Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Júlíönuhátíð, Dvelur í Grasagarði, Níels er Napóleon / rýni
    Hugmyndin að Júlíönu - hátíð sögu og bóka kom til Grétu Sig Bjargardóttur snemma morguns þegar hún var að undirbúa morgunmat á Hótel Egilssen í Stykkishólmi. Gréta heldur að þar hafi Júlíana sjálf verið að verki, og segir að hugmyndin hafi sprottið fram fullsköpuð.Gréta segir okkur nánar af skáldinu Júlíönu og hátíðinni Júlíönu í þætti dagsins.
    VIð kynnum okkur einnig myndlistarsýningu meistaranema í LHÍ í Grasagarðinum og ræðum við sýningarstjórana, sem eru meistaranemar í listfræði við Háskóla Íslands.
    Trausti Ólafsson rýnir í leikverkið Níels er Napóleon sem sýnt er í Hannesarholti.
    54 min
  • Svipmynd af tónlistarnema í Georgíu: Ólína Ákadóttir
    Píanóleikarinn Ólína Ákadóttir segist vera bæði forvitin og hvatvís. Þeir dýrmætu eiginleikar urðu til þess að hún ákvað að fara til Georgíu í skiptinám og dvelja þar í eitt ár, en hún stundar annars framhaldsnám í píanóleik við tónlistarháskólann í Osló. Georgía er um margt ólík Noregi, og Íslandi, og áherslurnar í tónlistarnáminu sömuleiðis. Víðsjá skoraði á Ólínu að mæta í stúdíó 12 og segja hlustendum ferðasöguna í tali og tónum. Hún rúllaði því verkefni upp með glans og afraksturinn er þáttur dagsins; svipmynd af tónlistarnema í Georgíu.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Garg bókabúð, Eiríkur Örn Fimm ljóð, Stormur/rýni
    Það er ekki á hverjum degi sem nýjar bókaverslanir opna dyr sínar hér á landi. En það gerðist í síðustu viku í Vesturbæ Reykjavikur. Bókabúðin kallast Garg og á bak við hana stendur bókahönnuðurinn Helga Dögg Ólafsdóttir sem dreymir um að búðin verði félagsmiðstöð bókanörda. Við lítum inn í Garg í þætti dagsins.
    Eiríkur Örn Norðdahl sendi nýverið frá sér nýja ljóðabók sem ber titilinn Fimm ljóð. Bókin er nokkuð frumleg smíð, ljóð Eiríks hafa nýlegan blæ og koma fram í meitluðum og fáguðum klæðum. Meira um það undir lok þáttar.
    Og Katla Ársælsdóttir rýnir í Storm, nýtt íslenskt leikverk eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og Unu Torfadóttur.
    52 min
  • Innkaupapokinn, kynbundið ofbeldi í þjóðsögum og örvæntingarpistill #3
    Innkaupapokinn eftir leikhópinn Kriðpleir og Elísabetu Jökulsdóttur, sem nú er í sýningu í Borgarleikhúsinu, byggir á 30 ára gömlu verki Elísabetar, Mundu töfrana. Verkið hefur fylgt Elísabetu í meira en þrjá áratugi og líka skotið rótum í öðrum verkum hennar. Hún reyndi að koma verkinu á fjalirnar en fékk oftast þau svör að það væri of ljóðrænt og vantaði allan strúktúr. En nú hefur leikhópnum Kriðpleir tekist að móta um það strúktúr og afraksturinn er Innkaupapokinn. Við ræðum við tvo meðlimi Kriðpleirs í þætti dagsins, þau Ragnar Ísleif Bragason og Ragnheiði Maísól Sturludóttur.
    Við fáum líka til okkar í hljóðstofu þjóðfræðinginn Dagrúnu Ósk Jónsdóttur, sem hefur rannsakað birtingarmyndir kynbundins ofbeldis í íslenskum þjóðsögum og
    Birnir Jón Sigurðsson flytur sinn þriðja pistil sinn í örvæntingarpistlaröðinni Hvað varð um gæskuna? Pistill dagsins er tileinkaður stjórn, glundroða og mönnum sem reyna bókstaflega að sigrast á dauðanum.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    53 min
  • Tónlist og sjálfstæðisbarátta Grænlands, Þetta er Laddi/rýni
    Fyrir ofan Nuuk stendur stytta af trúboðanum Hanse Egede, en koma hans til Vestur-Grænlands árið 1721 markar upphaf nýlendutímans í sögu landsins. Styttan hefur margsinnis verið skemmd, hausinn jafnvel fengið að fjúka og á hana krotað; DECOLONIZE. Við skoðum samvirkni grænlensku sjálfstæðisbaráttunnar og tónlistarsögu landsins í þætti dagsins.
    Nína Hjálmarsdóttir rýnir líka í leiksýninguna Þetta er Laddi, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi, og Halla leitar að meðmælum fyrir menningarefni hjá starfsfólki verslana í Kringlunni.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    52 min
  • Drífa Viðar / Svipmynd
    Í Víðsjá dagsins kynnum við okkur myndlistarkonuna, rithöfundinn og gagnrýnandann Drífu Viðar. Drífa fæddist í Reykjavík árið 1920 og ólst upp ásamt stóru systur sinni Jórunni Viðar hjá móður sinni, Katrínu Viðar píanókennara.
    Eftir menntaskóla sótti hún tíma í myndlist og norrænum fræðum áður en hún sigldi til Bandaríkjanna árið 1938. Hún lærði myndlist í New York á sama tíma og Nína Tryggvadóttir og Louisa Matthíasdóttir og hélt svo til Parísar í frekara nám 1946. Eftir Parísardvölina giftist hún og flutti með eiginmanni sínum Skúla Thoroddsen til Svíðþjóðar. Þau áttu saman fjögur börn. Þegar Drífa lést vorið 1971, aðeins fimmtíu og eins árs að aldri, lét hún eftir sig handrit að smásagnasafninu Dagar við vatnið sem kom út síðar um árið, auk fjölda málverka, teikninga og annara skrifa. Í bígerð er bók um ævi og störf listakonunnar Drífu Viðar og rætt verður við ritstjórana í þætti dagsins, þær Elísabetu Gunnarsdóttur, Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur og Auði Aðalsteinsdóttur, auk þess sem rifjað verður upp eldra efni úr safni Ríkisútvarpins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir
    53 min
  • Brím, Skartgripaskrín Ursulu Andkjær Olsen, Menningarnótt á Grænlandi
    Við kynnum okkur Brím, nýja íslenska óperu sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói á fimmtudagskvöldið. Höfundur tónlistarinnar, Friðrik Margrétar Guðmundsson og höfundur texta og leikstjóri verksins, Adolf Smári Unnarsson, segjast vilja takast á við samtímann og stóru spurningarnar í verkinu, en ódauðleg list, auðvald og nepótismi eru meðal viðfangsefna þess.
    Við ræðum einnig við Maó Alheimsdóttur og Hönnu Rós Sigurðardóttur um ferðalag þeirra til Grænlands og Gauti Kristmannsson fjallar um Skartgripaskrínið mitt eftir Ursulu Andkjær Olsen í þýðingu Brynju Hjálmsdóttur.
    54 min
  • Stefán Ragnar Höskuldsson, grænlenska rokksveitin Sumé og Örvæntingarpistill Birnis Jóns#2
    ,,Ég vissi að ég vildi verða flautuleikari um leið og ég prófaði fyrst að spila á flautu 8 ára gamall. Frá þeim tíma varð flautan það eina sem komst að í mínu lífi," segir flautuleikarinn Stefán Ragnar Höskuldsson. Hann hreppti fyrir helgi stöðu 1. flautuleikara við Berlínarfílharmóníuna, sem að margra mati er fremsta sinfóníuhljómsveit heims. Við hringjum til Chicago í upphafi þáttar og heyrum hljóðið í Stefáni Ragnari. 
    Sviðshöfundurinn Birnir Jón Sigurðsson flytur okkur í dag annan pistil sinn í Örvæntingarpistlaröðinni Hvað varð um gæskuna? og við rifjum líka upp stórmerkilega heimildamynd um goðsagnakenndu grænlensku hljómsveit Sumé.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    52 min
  • Darraðarljóð á 75 ára afmæli, 60 kílóa þríleikurinn, bókamarkaðurinn
    Í kvöld og annað kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 75 ára afmæli sitt með stapp-uppseldum tónleikum í Eldborg, þar sem öllu verður tjaldað til. Meðal verka á efnisskránni er 60 ára gamalt tónverk Jóns Leifs, Darraðarljóð. Verkið er skrifað fyrir nokkuð stóra hljómsveit og kór, er gífurlega krefjandi og hefur aldrei verið flutt áður. Víðsjá leit við á lokaæfingu í Hörpu í morgun og hitti þar framkvæmdastjóra SÍ, okkar góða Guðna Tómasson, Hildi Ploder Vigfúsdóttur, forvörð á Landsbókasafni og Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, til að forvitnast um verkið og tilefnið.
    Við lítum líka inn á bókamarkaðinn í Holtagörðum og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um sextíu kílóa þríleik Hallgríms Helgasonar.
    En Víðsjá hefst á tilnefningum til Myndlistarverðlaunanna fyrir árið 2024.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    56 min
  • Svipmynd af Hennar rödd
    Hennar rödd eru félagasamtök stofnuð af þeim Chanel Björk Sturludóttir og Elínborgu Kolbeinsdóttur með það að markmiði að vekja athygli á stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Innblástur verkefnisins kom frá Letetia B. Jonsson, móður Chanel, en hún er af jamaískum og breskum uppruna og bjó hér á landi fyrir um það bil 10 árum síðan og tók virkan þátt í samfélagi kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og vildi miðla sögum þeirra. Samtökin Hennar rödd hafa frá árinu 2018 staðið fyrir pallborðsumræðum og ráðstefnum þar sem mál erlendra kvenna á íslandi eru í brennidepli en í ár, í samstarfi við Elinóru Guðmundsdóttur hjá bókaútgafunni Vía, gefa þær út veglega bók þar sem raktar eru sögur rúmlega þrjátíu kvenna af erlendum uppruna sem búa hér á landi.
    Í þættinum segja þær Elínborg og Elinóra frá bókinni; Hennar rödd: sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. En þar á eftir rekja tvær konur sem koma fyrir í verkinu sínar sögur, þær Marvi og Jóhanna.
    56 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners