismönnum Grundar sem koma fyrir í myndinni.
    Þar að auki verður Natasha S. gestur okkar og segir frá rússneskum bókabúðum og samtímabókmenntum.
    54 min
  • Stara í Gerðarsafni, Dietrich/rýni og tónlistarpistill Jelenu Ciric
    Um miðjan janúar var Ljósmyndahátíð Reykjavíkur haldin hátíðleg á höfuðborgarsvæðinu. Meðal sýninga sem þá opnaði, og stendur enn, er samsýning í Gerðarsafni sem ber yfirskriftina Stara. Sýningin er með verkum 8 listamanna, og þar af fimm ljósmyndara, sem mynda sjálft sig og fólkið nærri sér, í tilraun til að skilja eigið sjálf. Þau velta fyrir sér stöðu sinni í samfélaginu og hvernig flokkar og hlutverk sem við höfum skapað, eins og kyngervi og sambönd, marka tilveruna. Um sýningarstjórn sjá þær Brynja Sveinsdóttir og Hallgerður Hallgrímsdóttir og við hittum þær í síðari hluta þáttar, ásamt listakvárinu Sadie Cook, sem á tvö verk á sýningunni.
    Trausti Ólafsson fjallar um Dietrich, glænýja leiksýningu sem frumsýnd var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll fyrir helgi. Höfundur og söngkona sýningarinnar er Sigríður Ásta Olgeirsdóttir en með henni leikur Jóhann Axel Ingólfsson.
    Jelena Ciric kynnir fyrir okkur tónlistarfólk sem var talsvert minna fyrir sviðsljósið. Í þriðja tónlistarpistli sínum fjallar hún um fágætar upptökur tónlistarkonunnar Elisabeth Eton Converse og tónlistarmannsins og eðlisfræðingsins Eysteins Péturssonar.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
    54 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners